Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Síða 24
GRÉTAR RAFN BJARTSÝNN Grétar Rafn Steinsson, landsliðsmaður og leikmaður Bolton í
ensku úrvalsdeildinni, segir nýjan þjálfara liðsins hafa traustar stoðir til að byggja á. Gary Megson var
rekinn í síðustu viku og er Owen Coyle, stjóri Burnley, að taka við liðinu. Bolton hefur farið af-
leitlega af stað á árinu og er við fallsvæðið. Leikur liðsins hefur þó skánað að undanförnu
og er liðið taplaust í fimm leikjum í öllum keppnum. „Við erum með marga spennandi
leikmenn og nýr þjálfari fær marga möguleika. Við stóðum okkur ágætlega í desem-
ber þrátt fyrir að sigrarnir væru ekki eins margir og við hefðum viljað. En að vera
taplausir í gegnum allan mánuðinn segir allt sem segja þarf um styrk hópsins okkar,“
segir Grétar Rafn.
Handknattleiksmaðurinn magnaði
Ólafur Stefánsson var í gærkvöldi
kjörinn íþróttamaður ársins 2009.
Þetta er annað árið í röð sem Ólafur
hampar titlinum og annað árið í röð
sem hann fær fullt hús stiga. Alls er
þetta í fjórða skiptið sem Ólafur hlýt-
ur nafnbótina íþróttamaður ársins.
Ólafur er 36 ára gamall og er áfram sá
þriðji elsti sem hlotið hefur titilinn.
Ólafur fór eins og venjulega á
kostum með liði sínu Ciudad Real
á Spáni og vann nær alla titla sem í
boði voru. Annað árið í röð lék hann
gífurlega stórt hlutverk í úrslitarimm-
unni í meistaradeildinni og leiddi lið
sitt til sigurs yfir feikisterku liði Kiel.
Hann lék þó engan landsleik á árinu
þar sem hann var í fríi frá landsliðinu.
Knattspyrnumaðurinn Eiður
Smári Guðjohnsen varð í öðru sæti
og knattspyrnukonan Þóra B. Helga-
dóttir í þriðja sæti. Fjórða varð svo
Helena Sverrisdóttir sem hefur tvö
undanfarin ár verið í ellefta sæti.
tomas@dv.is
Ólafur Stefánsson íþróttamaður ársins 2009:
FULLT HÚS ANNAÐ ÁRIÐ Í RÖÐ
UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON, tomas@dv.is
24 MIÐVIKUDAGUR 6. janúar 2010
DEILDARBIKAR
FRESTAÐ
n Báðum viðureignunum í und-
anúrslitum deildarbikarsins sem
áttu að fara fram á þriðjudag og
miðvikudag
var frestað
vegna fann-
fergis. Black-
burn og Ast-
on Villa áttu
að mætast á
þriðjudaginn
og Manchest-
er-liðin degi
síðar. Leik
City og United var frestað til 19.
janúar en vegna þess þurfti að
fresta deildarleik Manchester
United og Hull. Þarf knattspyrnu-
sambandið því að finna tíma til
að troða honum inn á annars
þétt tímaplan ensku liðanna.
RAFA EYGIR MAXI
n Argentínski kantmaðurinn
Maxi Rodriguez er við það að
ganga í raðir
Liverpool ef
marka má
umboðs-
mann hans.
Rodriguez
vill komast
frá Atletico
Madrid sem
hefur ekkert
getað á tíma-
bilinu. Þarf Argentínumaðurinn
að taka á sig verulega launalækk-
un vilji hann spila á Anfield en
sjálfur segist hann tilbúinn til
þess. Maxi er sagður hafa verið í
viðræðum við bítlaborgara og var
hann ekki í leikmannahópi Atlet-
ico um síðustu helgi.
FERGUSON
EKKI KÆRÐUR
n Sir Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, verður
ekki kærður fyrir ummæli sín
eftir bikartap
Englands-
meistaranna
gegn Leeds
um helgina.
Sagði hann
þar dómar-
ann, Chris
Foy, hefði
ekki staðið
sig, sérstak-
lega þegar að kom uppbótartíma
sem Ferguson fannst eiga að vera
lengri. Var Skotinn geðstirði þó
ekki talinn hafa farið yfir strikið
og slapp við sitt annað bann á
tímabilinu.
KOLLER Í
ÞRIÐJU DEILD
n Tékkinn tröllvaxni Jan Koller
er kominn á nýjan áfangastað á
sínum annars áhugaverða ferli.
Þessi 36 ára
gamli fram-
herji hefur
yfirgefið
rússneska
liðið Sam-
ara og samið
við Cannes
sem leikur í
þriðju efstu
deild frönsku
knattspyrnunnar. „Hann vildi
helst eiga rólegt líf með fjöl-
skyldunni þrátt fyrir áhuga frá
félögum í Þýskalandi og Kína,“
sagði umboðsmaður Kollers um
vistaskiptin. „36 ára að aldri hef
ég ekki lengur mikinn metnað,
ég vil spila fótbolta mér til gam-
ans,“ sagði Koller sjálfur.
MOLAR
1. Ólafur Stefánsson – handbolti 380 stig
2. Eiður Smári Guðjohnsen – knattspyrna 187 stig
3. Þóra B. Helgadóttir – knattspyrna 164 stig
4. Helena Sverrisdóttir – körfubolti 104 stig
5. Helga Margrét Þorsteinsdóttir – frjálsar íþróttir 98 stig
6. Jón Arnór Stefánsson – körfubolti 86 stig
7. Guðjón Valur Sigurðsson – handbolti 78 stig
8. Jakob Jóhann Sveinsson – sund 63 stig
9. Björgvin Páll Gústavsson – handbolti 55 stig
10. Hólmfríður Magnúsdóttir – knattspyrna 50 stig
Efstu tíu í valinu 2009
Ólafur Stefánsson Með fullt
hús annað árið í röð MYND RAKEL
„Menn eru bara mjög vel stemmd-
ir, það er ekkert hægt að kvarta yfir
því,“ segir Guðmundur Guðmunds-
son, landsliðsþjálfari í handbolta, en
strákarnir okkar komu til æfinga á
mánudagsmorguninn. Þann 19. jan-
úar hefur Ísland leik á Evrópumótinu
í Austurríki þar sem það er í erfiðum
riðli með heimamönnum sem Dagur
Sigurðsson þjálfar, Dönum og Ser-
bum, en fyrsti leikurinn er gegn þeim
síðarnefndu. Guðmundur leggur
mikla áherslu á að mótið sé erfitt og
heldur öllum væntingum niðri eins
og svo oft áður. Ísland mætir til leiks
með allt að því sitt sterkasta lið þó að
eitthvað sé um meiðsli í hópnum.
Vongóður þrátt fyrir meiðsli
Hornamaðurinn Þórir Ólafsson sem
hefur farið á kostum í þýsku úrvals-
deildinni í vetur og skyttan geðþekka
Logi Geirsson komu báðir meiddir
til leiks í sautján manna hópi Guð-
mundar. Logi er tæpur vegna axlar-
meiðsla en bakslag kom í bata Þóris
eins og greint hefur verið frá. „Menn
eru almennt í góðu formi þótt það
sé misjafnt ástand á mönnum eins
og gengur og gerist. Það er ákveðin
óvissa með vissa leikmenn. Við von-
um að Þórir verði klár í næstu viku og
um sama leyti ættu mál Loga að skýr-
ast. Það getur vel verið að hópurinn
breytist en ég er tiltölulega vongóður
með þetta,“ segir Guðmundur.
Þessi meiðsli eru þó smávægileg
miðað við þær raunir sem liðið gekk í
gegnum í undankeppninni. Þar voru
meira og minna allir silfurdrengirnir
frá í mörgum leikjum en Ísland end-
aði samt í efsta sæti riðilsins. „Við
erum með mjög sterkan hóp og það
er ágætis tilbreyting. Við vorum með
ALLIR VERÐA AÐ
HALDA SIG VIÐ
JÖRÐINA
Undirbúningur íslenska landsliðsins í handbolta er kominn á
fullt en æfingar hófust á mánudaginn. Tæpar tvær vikur eru þar
til Ísland leikur gegn Serbíu í fyrsta leik sínum á Evrópumót-
inu í Austurríki en þar á milli verður æft stíft og leiknir fimm
æfingaleikir. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari stillir
öllum væntingum í hóf og leggur fyrst og fremst áherslu á að
komast upp úr riðlinum.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Hershöfðingi Guðmundur er afar
skipulagður þjálfari og veit hvað
hann vill. MYNDIR RÓBERT REYNISSON