Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Side 38
Miðvikudagur 18. nóvember 200938 suðurland
Erum flutt á efri hæðina
í sama húsi!
Úrval af leikföngum
Animaland, Hama perlur, Baby born, bratz,
bruder og margt fleira.
Langur fimmtudagur 19. nóv.
Opið til kl. 22:00
Fylltu á bangsann Taktu sjörnuna í lófann
og óskaðu þér
Veldu þinn bangsa Klæddu bangsann þinn Gefðu bangsanum
pínum nafn
5431 2
Austurvegi 21, Selfoss, S: 482 3201
Opið alla daga - Gott vErð!
20 % afsláttur
Austurvegi 21, Selfossi, S: 482 3211
Opið alla daga - Gott vErð!
www.blom.is
Fallegar gjafavörur og skreytingar
við öll tækifæri.
Langur fimmtudagur 19. nóv.
Opið til kl. 22:00
20 % afsláttur
„Við erum að gera upp gamalt hús á
Hvolsvelli. Hugmyndin er sú að þarna
verði vinnuaðstaða fyrir hvers kyns
listamenn,“ segir Barði Jóhannsson
tónlistarmaður. „Húsið er býsna gamalt
og ansi illa farið þannig að það fer tals-
verð vinna í að gera það tilbúið,“ heldur
hann áfram.
Barði segir hugmyndina vera þá að
listamenn af öllum gerðum, tónlistar-
menn, myndlistarmenn, rithöfundar og
aðrir, geti leigt húsið og haft þar nokk-
urs konar vinnubúðir. „Það er samt of
snemmt að segja til um það hvenær að-
staðan verður tilbúin til útleigu,“ seg-
ir hann. Hann hefur þegar fengið fyrir-
spurnir frá erlendum aðilum sem sýna
því áhuga að leigja húsið fljótlega á
næsta ári, um nokkurra mánaða skeið.
Um þessar mundir er Barði einnig að
gefa út plötu í samstarfi við Keren Ann,
sem hann hefur unnið með um nokk-
urt skeið undir nafninu Lady and Bird.
„Þetta er plata með upptökum sem við
gerðum í sumar með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands og kór. Þetta er önnur plat-
an sem við gerum saman. Áður höfum
við líka gert tónlist fyrir heimildamynd
um Andy Warhol auk þess sem við höf-
um gert auglýsingatónlist fyrir TGV í
Frakklandi.“ Það er útgáfufyrirtækið
EMI sem gefur plötuna út, sem þegar
hefur komið út á Íslandi, í Frakklandi
og Ísrael. „Fleiri lönd bætast svo í hóp-
inn eftir áramótin,“ segir Barði.
Þessu til viðbótar á Barði tónlistina
í verkinu Brennuvargar sem nú er sýnt
í Þjóðleikhúsinu. „Þetta er músík fyrir
kór á sviðinu auk þess sem selló, lág-
fiðla og rythmasveit hljóma af bandi.
Þetta er í rauninni létt stykki, en með
alvarlegum undirtón,“ segir Barði. Þetta
er í annað skiptið sem Barði gerir tónlist
fyrir leikhús.
Barði Jóhannsson tónlistarmaður kemur
sér fyrir á Hvolsvelli:
Gerir upp Gamalt
hús á Hvolsvelli
Barði Jóhannsson Barði gerir upp
hús á Hvolsvelli og hyggst breyta því
í vinnubúðir fyrir listamenn.