Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 6. janúar 2010 FRÉTTIR
Notarðu veturinn; frostið, myrkrið, snjóinn eða vindinn, sem afsökun fyrir því að þú ferð ekki út að skokka
eða ganga? Sannleikurinn er sá að veðrið er engin afsökun fyrir því að sitja heima. DV tók saman lista yfir
þau atriði sem gott er að hafa í huga þegar æft er við erfiðar aðstæður. Þú hefur enga afsökun lengur.
FARÐU ÚT AÐ ÆFA
Fatnaður
Algengustu mistökin, þegar fólk
fer að æfa úti í kulda, er að klæða
sig of vel. Æfingin framkallar hita
(og svita) þannig að þér líður eins
og það sé 20 til 30 gráðum hlýrra
en það er í raun og veru. Þegar þú
þreytist og hægir á þér þornar svit-
inn og þér verður kalt. Lausnin er
að klæða sig í nokkrar léttar flíkur.
Þannig geturðu klætt þig úr smátt
og smátt eftir því sem þér hitnar.
Forðastu að klæðast bómullarfatn-
aði innst, sem gerir það að verkum
að húðin helst rök. Farðu fyrst í flík
úr gerviefni sem dregur í sig svit-
ann, farðu svo í létta flíspeysu og
loks vind- og vatnshelda flík sem
andar, þannig að rakinn komist út.
Dúnúlpa eða þykkur ullarfatnaður
er ekki heppilegur þegar þú ætlar
að hlaupa eða æfa úti.
Ef það er mikið frost þá getur verið
sniðugt að hafa léttan klút fyrir vit-
unum.
Passaðu útlimina
Þegar þú ert í miklum kulda leitast
líkaminn við að halda hita á mik-
ilvægustu líffærunum. Hendur og
fætur geta því orðið berskjaldaðar
fyrir kali. Gott ráð til að koma í veg
fyrir kaldar hendur er að klæðast
þunnum fingravettlingum innan
undir þykkari vettlingum eða lúff-
um. Á sama hátt má, með því að
klæða sig í tvenna sokka, koma í veg
fyrir kalda fætur. Ekki gleyma vind-
heldri og hlýrri húfu.
Öryggið á oddinn
Gætið þess að festa á ykkur endur-
skinsmerki ef þið ætlið út að æfa í
myrkri. Þannig sjá ökumenn ykkur
margfalt fyrr en ella. Litríkur fatn-
aður getur líka hjálpað. Ef það er
hálka eða snjór er mikilvægt að
velja skóbúnað sem hefur mik-
ið grip. Hægt er að kaupa alls kyns
efni og brodda undir skóna til að
auka gripið, án þess að það bitni á
æfingunni. Notið hjálm ef þið eruð
á skíðum, snjóbretti eða hjóli.
Sólin er varasöm
Það getur verið auðvelt að brenna
þegar sólin skín á skjannahvít-
an snjóinn, sérstaklega þegar sól-
in hækkar á lofti með vorinu. Not-
ið sólarvörn ef þið ætlið að vera úti
lengi og ekki gleyma sólgleraugun-
um. Þannig verndið þið augun fyrir
útfjólubláum og óæskilegum geisl-
um sólarinnar.
Hlauptu upp í vindinn
Góð aðferð til að koma í veg fyrir að
þú guggnir á miðri leið er að byrja á
því að hlaupa eða hjóla upp í vind-
inn. Það er ólíklegra að þér verði
kalt á heimleiðinni - sérstaklega ef
þú ert sveittur - ef þú snýrð bakinu
í vindinn. Það er líka auðveldara að
hlaupa undan vindi og minni líkur
á því að þú gefist upp ef þú hefur
vindinn í bakið á bakaleiðinni.
Drekktu vatn
Gættu þess að drekka nógu mikið
vatn þegar þú æfir úti. Þú svitnar
yfirleitt alveg jafn mikið þó þú æfir
í köldu umhverfi og þú gerir í hita.
Drekktu áður en þú æfir, meðan á
æfingu stendur og eftir á líka.
Vindkæling
Ekki vanmeta kuldann þótt það sé
bara smávægilegt frost úti. Vind-
kæling getur haft mikil áhrif. Þannig
jafngildir -5°C frost í logni -10°C ef
vindurinn er 4 metrar á sekúndu. Ef
vindurinn er 14 metrar á sekúndu
jafngildir frostið 15 gráðum. Mikil-
vægt er að klæðast fatnaði sem er
vindheldur, sérstaklega þegar skíði,
hlaup eða hjólreiðar eru stundaðar.
Byrjaðu rólega
Ef þú hleypur af stað með krafti í
miklum kulda aukast líkurnar á
tognun eða öðrum eymslum í vöðv-
um eða liðamótum. Líttu á fyrstu 10
til 15 mínúturnar sem upphitun og
taktu því rólega þar til vöðvarnir eru
orðnir heitir. Teygðu létt á áður en
þú byrjar.
Ekki ætla þér um of
Það er mikilvægt fyrir alla þá
sem stunda útivist að vetri til að
þekkja takmörk sín og þekkja ein-
kenni ofkælingar og kals. Fyrstu
einkennin eru doði og fölleiki í
húðinni. Ef þig grunar að þú sért
að kólna um of skaltu ekki nudda
svæðið. Reyndu að koma þér inn
og jafnaðu þig hægt og rólega.
Ekki skella þér strax í heitt bað. Ef
þig grunar að um kal eða ofkæl-
ingu sé að ræða skaltu hringja á
neyðarlínuna.
Spurðu lækninn
Sérfræðingar segja að nánast hver
sem er geti æft í frosti, jafnvel fólk
sem er með astma eða hjarta-
sjúkdóma. Ráðfærðu þig samt við
lækni ef þú ert með einhverja sjúk-
dóma.
Fyrirhyggja og hvatning
Kuldi eða vont veður er engin af-
sökun til að liggja í sófanum. Með
því að afla sér þekkingar og sýna of-
urlitla fyrirhyggju geturðu hægtlega
æft í nístandi frosti. Notaðu kuld-
ann og einveruna úti í náttúrunni
sem hvatningu.
baldur@dv.is