Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Síða 5
FRÉTTIR 6. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 5
Áform um allt að 290 íbúða byggð
í landi Laugardæla norðan Selfoss
eru í uppnámi og útlit fyrir millj-
arða króna tap VBS fjárfestingar-
bankans á verkefninu. Einn stærsti
fjárfestirinn og hvatamaðurinn að
verkefninu er Ferjuholt ehf., sem
meðal annars var í eigu Engilberts
Runólfssonar verktaka. VBS fjár-
festingarbankinn lánaði félaginu
hátt í þrjá milljarða króna. Land
Laugardæla er nú veðsett VBS fyr-
ir um 4 milljarða króna samkvæmt
heimildum DV.
Heimildarmenn DV furða sig
á viðskiptum VBS við Runólf sem
á langan brotaferil að baki. Þann
3. janúar 2006 fjallaði DV ítarlega
um þennan feril sem teygir sig aft-
ur til ársins 1991. Engilbert hefur
meðal annars afplánað dóma fyrir
fíkniefnabrot, ólöglega vopnaeign,
fjársvik og skjalafals. Alls eru raktir
sjö dómar yfir honum í umfjöllun
blaðsins. Engilbert var einnig við-
riðinn uppkaup á gömlum húsum
við Hverfisgötu og Laugaveg um
og upp úr miðjum áratugnum sem
talsvert var fjallað um í fjölmiðlum.
Góðærisáform
Land Laugardæla er upp með Ölf-
usá og liggur að landi Selfyssinga.
Íbúar Laugardæla óskuðu eftir því
að sameinast Árborg fyrir um fjór-
um árum. „Ég held að fyrir þeim í
Laugardælum vaki mikil uppbygg-
ing á landi sínu, bæði íbúðabyggð
og lóðir fyrir atvinnustarfsemi,“
sagði Stefanía K. Karlsdóttir, þá-
verandi bæjarstjóri, í samtali við
mbl.is 12. ágúst árið 2006.
Nærri 290 íbúða byggð var aug-
lýst og deiliskipulögð snemma
árs 2007 í landi Laugardæla rétt
sunnan við fyrirhugað nýtt brúar-
stæði yfir Ölfusá. Aukið verðmæti
landsins helgaðist meðal annars
af fyrirhugaðri brú. Hún hefur ekki
enn komist á framkvæmdaáætl-
un Vegagerðarinnar. Aðeins hefur
verið lögð stofnbraut frá Selfossbæ
inn í fyrirhugaða byggð í Laugar-
dælum.
Ekkert bólar hins vegar á frek-
ari framkvæmdum þótt bygging-
arlandið, alls um 150 hektarar, hafi
verið deiliskipulagt.
Frá því í febrúar árið 2007 hafa
liðlega 130 hektarar landsins í eigu
Ferjuholts ehf. verið veðsettir VBS
fjárfestingarbankanum fyrir 2,7
milljarða króna. Ferjuholt var að
78 prósentum í eigu JB Byggingar-
félags og Fremdar ehf. að 22 pró-
sentum, en það félag er í eigu VBS.
Krosseignatengsl eru á milli þess-
ara félaga og VBS.
Annað félag, Laugardælir ehf.,
var skrifað fyrir nærri 18 hekturum
landsins. VBS tók einnig áhættuna
með þessu félagi sem var að hluta
í eigu Njáls Skarphéðinssonar og
Fremdar sem áður er getið og er
í eigu VBS. Landið er veðsett VBS
fyrir nærri 800 milljónir króna.
VBS í vanda?
Ljóst má vera að tap VBS vegna
Laugardælaverkefnisins getur
hlaupið á milljörðum króna ef
ekki bregður til betri tíðar í bygg-
ingastarfsemi og verklegum fram-
kvæmdum. VBS fjárfestingar-
bankinn hefur sérhæft sig í að
fjármagna verklegar framkvæmdir
og eru tryggingar einkum sóttar í
fasteignir eða land.
Jón Þórisson, forstjóri VBS,
kom orðum að eftirköstum banka-
hrunsins og vanda VBS í árs-
skýrslu fyrir árið 2008: „Mest eru
áhrifin á eignasafn bankans en
eins og kunnugt er hefur bankinn
í árafjöld sérhæft sig í fjármögn-
un mannvirkja og verklegra fram-
kvæmda og er því nokkuð stór
hluti lánasafns tengdur verkefnum
á fasteignamarkaði. Eftir mjög ít-
arlega yfirferð á lánasafni bankans
varð það niðurstaðan að lánasafn-
ið yrði fært niður um ríflega 6,8
milljarða króna. Staða afskrifta-
reiknings nemur því nú um 21,6
prósentum af heildarútlánum.
Ekki er þar með sagt að sú fjárhæð
sé endanlega töpuð.“
Á annað þúsund veðskuldabréf
tengd Laugardælaverkefninu voru
samkvæmt heimildum DV seld inn
í eignastýringu hjá einstaklingum
eða fóru að veði inn í viðskipta-
bankana eða Seðlabanka Íslands.
Stóru viðskiptabankarnir og Seðla-
banki Íslands eiga því væntanlega
kröfur á VBS vegna veðskuldabréf-
anna sem endanlega gætu orðið til
þess að þeir hirtu hektarana 150 í
landi Laugardæla upp í skuld.
Veð sem gufa upp
JB Byggingarfélag ehf. á hlut að
máli eftir að Engilbert Runólfs-
son eignaðist félagið í gegnum
Innova ehf. og síðar Eignarsmára
ehf. Eignarsmári er aftur félagið
sem stofnaði Ferjuholt ehf. utan
um Laugardælalandið ásamt VBS.
Félagið Eignarsmári ehf. var tek-
ið yfir af JB Byggingarfélagi árið
2007. Á bak við þessi viðskipti
stóðu meðal annars Engilbert og
VBS. Kaupverð félaga á snærum
Engilberts á JB Byggingarfélaginu
er ekki gefið upp en samkvæmt
heimildum DV nemur það veru-
legum fjárhæðum, eða nær 10
milljörðum króna. Skuldir vegna
JB Byggingarfélags og Engilberts
eru ívið minni, eða um 8 milljarð-
ar króna, samkvæmt heimildum
DV.
JB Byggingarfélag ehf. er ekki
starfandi lengur og er í raun á
valdi lánardrottna. Félagið byggði
og seldi íbúðir fyrst og fremst en
sem kunnugt er fraus sá markaður
í kjölfar bankahrunsins.
Ekkert bólar hins
vegar á frekari fram-
kvæmdum þótt bygg-
ingarlandið, alls um
150 hektarar, hafi ver-
ið deiliskipulagt.
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
VBS TÓK ÁHÆTTU MEÐ
MARGDÆMDUM MANNI
VBS fjárfestingarbanki kann að tapa milljörðum króna á byggingaráformum við Sel-
foss sem eru að engu orðin. VBS tók meðal annars áhættu með Engilbert Runólfssyni
verktaka en hann hefur afplánað dóma fyrir stórfelld brot, meðal annars fíkniefna-
brot og fjársvik. VBS afskrifaði nærri 7 milljarða króna í fyrra vegna útlána.
Verktaki með vafasama fortíð
VBS fjárfestingarbankinn tók áhættu
með félögum á snærum Engilberts
Runólfssonar varðandi uppbyggingu í
landi Laugardæla við Selfoss.
Stór áform sett í salt Hverfi fyrir nærri 290 íbúðir var skipu-
lagt í landi Laugardæla við Selfoss og það veðsett fyrir nærri
4 milljarða króna. VBS gaf út á annað þúsund veðskuldabréf
fyrir milljarða króna með tryggingum í Laugardælaverkefninu.
Stórfellt tap blasir nú við bankanum.
Börn sleppa
betur en áður
Slysum á börnum í umferðinni
hefur stórfækkað síðustu ellefu
ár. Þetta kemur fram í tölum
sem Umferðarstofa hefur tek-
ið saman. Til marks um þetta
hefur ekkert barn undir fjórtán
ára aldri látist í umferðarslysi
síðustu tvö árin. Þetta er mikil
breyting frá því sem áður var.
Þannig létust til dæmis sex börn
í umferðarslysum árið 1997.
Síðustu þrjú árin hafa fimmt-
án manns látist í umferðarslys-
um að meðaltali hvert ár. Árin
þar á undan höfðu 24 látist í um-
ferðarslysum að meðaltali.
Fjórir dópaðir
undir stýri
Lögreglumenn á Akureyri
höfðu óvenju mikið að gera
fyrstu helgi ársins við að
stöðva ökumenn sem grun-
aðir voru um að keyra bíl
undir áhrifum fíkniefna. Alls
voru fjórir stöðvaðir af þeim
sökum og á einum þeirra
fannst „lítilræði af ætluðu
örvandi efni“ eins og því er
lýst í dagbók Lögreglunnar á
Akureyri. Annar ökumaður
reyndist svo hafa 40 grömm
af kannabisefnum í bíl sínum
og sagðist hafa ætlað að neyta
þeirra sjálfur.
Vilja hugsa vel
um börnin
Borgarfulltrúar samþykktu ein-
róma tillögu frá borgarfulltrú-
um vinstri-grænna um að árið í
ár verði tileinkað velferð barna í
Reykjavík. Tillagan var lögð fram
á borgarstjórnarfundi á þriðju-
dag og þrátt fyrir að flokkarnir
væru ekki alls kostar sammála
um allar áherslur og skilgrein-
ingar lögðu allir borgarfulltrú-
ar áherslu á að gera sitt besta til
að forgangsraða í þágu barna
og velferðar þeirra við gerð fjár-
hagsáætlunar fyrir árið.
Nýr strætó fyrir
nýjan háskóla
Umhverfis- og samgöngu-
ráð Reykjavíkurborgar sam-
þykkti á þriðjudag að setja á
fót sérstaka strætisvagnaleið
milli Hlemms og Háskólans
í Reykjavík sem verið er að
reisa í Vatnsmýri. Nýja leið-
in er númer 16 og fer á milli
Hlemms og Nauthólsvíkur
á fimmtán mínútna fresti.
Fyrir er ein strætisvagnaleið
sem gengur að Háskólanum í
Reykjavík, það er leið 19 sem
gengur á hálftíma fresti.
Fyrsti vagninn byrjar að
ganga á leið 16 næsta mánu-
dag, þegar kennsla hefst í nýj-
um húsakynnum Háskólans í
Reykjavík.