Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Side 9
FRÉTTIR 3. maí 2010 MÁNUDAGUR 9
aður að hluta með eigin fé en
einnig fékk félagið lán hjá Morgan
Stanley með veði í hlutunum,“ en
lausafjárstaða Milestone var gríð-
arlega sterk á þessum tíma eftir að
félagið hafði selt 13 prósenta hlut
í Glitni fyrir á milli 50 og 60 millj-
arða króna.
Svo dró heldur betur ský fyr-
ir sólu, samkvæmt skýrslunni,
og á seinni helmingi árs 2007 „…
þrengdist staða íslenskra fjárfesta
mjög enda margir mjög skuldsett-
ir.“ Það var í þessu andrúmslofti
sem erlendu fjármálafyrirtækin
byrjuðu að sækja að íslensku eign-
arhaldsfélögunum. Um þetta segir
í skýrslunni: „Með lækkandi hluta-
bréfaverði versnaði tryggingastaða
lána og erlendir lánveitendur ís-
lensku fjárfestanna fóru að kalla
eftir auknum tryggingum. Við-
brögð íslensku bankanna voru að
lána fyrir þessum tryggingum.“
Lán Þáttar í uppnámi
Í tilfelli Þáttar International seg-
ir í skýrslunni að hlutabréfaverð
í Glitni hafi verið búið að lækka
mikið og því lán félagsins hjá
Morgan Stanley komist í upp-
nám. Í lánasamningum Þáttar við
Mor gan Stanley var ákvæði um að
bankinn gæti gert veðkall hjá fé-
laginu ef gengi hlutabréfa í Glitni
færi niður fyrir 20. Þetta gerðist í
ársbyrjun 2008.
Þess vegna leitaði Þáttur Inter-
national til Glitnis en um þetta
segir í skýrslu rannsóknarnefnd-
arinnar. „Snemma árs 2008 var
hlutabréfaverð í Glitni búið að
lækka mikið og lán dótturfélaga
Milestone hjá Morgan Stanley og
Citbank voru í uppnámi og Mile-
stone leitaði til Glitnis til að leysa
úr þessum málum. Eftir nokkrar
þreifingar lánaði Glitnir til þess að
greiða upp þessi lán en lausnin var
í raun þríþætt.“
Bjarni tók þátt í lausninni
Lausnin á vandamálum Þáttar sem
talað er um í skýrslunni snérist um
að stofnuð voru tvö félög, Svartháf-
ur og Vafningur, sem tóku við lán-
veitingum upp á samtals tæplega
300 milljónir evra, um 30 millj-
arða króna, frá Glitni. Svartháfur
var í eigu föður eigenda Milestone,
Karls og Steingríms Wernerssona,
og Vafningur var í eigu þeirra og
Einars og Benedikts Sveinssona.
Hluti þessara lánveitinga Glitn-
is til Vafnings og Svartháfs rann svo
í gegnum félögin til Þáttar Inter-
national og þaðan til Morgan Stan-
ley til að greiða upp lánið vegna
kaupanna á Glitnisbréfunum. Um
þetta segir í skýrslunni: „Í febrú-
ar 2008 lánaði Glitnir rúmlega 100
milljónir inn í Földung [Vafning,
innsk. blaðamanns] með veði í
Glitnisbréfum Þáttar International
og fleiri eignum. Í mars voru síðan
greiddar 50 milljónir evra inn á það
lán til að losa veðin af Glitnishlut-
unum en þá voru Svartháfi lán-
aðar rúmlega 190 milljónir evra.
Hluti þess láns var lánaður áfram
til Þáttar International …“ Á einum
stað í skýrslunni er lánið til Svart-
háfs sagt vera „skýrt brot á reglum
um lán til tengdra aðila“: „Í raun
hafði Glitnir í sjónhendingu afhent
um 6,8% eigna sinna og án þess
að tilkynna það opinberlega!“ En
lánað var til félags í eigu Werners
vegna þess að eigendur Milestone
höfðu sjálfir fengið svo mikið lán-
að í bankanum að þeir máttu ekki
fá meira.
Það voru þessi viðskipti Þáttar
International, Vafnings, Svartháfs
og Glitnis sem Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins og sonur Benedikts Sveinsson-
ar, tók þátt í þann 8. febrúar þegar
hann veðsetti hlutabréf föður síns
og frænda í Vafningi. DV hefur sagt
margar fréttir af aðkomu Bjarna
að Vafningsviðskiptunum á liðn-
um mánuðum. Tilgangur viðskipt-
anna var sá að taka við lánveiting-
unni frá Glitni til að geta borgað
Morgan Stanley og sloppið við að
missa hlutabréfin í Glitni í Morgan
Stanley. Þess vegna veðsetti Bjarni
hlutabréfin í Vafningi.
Afleiðingin af þessu varð sú að
Þáttur International náði að halda
á bréfunum í Glitni í nokkra mán-
uði í viðbót. Ef fjárveitingin hefði
ekki komið frá Glitni má fullyrða
að Þáttur hefði misst bréfin til
Morgan Stanley því enginn hefði
fundist til að lána félaginu á þess-
um tíma. Þetta hefði hugsanlega
átt þátt í að flýta íslenska banka-
hruninu um nokkra mánuði þar
sem líklegt er að hrun Þáttar hefði
haft dómínóáhrif sem leitt hefði til
falls Glitnis.
Áhættan jókst
Rannsóknarnefndin rekur nokkrar
ástæður fyrir lánveitingunni sem
endaði hjá Þætti, sem og fyrir hinum
lánveitingunum þar sem íslensku
bankarnir fengu íslensku félögin í
fangið.
Fyrsta ástæðan er sú að íslensku
bankarnir hafi verið búnir að lána
þessum félögum svo mikið af pen-
ingum að það skipti bankana miklu
máli að félögin næðu að rétta úr
kútnum. Í öðru lagi hafi eigendur
þessara eignarhaldsfélaga haft óeðli-
lega mikinn aðgang að lánsfé í bönk-
unum vegna þess að þeir voru stórir
hluthafar. Í þriðja lagi segir nefndin,
og þetta er líklega helsta gagnrýnin
á Vafningssnúninginn, að lánveit-
ingarnar hafi að stórum hluta verið
til að fjármagna hlutabréfaviðskipti
með bréf í bönkunum sjálfum. Lán-
in hafi því verið hluti af „tilraunum
bankanna til að viðhalda verði hluta-
bréfanna“. Hér á nefndin við það að
ef Morgan Stanley hefði leyst bréf
Þáttar í Glitni til sín hefði gengi bréfa
í bankanum lækkað enn hraðar og
hugsanlega hrunið.
Ástæðan er sú að Morgan Stan-
ley hefði allt í einu staðið með 7 pró-
senta hlut í Glitni í höndunum og
enginn á markaði hefði haft áhuga
á að kaupa hann á sæmilegu verði.
Hluturinn hefði því á endanum ver-
ið seldur á lágu verði og hefði þetta
hraðað hruni bankans. Þegar litið er
til þess að FL Group notaði Glitni um
svipað leyti til að endurfjármagna 10
prósenta hlut í Glitni sem Mor gan
Stanley hafði fjármagnað upphaflega
er enn frekar hægt að átta sig á hætt-
unni af þessu fyrir Glitni. Mor gan
Stanley hefði því hugsanlega getað
verið með 17 prósenta hlut í Glitni á
útsölu ef bankinn hefði ekki hlaupið
undir bagga með þessum hluthöfum
sínum og lánað þeim fé.
Lýsing rannsóknarnefndarinnar
á þessum viðskiptum Þáttar Inter-
national og Glitnis, sem og annarra
félaga í þessum hluta skýrslunnar,
verður því ekki skilin á annan hátt
en svo að nefndin telji að um mark-
aðsmisnotkun hafi verið að ræða
sem ætlað hafi verið að halda uppi
hlutabréfaverðinu í bönkunum. Að
þessu leytinu til svipar þessum mál-
um til Al-Thani málsins í Kaupþingi,
Imon-málsins í Landsbankanum
og Stím-málsins í Glitni sem eru til
rannsóknar hjá sérstökum saksókn-
ara efnahagshrunsins, Ólafi Hauks-
syni.
Með þessu var hægt að komast
fram hjá leyfilegum út-
lánamörkum og gild-
andi reglum um stórar
áhættur hvað varðar lán
til sömu eða fjárhags-
lega tengdra aðila.
MARKAÐSMISNOTKUN
GLITNIS OG ÞÁTTAR
Helstu lánveitingar erlendra fjármálafyrir-
tækja til íslenskra félaga:
n Deutsche Bank fjármagnar yfirtöku á
Actavis
n Milestone fær lán frá Morgan Stanley til
að kaupa Invik
n Milestone og Einar og Benedikt
Sveinssynir fá lán frá Morgan Stanley til
að kaupa hlutabréf í Glitni
n Citibank fjármagnar hlutabréfaeign Kjalars í Kaupþingi
n Sampo-hlutur Exista fjármagnaður af Citibank
Bankarnir fá íslensku eignarhaldsfélögin
í fangið árið 2008:
n Landsbanki lánar fyrir veðkalli Deutsche Bank vegna fjármögnunar á Actavis
n Glitnir lánar fyrir uppgreiðslu skulda Milestone við Morgan Stanley út af Invik
n Glitnir lánar fyrir uppgreiðslu skulda Þáttar International við Morgan Stanley
út af Glitnisbréfum
n Kaupþing greiðir upp skuldir Eglu Invest hjá Citibank
n Glitnir greiðir upp lokahluta láns FL hjá Morgan Stanley
Lánveitingar frá erlendum bönkum
Áhyggjur Starfsmenn Seðlabanka Íslands munu hafa haft áhyggjur af stöðunni þegar það
spurðist út í ársbyrjun 2008 að íslensku bankarnir væru að taka við fjármögnun íslensku
eignarhaldsfélaganna. Davíð Oddsson var bankastjóri Seðlabankans þegar þetta var.
Markaðsmisnoktun og
lögbrot Í skýrslu rannsóknar-
nefndar er látið í það skína að
Vafningsviðskiptin hafi verið
markaðsmisnotkun og brot á
reglum um útlán til fyrirtækja.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, tók þátt í
Vafningsviðskiptunum.
www.birkiaska.is
Birkilauf- Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og
þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn
úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar
líkamann (detox).
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
DETOX
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -