Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Blaðsíða 3
hefði mátt spara og hvort í ein- hverjum tilvikum hefði verið hægt að senda færri fulltrúa. Fyrir það verða stjórnarmennirnir sjálfir að svara en í flestum tilfellum hefur þetta eflt víðsýni þeirra. Hjá okkur er núna allt á bremsunni og við eyð- um ekki neinu í ferðir nema þær séu bráðnauðsynlegar. Hvað þessi tvö ár varðar hefði hugsanlega í einhverj- um tilvikum verið hægt að spara peninga.“ Sigrún Elsa gefur lítið fyrir topp- sæti sitt og ítrekar að hún sé síður en svo ferðafrek í starfi sínu sem borgar- fulltrúi og stjórnarmaður. Hún segir þessi ferðalög erfið og telur nauð- synlegt að spara ferðalög á þess- um erfiðu tímum. „Þetta er hrika- leg keyrsla og mikil vinna sem fylgir þessum ferðum. Á meðan gengið er eins og það er þurfa menn klárlega að spara í ferðakostnaði. Í sjálfu sér hef ég sem fæst orð um toppsæti mitt en sé horft til starfa minna þá er ég alls ekki ferðafrek hjá borg- inni. Á öllu kjörtímabilinu hef ég far- ið í þrjár ferðir á vegum borgarinnar, og fyrirtækjum hennar, að þessum ferðum meðtöldum. Ferðirnar hafa verið gagnlegar og peningunum vel varið,“ segir Sigrún Elsa. FRÉTTIR 6. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 3 „Fyrir mína parta hefur það gagnast mér mjög vel að ferðast út og kynnast verkefnunum, það er bæði mjög lær- dómsríkt og gagnlegt fyrir fyrirtækin.“ FERÐAST VÍÐA FYRIR MILLJÓNIR Kanadíska fyrirtækið Magma Energy keypti 2,5 milljarða króna á aflandsmarkaði í gegnum íslenskt fyrirtæki í Lúxemborg. Krónurnar voru líklega notaðar til að greiða fyrir hlutabréf í HS Orku. Slík viðskipti eru ekki ólögleg en leiða ekki til styrkingar krónunnar á innanlandsmarkaði og fara þvert gegn markmiðum Seðlabanka Íslands. Kanadíska fyrirtækið Magma Energy keypti íslenskar krónur á aflandsmarkaði í Lúxemborg fyrir um 20 milljónir dollara árið 2009, samkvæmt heimildum DV. Upp- hæðin nemur tæplega 2,5 millj- örðum króna á núverandi gengi og er afar líklegt að krónurnar hafi verið notaðar til að greiða fyrir hluta af rúmlega 40 prósenta hlut í HS Orku sem fyrirtækið keypti á síðasta ári. Líklegt er að krónurnar hafi ver- ið notaðar til að greiða Geysi Green Energy fyrir 8 prósenta hlut félags- ins í HS Orku en Magma keypti hann á um 2,5 milljarða króna síð- astliðið sumar. Magma bætti svo við sig rúmlega 32 prósenta hlut í HS Orku í desember fyrir rúma 12 milljarða króna. Með þessu móti hefur Magma náð að verða sér úti um krónur á lægra verði en ef fyrirtækið hefði keypt þær hér á landi. Tekið skal fram að ekki er ólög- legt að kaupa krónur með þessum hætti en ef krónurnar hefðu ver- ið keyptar hér á landi hefðu við- skiptin getað styrkt opinbert gengi krónunnar. En vegna þess að að viðskiptin áttu sér stað á aflands- markaði urðu kaupin ekki til þess að styrkja opinbert gengi gjald- miðilsins. Ekki er hins vegar vitað á hvaða gengi Magma keypti krón- urnar né af hverjum var keypt. Magma er í eigu kanadíska auðmannsins Ross Beaty sem jafnframt er stofnandi, stjórnar- formaður og forstjóri fyrirtækis- ins. Hann kom meðal annars til Ís- lands síðastliðið sumar og fundaði með Steingrími J. Sigfússyni fjár- málaráðherra út af kaupum Mag- ma á hlutabréfunum í HS Orku. Arena milliliður Samkvæmt heimildum DV var ís- lenska eignastýringarfyrirtækið, Arena Wealth Management, milli- liður í þessum krónuviðskiptum Magma Energy. Viðskiptablaðið greindi frá því í apríl á síðasta ári að fyrirtækið hefði verið stofnað í Lúxemborg af nokkrum fyrrverandi starfsmönn- um Landsbankans og Kaupþings þar í landi. Í Viðskiptablaðinu var sagt frá því að þeir Þorsteinn Ól- afsson, Arnar Guðmundsson, Guðjón Sigurðsson og Einar Bjarni Sigurðsson væru meðal þeirra sem stæðu að Arena. Fyrirtækið er eitt af fjölmörgum eignastýringar- og ráðgjafafyrirtækjunum sem stofn- að hefur verið af íslenskum banka- mönnum eftir bankahrunið 2008. Heimildir DV herma jafnframt að ráðgjafafyrirtækið Capacent Glacier, sem Magnús Bjarnason stýrir, hafi haft milligöngu um að leitað var til Arena vegna viðskipt- anna með krónurnar. Capacent Glacier hefur unnið náið með Magma hér á landi og til að mynda sagði Magnús, þegar gengið var frá kaupum félagsins á 32 prósenta hlutnum í HS Orku í desember síðastliðinn: „Sam- starf Glacier og Magma er ekki til- viljunum háð. Sýn Ross J. Beaty á uppbyggingu jarðhitavirkjana fell- ur vel að stefnu Íslendinga í þess- um efnum en starfsmenn Glaci- er, sem hafa margra ára reynslu á sviði jarðhitaviðskipta, störfuðu margir áður fyrir Íslandsbanka, og höfðu því góða þekkingu til að velja réttan aðila fyrir þetta verk- efni,“ sagði Magnús en hann var framkvæmdastjóri hjá Glitni fyr- ir bankahrunið og átti að leiða orkuútrás bankans í gegnum útibú hans í New York. Segist ekki svara fyrir Magma Magnús Bjarnason segir að- spurður að Magma Energy hafi fjármagnað kaupin á hlutnum í HS Orku sem keyptur var af Geysi Green með eigin fé. „Ég ætti ekki að vera að svara þessu en ég ætla að gera það vegna þess að ég veit það: Það var með eigin fé ... Þeir fóru í nokkur hlutafjárút- boð á síðasta ári og meðal annars voru þeir fjármunir notaðir til að kaupa þessi bréf,“ segir Magnús. Aðspurður hvort krónurn- ar sem notaðar voru til kaup- anna hafi verið keyptar hér á Ís- landi eða erlendis segir Magnús: „Magma er almenningshlutafé- lag skráð í Kanada og ég get ekki svarað fyrir þá. Talaðu við þá,“ segir Magnús. Aðspurður hvort Magma hafi keypt krónurnar í gegnum Arena Wealth Management seg- ir Magnús: „Nú get ég ekki tal- að fyrir þeirra hönd. Ég get ekki verið að segja þér nákvæmlega hvað þeir gerðu,“ segir Magnús sem aðspurður segist kannast við umrætt eignastýringarfyrirtæki, Arena. „Já, ég hef heyrt þeirra getið.“ Aðspurður um hvort hann hafi haft milligöngu um að koma Magma í samband við Arena seg- ir Magnús: „Ég er ekki on-record með þetta ... Þetta er valid spurn- ing hjá þér en þú ert ekki að spyrja réttan aðila,“ segir Magnús. INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is KEYPTU MILLJARÐA Á SLIKK Í ÚTLÖNDUM Krónuviðskipti á aflandsmarkaði Sérfræðingur í gjaldeyrismálum sem DV ræddi við segir að viðskipti með krónur á aflandsmarkaði (off-shore) hafi verið mjög algeng áður en Seðlabanki Íslands herti reglur um gjaldeyrisviðskipti í kjölfar bankahrunsins árið 2008. Hann segir að tvö gengi séu á krónunni: opinbert gengi (on-shore) og svo gengið á aflandsmarkaði. Hann segir að viðskipti með krónur á aflandsmarkaði styrki gengið á þeim markaði en leiði hins vegar til þess að fyrir vikið styrkist opinbert gengi krónunnar ekki. Hann segir að viðskipti með krónuna á aflandsmarkaði hafi verið miklu meiri en viðskiptin á on-shore markaðnum en að þetta hafi breyst eftir að Seðlabankinn þrengdi reglur um gjaldeyrisviðskipti. Sérfræðingurinn segir að markmið Seðlabanka Íslands með gjaldeyris- haftalögunum hafi verið að reyna að styrkja gengi krónunnar á on-shore markaðnum og slík viðskipti með krónuna á aflandsmarkaði grafi vissulega undir þessari viðleitni. Því má segja að krónuviðskipti á aflandsmarkaði fari gegn anda gjaldeyrishaftalaganna. Seðlabankinn vilji helst að öll viðskipti með krónuna fari fram á on-shore markaðnum. Hins vegar sé erfitt að eiga við slíka viðskiptahætti þar sem ekki sé ólöglegt að kaupa krónur á þennan hátt. Hann segir að fyrirtæki geti sparað sér allt frá 10 til 40 prósent á kaupverði gjaldeyris með því að kaupa hann á aflandsmarkaði. Fyrirtæki sem þurfa að kaupa sér krónur geta því sparað sér umtalsverðar upphæðir með því að gera það á aflandsmarkaði. „Nú get ég ekki talað fyrir þeirra hönd. Ég get ekki verið að segja þér nákvæmlega hvað þeir gerðu.“ Keyptu krónur á aflandsmarkaði Ross Beaty, fyrir miðju, og Magnús Bjarnason hjá Capacent Glacier sjást hér ásamt Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra sem þeir funduðu með í ágúst vegna kaupa Magma Energy á hlutabréfum í HS Orku. Japan Filippseyjar Indónesía

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.