Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Side 49
Toppslagur að Hlíðarenda Toppliðin í N1 deild kvenna, Valur og Stjarnan, mæt-
ast í sannkölluðum risaslag í Vodafone-höll Valsmanna að Hlíðarenda á miðvikudagskvöldið.
Bæði lið hafa tólf stig í deildinni en Valskonur hafa leikið einum leik minna og eru því komnar
í góð mál hafi þær sigur á Íslands- og bikarmeisturum síðustu tveggja ára. Bæði lið koma inn í
leikinn á sigurbraut en Valur rúllaði yfir Fylki í síðustu umferð, 28-19, á meðan Stjarnan rótbur-
staði Hauka, 36-20. Valur er enn ósigraður í N1 deild kvenna en Stjarnan hefur ekki tapað
leik síðan í fyrstu umferð sem var einmitt gegn Val á heimavelli. Einn leikur fer fram til
viðbótar sama kvöld. Fylkir tekur á móti Fram í Árbænum. Báðir leikir hefjast klukkan
19.30.
UmSjóN: TómaS þór þórðarSoN, tomas@dv.is
sporT 18. nóvember 2009 miðvikudagur 49
Komið er að lokum undankeppni
heimsmeistaramótsins. Fjögur sæti
standa til boða fyrir Evrópuþjóðirnar
og átta lið eiga einn leik eftir. Það er
því allra síðasti séns á að tryggja sér
sæti á HM. Seinni leikirnir fara fram á
miðvikudagskvöldið þar sem Frakk-
ar taka á móti Írum en þeir leiða, 1-
0, eftir fyrri viðureignina á Croke Park
í Írlandi. Rússar fara í heimsókn til
Slóveníu og hafa 2-1 forystu. Portú-
galir halda til Bosníu og Hersegóvínu
með 1-0 forystu í rimmu þjóðanna og
þá mætast Úkraínumenn og Grikkir í
Kænugarði en liðin skildu jöfn, mar-
kalaus, í fyrri leiknum í Aþenu. Allt
sauð upp úr í leik Íra og Frakka en
mikil athygli hefur verið á þeim leikj-
um.
Írarnir vildu vandræði
Nicolas Anelka skoraði eina mark
leiksins þegar Frakkland lagði Írland,
1-0, í Írlandi í fyrri leik liðanna síðast-
liðinn laugardag. Eftir leikinn varð allt
vitlaust þegar Keith Andrews, miðju-
maður Blackburn og Írlands, og Real
Madrid-maðurinn Lassana Diarra
tókust harkalega á á miðjunni. Andr-
ews sagði eftir leikinn að Diarra hefði
sagt við hann óviðeigandi hlut. Ítalski
þjálfari Írlands, snillingurinn Giov-
anni Trappatoni, sagði að orð Diarra
hefðu verið móðgandi við írska þjóð.
Sjálfur talaði Diarra ekki um atvik-
ið fyrr en Frakkarnir voru komnir aftur
heim til Parísar. „Írarnir voru bara að
leita að vandræðum,“ segir hann. „Ég
veit ekki alveg hvað gerðist, þrátt fyrir
að þetta komi nú oft fyrir. Ef Andrews
vill vandræði mætumst við nú aftur
á miðvikudaginn,“ segir hann hroka-
fullur. Diarra vill þó meina að þetta sé
allt Íranum að kenna.
„Andrews steig á ökklann á mér
í seinni hálfleik en ég gerði ekkert
mál úr því. Þetta gerist oft í enda
leikja. Írarnir voru pirraðir, þeir voru
að tapa 1-0 og vildu bara vandræði.
Kannski vildu þeir bara að ég færi út
af með rautt spjald,“ segir Lassanna
Diarra..
Patrice Evra, leikmaður Manchest-
er United, bað liðsfélaga sinn á Eng-
landi um að róa mannskapinn þeg-
ar allt var komið í háaloft. „Ég sá ekki
hvað gerðist. Ég kom bara þegar þetta
var að verða búið og bað þá John
O’Shea um að róa sína menn niður.
Það þýðir ekkert að gera of mikið úr
þessu. Það verður nógu mikill hiti í
seinni leiknum,“ segir Evra.
Bosníumenn leita hefnda
Portúgalar voru ekkert minna en
stálheppnir að landa sigri á sprækum
Bosníu-mönnum í fyrri leik liðanna í
Lissabon. Bosnía-Hersegóvína var
það lið sem kom hvað mest á óvart
í undankeppninni og sýndi hvers
það er megnugt í fyrri leiknum gegn
Portúgal. Einu mistök liðsins í vörn-
inni urðu til þess að varnarmaðurinn
Bruno Alves skoraði eina mark leiks-
ins með skalla af stuttu færi en rest-
ina af færunum áttu Bosníu-menn.
Þeir skutu boltanum í þrígang í
tréverkið en færi þeirra á lokamínút-
um var ótrúlegt. Hinn magnaði fram-
herji Edin Dzeko, sem þykir einn
besti skallamaður heims í dag, skall-
aði þá boltann í slána af markteig
og ekki tókst félaga hans betur upp
sem fylgdi á eftir. Hann setti boltann
í markstöngina þó enginn væri til
varnar. Bosnía sýndi þó svo sannar-
lega að Portúgal mun þurfa að hafa
mikið fyrir hlutunum.
Von hjá Slóvenum
Þegar Diniyar Bilyaletdinov, leik-
maður Everton og Rússlands, kom
Rússum í 2-0 gegn Slóvenum virtist
öll nótt úti fyrir gestina. Mark Nejc
Pecnik í blálokin veitti þó Slóvenum
mikla von fyrir seinni leikinn. Þeir
þurfa ekki að vinna Rússa nema 1-
0 til að komast á HM sem yrði stór-
kostlegt fyrir þjóðina. Guus Hiddink,
hinn magnaði þjálfari Rússlands,
hefur þó eflaust eitthvað uppi í erm-
inni en hann hefur náð ótrúlegum
úrslitum með landslið sín.
Enn er markalaust í leik Grikkja
og Úkraínumanna eftir fyrri leikinn
en liðin mætast aftur í Kænugarði í
seinni leiknum. Grikkir gerðu það
sem þeir eru vanir og héldu hreinu
á heimavelli en stundum virðist
sem þeim sé hreint illa við það að
skora mörk. Markaleysið gæti þó
reynst þeim dýrt því Úkraína tapar
ekki mörgum leikjum í Kíev og hefur
Andriy Schevchenko lofað að tryggja
sína þjóð inn á annað heimsmeist-
aramótið í röð.
BuTTon Til mclaren
n Heimsmeistarinn í Formúlu 1,
Jenson Button, er á leið til McLar-
en að elta peninga en honum tókst
ekki að koma sér saman um nýjan
samning
við lið sitt
Brawn GP
sem var keypt
af Mercedes
eftir tímabilið
og ber því
nafn þess.
Mercedes gat
aðeins boðið
honum fjórar milljónir punda í
árslaun næstu þrjú ári en McLaren
bauð honum sex milljónir. Til
að gefa mynd af því hversu
mikill sparnaður hefur verið vegna
heimsástandsins að undanförnu
er skemmst að minnast síðasta
samnings Kimis Raikkonen við
Ferrari sem hljóðaði upp á 56
milljónir dollara.
HæTTir verði
Torres seldur
n Rafael Benitez, knattspyrnu-
stjóri enska úrvalsdeildarliðsins
Liverpool,
hefur gert
yfirmönnum
félagsins það
ljóst að hann
vilji ekki að
Fernando
Torres
verði seldur.
Liverpool er
ekki nægilega
vel statt fjárhagslega og hefur það
borið á góma að liðið verði að selja
aðra stórstjörnu til að ná endum
saman. „Ég er sannfærður um
að hann verði ekki seldur. Ef það
gerist segi ég upp,“ segir Benitez
ákveðinn.
ÚrÚgvæ í góðum
málum
n Þrátt fyrir tap í lokaleik Suður-
Ameríku-riðilsins gegn Argentínu
er Úrúgvæ komið langt með
að tryggja
sér sæti á
heimsmeist-
arakeppninni
næsta sumar.
Úrúgvæ vann
um helgina
umspilsleik
sinn gegn
Kosta-Ríka,
1-0, á útivelli en liðin mætast aftur
í Úrúgvæ á miðvikudagskvöldið.
MOLARFjögur sæti eru laus fyrir Evrópuþjóðir á Heimsmeistaramótinu sem fer fram næsta
sumar. Átta þjóðir bítast á miðvikudagskvöldið um þessi fjögur sæti. Allt sauð upp
úr í fyrri leik Frakka og Íra en Frakkar, Portúgalar og Rússar eru í vænlegri stöðu
fyrir seinni leikina.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
einn leikur enn
Svekkelsi Damien Duff og
félagar í Írlandi þurftu að
sæta tapi á heimavelli og
verða að vinna Frakka, 2-0,
í seinni leiknum. MyNd AFP
Stöngin út Bosníumenn hittu tréverkið í þrígang
gegn Portúgal í fyrri leik liðanna. MyNd AFP
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
Losnið við hættulega kviðfitu og komið
maganum í lag með því að nota
náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman.
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama Oxy tarmið