Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Qupperneq 28
„Helsti vandi okkar og áhyggjuefni er
landbrotið. Við teljum að gerð varnar-
garðs milli sjávar og byggðar þoli ekki
öllu lengri bið,“ segir Sveinn Pálsson,
sveitarstjóri í Mýrdalshrepps, í samtali
við DV.
Sveinn sendi Kristjáni Möller sam-
gönguráðherra bréf í lok sepember
vegna málsins þar sem ástandið er
rakið. Þar segir að fáum hafi komið til
hugar að þróunin gæti orðið sú sem
raunin er. Barnaskóli hafi verið byggð-
ur í 500 metra fjarlægð frá frá fjöru-
borði árið 1970 og íþróttavöllur fáum
árum síðar í 300 metra fjarlægð frá
fjöruborði.
Ráðherra er því næst gerð grein fyr-
ir því að í illviðrum eftir 1990 hafi mjög
brotið af landinu og allt að 30 metra
landræma hafi tapast árlega.
Aðeins eru nú um 240 metrar frá
skólamannvirkjum til sjávar og um
110 metrar frá íþróttavelli til sjávar.
Fjörukamburinn, sem aldan og brim-
ið lemur á, er nú aðeins í 180 metra
fjarlægð frá skólamannvirkjunum
og aðeins í um 50 metra fjarlægð frá
íþróttavellinum.
Yfirvofandi hættuástand
„Nú er svo komið að mannvirki geta
verið í beinni hættu á komandi vetri
og því algerlega nauðsynlegt að hefja
framkvæmdir við sjóvarnir strax í
byrjun næsta árs,“ segir í brefinu.
Ennfremur segir að Mýrdælir hafi
sýnt einstakt langlundargerð meðan
40 hektarar lands hafi horfið í hafið
fyrir framan þorpið. Þeir hafi treyst
því að áætlanir ríkisins um sjóvarnir
og kostnað þar að lútandi stæðust og
þorpið yrði varið áður en bein hætta
steðjaði að.
„Sveitarstjórn Mýrdalshrepps
krefst þess að sjóvörn við Vík verði
sett í forgang við ákvörðun fjármagns
til framkvæmda ársins 2010 enda
varðar málið öryggi íbúanna,“ segir í
niðurlagi bréfsins.
EkkErt framlag Enn
til varnargarða
Sveinn segir að ástandið hafi nú legið
fyrir í 15 ár. Árið 1994 hafi verið dregin
varnarlína þar sem verja skyldi landið
með hefðbundnum grjótgarði. Kostn-
aður við fyrsta hlutann er áætlaður
240 milljónir króna og það er tals-
verð fjárhæð. „Framkvæmdin er ekki
inni á fjárlögum og rúmast ekki inn-
an hefðbundinna fjárveitinga Sigl-
ingastofnunar til sjóvarna. Því yrði að
hækka fjárveitingar til sjóvarna sem
þessu nemur árið 2010.“
Heimamenn áætla að gerð nýs
íþróttavallar kosti 150 milljónir króna
en einnig eru fráveitumannvirki talin
í yfirvofandi hættu.
Ógnir Elda og hafs
Óhætt er að segja að Mýrdælir í Vík
séu umluktir ógnandi náttúruöflum.
Skammt undan er hafið sem hakk-
að hefur í sig 40 hektara lands undan
byggðinni á 40 árum. Ofan byggðar-
innar trónir Mýrdalsjökull og Katla,
sem ekki hefur bært á sér áratugum
saman.
„Katla hefur hægt um sig og dreg-
ur frekar úr virkni ef eitthvað er,“ segir
Sveinn sveitarstjóri. „Það var landris í
Goðabungu í vestanverðri Kötluskál-
inni. Úr þessu risi hefur dregið og
jafnvel er um hjöðnun að ræða. Fyr-
ir 10 árum varð hlaup í Jökulsá á Sól-
heimasandi. Sumir telja að það megi
rekja til eldvirkni undir jökli en aðrir
setja þetta ekki endilega í samband
við neitt slíkt. Þetta er vaktað með
kerfisbundnum hætti. Sameiginleg
almannavarnanefnd Vestur-Skafta-
fellssýslu og Rangárvallasýslu kem-
ur að þessu. Starfsemin hefur verið
samræmd og áætlanir allar varðandi
Kötluhlaup. Hefðbundinn farvegur
þess er um Mýrdalssand austan jök-
uls en hugsanlega gæti það farið nið-
ur Markarfljót. Almannavarnanefnd-
in er nú að gera samkomulag við
björgunarsveitirnar á svæðinu. Þetta
samkomulag verður kynnt fljótlega.
Það tryggir að sveitirnar samræmi að-
gerðir og vinni samhent.
Miðvikudagur 18. nóvember 200928 suðurland
„Nú er svo komið að mannvirki geta verið í beinni
hættu á komandi vetri og því algerlega nauðsyn-
legt að hefja framkvæmdir við sjóvarnir strax í
byrjun næsta árs.“
Landbrotið er slíkt við Vík í Mýrdal að nú eru einungis 200 metrar frá strönd að íþrótta- og skólamannvirkjum
staðarins. Árið 1971var hálfur kílómetri að hafinu. Heimamenn telja að nú geti mannvirkin verið í beinni
hættu geri aftakaveður og því algerlega nauðsynlegt að hefjast handa við gerð varnargarða eftir áramót.
mannvirkií beinni hættu
Reynisdrangar Þótt ferðamönnum þyki tilkomumikið að ganga fjöruna við Vík í
Mýrdal sjá þeir sjaldnast hafið í sínum versta ham. Nú sýnist heimamönnum sem bein
hætta steðji að mannvirkjum.
Sveitarstjórinn „Framkvæmdin er ekki inni á fjárlögum og rúmast ekki innan hefð-
bundinna fjárveitinga Siglingastofnunar til sjóvarna. Því yrði að hækka fjárveitingar til
sjóvarna sem þessu nemur árið 2010,“ segir Sveinn Pálsson.
Mýrdalsjökull Skjálftavirkni í Mýrdalsjökli er vöktuð
og almannavarnir eru þrautæfðar vegna hugsanlegs
eldgoss í Kötlu og hamfarahlaups til sjávar.
Loftmynd af Vík Línur, sem dregnar eru utan strandarinnar, sýna hversu mikið hefur
tapast af landi síðan 1971. Glöggt má sjá hversu mjög hafið hefur brotið land í átt að
skólamannvirkjunum.
Hlustaðu á okkur á netinu: www.963.is
Sendu okkur línu á 963@963.is eða í síma 4 800 963
Ný vetrardagskrá
á Suðurland FM 96,3
Partývaktin - öll laugardagskvöld
frá kl. 21 - 01
með Daníel Hauk.
Úrvalið - öll þriðjudagskvöld
frá kl. 20 - 22 með Davíð Sig.
Sígildir sunnudagar - alla Sunnudaga
frá kl. 9 - 11 með Davíð Sig.
Á hvað hlustar þú...