Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Side 3
Háværar kröfur eru nú settar fram um að þeir þingmenn og borgarfull- trúar, sem enn hafa ekki gert grein fyrir því hvaðan þeir fengu peninga til að reka prófkjörs- og kosningabar- áttu árin 2005 til 2007, leggi fram öll gögn þar um. Sérfræðingar hafa tengt dalandi fylgi Sjálfstæðisflokksins og Samfylk- ingarinnar í nýjustu fylgiskönnun- um við umræðuna um styrkveiting- ar bankanna og annarra fyrirtækja til frambjóðenda og virðist það ýta und- ir sjónarmið um að stærstu styrkþeg- ar geri annaðhvort tæmandi grein fyrir framlögum ellegar víki úr trún- aðarstöðum. Guðlaugur Þór Þórðarson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, er sá þingmaður sem mestra fjármuna afl- aði á umræddu tímabili eða alls tæp- ar 25 milljónir króna. Hann vildi ekki tjá sig um málið þegar DV hafði sam- band við hann í gær en kvaðst fara yfir styrkjaumræðuna í Fréttablaðinu í dag. Mótmælendur hafa undanfarna daga safnast fyrir utan heimili Guð- laugs Þórs og Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, Samfylkingunni. Ólíkt Guðlaugi hefur hún birt öll gögn um styrkveitendur og hvernig 12,8 millj- ónum króna var varið í tveimur próf- kjörum. Af 25 milljóna króna framlögum árin 2005 til 2007 til Guðlaugs Þórs hefur verið upplýst, að 2 milljónir komu frá Baugi og 1,5 milljónir frá Landsbankanum. Frambjóðendur undir feldi? Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, hefur hvatt kjörna fulltrúa flokksins til þess að upplýsa um styrkveitingar og hvaðan þær eru komnar. Sveinn Andri Sveinsson, lögfræð- ingur og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er stuðnings- maður Guðlaugs Þórs. Hann hef- ur að undanförnu átt í ritdeilu við Agnesi Bragadóttur, blaðamann á Morgunblaðinu. „Hún þegir um það að Gísli Marteinn Baldursson hefur gefið upp kolrangar tölur um kostn- að sinn í prófkjörinu vegna borgar- stjórnarkosninganna 2006.“ Gísli Marteinn er fjórði mesti fjáraflamaðurinn í röðum starfandi stjórnmálamanna, en hann gaf upp 11,4 milljónir króna á umræddu tímabili. Hvorki hann né Guðlaugur Þór hafa gefið upp hvaðan styrkirnir eru. Það hafa hins vegar bæði Illugi Gunnarsson og Steinunn Valdís gert. Þá þáði Gísli Marteinn Baldursson laxveiðiferð til Rússlands í boði Glitn- is sumarið 2007. DV náði ekki sam- bandi við Gísla Martein þrátt fyrir ít- rekaðar tilraunir í gær. 120 milljónir frá bönkunum Árin 2006 og 2007 létu Kaupþing og Landsbankinn umtalsvert fé af hendi rakna til einstakra frambjóðenda. Landsbankinn útdeildi 23,5 milljón- um króna og Kaupþing 10,5 milljón- um króna. Með þeim fyrirvörum að gögn rannsóknarnefndar Alþingis hafi ekki með öllu verið tæmandi er ljóst að bankarnir styrktu þrjá stjórnmála- flokka; Sjálfstæðisflokkinn, Samfylk- inguna og Framsóknarfokkinn og einstaka frambjóðendur um samtals 120 milljónir króna. Mörgum kjósendum þykir sem einu megi gilda hvort stjórnmála- menn hafi gert tæmandi grein fyr- ir framlögum og styrkjum og hvernig þeim hafi verið varið. Þeir sem tekið hafi við milljónum króna á velmektar- tímum bankanna verði einfaldlega að víkja, ella verði trúnaðarbrestur við- varandi milli stjórnmála og kjósenda. FRÉTTIR 3. maí 2010 MÁNUDAGUR 3 SAT BEGGJA VEGNA BORÐS Yfir milljón á mánuði Kristján Gunnarsson var einn launahæsti verkalýðsforkólf ur landsins árið 2008 samkvæmt tekjublaði Mannlífs, en þá voru mánaðarlaun hans 1,2 milljónir króna. Úr greinargerð siðfræðihóps rannsóknarnefndar, Siðferði og starfshættir í tengslum við fall íslensku bankanna 2008, e. Vilhjálm Árnason, Salvöru Nordal og Kristínu Ástgeirs- dóttur. n „Forsvarsmönnum lífeyr- issjóðanna er trúað fyrir miklum verðmætum, en í stjórnum sjóðanna sitja fulltrúar verkalýðssamtaka og atvinnurekenda. Þeir gæta lífeyris almennings og gera verður til þeirra sambærilegar kröfur og annarra sem gæta almannahagsmuna. Því er mikilvægt að traust ríki milli stjórnenda sjóðanna og almennings. Lífeyris- sjóðirnir eru langtímafjár- festar og því mjög eftirsóknarverðir fyrir fyrirtæki landsins. Þá sækjast fjármálafyrir- tækin eftir viðskiptum við þá enda geta þóknanir numið háum fjárhæðum þar sem um mikla fjármuni er að ræða. Af þessum sökum verða starfshættir lífeyrissjóðanna að vera hafnir yfir allan vafa þar sem verklagsreglur verða að vera skýrar og gagnsæjar til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra eða að einum sé hyglað fram yfir annan. [...] Sárlega skorti skýrar reglur hjá lífeyrissjóðunum um starfshætti, ekki síst um boðsferðir og gjafir. Slíkar reglur eru til þess fallnar að auðvelda fólki að standast freistingar og þrýsting utan frá og auka trúverðugleika gagnvart almenningi. Ljóst er af skýrslutökum að forsvarsmenn lífeyrissjóðanna hafa áttað sig á þessari stað- reynd, enda hafa margir lífeyrissjóðir unnið að gerð siðareglna á síðustu mánuðum. Í íslensku viðskiptalífi og stjórnkerfi hafa starfshættir oftar en ekki verið byggðir á matskenndum reglum eða óskýrum hefðum og á það við um lífeyrissjóðina eins og aðra. Í litlu samfélagi þar sem tengsl eru náin eru skýrar reglur enn mikilvægari og geta verið árangursríkt tæki til að efla þá varnarmúra sem eru nauðsynlegir í starfsemi lífeyrissjóðanna. Á meðan íslenskir lífeyrissjóðir fjárfesta að stórum hluta hér á landi er enn mikilvægara að reglurnar séu skýrar. “ Traust almennings mikilvægt n Í úttekt sænsku félagsfræðinganna Jakobssons og Lövmarcks segir frá því þegar Maria Borelius og Cecilia Stegö Chilo sögðu af sér ráðherradómi á fyrstu þremur vikum ríkisstjórnar Reinfeldts fyrir meira en þremur árum. Höfundar ganga að því vísu að Maria og Cecilia hafi með einhverjum hætti brotið gegn siðaboðum samfélagsins þegar þær gáfu ekki upp til skatts laun barnfóstra. Chilo, sem var menntamálaráðherra, hafði auk þess skotið sér undan því að greiða afnotagjöld af sænska ríkissjónvarpinu. Greinarhöfundar nefna fjórar siðareglur sem komu við sögu í máli Ceciliu og Mariu: n Fólk í opinberum virðingarstöðum á að gæta hófsemi í opinberum athöfnum sínum. n Fólk í opinberum virðingarstöðum á fortakslaust að sýna gott fordæmi. n Fólk sem tekur að sér opinberar ábyrgðarstöður á að hafa óflekkað mannorð. n Fólk í opinberum stöðum á að vera heiðarlegt. Hófsemi, heiðarleiki, gott fordæmi... Háværar kröfur eru um að stjórnmálamenn sem þáðu háa styrki í eigin kosningasjóði af föllnu bönkunum og útrásarfyrirtækj- um segi af sér. Dalandi fylgi Sjálfstæðisflokksins og Samfylk- ingarinnar í nýjum fylgiskönnunum er rakið til umræðunnar um spillingarfnyk af stórfelldum styrkjum. Mikill þrýstingur er innan flokks á Guðlaug Þór Þórðarson og Gísla Martein Bald- ursson um að gera grein fyrir styrkjum sínum. ALLT UPP Á BORÐIÐ JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálf- stæðisflokki, gaf upp nærri 25 milljónir króna til ríkisendurskoðanda. Hann ræðir styrkjamál sín í Fréttablaðinu í dag. Ágreiningur innan flokka Þótt Stein- unn Valdís Óskarsdóttir hafi gert grein fyrir nærri 13 milljóna króna tekjum og útgjöldum kosningasjóða sinna telja margir að ekki sé nóg að gert. Gefur ekki upp styrkveitendur Þrýst er innanflokks á Guðlaug Þór Þórðarson að gefa upp nöfn fyrirtækja sem lögðu fé í kosningasjóði hans. Gaf hann allt upp? Sveinn Andri Sveinsson, flokksbróðir Gísla Marteins Baldurssonar, gefur í skyn að hann hafi vantalið framlög í kosningasjóði árið 2006.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.