Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 6. janúar 2010 FRÉTTIR Tölvuvilla hjá LÍN stökkbreytti námslánum Maríu Arinbjarnar: Skuldaði 128 milljónir í námslán „Þetta var dálítið sjokk, mér fannst þetta eiginlega fyndið og langt út yfir það sem maður bjóst við,“ seg- ir María Arinbjarnar, doktorsnemi í tölvunarfræði, sem opnaði yfirlit sitt á vef Lánasjóðs íslenskra náms- manna og sá sér til mikillar undr- unar að námslánin hennar höfðu stökkbreyst á einni nóttu. Þegar María opnaði yfirlitið kom í ljós að hún skuldaði LÍN tæplega 128 millj- ónir króna. Við nánari athugun kom í ljós að ástæðan fyrir hinni risastóru skuld hennar, voru ekki auknar álögur á námsmenn vegna Icesave-samn- ingsins, eða annað slíkt. Svo virðist sem upp hafi komið einhver kerf- isvilla hjá Lánasjóðnum, sem gerði það að verkum að lán Maríu og fjölda annarra námsmanna stökkbreyttust. Upp komst um villuna skömmu fyrir opnun skrifstofunnar á mánu- dag og samkvæmt upplýsingum var síminn á skrifstofunni rauðglóandi þann dag. Sjálf er María sem fyrr segir doktorsnemi í tölvunarfræði og veit því sitthvað um slíkar vill- ur. „Um áramótin fara af stað allar samkeyrslur á milli banka, Reikni- stofu bankanna og ríkisstofnana. Þetta er greinilega forritunarvilla sem einhvers staðar hefur legið,“ segir hún. Teymi tæknimanna vann hörð- um höndum á mánudag við að finna villuna í forritun LÍN og leiðrétta skuldastöðu lántakenda sinna. Jafnvel þó að María hafi séð húmorinn í þessum mistökum, bendir hún á að um áramót séu jafnan send út yfirlit til lántakenda og jafnvel á ábyrgðarmenn líka. Það kæmi ekki vel út fyrir aðstandendur námsmanna að sjá lánin sem þau eru í ábyrgðum fyrir vera komin á annað hundrað milljónir króna. valgeir@dv.is 128 milljóna króna skuld Það er dýrt að vera í námi, en ekki svona dýrt. Í ljós kom að tölvuvilla hafði gert það að verkum að lánin stökkbreyttust. GENGI GRUNAÐ UM DÝRANÍÐ Unglingagengi á Þórshöfn hefur um tveggja ára skeið valdið miklum usla í bænum með ólátum og skemmdar- verkum. Lögreglan hefur ítrekað verið kölluð til vegna ungmennanna og því er meðal annars haldið fram að hóp- urinn níðist á dýrum. Tæpur tugur drengja á unglings- aldri á Þórshöfn á Langasandi veldur bæjarbúum hugarangri. Ungu dreng- irnir hafa ítrekað valdið skemmdum á hýbýlum íbúa bæjarins, til að mynda með því að brjóta rúður á heimil- um og kasta matvælum að húsum. Þannig hefur eggjakast tíðkast lengi og eru margir bæjarbúar búnir að fá sig fullsadda af framferði drengjanna. Bæjarstjóri vill box Jón Stefánsson, lögregluvarðstjóri á Þórshöfn, segir hópinn fara vaxandi ef eitthvað er og hefur áhyggjur af gangi mála. Hann segir allt of mikla reiði ríkja í bænum vegna ungmennanna. „Skemmdarverk hópsins eru nokkuð ítrekuð, til að mynda rúðubrot og að kasta matvælum í hús. Hópurinn hef- ur farið stækkandi ef eitthvað er. Þessi hópur hefur verið með mikil ólæti og ég hef þurft að hafa nokkuð regluleg afskipti af drengjunum. Þannig hefur þetta verið í ein tvö ár og vandamál- ið hefur verið talsvert. Ólæti hópsins hafa verið talsverð og skemmdarverk nokkur,“ segir Jón. Talsverð ólga ríkir meðal bæjarbúa á Þórshöfn og umræða um skemmd- arverk og ónæði af hálfu drengjanna ungu varð til þess að blásið var til op- ins bæjarfundar þar sem sálfræðing- ur var fenginn til að fjalla um jákvæð samskipti. Gunnólfur Lárusson, sveit- arstjóri Langanesbyggðar, lýsti því yfir við fréttastofu RÚV í síðustu viku að hann ætlaði að taka drengina í hnefa- leikakennslu til að leysa málið. Heimilisköttum misþyrmt Jón bendir á að meðal verka lög- reglu síðustu misseri hafi verið að lóga heimilisköttum í bænum og segir hann eigendur kattanna saka drengjahópinn um illa meðferð á dýr- unum. Aðspurður telur hann auð- séð að níðst hafi verið á köttunum. „Nokkrir heimiliskettir hafa horfið og aðrir komið heim rennvotir og út- ataðir í olíu. Þeim hefur þurft að lóga og enginn kattanna hefur lifað af. Þetta er ekki góð meðferð á dýrum. Eigendur þeirra vilja meina að dreng- irnir séu sökudólgarnir en ég hef ekk- ert í höndunum um það. Ég get því ekki staðfest að þetta tengist þeim,“ segir Jón. Ungmennin í hópnum hafa ítrek- að verið með ónæði við bæjarbúa og gesti bæjarins. Í síðustu viku ákvað rekstraraðili eina söluskála bæjarins að loka sjoppunni vegna ólátahóps- ins og var hann lokaður í nokkra daga. Skemmtilegt mannlíf Halldóra Gunnarsdóttir, æsku- lýðsfulltrúi Langanesbyggðar, seg- ir málið vissulega erfitt og áherslu lagða á að bæjarbúar sameinist um að beina drengjunum inn á réttar brautir. Hún bendir á að yfirgnæf- andi meirihluti ungmenna bæjar- ins sé að gera góða hluti. „Meiri- hlutinn er alveg til fyrirmyndar og það er margt gott að gerast. Þetta er einangraður hópur og fáir ein- staklingar. Það er alltaf erfitt þeg- ar einhverjir eiga erfitt en við erum stöðugt að reyna að beina hópnum í jákvæðari farveg,“ segir Halldóra. „Við viljum að þorpsbúar taki höndum saman og unga fólkinu verði beint inn á betri brautir. Hér er gaman að vera til og hér er ótrú- lega gott og skemmtilegt mannlíf.“ Mikil reiði „Þetta var komið á hátt óánægju- stig í bænum og því var ákveðið að fá sálfræðing á bæjarfund. Til- efni fundarins var umræðan um ólátahópinn og ég rifja upp afr- ískt máltæki sem segir að það þarf heilt þorp til að ala upp barn,“ bætir Halldóra við. Jón segist ráðalaus gagnvart ólátabelgjunum því drengirnir taki engu tiltali. Hann vonast til þess að tekið verði á málinu hið fyrsta. „Vegna þessa þótti ástæða til að kalla til bæjarfundar og fá sérfræð- ing til okkar. Það var gert til að reyna að sætta bæjarbúa og lægja öldurn- ar. Því miður finn ég allt of mikla reiði í bænum í garð drengjanna og það er það alvarlegasta í þessu. Það þarf að taka þetta föstum tökum. Þetta er búið að vera viðvarandi of lengi og drengirnir hafa ekki tekið neinu tiltali. Það er spurning hvað er til ráða,“ segir Jón. TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is „Það er alltaf erfitt þegar einhverjir eiga erfitt en við erum stöðugt að reyna að beina hópnum í já- kvæðari farveg.“ „Það er allt of mikil reiði í bænum,“ segir Jón Stef- ánsson, lögregluvarðstjóri á Þórshöfn. Hann hefur ítrekað verið kallaður til vegna unglingagengis í bænum. Hann segir ungmennin til mikilla vandræða og þannig hafi ástandið verið í allt of langan tíma. Slæm meðferð Heimiliskettir hafa verið rennvættir og útataðir í olíu þannig að þeim hefur þurft að lóga vegna meðferðarinnar. Sjö handteknir og yfirheyrðir Fíkniefnadeild lögreglunnar hefur handtekið og yfirheyrt sjö karla og konur vegna um- fangsmikils fíkniefnasmygls. Talið er að 800 grömmum af kókaíni hafi verið smyglað til landsins með flugi á þriðja dag jóla, laugardaginn 27. desem- ber. Skömmu síðar var farið að handtaka og yfirheyra fólk og var í það minnsta einn úr- skurðaður í gæsluvarðhald. Sá hefur játað að hafa flutt fíkni- efnin hingað til lands og verður hann í einangrun meðan hann er í gæsluvarðhaldi, til þess að koma í veg fyrir að hann geti samræmt vitnisburð sinn og annarra. Beittur hótun- um til að smygla dópi Maðurinn sem situr í gæslu- varðhaldi vegna smygls á 800 grömmum af kókaíni til lands- ins hefur bent á annan mann sem sé höfuðpaurinn á bak við smyglið. Hann segir þann mann hafa beitt sig þrýstingi og hótað sér til að fá sig til smyglsins. Maðurinn viður- kennir að hafa farið að minnsta kosti þrjár ferðir til Íslands til að smygla fíkniefnum. Kona sem kom til landsins með sama flugi og maðurinn sem hefur viðurkennt smyglið var líka handtekin og kærð. Maðurinn segir að hún hafi engan þátt átt í fíknefnasmygl- inu en það stangast á við mál- flutning hennar. Stal slípivél og málningar- sprautu Þjófur fór inn í vinnugám við Ægisbraut sjö á Akranesi og stal þaðan málningarsprautu, slípivél og ryksugu. Innbrotið uppgötvaðist á mánudag og var þá tilkynnt til lögreglu. Biður lögreglan þá sem urðu varir við mannaferðir við vinnugáminn um síðustu helgi að láta vita af því. Þetta var ekki eina innbrotið á Skaganum um síðustu helgi. Einnig var farið inn á verkstæði við Ægisbraut 9, á næstu lóð við þar sem brotist var inn í vinnu- gáminn. Ekki var að sjá að neinu hefði verið stolið en einhverjar skemmdir voru unnar á innbúi verkstæðisins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.