Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Qupperneq 29
suðurland Miðvikudagur 18. nóvember 2009 29
Bifhjólasamtök Suðurlands, Postul-
arnir, hafa aðsetur í gömlum leikskóla
á Selfossi. Þar eru leikskólareglurnar
hafðar að leiðarljósi og segir formað-
ur klúbbsins, Guðmundur Kr. Jóns-
son, að klúbbfélagar taki þar meðal
annars hvíldarstund og leggi sig eft-
ir hádegi. „Leikföngin voru fjarlægð
en ég segi við mína menn að leggja
sig alltaf milli tvö og þrjú á daginn því
hér gilda leikskólareglurnar áfram,“
segir Guðmundur.
Skráðir Postular eru nærri tvö
hundruð talsins en klúbburinn var
stofnaður í apríl árið 2000. Á næsta
ári heldur hann því upp á tíu ára af-
mæli sitt og þá stefna félagarnir að því
að halda veglega upp á afmælið. „Við
ætlum að gera eitthvað stórt næsta
vor. Þetta er frábær félagsskapur og
við hittumst reglulega og skemmtum
okkur saman. Við reynum alltaf að
hegða okkur eins og menn.
Mér finnst alveg meiriháttar gam-
an að svona félagskap, bæði er gam-
an að hjóla saman og síðan eru svo
skemmtilega ólíkir félagar í klúbb-
num. Það er mjög sérstök tilfinn-
ing að þeysa um á mótorhjóli en við
finnum misjafnan anda ökumanna
í okkar garð. Þess vegna þurfum við
hjólamenn að passa okkur vel í um-
ferðinni.
Gefa af sér
Postularnir leggja sig fram um að gefa
af sér til samfélagins. Þannig hefur
hópurinn skemmt börnum 17. júní,
farið í árlega heimsókn að Sólheim-
um í Grímsnesi og leyft heimilisfólki
þar að sitja á mótorhjólunum, gef-
ið fátækum jólagjafir og safnað fyrir
tækjum á heilsugæsluna. „Við höfum
reglulega ráðstafað pening í jólagjaf-
ir handa íslenskum börnum, í sam-
ráði við Selfosskirkju. Þaðan höfum
við fengið lista yfir börn sem þurfa á
glaðningi að halda og við höfum síð-
an pakkað inn jólagjöfum til þeirra
og keyrt út,“ segir Guðmundur.
Yfir vetrartímann hittast Post-
ularnir einu sinni í mánuði, fyrsta
þriðjudag mánaðarins, og á sumrin
er hist vikulega. Postularnir hafa lagt
í reglulegar helgarferðir og iðulega
er ein stór ferð að sumarlagi þar sem
félagar fjölmenna. „Við erum nýbú-
in að taka inn fullt af nýjum félög-
um. Umhverfið hér í kring er fínt fyr-
ir hjólamenn en við höfum auðvitað
verið í vandræðum með aðstöðuna.
Ég held að andinn gagnvart klúbb-
num sé mjög jákvæður enda reynum
við að hegða okkur vel. Við hjólafólk
í klúbbnum skerum okkur aðeins úr
að því leyti að við erum í leðrinu,“
segir Guðmundur.
HuGsaði siG lenGi um
„Þannig höfum við komið í leður-
gallanum færandi hendi og okkar
framtak hefur alls staðar vakið mikla
lukku. Við höfum líka gefið reglulega
pening til heilsugæslunnar á Selfossi
og þar hafa verið keypt tæki fyrir pen-
inginn frá okkur.“
Guðmundur er meðal elstu
Postulanna og viðurkennir að hafa
aldrei ætlað sér að gerast formað-
ur klúbbsins. Hann ekur um á kraft-
miklu Yamaha 1600 mótorhjóli og
segir frelsið sem því fylgir ólýsanlegt.
„Ég er afinn í hópnum og með elstu
meðlimum klúbbsins. Ég er nýbú-
inn að taka við sem formaður, ég er
bara gamall karl sem ætlaði sér að
leika sér á hjóli í rólegheitunum en
álpaðist svo fyrir tilviljun í formanns-
embættið. Það var ekki fyrr en fyrir
fjórum árum sem ég ákvað að taka
mótorhjólaprófið, þá eftir 30 ára um-
hugsunartíma,“ segir Guðmundur að
lokum.
trausti@dv.is
Skemmtilegir Postular halda til í gömlum leikskóla á Selfossi:
leðurtöffarar styrkja góð málefni
Postular Bifjólasamtök Suðurlands
halda upp á tíu ára afmælið á næsta ári.
Afi á hjóli Guðmundur tók mótorhjólaprófið fyrir fjórum árum eftir að hafa hugsað málið í þrjátíu ár.
Þriggja rétta máltíð á Fjöruborðinu, morgunverður
og gisting á glæsilegu gistiheimili Kvöldstjörnunnar.
Verð frá aðeins 9.700.-kr á mann.
Gefðu öðruvísi gjöf,
gefðu gjafakort á Kvöldstjörnuna.
Hringdu núna í síma 4831800 eða 8966307
og fáðu nánari upplýsingar.
Eða kíktu á www.kvoldstjarnan.com
Stokkseyri | Sími 483-1800 / 896-6307