Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Síða 18
Eitt mesta sérkenni Íslendinga er að þeir virðast gjarnan bíða þess að utanaðkomandi aðilar bjargi þeim. Að þessu
leyti er þjóðin eins og barn, enda er
gjarnan talað um að Íslendingar séu
ung þjóð. Frá hruni hafa bjargvætt-
irnir verið Mats Josefsson, Svein Har-
ald Öygaard, allir útlenskir gestir Silf-
urs Egils, Joseph Stiglitz og fleiri.
Þessi áhersla Íslendinga á ábyrgð hinna utanaðkom-andi á rót sína í því að þjóðin er tiltölulega nýbúin að slíta
barnsskónum frá því að hafa verið ný-
lenda Dana. Íslendingar hafa barna-
legt og einfaldað viðhorf gagnvart
útlendingum, líkt og barn gagnvart
foreldri, af því að stjórnmálalega
hlýddu þeir tilskipunum annarr-
ar þjóðar í sjö aldir. Stundum fengu
þeir gott, en stundum var maðkur í
gottinu.
Vegna þess hve þjóðin er barnaleg gerði nánast eng-inn Íslendingur athugasemd þegar íslensk stjórnvöld
svöruðu utanaðkomandi gagnrýni
árið 2006 með þeim rökum að út-
lendingarnir væru öfundsjúkir. Í öðr-
um tilfellum voru útlendingar sagðir
vera á móti Íslendingum. Davíð Odds-
son útskýrði upphafið að kreppunni
vorið 2008 með því að óvinveittir
vogunarsjóðir væru að gera árás.
Áður hafði hann afskrifað alla gagn-
rýni á þeim grundvelli að hún kæmi
frá Baugsliðinu. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson telur að matsfyrirtæk-
ið Standard & Poors sé á mála hjá rík-
isstjórninni vegna þess að það breytti
horfum úr neikvæðum í stöðugar við
tímabundna samþykkt Icesave.
Fáir fullorðnir með eðlilegan þroska myndu beita fyrir sig slíkum rökum í samskiptum við aðra. Jafnvel dæmigerður
íslenskur asni, sem legði Range Rover
sínum ólöglega, myndi ekki svara
gagnrýni vegfaranda með þeim orð-
um að gagnrýnandinn væri á móti
sér. „Þú ert bara öfundsjúkur,“ myndi
hann varla segja, þótt erfitt sé að full-
yrða slíkt um Range Rover-eigendur.
Í hugarheimi barnsins eru all-ar þessar útskýringar gildar. Einhver er í liði með öðrum, öfundsjúkur, á móti barninu eða
bara vondur. Í leikskólagarðinum og
í barnaskólanum eru þetta algeng
andsvör. Allt bendir til þess að þroski
þjóðfélagsumræðunnar á Íslandi
samsvari um það bil þroska 8 ára
barns. Enda er sjálfstæði þjóðarinnar
bara átta ára í hundaárum.
Mörg dæmi eru þó um að umræðan hafi risið á hærra þroskastig. Í að-draganda bankahrunsins
svaraði Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins, gagnrýni bandarísks
greinanda með þeim orðum að hann
þyrfti að fara aftur í skóla. Þar var um
að ræða svar sem átta ára barn réði
varla við og væri helst á færi um 13
ára gelgju.
Helsta vörn stjórnvalda vegna hrunsins var að bankinn Lehman-bræður hefði fallið. Á leikvellinum
er fullkomlega við hæfi að kenna öðr-
um um og öllu öðru en sjálfum sér.
Þó ber að líta til þess að skólakrakkar
biðjast oft afsökunar að lokum.
Útsmognasta bragð barn-anna á leikvellinum er hins vegar að benda á næsta og segja „hann gerði það!“
þegar þau hafa gert eitthvað alvarlegt
af sér. Það er einmitt afstaða Sjálf-
stæðisflokksins í Icesave-málinu.
Steingrímur J. stendur nú drull-ugur upp fyrir haus og há-grátandi á leikvelli íslenskra stjórnmála. Nú fór hins vegar
í verra, því breska barnfóstran er
komin á svæðið. Hún hótar að Íslend-
ingum verði ekki hleypt inn í ESB.
Og íturvaxin hollensk fóstra hótar að
refsa okkur. Kannski yrði harðasta
refsingin að gera Bjarna Benedikts-
son forsætisráðherra og eftirláta
honum að leysa Icesave-málið, með
fjármálaráðherrann Sigmund Davíð
Gunnlaugsson sér við hlið. Þá fáum
við þúsund milljarða lán frá Noregi,
vísum Alþjóðagjaldeyrissjóðnum úr
landi og látum hann hjálpa okkur að
taka upp evru alveg einhliða. Nana
nana bú bú!
ÍSLENSKIR ÓVITAR
„Ég vil ekki fá spurninguna. Ég afþakka
boðið því ég svara ekki svona
spurningum,“ segir Örnólfur
Thorsson, ritari Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta Íslands.
Forsetinn synjaði á þriðjudag lögum
um ríkisábyrgð á Icesave og vísaði
málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. DV
reyndi að spyrja Örnólf spurningarinn-
ar Hvað kýst þú? en hann hafnaði því
að fá spurninguna upp borna þar sem
hann svaraði ekki slíkum spurningum.
ÖRNÓLFUR, …?
„Nú fær þjóðin
valdið og
ábyrgðina í sínar
hendur.“
n Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, eftir
að hann ákvað að samþykkja ekki Icesave-lögin
svokölluðu. - DV.is
„Þeir eiga ekki fyrir þessu.“
n Nigel Cassidy, viðskiptablaðamaður BBC í
Evrópu, eftir að forseti Ísland skaut Icesave-frum-
varpinu til þjóðaratkvæðagreiðslu. - DV.is
„Algjör skömm, stór
skömm og þjóðarskömm.
Skömm.“
n Inga, hlustandi síðdegisútvarpsins á Rás 2. Hún
var allt annað en sátt við það partístand sem sýnt
var í Áramótaskaupinu því Bessastaðir væru
bindindisheimili. - Rás 2
„Ný fjölmiðlalög
eiga ekki bara að
snúast um
eignarhald.“
n Sölvi Tryggvason um umhverfi blaðamanna á
Íslandi sem hann segir skammarlegt. Blaðamenn
geti ekki orðið starfað af fullum krafti af ótta við
lögsóknir og lítinn stuðning frá vinnuveitanda.
Niðurstaðan sé sjálfsritskoðun. - Pressan.is
„Endalok VG
sem öðruvísi
stjórnmálaafls
er staðreynd.“
n Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar. Hann
segir Björn Val Gíslason, þingmann vinstri-grænna,
farinn á taugum eftir að sá síðarnefndi sagði
sáttatón stjórnarandstöðunnar falskan. - DV.is
Háskaspil forsetans
LEIÐARI
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-lands, hefur slegið sín fyrri met í lýðskrumi með því að rifta samn-ingum milli Íslendinga, Breta og
Hollendinga. Í aðgerð forsetans felst full-
komið ábyrgðarleysi. Með einu pennastriki
slær hann ríkisstjórn og Alþingi út af borð-
inu og baðar sig í sviðsljósunum. Fáir trúa
því að neitun forsetans snúist um hagsmuni
þjóðar. Flestir eru á þeirri skoðun að hann sé
að reyna að upphefja sjálfan sig eftir að hafa
misst virðingu þjóðarinnar með grímulausu
útrásardaðri sínu.
Auðvitað er mikilvægt að þjóðin fái
tækifæri til þess að kjósa um stærri mál og
þannig náist fram beint lýðræði. Vandinn
við Icesave -málið er hins vegar sá að það
hefur verið í samningaferli talsvert á annað
ár. Allan þann tíma hefur Alþingi Íslendinga
verið undirlagt af deilum um þennan klafa
sem lagður var á þjóðina vegna stjórnenda
og eigenda Landsbankans að ógleymdum
þeim sem bera ábyrgð á lagarammanum
og eftirlitinu. Fjöldi þeirra sem hvöttu for-
setann til þess að synja lögunum staðfest-
ingar var í raun að mótmæla því að þurfa að
greiða skuldir sem stofnað var til af einkaað-
ilum. Það var þetta einfalda atriði sem réð
afstöðu fólks. Ekki var tekist á um Icesave í
heild sinni. Einungis var verið að breyta lög-
um frá því í sumar þegar Ísland undirgekkst
greiðsluskyldu og ábyrgð á greiðslum. For-
setinn skrifaði undir þau lög og samþykkti
þar með klafann á þjóð sína, rétt eins og
þrjár ríkisstjórnir og tvö þing þar á undan.
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J.
Sigfússon komust til valda í framhaldi af bús-
áhaldabyltingunni sem beindist gegn Sjálf-
stæðisflokknum, öðrum fremur. Vilji fólks-
ins náði fram að ganga. Þau hafa síðan unnið
að endurreisn Íslands eftir bestu getu og
sumpart af heilindum. Það skal að vísu árétt-
að að starf þeirra hefur verið fálmkennt og
ómarkvisst. Samband forsætisráðherra við
þjóðina er sáralítið og hvatningin í hlutfalli
við það. Jóhönnu hefur ekki tekist að skýra
fyrir þjóðinni nauðsyn þess að semja um
Ice save og halda þannig góðu sambandi við
umheiminn. Henni hefur heldur ekki tek-
ist að hefja upp málstað Íslands í útlöndum.
Það breytir þó ekki því að ásetningurinn var
augljóslega sá að rétta við hag þjóðarinnar.
Nú er komið að því að sigla löskuðu fleyi
Íslands til hafnar. Spurningin er einungis sú
hvaða óþarfafórnir til viðbótar hinn venju-
legi Íslendingur þarf að færa. Kannski fer
þjóðarskútan á botninn. Hvernig svo sem
Íslendingum reiðir af á næstu misserum er
ljóst að forseti útrásarinnar ber þar stærsta
ábyrgð. Hann ákvað að bregða á leik með
fjöreggið.
REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR. Með einu pennastriki slær hann ríkisstjórn og Alþingi út af borðinu.
BÓKSTAFLEGA
18 MIÐVIKUDAGUR 6. janúar 2010 UMRÆÐA
SANDKORN
n Hlustun á Rás 2 hefur að und-
anförnu verið á stöðugri niður-
leið undir dagskrárstjórn Sig-
rúnar Stefánsdóttur. Sérstaklega
hefur þótt sárt að morgunútvarp
Rásar 2 skuli
hafa tapað
fyrir morg-
unútvarpi
Bylgjunnar.
Neyðarúr-
ræði Ríkisút-
varpsins var
það að setja
þau Mar-
gréti Marteinsdóttur og Svein
Guðmarsson til höfuðs Heimi
Karlssyni og Sólveigu Bergmann
á morgnana. Það mun koma
fljótlega í ljós hvort það dugir til
að draga að hlustendur.
n Meðal áformaðra breytinga
í morgunútvarpi Rásar 2 er að
fækka pistlum hins glögga sam-
félagsrýnis Láru Hönnu Einars-
dóttur. Hún hefur verið með
pistla sína
á hverjum
föstudags-
morgni. Nú
stendur til að
fækka pistl-
um hennar
niður í einn
í mánuði og
fá poppaðri
pistlahöfunda á móti henni. Það
er öldungis óvíst að Lára Hanna
uni þeim breytingum og allt eins
líklegt að rödd hennar hjá RÚV
þagni.
n Um allt land er fólk nú að setja
sig í stellingar vegna sveitar-
stjórnarkosninganna. Vestan af
fjörðum heyrist að baráttujaxlinn
Kristinn H. Gunnarsson gæli við
þá tilhugs-
un að bjóða
sig fram í
Bolungar-
vík. Kristinn
er landlaus
maður í póli-
tík eftir að
hafa flosnað
upp úr Frjáls-
lynda flokknum og verið hafnað
af Framsóknarflokknum. Hann
gæti þó náð að fóta sig að nýju
ef hann fengi oddvitasætið hjá
bræðingslista vinstri manna. Og
ef listinn fengi meirihluta yrði
bæjarstjóraembættið í hendi.
n Hjá Sjálfstæðisflokknum í
Reykjavík er mesta óvissan um
slagkraft Geirs Sveinssonar
handboltakappa og athafna-
manns. Meðal sitjandi borgar-
fulltrúa nýtur
Júlíus Vífill
Ingvarsson
mests trausts,
samkvæmt
könnun
Capacent, en
Gísli Mart-
einn Baldurs-
son er í frjálsu
falli. Geir er með öflugt bakland
í tengdaföður sínum, Vilhjálmi
Þ. Vilhjálmssyni. Þá nýtur hann
stuðnings þess umdeilda Andr-
ésar Péturs Rúnarssonar, sam-
starfsmanns síns og partípinna.
Ekki er þó víst að sá stuðningur
skili honum miklu.
LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK
ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Sverrir Arngrímsson
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
FRÉTTASTJÓRAR:
Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Elísabet Austmann, elisabet@birtingur.is
DV Á NETINU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050.
SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
SPURNINGIN