Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Page 19
Hver er maðurinn? „Hannes Óli
Ágústsson heiti ég og er leikari.“
Hvað drífur þig áfram? „Þörfin til
að kanna hið óþekkta og skapa list.“
Hvar ertu uppalinn? „Ég bjó í
Seljahverfinu til 15 ára aldurs. Flutti
þá á Nýbýlaveginn í Kópavogi og bjó
þar til sirka 23 ára aldurs.“
Við hvað lékstu þér helst í æsku?
„Fótboltinn, handboltinn og He-Man
voru ofarlega á dagskrá en ég var
einnig mikill lestrarhestur og
kvikmyndafíkill. Ég lærði að lesa
þriggja ára þannig að menning af
öllum toga hefur verið vinsæl.“
Ertu sáttur við þau viðbrögð
sem Áramótaskaupið hefur
fengið? „Það er ekki annað hægt.
Fólk er í skýjunum yfir þessu öllum
saman og það er alltaf jákvætt.“
Hvenær uppgötvaðir þú þennan
hæfileika að geta leikið
Sigmund Davíð svo vel? „Það var
nú eiginlega félagi minn sem benti
mér á að ég væri ansi líkur honum.
Aðstandendur Skaupsins fréttu það
og þá fór ég að æfa mig. Ég tók svo
upp prufuvídeó og fattaði þá hversu
vel ég næði honum.“
Draumahlutverkið? „Það hlutverk
sem ég er að sinna hverju sinni. Þó
að það sé margt sem maður væri til í
að gera.“
Ertu framsóknarmaður? „Nei, en
afi minn var mjög harður framsókn-
armaður.“
Hvað finnst þér um að forsetinn
hafi ákveðið að samþykkja ekki
Icesave-frumvarpið? „Ég er enn þá
að melta það. Ég held að hann hefði
átt að gera það en það eru margar
hliðar á þessu máli. Er ekki 100
prósent andvígur því að hann skyldi
sleppa því en tel að óvissan gæti
jafnvel verið verri.“
Hvað er fram undan í leiklist-
inni? „Á föstudaginn er ég að
frumsýna nýtt leikrit í Norræna
húsinu sem heitir Munaðarlaus. Eftir
það er ég nokkuð frjáls. Ætli maður
endi ekki aftur á bótum.“
FERÐ ÞÚ Á ÚTSÖLURNAR?
„Ég er ekki búinn að fara. Ég veit ekki
hvort ég fer, það gæti vel verið.“
ÁGÚST FREYR MARTIN,
26 ÁRA ÖRYRKI
„Já, ég fór í Kringluna en gerði ekki góð
kaup.“
HARPA EGGERTSDÓTTIR
39 ÁRA, VINNUR Í BÓKHALDI
„Nei, ég fer kannski seinna í mánuðin-
um.“
JÓHANN FRÍMANSSON,
39 ÁRA ÖRYRKI
„Ég bý úti á landi og hef ekki farið á
neinar útsölur enn. Ég ætla að kíkja á
þær.“
EYRÚN GUNNARSDÓTTIR,
53 ÁRA SVEITAKONA
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
HANNES ÓLI ÁGÚSTSSON
sló heldur betur í gegn í hlutverki
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar,
formanns Framsóknarflokksins, í
Áramótaskaupinu. Hannes lærði að
lesa þriggja ára og var mikið fyrir
He-Man. Hann er ekki framsóknar-
maður þó að afi hans hafi verið það.
EKKI FRAMSÓKNAR-
MAÐUR
„Nei, ég ætla ekki að fara.“
KRISTÍN SVAVARSDÓTTIR
50 ÁRA HEIMAVINNANDI HÚSMÓÐIR
MAÐUR DAGSINS
Ísland hefur látið af illræmdu ráð-
herraræði. Þjóðin beitti valdi sínu
síðastliðið vor og kaus sér nýtt lög-
gjafarþing. Nokkrir kjörnir fulltrúar
stjórnarliða vildu í kjölfarið leggja
niður flokksræðið þegar blés gegn
sannfæringu þeirra á þingi og heimt-
uðu að sérhver þingmaður fengi að
vera sinn eigin flokkur með sína eig-
in stefnuskrá sem stundum er kölluð
sannfæring.
Nú er vald þjóðarinnar, sem eitt
sinn var hjá guði og síðan kónginum,
komið til Ólafs Ragnars Grímssonar
þjóðkjörins forseta Íslands. Hann er
orðinn stjórnvald að vilja þjóðarinn-
ar og stjórnarskrárinnar.
Þjóðin hefur tekið upp forseta-
ræði.
Hvernig fer forsetinn með vald
sitt?
Hann notar það til að vísa valdinu
aftur til þjóðarinnar.
Málið er komið í hring. Allt í nafni
lýðræðisins sem nú er að leggja Kali-
forníuríki á hliðina. Hátt á fjórða tug
milljóna Kaliforníubúa hafa nefni-
lega þann háttinn á að bera allt milli
himins og jarðar undir atkvæði. Allt
væri það vel ef íbúar þverneituðu
ekki staðfastlega að samþykkja til-
lögur um skattahækkanir eða aðr-
ar álögur til að halda uppi velferð
eða öryggi borgaranna. Því er nú svo
komið að Kaliforníuríki undir stjórn
vöðvatröllsins Arnolds Schwarzen-
egger er á hvínandi kúpunni.
Berum vextina undir
þjóðaratkvæði
Nú verður það borið undir at-
kvæði þjóðarinnar hvort Ísland eigi
að greiða skuld við Hollendinga og
Breta fyrir 2024 á 5,5 prósenta vöxt-
um með gjaldfresti til ársins 2016 og
hvaðeina.
Kannski ætti þjóðin frekar að fá
að kjósa um sjálfa synjun forsetans
á staðfestingu Icesave-laganna frá
30. desember síðastliðnum. Spurt
er: Var rétt af forseta Íslands að synja
Ice asve-lögunum staðfestingar? Já
( ) , Nei ( ).
Annars hafa vísir lögfræðing-
ar bent á að nú sé Ólafur Ragnar
Grímsson forseti orðinn stjórnvald,
sama þótt það stjórnvald styðjist
við stjórnarskrá enda er hún ekkert
annað en lagafyrirmæli. Forsetinn
hafi gefið út eins konar stjórnvalds-
tilskipun þegar hann synjaði Iceave-
lögunum staðfestingar.
Þá blasir sem sagt við að unnt er
að kæra þessa stjórnvaldsaðgerð,
höfða mál fyrir dómstólum. Þannig
sé ríkisstjórninni í lófa lagið að kæra
þá ákvörðun Ólafs Ragnars að vísa
Icesave-víxlinum til þjóðarinnar.
Þar getur málið mallað um langa
hríð og Steingrímur J. getur þá í næði
gengið frá málum við Hollendinga
og Breta með fyrirvara um að ein-
hvern tíma verði kveðinn upp hæsta-
réttardómur um gildi ákvörðunar
forsetans.
Góður stuðningsmaður forsetans
um langa hríð sagði í eyru þess sem
þetta ritar að nú væri hann farinn að
misnota stjórnarskrána og ákvörð-
un hans væri geðþóttaleg og snéri að
hans eigin skinni eftir smán útrásar-
ævintýrisins.
Á þetta verður ekki lagður dóm-
ur. En fjári er hart fyrir litla og þjáða
þjóð að vera ofurseld duttl-
ungum tveggja manna,
Davíðs Oddssonar og
Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, sem báðir vilja
endurreisa æru sína
og bjarga eigin skinni.
Má það kosta hvað
sem er?
Þjóð beri ábyrgð á sjálfri sér
En í nafni víðsýni, lýðræðis, gagnsæ-
is og göfugs ásetnings: Á ákvörðun
Ólafs Ragnars getur verið allt önnur
hlið. Veruleikann má skoða frá mis-
munandi sjónarhólum.
Ólafur Ragnar veit hversu erfitt
hefur verið að breyta stjórnskipan
landsins. Þar hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn staðið í vegi fyrst og síðast og
vísað til hefða og festu. Ólafur
Ragnar veit manna best hversu
illa þroskuð þrískipting valds-
ins er hér á landi. Hann gagn-
rýndi á dögunum hversu ósjálf-
stæðir dómstólarnir væru í litla
sæta kunningjaþjóðfélaginu
með flokksskírteinin.
Ólafur Ragnar veit hversu
illa er haldið á réttindum borgar-
anna í þessu landi, jafnvel lág-
marks mannréttindum.
Kannski gerði hann sér
ágæta grein fyrir því að
ákvörðunin, sem hann
tók í gær, kynni að falla
í grýttan jarðveg um all-
ar jarðir. En nauðsynlegt
væri að hirta þjóðina,
ala hana upp, þroska
lýðræðisvilja hennar,
koma henni í skilning
um það í eitt skipti
fyrir öll að hennar
sé ábyrgðin; þjóð-
in verði á endanum
að þroska með sér
viljann til upplýsing-
ar sem er undirstaða
lýðræðisins og mark-
aðarins. Hún megi ekki
alltaf varpa ábyrgðinni á
aðra, fulltrúa sína.
Eða jafnvel forsetann.
Forsetaræðið íslenska
KJALLARI
MYNDIN
1 Fyrrverandi starfsmaður AGS
reyndi að drepa yfirmann sinn
Fyrrverandi hagfræðingur Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins er nú eftirlýstur af lögreglu
fyrir tilraun til morðs eftir að hann skaut
einn af yfirmönnum sínum.
2 Bestu brjóstin 2009 – myndir
Glamúrmódelið Keeley Hazell er með
mikilfenglegasta barminn að mati lesenda
breska götublaðsins The Sun.
3 Avatar: Kynlífsatriðið verður á
DVD-útgáfunni
James Cameron, leikstjóri og handritshöf-
undur stórmyndarinnar Avatar, segir að
kynlífsatriðið milli Jake Sully og Neytiri
verða í DVD-útgáfu myndarinnar.
4 Hommar taka myndir – myndir
Marc Jacobs og Lorenzo Martone eyddu
áramótunum á St. Barts og tókur þar
margar myndir.
5 Rihanna fær bossaknús
Söngkonan Rihanna (22) fékk bossaknús
frá L.A. Dodgers-kappanum Matt Kemp í
Mexíkó.
6 Gerir Gordon Brown innrás?
Aðstoðarritstjóri Evrópuútgáfu Wall Street
Journal, Ian Martin, telur ekki ólíklegt að
Gordon Brown geri innrás á Íslandi í kjölfar
Icesave-málsins.
7 Johnson & Johnson erfingi
látinn
Casey Johnson, erfingi Johnson &
Johnson veldisins, fannst látin á heimili
sínu í Los Angeles.
MEST LESIÐ á DV.is
JÓHANN
HAUKSSON
útvarpsmaður skrifar
„Þjóðin verði á enda-
num að þroska með
sér viljann til upplýs-
ingar sem er undir-
staða lýðræðisins og
markaðarins.“
UMRÆÐA 6. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 19
Íþróttaárið gert upp Ólafur Stefánsson var valinn íþróttamaður ársins á þriðjudagskvöld. Ólafur Ragnar Grímsson forseti lauk
annasömum degi á verðlaunahátíðinni. MYND RAKEL ÓSK