Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Side 25
Danska miðjubuffið Jan Mölby er
ekki hrifinn af Ryan Babel, leik-
manni Liverpool. Mölby, sem lék
lengi með Liverpool við gríðarlega
góðan orðstír segir að Hollending-
urinn eldfljóti hafi ekki nýtt þau
tækifæri sem hann hafi fengið og
vilji fara auðveldu leiðina.
„Það er eins og Babel sé ekki
að gera það sem honum er sagt að
gera. Hann þarf að setja undir sig
hausinn og fara að vinna fyrir laun-
unum sínum. Nýta tækifærin sem
honum eru gefin. Hann virðist ekki
hafa áhuga á því. Mér virðist hann
bara vilja fara auðveldu leiðina.“
Heyrst hefur að Babel, sem er
23 ára, verði sendur burt frá Liver-
pool, enda hefur honum ekki tekist
að heilla Rafa Benitez, stjóra Liver-
pool. Þrátt fyrir það hefur Benitez
sagt að ekki komi til greina að selja
Babel. Babel vill að sjálfsögðu fá að
spila fótbolta, enda er það forsend-
an hjá Bert van Marwijk, lands-
liðsþjálfara Hollands, fyrir því að
menn komi til greina í HM-hóp
Hollands.
Babel kom til Liverpool árið
2007 eftir að hafa slegið í gegn á
EM U-21 árs landsliða. Arsenal,
Barcelona og AC Milan vildu öll fá
Babel til sín, enda þótti hann vera
einn efnilegasti kantmaður Evr-
ópu. Hann hefur hins vegar aldrei
sýnt neitt af viti í búningi Liver-
pool.
benni@dv.is
Jan Mölby, fyrrverandi stórstjarna Liverpool, ekki ánægður með Ryan Babel:
VILL FARA AUÐVELDU LEIÐINA
BJÖGGI TIL ÞÝSKALANDS Markakóngur Pepsi-deild-
arinnar, Björgólfur Takefusa, fór á þriðjudagsmorgun til reynslu
hjá þýska félaginu Rot Weiss Ahlen eftir því sem kom fram á
vefsíðunni KRReykjavík.is Rot Weiss leikur í næstefstu deild í
Þýskalandi en situr á botni deildarinnar með átta stig. Liðið
hefur aðeins skorað tíu mörk á tímabilinu og leitar nú að fram-
herja. Björgólfur ætti að geta hjálpað þar en hann skoraði sextán
mörk í nítján leikjum með KR í sumar, þar af heil fimm gegn Val á
Voda fone-vellinum þar sem hann stal markakóngstitlinum.
ÆTLA AÐ GRÆÐA Á RYAN Enska úrvalsdeildarliðið Stoke
ætlar svo sannarlega ekki að missa miðvörðinn Ryan Shawcross í
bráð en þar á bæ hafa menn skellt 20 milljóna punda, eða 4 millj-
arða króna, verðmiða á piltinn. Manchester City er nýjasta liðið til
að bera víurnar í varnarmanninn unga. Shawcross fór í gegnum
ungliðastarf Manchester United og kostaði Stoke ekki nema eina
milljón punda þegar það keypti hann fyrir tveimur árum. „Það er
alveg skýrt í okkar huga að Shawcross fer hvergi. Hann er hæfi-
leikaríkur piltur sem leikur lykilhlutverk hjá Stoke,“ segir Pulis.
SPORT 6. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 25
KANI TIL KEFLAVÍKUR
n Úrvalsdeildarlið Keflavíkur í
körfubolta landaði Kana í vik-
unni. Bandaríkjamaðurinn Drae-
lon Burns mun leika með liðinu
út tímabil-
ið. Á vefsíðu
Keflvíkinga
kemur fram
að Burn sé
rétt tæplega
tveggja metra
hár skotbak-
vörður en
hann kemur
frá Depaul -
háskólanum. Burns spilaði í Ís-
rael á síðasta tímabili þar sem
hann skoraði 15,7 stig að meðal-
tali í leik. Hans fyrsti leikur verð-
ur væntanlega gegn Breiðabliki
þann 10. janúar.
ÞRJÁR SÖMDU VIÐ
ELÍSABETU
n Sænska úrvalsdeildarfélagið
Kristianstad verður áfram Íslend-
inganýlenda. Elísabet Gunnars-
dóttir tók við
liðinu í fyrra
og þrátt fyrir
erfiða byrjun
komst liðið
á ról og hélt
sæti sínu í
deildinni.
Hólmfríður
Magnúsdótt-
ir er farin í bandarísku atvinnu-
mannadeildina en liðið samdi
við allar hinar stúlkurnar þrjár
sem léku með liðinu á tímabil-
inu. Þær Erlu Steinu Arnardóttur,
Guðnýju Björk Óðinsdóttur og
svo Margréti Láru Viðarsdóttur.
BRIATORE ÚR BANNI
n Glaumgosinn og yfirspaðinn
Flavio Briatore, fyrrverandi lið-
stjóri Renault í Formúlu 1, hefur
fengið aflétt eilífðarbanni frá
íþróttinni sem hann var dæmd-
ur í.
Alþjóða akst-
ursíþrótta-
sambandið
dæmdi hann
í eilífðar-
bann þegar
upp komst
að hann
hefði skipað
ökumanninum Nelson Piquet
að klessa á vegg og þar með hag-
ræða úrslitum í keppni í Singa-
púr árið 2008. Taldi hærri dóm-
stóll að bannið væri óeðlilegt og
getur Briatore því snúið sér aftur
að Formúlunni.
GOG Í GREIÐSLU-
STÖÐVUN
n Danska úrvalsdeildarliðið í
handbolta, GOG Svendborg, er
komið í greiðslustöðvun. Guð-
mundur
Þórður Guð-
mundsson,
landsliðsþjálf-
ari Íslands,
og landsliðs-
maðurinn
Ásgeir Örn
Hallgríms-
son leika
með liðinu. GOG gat ekki haldið
til streitu þeirri björgunaráætl-
un sem lögð var fram rétt fyrir
jól en liðið hefur glímt við mikil
fjárhagsleg vandræði að undan-
förnu. Nú geta leikmenn yfirgefið
liðið þegar í stað án nokkurra
vandkvæða og er flóttinn þegar
hafinn. Einnig voru dregin af lið-
inu tvö stig.
MOLAR
Vonbrigði Ryan Babel hefur ekki
beint slegið í gegn hjá Liverpool.
svo marga menn meidda á tíma-
bili sem var mjög erfitt en nú verður
gaman að púsla hópnum saman. Það
eru auðvitað einhver meiðsli en ekki
næstum jafnmikil og voru í undan-
keppninni,“ segir Guðmundur.
Skilur ekki þjálfara Alexanders
Til mikillar lukku eru meira og minna
allir landsliðsmennirnir að spila með
sínum liðum, margir hverjir ef ekki
allir í lykilhlutverki. Einn allra besti
leikmaður íslenska liðsins undanfar-
in ár, Alexander Petersson, hefur þó
þurft að verma tréverkið hjá sínu liði,
Flensburg. Það er eitthvað sem Guð-
mundur nær ekki. „Maður bara skil-
ur þetta ekki. Pabbi hægri skyttunnar
(Oscars Carlen) er þjálfari liðsins og
hann notar strákinn. Þetta er mjög
furðulegt. Alex á að fá fleiri tækifæri
þar sem hann er eins og allir vita al-
veg frábær leikmaður.“
Afar jákvæður punktur er þó varn-
arleikurinn og tröllin þrjú sem sjá
um miðvarðarstöður landsliðsins.
Ingimundur Ingimundarson leik-
ur lykilhlutverk hjá Minden, Vignir
Svavarsson hefur leikið afar vel með
Lemgo og þá hefur Sverre Jacobson
öðlast nýtt líf með Grosswallstadt.
„Sverre hefur leikið alveg frábærlega
og svo má ekki gleyma Vigga. Það er
afar jákvætt að varnarmennirnir séu
í svo góðu standi,“ segir Guðmundur.
Heldur væntingum í hófi
„Það eru alltaf miklar vænting-
ar en þetta er mjög sterkt mót og
það er ekkert gefið í þessu,“ svar-
ar Guðmundur um hæl þegar hann
er spurður um miklar, og stundum
óraunhæfar, væntingar þjóðarinn-
ar til landsliðsins. „Menn þurfa svo
sannarlega að halda sig við jörðina,
bæði við og þjóðin. Þetta er alveg
hörku erfitt mót. Serbarnir eru með
alveg frábært lið og það vanmetur
enginn Austurríki á heimavelli. Svo
þekkjum við Danina auðvitað vel,“
segir Guðmundur sem hefur skýrt
markmið, en þó ekki hástemmt.
„Fyrsta markmiðið er að komast
upp úr riðlinum og það verður bara
alls ekkert svo auðvelt,“ segir Guð-
mundur en þrjú af fjórum liðum fara
áfram í milliriðil. „Nú taka okkur allir
mjög alvarlega og munu skoða okkur
mikið. Við verðum bara að gera okk-
ur grein fyrir því að það að komast
upp úr riðlinum verður erfitt verk-
efni.“
Kemur ferskur inn
Guðmundur tók við þjálfarastöðu
danska úrvalsdeildarfélagsins GOG
Svendborg í sumar og hefur þjálfað
það með fínum árangri. Peninga-
staða liðsins hefur þó tekið sinn toll.
Hann sjálfur segist endurnærður
eftir að hafa hugsað bara um hand-
bolta í allan vetur. „Ég held að þetta
komi okkur bara að góðum notum.
Ég kem mjög ferskur inn enda er ég
að vinna við handbolta öllum stund-
um. Ég tel mig bara mjög vel undir-
búinn. Mér finnst þetta fara mjög vel
saman enda erum við svo sem ekk-
ert eina þjóðin sem er með lands-
liðsþjálfara sem einnig þjálfar fé-
lagslið,“ segir Guðmundur en kemur
hann þá með einhverjar nýjungar í
leik liðsins?
„Já, við erum með sitt lítið af
hverju. Við byggjum auðvitað á
sama grunni en það eru nokkrir nýir
hlutir sem við erum að prófa aðeins.
Við erum að bæta við tveimur til
þremur leikaðferðum. Það kannski
hljómar ekki eins og mikið en það er
töluvert verkefni á þessum skamma
tíma. Svo ætlum við að vinna aðeins
áfram með vörnina okkar og þróa
hana. Gerum smávægilegar breyt-
ingar en fyrst og fremst ætlum við
að reyna að viðhalda því góða sem
við höfum verið að gera síðan á Ól-
ympíuleikunum. Við verðum með
sérstakan fund þar sem við förum
yfir það sem við höfum verið að gera
vel,“ segir Guðmundur.
Nýliðinn stöðvaður Ólafur
Guðmundsson, nýliðinn í landsliðinu,
kemst hvorki lönd né strönd gegn
Óla Stef og Alexander Petersson.
Ræða málin Snorri Steinn og
Róbert Gunnars fara yfir málin
með ungu kynslóðinni.