Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 6. janúar 2010 FRÉTTIR
Tony Blair
dragbítur
Háttsettir menn innan breska
Verkamannaflokksins hafa viðr-
að áhyggjur af því að hlutur Ton-
ys Blair í rannsókninni á aðild
Breta í Íraksstríðinu geri að engu
vonir um að hann geti aðstoðað
flokkinn í komandi þingkosn-
ingum. Enn sem komið er hefur
forysta flokksins ekki samþykkt
nokkurt formlegt hlutverk Blair
til handa, en það kann að virðast
undarlegt í ljósi þess að hann fór
fyrir þremur samfelldum kosn-
ingasigrum flokksins.
Rannsóknin á þætti Breta
í Íraksstríðinu var ýtt úr vör af
núverandi forsætisráðherra,
Gordon Brown, og hefur opnað
að nýju gjána á milli fylgis-
manna Browns og Blairs, nú
þegar nokkrir mánuðir eru til
kosninga.
Neitar sök á
fjöldamorðum
Helsti sakborningurinn í fjölda-
morðunum sem voru framin á
Filippseyjum í nóvember lýsti
sig saklausan af þeim í gær. Alls
var lögð fram 41 morðákæra á
hendur honum, en 57 manns
voru myrtir, þar af um þrjátíu
fréttamenn.
Saksóknarar sögðust hafa
vitni sem myndu votta að sak-
borningurinn, Andal Ampatuan
yngri, borgarstjóri í Suður-Mag-
uindanao, hefði farið fyrir yfir
eitt hundrað manna vopnuðu
liði og lögreglu sem stöðvaði för
fórnarlambanna, neyddi þau
upp á hæð þar sem þau voru
skotin og husluð í fjöldagröf.
Sakborningur virtist lítt
snortinn þegar hann hlýddi á
ákæruatriðin.
Íranar skrásetja
óvini sína
Leyniþjónusta Írans hefur sett
saman lista yfir sextíu hópa,
samtök eða stofnanir sem þar-
lend stjórnvöld telja vera fulltrúa
fyrir „mjúkt stríð“ gegn landinu.
Samkvæmt Mehr-fréttastofunni
eru á listanum, meðal annarra,
Open Society Institute, sem var
stofnað af góðgerðafrömuðinum
George Soros, Human Rights
Watch-samtökin og hugmynda-
bankinn Brookings Institute.
Einnig er að finna á listanum
fréttaveitu BBC og Voice of Am-
erica, austur-evrópsku lýðræð-
ismiðstöðina í Póllandi, bresku
Wilton Park-stofnunina og fleiri.
Íranar eru hvattir til að hafa ekk-
ert „óeðlileg samband“ við þá
sem nefndir eru á listanum, er-
lend sendiráð og útlendinga.
Öryggismál Hvíta hússins komust
í hámæli þegar pari tókst að lauma
sér í matarboð sem haldið var til
heiðurs Manmohan Singh, forsætis-
ráðherra Indlands, í nóvember. Nú
hefur komið í ljós að boðflennurnar
Michaele og Tareq Salahi, sem heiðr-
uðu boðsgesti með nærveru sinni þá,
voru ekki einu boðflennurnar.
Að sögn starfsmanna öryggis-
þjónustunnar sem sér um öryggi for-
setahjónanna laumaði einn óboðinn
til viðbótar sér inn í veisluna. Um var
að ræða ónafngreindan karlmann
sem mætti á staðinn með indverskri
viðskiptasendinefnd sem fylgt var til
Hvíta hússins af starfsfólki utanríkis-
ráðuneytis Bandaríkjanna. En ekkert
bendir til þess að hann hafi hitt Bar-
ack Obama forseta Bandaríkjanna.
Michaele og Tareq Salahi urðu aftur
á móti þess heiðurs aðnjótandi að
vera heilsað með virktum af forset-
anum.
Eftir að upp komst að Salahi-
hjónin hefðu siglt undir fölsku flaggi
í veislunni voru þrír starfsmenn
öryggisþjónustunnar sendir í frí.
Upplýst hefur verið að engin boð-
flennanna fór í gegnum sérstaka ör-
yggisrannsókn fyrir veisluna aðra en
málmleit og hefðbundið öryggiseft-
irlit.
Að sögn starfsmanna utanríkis-
ráðuneytis Bandaríkjanna hefur ör-
yggisrofið verið rannsakað og nú
þegar hafa verið gerðar breytingar á
því hvernig tekið er á heimsóknum
erlendra sendinefnda.
Öryggisþjónustan hefur viður-
kennt mistök sín með tilliti til Salahi-
hjónanna, en yfirmaður hennar full-
yrðir þó að forsetinn hafi aldrei verið
í hættu. Salahi-hjónin og þriðja boð-
flennan sæta öll rannsókn og hjón-
unum hefur verið skipað að bera
vitni fyrir þingnefnd síðar í mánuð-
inum.
Salahi-hjónin og forsetinn Hjónin voru ekki þau einu sem komust óboðin inn í
Hvíta húsið.
Salahi-hjónin voru ekki einu boðflennurnar í Hvíta húsinu:
Þrjár boðflennur, ekki tvær
Sænska lögreglan segist hafa flett
ofan af útsmognum þjófum sem
lengi voru einu skrefi á undan rann-
sóknarlögreglunni. Málið snérist um
þjófa sem lögðu stund á skóþjófnað
í Stokkhólmi og Málmey, en virtust
sætta sig við að stela eingöngu dýr-
um vinstrifótarskóm.
Þegar upp var staðið bentu flest-
ar vísbendingar í aðeins eina átt – yfir
sundið til Danmerkur. Þannig er mál
með vexti að sænskar skóbúðir stilla
alla jafna aðeins vinstrifótarskóm
upp í versluninni, en í Danmörku er
víst hefð fyrir því gagnstæða og fyrr
í vikunni tilkynnti sænska lögregl-
an að hún hefði flett ofan af snilld-
aráætlun um að para saman vinstri-
fótarskó, sem stolið var í Málmey,
og hægrifótarskó, sem stolið væri í
Kaupmannahöfn.
Algengt en smátt í sniðum
Á vefsíðu The Times er vitnað í Stig
Möller, aðstoðaryfirlögregluþjón í
Málmey, og að hans sögn er greinilegt
að reynsla er komin á stuld af þessu
tagi. Um síðustu helgi varð starfsfólk í
Entré-verslunarmiðstöðinni í Málm-
ey vitni að því þegar tveir karlmenn
á sextugsaldri stálu vinstri skóm og
komust undan á hlaupum með sjö
slíka. Ef tækist að para vinstrifótar-
skóna með réttum hægri skóm yrði
parið um 180.000 króna virði.
Þrátt fyrir að um hafi verið að ræða
tiltölulega lítinn þjófnað er þjófnaður
af þessu tagi nokkuð algengur.
Náðust í annarri tilraun
Að sögn Önnu Johansson, afgreiðslu-
konu í Entré, er það ekki nýtt að
vinstri skór hverfi úr hillunum, en
ekki hafi tekist að ná þjófunum hing-
að til.
Anna Johansson sagðist ekki vita
af hverju Danir hefðu hægri skóna
til sýnis en þar sem þeir gerðu þetta
öfugt við Svía hefði vaknað grunur
um að hægri skór sem samsvöruðu
stolnum vinstri skóm í Svíþjóð hyrfu
úr dönskum skóbúðum.
Áðurnefndir skóþjófar komu
nokkrum tímum síðar aftur í verslun-
ina í Entré, en riðu ekki feitum hesti
frá búðinni í það skiptið. Afgreiðslu-
fólkið bar kennsl á þjófana og hafði
hendur í hári þeirra eftir stuttan elt-
ingaleik og kom þeim í hendur lag-
anna varða.
Engin augljós lausn
Á annað hundrað skóverslana eru í
Málmey sem er aðeins steinsnar frá
Kaupmannahöfn með sínar nokkur
hundruð skóverslanir. Í fjölda tilfella
eru sömu skómerki til sölu beggja
vegna sundsins og víðar í Skandin-
avíu.
Anna Johansson óttast að skó-
þjófnaður eigi eftir að færast í auk-
ana í ár því skór séu hentugir til
þjófnaðar, einfalt að flytja og koma
í verð. Aukinheldur segir hún að
skór hafi hækkað í verði undanfarið
og vegna kreppunnar hafi verslanir
þurft að fækka starfsfólki og séu því
ekki eins vel í stakk búnar til að verj-
ast þjófum.
Engin samvinna við Dani
Haft er eftir Lars-Håkan Lindholm,
talsmanni lögreglunnar í Málmey,
á vefsíðu The Times að engin gögn
væru fyrirliggjandi um hve mörg-
um vinstri skóm hefði verið stolið og
að engin samvinna hefði verið með
dönsku lögreglunni vegna málsins.
Ein möguleg lausn til að koma í
veg fyrir þjófnað á vinstri skóm í Sví-
þjóð væri að danskir skókaupmenn
tæku upp þann sið að hafa eingöngu
vinstri skó til sýnis í verslunum sín-
um, en að mati Marie Andersen, af-
greiðslustúlku í skóverslun í Kaup-
mannahöfn, er sú laus ekki raunhæf.
„Það er enginn tilgangur í því að
skipta yfir í vinstri skó því í Þýska-
landi sýna þeir hægri skóinn,“ sagði
Marie í viðtali við The Times.
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
EINN SKÓR HÉR,
ANNAR ÞAR Ef tækist að para vinstri-fótarskóna með réttum hægri skóm yrði parið um 180.000 króna virði.
Skór mátaður Líkt og
prinsinn í Öskubusku
þurftu þjófarnir að
finna hinn skóinn.
MYND PHOTOS.COM
Óprúttnir reyna ýmislegt þegar skórinn kreppir. Að því komst lögreglan í Málmey
nýlega þegar hún fletti ofan af bíræfnum þjófum sem stálu eingöngu vinstrifótar-
skóm í Svíþjóð, en handans sundsins, í kóngsins Köben, biðu hægrifótarskór þess
að fullkomna hvert skópar.