Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Síða 12
Augu heimsins hafa beinst að Ís-
landi í kjölfar yfirlýsingar forseta Ís-
lands. Um málið var fjallað í öllum
helstu fjölmiðlum á Norðurlönd-
unum, Hollandi, Bretlandi og víð-
ar. Ákvörðun Ólafs Ragnars um að
synja frumvarpinu um Icesave stað-
festingar hefur vakið mikla furðu
á meðal embættismanna, stjórn-
málamanna og fjölmiðlamanna í
Hollandi og Bretlandi. Fjölmiðlar
á Norðurlöndum hafa enn fremur
verið mjög svartsýnir fyrir hönd ís-
lensku þjóðarinnar og rætt hefur
verið um að nú hefjist nýr sorgar-
kafli í sögu þjóðarinnar og jafnvel
talað um „efnahagslegt svarthol“.
Einfölduð umræða
Umfjöllun um málið hefur í mörg-
um tilvikum verið einfölduð nokk-
uð í alþjóðlegri umfjöllun og virð-
ast margir halda að forsetinn hafi
einfaldlega beitt neitunarvaldi gegn
frumvarpinu um að breskum og hol-
lenskum sparifjáreigendum verði
borgað tap sitt. Margir fjölmiðlar
minnast ekki á að þjóðaratkvæða-
greiðsla muni fara fram, né heldur
að lög þau er Alþingi samþykkti fyr-
ir áramót taki nú gildi og að forset-
inn hafi þegar samþykkt lögin með
fyrirvörunum í ágúst. Umræðan í
erlendum fjölmiðlum hefur því að
mestu leyti snúist um hvort Íslend-
ingum beri að greiða fyrir Icesave
eða ekki.
Neikvæðar yfirlýsingar
Forystumenn ríkisstjórnarinn-
ar sögðu á blaðamannafundinum
í Stjórnarráðinu í gær að nú riði á
að útskýra ákvörðun forseta Íslands
fyrir samningsaðilunum og róa þá.
Össur Skarphéðinsson utanrík-
isráðherra líkir starfi ríkisstjórnar-
innar við slökkvilið sem nú þurfi
að kæfa þá elda sem af gærdegin-
um hlutust. Ástandið sé grafalvar-
legt. Hann sagði í samtali
við DV síðdegis í gær
að reiði erlendra
stjórnmála-
manna skylli
nú á þjóðinni af
miklum þunga.
„Það hellast
inn neikvæð-
ar yfirlýsingar
frá erlendum
stjórnmála-
mönnum. Við-
brögð þeirra
sem hafa haft
samband
við mig eru
gjarnan:
„Hvað í
ósköpunum er að gerast á Íslandi?
Ríkir stjórnleysi?“ Það er ljóst að
þetta hefur haft mjög alvarleg áhrif
á það traust sem ríkisstjórnin og
þjóðin höfðu í sameiningu verið að
byggja upp. Þessi viðbrögð hafa ver-
ið mun harkalegri en ég átti von á
svona fljótt,“ sagði Össur.
Bos hvattur til að
sýna ekki linkind
Í Hollandi tjáðu ýmsir stjórnmála-
menn sig um málið í gær. Kristi-
legir demókratar, flokkur Jans Pet-
ers Balkenende forsætisráðherra,
sitja í stjórn ásamt Verkamanna-
flokknum, flokki Wouters Bos fjár-
málaráðherra. Hollenskir stjórn-
arandstöðuþingmenn hafa margir
gagnrýnt ríkisstjórnina harðlega fyr-
ir að sýna Íslendingum ekki næga
festu í samningaviðræðunum.
„Ég er dauðþreyttur á þessu. Við
höfum þegar beðið í heilt ár,“ sagði
Frans Weekers, þingmaður frjáls-
lynda hægriflokksins VVD sem er í
stjórnarandstöðu á hollenska þing-
inu. „Þetta ríki [Ísland] er óáreiðan-
legt. Við erum greinilega nógu góð
fyrir Íslendinga þegar þeir þurfa á
peningum að halda, en segja svo nei
við að borga til baka. Ég vil að við
Hollendingar komum því á framfæri
við Evrópulöndin hvort ekki sé rétt
að endurskoða fríverslunarsamn-
inginn við Ísland.“ Hafa frjálslynd-
ir hægrimenn óskað eftir að ræða
við Wouter Bos, fjármálaráðherra
Hollands, um málefni Íslands. Þeir
krefjast að ríkisstjórnin sýni Íslend-
ingum enga linkind.
Hollendingar munu endur-
heimta peningana
Þingmenn Verkamannaflokksins
hafa fullyrt að þeir líti á að Íslend-
ingum beri full skylda til að borga
fyrir tap hollenskra inni-
stæðueiganda hjá Ice-
save. Það sé ósann-
gjarnt fyrir hollenska
skattgreiðendur
að bæta fyrir mis-
gjörðir Íslendinga.
„Þetta er furðu-
leg pólitísk staða.
Alþingi Íslendinga
hefur verið vikið til
hliðar,“ sagði Paul
Tang, þingmaður
hollenska Verka-
mannaflokksins, við
hollenska fjölmiðla
í gær. Hann und-
irstrikaði að
ríkisstjórn
Hollands
12 MIÐVIKUDAGUR 6. janúar 2010
Umfjöllun erlendra fjölmiðla um ákvörð-
un forseta Íslands var neikvæð í gær. Þó ít-
arlega hafi verið fjallað um málið var það
víða einfaldað. Þeir hörðustu vilja fara í
hart við Ísland og þingmaður í Hollandi
vill segja upp fríverslunarsamningum.
Utanríkisráðherra segir viðbrögð erlend-
is vera afar hörð.
„VIÐ HÖFUM BEÐIÐ Í HEILT ÁR“
myndi endurheimta peningana í
heild sinni. „En við þurfum að bíða
eitthvað lengur.“
Íslenska þjóðin vöruð við
Upplýsingafulltrúi í breska fjár-
málaráðuneytinu sagði í gær að
starfsmenn þess myndu ræða við
starfsbræður sína á Íslandi til að
fá „... skilið hvers vegna frumvarp-
ið hefur ekki verið samþykkt og
myndu svo vinna með Íslending-
um, Hollendingum og innan Evr-
ópusambandsins til að leysa málið
sem allra fyrst.“ Rætt var um í Fin-
ancial Times að synjun frumvarps-
ins væri Alistair Darling fjármála-
ráðherra mikið áfall. Hann hefði í
langan tíma unnið að farsælli lausn
málsins.
Bankamálaráðherra Breta,
Paul Myners, var harðorð-
ur í viðtali við BBC og sagð-
Alda óánægju Össur segir
að viðbrögð erlendra stjórn-
málamanna séu geysihörð.
Áfall fyrir Darling Rætt er um að
ákvörðun forseta Íslands sé mikið áfall
fyrir Alastair Darling sem hafi beitt sér
fyrir lausn málsins í langan tíma.
Vonsvikinn Wouter Bos segir að
hollensk stjórnvöld séu mjög vonsvikin
eftir atburðina á Íslandi í gær.
„Hvað í ósköpunum
er að gerast á Íslandi?
Ríkir stjórnleysi?“
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is