Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Síða 15
Byggið upp sparnað
Ingólfur H. Ingólfsson, fjármála-
ráðgjafi hjá Spara.is, bendir á að
bankarnir séu orðnir óragir við að
bjóða óverðtryggð lán með nei-
kvæðum raunvöxtum. Ríkissjóður
sé auk þess að gefa út óverðtryggð
ríkisbréf, það sé nýmæli og ef til vill
merki um stöðugleika. Hann bend-
ir á að þeir sem taki óverðtryggð
lán taki vaxtaáhættu en þeir sem
taki verðtryggð lán taki verðbólgu-
áhættu.
„Spurningin er bara hvora áhætt-
una fólk vill. Svo eru til verðtryggð
lán með breytilögum vöxtum, sem
er galið,“ segir hann. Ingólfi finnst
úrræði bankanna á vissan hátt já-
kvæð. Bankarnir séu tilbúnir að
koma til móts við lántakendur um
skuldbreytingar. „Hins vegar get-
ur þetta verið skammgóður vermir
vegna mögulegrar verðbólgu, hárra
vaxta og þess háttar,“ segir Ingólfur
sem hvetur fólk til að nota það svig-
rúm sem kann að skapast með lægri
greiðslubyrði til að spara.
„Ekki létta greiðsluna til þess
eins að auka neysluna, heldur til
að byggja upp sparnað. Það er svo
um að gera að nota svigrúmið til að
greiða niður lánin sín eins hratt og
mögulegt er. Þá gætu þessar leiðir
orðið mjög farsælar fyrir fólk,“ út-
skýrir Ingólfur og bætir við að að
öðrum kosti sé einungis verið að
fresta vandanum.
BLEKKINGAR BANKANNA
NEYTENDUR 6. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 15
Er tappinn fastur?
Náðir þú aldrei tappanum úr kampavínsflöskunni um
áramótin? Gott húsráð, ef tappinn er óhreyfanlegur, er
að verma flöskustútinn yfir vatnsgufu eða undir heitum
krana. Gættu þín á því að láta innihaldið ekki hitna, sér í
lagi ef innihaldið er dýrmætt.
Blikkmótin hreinsuð
Oft fellur á eldhúsbúnað úr blikki, þannig að hann verður
ljótur og lítur út fyrir að vera óhreinn. Gott ráð er að sjóða
blikkform í hálftíma í sterku sódavatni ásamt einhverjum
gömlum ónýtum álhlut (til dæmis gömlu loki). Skolið hlut-
ina á eftir og þurrkið.
Samanburður á heildargreiðslum lántaka, miðað við þær leiðir sem bankarnir bjóða. Miðað er við gengistryggt lán sem var 13,4 milljónir króna þegar það var tekið í október 2006. Lánið er reiknað út með
LIBOR vöxtum ásamt 3% vaxtaálagi lánveitenda. Gert er ráð fyrir 2% árlegri hækkun erlendu gjalmiðlanna, jens og franka.
Upphaflegt lán Lán án aðgerða Greiðslujöfnun Arion banki Íslandsbanki Landsbanki Frjálsi fjárfest. Hagsmunas.h.
Vextir (%) 3,9 3,9 GJV 4,0** 6,0* 7,0* 6,0* 7,0
Afsláttur x x 30,0 25,0 27,0
Afborgun 17,4 31,0 31,0 22,4 23,3 22,7 23,1 15,5
Vextir + verðbætur 7,5 14,8 38,8 20,5 25,6 20,8 25,1 24,2
Greiðslur alls (m.kr.) 24,9 45,8 69,8 42,9 48,9 43,5 48,2 39,7
*Þetta miðast við að vextir haldist óbreyttir (6-7%) út lánstímann.
**GJV=Greiðslujöfnunarvísitala BYGGT Á ÚTREIKNINGUM FRÁ HAGSMUNASAMTÖKUM HEIMILANNA
Heildargreiðslur gengisláns
Upphaflegt lán Lán án aðgerða Greiðslujöfnun Arion banki Íslandsbanki Landsbanki Frjálsi fjárfest. Hagsmunas.h.
Vextir (%) 3,9 3,9 GJV 4,0 6,0 7,0 6,0 7,0
Afsláttur x x 30,0 25,0 27,0
Afborgun í m.kr. 1,7 3,7 1,2 1,3 1,2 1,3 1,2 1,1
Vextir + verðbætur 1,5 3,3 3,5 3,9 4,7 3,9 4,6 2,1
Greiðslur alls (m.kr.) 3,2 7,0 4,7 5,2 5,9 5,2 5,8 3,2
*Þetta miðast við að vextir haldist óbreyttir (6-7%) út lánstímann.
**GJV=Greiðslujöfnunarvísitala
BYGGT Á ÚTREIKNINGUM FRÁ HAGSMUNASAMTÖKUM HEIMILANNA
Greiðslubyrði fyrstu þrjú árin
Heildargreiðslur lánanna
Í greinargerð Hagsmunasamtaka heimilanna segir að úrræðin sem varða erlendu lánin geti falið í sér mikla tímabundna lækkun mánaðarlegra afborgana. Greiðslurnar lækki
mikið til að byrja með en engin leið líti þó vel út þegar litið sé til heildargreiðslubyrði af 25 ára láni. Þannig nemi heildargreiðslur af 13,4 milljóna króna gengisláni, sem tekið
var í október 2006, á bilinu 43 til 70 milljónum króna, eftir því hvaða leið er farin. Leið Arion banka og Landsbanka kemur best út en þar nema heildargreiðslur „aðeins“ um 43
milljónum króna, eins og sjá má í efri töflunni.
Ef gengið hefði ekki farið á versta veg hefðu heildargreiðslur af þessu erlenda láni numið 17,4 milljónum króna. Greiðslurnar eru því í sumum tilvikum þrefaldar á við það sem
upphaflega stóð til, miðað við eðlilega gengisþróun.
„Í reynd er þetta keppni
um það hver býður
bestu vextina.“
Bankarnir Hagsmunasamtökin benda
á að afsláttur bankanna sé aðeins
tímabundinn. Þeir nái allri eftirgjöf til
baka þegar líður á samningstímann.