Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Side 14
Ef verðbólguspá Seðlabankans og
spá hans um þróun fasteignaverðs
ná fram að ganga munu þeir sem
nýta sér 110 prósenta skuldaaðlög-
un Landsbankans og Arion banka
skulda 175 prósent af markaðsvirði
íbúðar sinnar í árslok 2012.
Hagsmunasamtök heimilanna
telja úrræði bankanna vegna verð-
tryggðra lána ganga almennt allt of
stutt. Ekki sé verið að viðurkenna
neinn forsendubrest og úrræðin
nýtist þeim sem áttu minnst eigið fé
fyrir. Lausnir bankanna við skulda-
vanda heimilanna feli í sér blekking-
ar vegna þess að bankanir nái til baka
öllum afslætti sem þeir veiti. Afslátt-
urinn sé einungis tímabundinn.
110% leiðin
Landsbankinn bauð nú í vikunni upp
á þá leið að færa íbúðalán í erlendri
mynt og íslenskum krónum niður í
110 prósenta veðhlutfall af markaðs-
virði eigna einstaklinga. Viðskipta-
vinir geta valið um að breyta lán-
unum í verðtryggð eða óverðtryggð
íbúðalán í íslenskum krónum. Úr-
ræðið hentar fyrst og fremst þeim
sem eru með hátt veðhlutfall á eign
sinni og þurfa að lækka greiðslubyrð-
ina. Arion banki bauð á dögunum
mjög svipaða leið en Íslandsbanki
hefur boðið um 10 prósenta niður-
færslu höfuðstóls gegn því að lánið
breytist í óverðtryggt lán.
Mikil rýrnun
Í nýjasta hefti Peningamála Seðla-
bankans kemur fram að raunverð-
slækkun á fasteignamarkaði verður
30 prósent á næstu þremur árum.
Það þýðir að eignir fólks verða 30
prósentum minna virði en þær eru í
dag.
Ef tekið er dæmi um íbúð sem á
hvílir 30 milljóna króna lán, en mark-
aðsvirðið er metið á 25 milljónir, get-
ur eigandi lánsins látið lækka höfuð-
stólinn niður í 27,5 milljónir. Skuldin
BLEKKINGAR BANKANNA
SMS-OKURLÁN
Neytendasamtökin kalla SMS-
lánin okurlán og hafa sent Gylfa
Magnússyni, efnahags- og við-
skiptaráðherra, bréf þar sem
þeim tilmælum er beint til ráð-
herra að gripið verði til aðgerða
gegn lánastarfsemi af þessu tagi.
Samtökin benda í bréfinu á að
lánin, sem greiða þarf innan
fimmtán daga, beri 25 prósenta
vexti. Það jafngildi 600 prósenta
vöxtum á ársgrundvelli. „Lán sem
þessi hafa verið harðlega gagn-
rýnd í nágrannalöndum okkar
enda beinist markaðssetningin
aðallega að yngri neytendum og
þeim sem hafa lítið handa á milli
auk þess sem ekki er hægt að tala
um annað en okurvexti,“ segir
meðal annars í bréfinu til Gylfa.
BÆTUR FRÁ
BÖNKUNUM
„Bankar – og jafnvel æðstu
stjórnendur þeirra – geta orðið
bótaábyrgir gagnvart neytend-
um fari svo að Hæstiréttur fallist
á að gengislán hafi verið ólög-
mæt eins og haldið hefur verið
fram,“ segir Gísli Tryggvason,
talsmaður neytenda, á heimasíðu
sinni. Hann bendir á að hinn 28.
febrúar renni lögbundin heim-
ild til frestunar nauðungarsölu
á fasteignum út. „Í ljósi þessara
tímasetninga og staðreynda vill
talsmaður neytenda að gefnu til-
efni benda á að bankar bera eins
og aðrir kröfuhafar, sem krefjast
fjárnáms, nauðungarsölu eða
annarra fullnustugerða, lögum
samkvæmt svonefnda hlutlæga
ábyrgð á tjóni sem ólögmæt
fullnustugerð hefur valdið,“ skrif-
ar Gísli.
n Lastið fær Iceland
Express. Viðskiptavinur
sem flaug með félaginu
til Spánar mátti sætta
sig við að flugið heim
frá London féll niður.
Hann þurfti fyrir vikið
að taka á sig þann kostnað sem
fylgir gistingu og uppihaldi í tvo
daga, eða þar til næsta vél frá
flugfélaginu átti leið heim.
n DV sagði í síðustu viku frá manni sem
keypti síma í jólagjöf handa konu sinni.
Síminn virkaði aldrei og mætti
kaupandinn að eigin sögn
leiðinlegu viðmóti í verslun-
inni þegar hann ætlaði að skila
honum. Eftir bréfaskriftir baðst
verslunarstjóri afsökunar og
bauð nýjan síma í stað
þess gallaða. Það ber
að lofa.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
DÍSILOLÍA
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 190,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 188,9 kr.
Skeifunni VERÐ Á LÍTRA 186,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 185,3 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 188,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 196,8 kr.
BENSÍN
Dalvegi VERÐ Á LÍTRA 183,5 kr. VERÐ Á LÍTRA 182,2 kr.
Fjarðarkaupum VERÐ Á LÍTRA 186,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 185,3 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 193,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 191,9 kr.
UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
14 MIÐVIKUDAGUR 6. janúar 2010 NEYTENDUR
verður þá 110 prósent af verðgildinu.
Út frá spá Seðlabankans verður íbúð-
in þá metin á 17,5 milljónir króna eft-
ir þrjú ár. Höfuðstóllinn verður þá,
miðað við verðbólguspá Seðlabank-
ans, orðinn 30,6 milljónir. Munurinn
á verðgildi eignarinnar og skuldar-
innar fer úr 2,5 milljónum í 13,1 millj-
ón. Skuldsetning umfram eign eykst
úr 110 prósentum í 175 prósent.
Bankarnir geta mun betur
Marinó G. Njálsson, stjórnarmað-
ur í Hagsmunasamtökum heimil-
anna, segir að bankarnir eigi að hafa
svigrúm til að koma mun betur til
móts við viðskiptavini sína en þeir
geri með ráðum sínum. Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn hafi í skýrslu
sinni þann 3. nóvember á síðasta
ári upplýst að svigrúm væri hjá öll-
um bönkunum til að lækka verulega
greiðslu- og skuldabyrði heimil-
anna. Hjá stóru bönkunum þremur
hafi svigrúmið verið metið upp á
um 44 prósent af verðmati lánasafn-
anna. „Mark Flanagan, sendifulltrúi
AGS, vildi sjá að allt svigrúmið væri
nýtt, hvorki krónu minna né meira,“
segir Marinó og bætir við að Hags-
munasamtökin hafi, með þessari yf-
irlýsingu Flanagans, öðlast óvæntan
bandamann í baráttu sinni fyrir leið-
réttingu skulda heimilanna. „Miðað
við hvað öllum finnst AGS leiðin-
legur yfirmaður þá hefur Flanagan
mjög jákvætt viðhorf til okkar sjón-
armiða,“ segir hann.
Gengislánum breytt
Stóru bankarnir bjóða þeim sem hafa
erlend húsnæðislán að færa þau yfir
í verðtryggð eða óverðtryggð lán í ís-
lenskum krónum. Samhliða boða
þeir 25 til 30 prósenta lækkun höfuð-
stóls og hærri vexti. Í því samhengi er
vert að benda á að höfuðstóll erlendra
lána hefur í flestum tilvikum meira en
tvöfaldast undanfarin tvö ár. Bank-
arnir gefa fólki val um fasta óverð-
tryggða vexti upp á sex til sjö prósent
í tvö til þrjú ár en eftir það er nokkur
óvissa um hvaða vextir taka við.
Landsbankinn jafnar Arion
banka
Þegar greinargerðin kom út, rétt
fyrir jól, hafði Landsbankinn ekki
komið fram með þær leiðir sem nú
standa viðskiptavinum hans til boða.
„Landsbankinn er að bregðast við og
bjóða upp á svipuð úrræði og hinir
bankarnir. Þeir eru að setja sig í flokk
með þeim. Í reynd er þetta keppni
um það hver býður bestu vextina,“
segir Marinó. Hann segir að með því
að bjóða 6 prósenta vexti sé Lands-
bankinn að bjóða það sama og Ar-
ion banki. „Það er allt gott um það að
segja en þetta er bara ekki nóg,“ seg-
ir Marinó og bætir við að ekki sé ljóst
hvað verði eftir þau tvö ár sem bank-
inn bjóði 6 prósenta vextina. Ómögu-
legt sé að vita hvað taki við. „Fara þeir
upp í 9 prósent eða verða þeir 6,5
prósent?“ spyr hann.
Neytendalöggjöfin rústir einar
Marinó bendir þó á að þessar leið-
ir sem bankarnir bjóði sýni að þeir
hlusti á samtökin og þá sem berjist
fyrir réttlæti í skuldamálum heimil-
anna. „Við erum mjög ánægðir með
að þeir geri þetta en við teljum að
þeir geti mun betur.“
Aðspurður um sanngirnissjónar-
mið og rétt neytenda segir Marinó
að neytendalöggjöf á Íslandi sé rúst-
ir einar. Talsmaður neytenda hafi
því miður engin völd, þótt hann eigi
að standa vörð um réttindi þeirra.
„Hann getur sett fram skoðun en
hann fær engu breytt,“ segir Marinó
og þykir það miður.
Í niðurlagi greinargerðar Hags-
munasamtaka heimilanna seg-
ir að lausnir bankanna feli í sér vissa
blekkingu. Boðið sé upp á mikla,
tímabundna lækkun mánaðarlegra
greiðslna. „Byggir þetta að mestu á
því að lækka verulega afborgun höf-
uðstóls en sækja í staðinn meiri vexti
til lántaka. Vissulega mun þessi tíma-
bundna lækkun vara, miðað við vexti
í dag, í 8 til 13 ár eftir bönkum, en eft-
ir það byrja bankarnir að vinna upp
hvern þann afslátt sem lántakar fá
fyrstu árin.“
Hagsmunasamtök heimilanna segja að bankarnir nái til baka öllum þeim afslætti
sem þeir bjóða nú skuldsettum lántakendum. Lausnirnar kunni að koma sér vel til
skamms tíma en séu slæmar til lengri tíma. Marinó G. Njálsson, stjórnarmaður í sam-
tökunum, segir bankana hafa mun meira svigrúm að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Fáir góðir kostir Hagsmunasamtök heimilanna benda á
að úrræði bankanna kunni að lækka greiðslubyrði nokkuð í
upphafi. Leiðirnar séu þó ekki heppilegar til lengri tíma.
MYND: SIGTRYGGUR ARI