Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Page 8
„Mér finnst þetta bara mjög gott mál.“
ÓLAFUR AUSTMANN, 27 ára
„Ég er ekki enn þá búinn að mynda mér skoðun á
þessu, ég á eftir að kynna mér málið nægilega vel
til þess að mynda mér skoðun.“
GUNNAR ANTON GUÐMUNDSSON, 23 ára.
„Ég veit það ekki. Hann gat raunverulega ekki gert
annað vegna þess sem hann hafði áður gert. Svo
er spurningin með hitt allt saman hvernig það fer.
Hann hefur orðið að vera samkvæmur sjálfum sér í
þessu máli.
JÓHANN SIGURÐSSON, 81 árs.
„Ég held að það sé ekki hægt að spyrja þjóðina um
þetta. Það verður að fara einhverja aðra leið, við
þurfum hvort sem er að borga þetta. Þjóðin segir
náttúrlega nei. Ef maður væri beðinn um að borga
þá myndi maður helst ekki vilja það. En við
verðum að borga á endanum og ég held að
stjórnmálamenn verði að fara aðrar leiðir til þess
að borga þetta.“
HANNA GUTTORMSDÓTTIR, 58 ára.
HVAÐ FINNST ÞÉR UM ÞÁ ÁKVÖRÐUN FORSETANS AÐ SYNJA ICESAVE-LÖGUNUM?
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
8 MIÐVIKUDAGUR 6. janúar 2010
Eftir þingflokksfundi og önnur
fundahöld fram á kvöld varð ljóst
að fyrstu viðbrögð ríkisstjórnarinn-
ar við ákvörðun forseta Íslands voru
þau að sitja áfram, reyna að lægja
öldurnar sem risu erlendis, einkum
í Hollandi og Bretlandi, gagnvart
ákvörðuninni og hefja undirbúning
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þungt var í stjórnarliðum eins
og ráða mátti af viðbrögðum ríkis-
stjórnarinnar við ákvörðun forset-
ans. „Ríkisstjórn Íslands lýsir von-
brigðum með ákvörðun forseta
og í ljósi þeirra alvarlegu áhrifa
sem synjun forseta Íslands
kann að hafa mun ríkis-
stjórnin nú meta stöðu mála
og horfur varðandi þá end-
urreisnaráætlun sem hún
hefur fylgt með góðum árangri,“
sagði Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra í yfirlýsingu.
Reiði í garð forsetans
Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra kvað fast að orði er hann
gagnrýndi Ólaf Ragnar Grímsson
forseta Íslands í samtali við DV
síðdegis í gær. Össur hafði
ráðgert að vera með í op-
inberri för forsetans til
Indlands. „Það er rétt
að ég verð ekki í för
með forseta Íslands
til Indlands þótt um
opinbera heimsókn
sé að ræða. Það er
einfaldlega ljóst að ég hef öðrum og
miklu brýnni verkefnum að sinna
sem utanríkisráðherra.“
Össur segir að grafalvarlegt
ástand hafi skapast í kjölfar þess að
forsetinn synjaði lögunum um Ic-
esave.
„Ákvörðun forsetans
setur Ísland í þá stöðu
á alþjóðavettvangi að
allt utanríkisráðu-
neytið, og ekki síst
ráðherrann sjálfur,
verða að vera í því
slökkviliði sem þarf
að kæfa þá elda sem
af þessum degi hafa
sprottið.“
Hann segir að reiði
erlendra stjórnmála-
manna skelli nú á þjóðinni
af miklum þunga.
„Það hellast inn
neikvæðar yfir-
lýsingar frá
erlendum stjórnmálamönnum.
Viðbrögð þeirra sem hafa haft sam-
band við mig eru gjarnan: „Hvað í
ósköpunum er að gerast á Íslandi?
Ríkir stjórnleysi?“ Það er ljóst að
þetta hefur haft mjög alvarleg áhrif
á það traust sem ríkisstjórnin og
þjóðin höfðu í sameiningu verið
að byggja upp. Þessi viðbrögð hafa
verið mun harkalegri en ég bjóst
við,“ sagði Össur.
„Helgreipar vinaþjóðanna“
Ögmundur Jónasson, þingmað-
ur VG, segir niðurstöðu forseta Ís-
lands rökrétta. „Þetta er í samræmi
við vilja VG um að fari nægileg-
ur hluti kjósenda fram á þjóðarat-
kvæðagreiðslu sé það lýðræðislegt
að láta slíka atkvæðagreiðslu fara
fram.“
Aðspurður um harkaleg við-
brögð Hollendinga, Breta og ann-
arra þjóða segir Ögmundur að það
sé ofur eðlilegt að þessar þjóðir
andmæli þegar Íslendingar reyni að
rísa upp undan okinu. „Þjóðin hef-
ur verið í helgreipum þessara vina-
þjóða með fulltingi Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins sem hefur verið sem
útsendari þeirra. Það er ekki við
öðru að búast en að þær bregðist
hart við þegar við andæfum og snú-
umst gegn okinu. Þetta eru reyndar
gamlar lýðræðisþjóðir og þær skilja
vonandi að hér er um lýðræðislega
afgreiðslu málsins að ræða.“
Ögmundur segir að ekki hafi
enn verið gengið frá því hvaða snið
verði á þjóðaratkvæðagreiðslunni.
„Ég tel að hún verði að snúast um
synjunina sjálfa, það er að segja
um það hvort lögin frá 30. desem-
ber eigi að gilda.“ Ögmundur viður-
kennir hins vegar að á hinum end-
anum séu Hollendingar og Bretar.
Líti þeir svo á að um engan samn-
ing sé lengur að ræða falli þjóðarat-
kvæðagreiðsla um sjálfa sig.
Getur setið áfram
Ríkisstjórnin á nokkra kosti. Í fyrsta
lagi getur hún í krafti þingmeiri-
hluta setið áfram, komið Icesave-
málinu í skjól og reynt að sannfæra
umheiminn um að Íslendingar ætli
þrátt fyrir allt að standa við skuld-
bindingar sínar. Jafnframt þarf hún
þá að hefja undirbúning þjóðar-
atkvæðagreiðslunnar sem leiðir af
Ríkisstjórnin er ráðin í því að sitja áfram og hefja undirbúning þjóðaratkvæða-
greiðslu í samræmi við ákvörðun forseta Íslands sem synjaði Icesave-lögunum
staðfestingar í gær. Enginn hefur farið fram á að ríkisstjórnin segi af sér. Stjórn-
arliðar hafa þó velt því fyrir sér hvort heppilegt geti verið að efna til kosninga sem
yrðu fáeinum vikum eftir að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verður birt.
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
STJÓRNIN
SITUR SEM
FASTAST
Í slökkviliðinu „Það hellast inn
neikvæðar yfirlýsingar frá erlendum
stjórnmálamönnum,“ segir Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
Að sama skapi
gætu kosningar á
þessum tímapunkti
verið fýsilegar fyrir
VG, sem litla sem
enga ábyrgð bar á
bankahruninu.