Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 6. janúar 2010 FRÉTTIR
Fimm stjórnarmenn Orkuveitu
Reykjavíkur og dótturfélags henn-
ar, Reykjavík Energy Investment,
REI, ferðuðust fyrir tæpar sjö millj-
ónir króna á síðustliðnum tveim-
ur árum. Sigrún Elsa Smáradóttir,
borgarfulltrúi Samfylkingarinnar
og stjórnarmaður beggja félag-
anna, trónir á toppnum en hún ein
á nærri þriðjung alls kostnaðarins
eða rúmar tvær milljónir.
Misjafnt er hvort stjórnarmenn
hafi farið einir út, tveir saman eða
jafnvel þrír. Ferðakostnaður stjórn-
armannanna fimm er að sjálf-
sögðu greiddur af Orkuveitunni
og REI en á þessum tveimur árum
ferðuðust fulltrúarnir til tólf landa,
Bandaríkjanna, Djíbútí, Englands,
Eþíópíu, Filippseyja, Indó nesíu,
Japans, Jemen, Noregs, Slóvakíu,
Svíþjóðar og Ungverjalands.
Hefði mátt spara
Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orku-
veitunnar, telur að allar ferðirnar
sem farnar hafa verið undanfarin
tvö ár séu innan eðlilegra marka
og lærdómsríkar. Hann segir
vissulega að í einhverjum tilvikum
hefði verið hægt að spara ferða-
lög. „Ferðirnar hafa án efa kom-
ið stjórnarmönnunum að miklu
gagni því þarna hafi fyrirtæki og
aðstaða verið skoðuð sem pen-
ingar hafa verið settir í. Stjórnar-
mennirnir voru því að kanna hvort
eitthvert vit hafi verið í því sem
gert hefur verið. Það er nauðsyn-
legt að skoða þau dæmi sem eru í
gangi,“ segir Hjörleifur.
Sigrún Elsa bendir á að aðeins
sé um tvær ferðir að ræða af henn-
ar hálfu á umræddu tímabili. Að-
spurð hvort nauðsynlegt hafi verið
að senda þrjár fulltrúa í sömu ferð-
ina telur hún að svo hafi verið. „Já,
ég held að það hafi verið gagnlegt
en ég var eini fulltrúi minnihlut-
ans og það var meirihlutans að
ákveða hversu marga hann sendi.
Við náðum að sjá vel starfsemina
og þessi verkefni sem unnið er í
eru oft á tíðum mjög langt í burtu.
Fyrir mína parta hefur það gagn-
ast mér mjög vel að ferðast út og
kynnast verkefnunum, það er bæði
mjög lærdómsríkt og gagnlegt fyrir
fyrirtækin,“ segir Sigrún Elsa.
Vernda spillinguna
Ólafur F. Magnússon borgarfull-
trúi er afar ósáttur við þennan háa
ferðakostnað og hefur barist fyrir því
að dregið sé úr slíkum ferðalögum.
Hans skoðun er sú að Orkuveitan
hafi í gegnum tíðina hagað sér eins
og eyland sem ekki sé hluti af borg-
inni. „Þessi ferðakostnaður er með
öllu óþolandi. Ég hef iðulega vilj-
að hafa þessa hluti uppi á borðin en
hef ávallt mætt harkalegri andstöðu
annarra borgarfulltrúa, þeim sem ég
kalla 14:1 flokkinn því allir fulltrúar
hinna flokkanna standa þétt sam-
an í að vernda fríðindi sín. Þannig er
staðið vörð um spillingu, svínarí og
sóun á almannafé,“ segir Ólafur.
„Með þessu er vísvitandi ver-
ið að sólunda fé borgarbúa. Ég hef
lengi barist gegn þessu en það hef-
ur reynst mér mjög erfitt að fá svör,
til að mynda frá Orkuveitunni og sem
borgarstjóri mætti ég mikilli hörku
þaðan þegar ég vildi fá ferðalögin
upp á borðið. Borgarfulltrúarnir líta
svo á að þeir hafi einhver fríðindi
langt umfram aðra.“
Ekki ferðafrek
Aðspurður segir Hjörleifur: „Það
má alltaf ræða fram og til baka hvar
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Á toppnum Sigrún Elsa ferðaðist fyrir
rúmar tvær milljónir á tímabilinu en
segist alls ekki ferðafrek í störfum sínum
fyrir borgina.
Rúm milljón Guðlaugur fór til Englands,
Japans, Noregs og Svíþjóðar á vegum
Orkuveitunnar. Ferðalögin kostuðu 1,2
milljónir króna.
Berst gegn spillingu Ólafur segir
ferðakostnað stjórnarmannanna út í hött
þar sem verið sé að sóa almannafé.
Ein og hálf Kjartan ferðaðist fyrir eina
og hálfa milljón til Djíbútí, Eþíópíu,
Kaliforníu og Jemen.
OR og REI Ásta fór líka til Eþíópíu,
Djíbúti og Jemen ásamt því að fara á
ráðstefnu í Ungverjalandi. Samanlagður
kostnaður er rúmar 1,3 milljónir.
Á tveimur árum er kostnaður Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfyrirtækja nærri sjö
milljónir króna vegna ferðalaga stjórnarmanna. Þeir hafa ferðast til tólf landa á tíma-
bilinu en mestur kostnaður hefur hlotist af ferðalögum Sigrúnar Elsu Smáradóttur,
borgarfulltrúa Samfylkingarinnar.
FERÐAST VÍÐA
FYRIR MILLJÓNIR
Hvert hafa þau farið?
Ár Nafn Áfangastaður Tilefni ferðar
2008 Ásta Þorleifsdóttir Jemen, Djíbútí, Eþíópía Farið með iðnaðarráðherra
2008 Kjartan Magnússon Jemen, Djíbútí, Eþíópía Farið með iðnaðarráðherra
2008 Sigrún Elsa Smáradóttir Filippseyjar, Indónesía og Djibútí Kynnisferð á virkjunarsvæði
2008 Ásta Þorleifsdóttir Búdapest Ráðstefna
2008 Guðlaugur G. Sverrisson Osló/Stokkhólmur Ráðstefna
2009 Hrólfur Ölvisson Kalifornía Fundur með Iceland America Energy
2009 Kjartan Magnússon Kalifornía Fundur með Iceland America Energy
2009 Kjartan Magnússon Galanta í Slóvakíu Aðalfundur Galantaterm
2009 Sigrún Elsa Smáradóttir Kalifornía Fundur með Iceland America Energy
2009 Guðlaugur G. Sverrisson Japan Í viðskiptasendinefnd utanríkisráðuneytisins
2009 Guðlaugur G. Sverrisson London Fundir um rafvæðingu samgangna
FERÐIR Á VEGUM ORKUVEITUNNAR
2008 2009 Samtals:
Ásta Þorleifsdóttir 259.414 0 259.414
Guðlaugur G. Sverrisson 161.732 1.029.242 1.190.974
Samtals: 421.146 1.029.242 1.450.388
FERÐIR Á VEGUM REI
2008 2009 Samtals:
Ásta Þorleifsdóttir 1.086.500 0 1.086.500
Hrólfur Ölvisson 0 464.503 464.503
Kjartan Magnússon 840.127 701.217 1.541.344
Sigrún Elsa Smáradóttir 1.694.960 464.503 2.159.463
Samtals: 3.621.587 1.630.223 5.251.810
London
Kalifornía
Galanta
Búdapest
Osló
Stokkhólmur
Eþíópía
Djíbútí
Jemen