Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Blaðsíða 18
STORMURINN KJAFTSTOPP n Veðurfréttamaðurinn Sigurður Þ. Ragnarsson, Siggi Stormur, hefur undanfarið unnið ýmis verk fyrir DV. Meðal annars hefur hann fjall- að um eldgosið í Eyjafjallajökli af þekkingu. Sig- urður, sem rekur fyrirtækið Veður ehf., skrifaði frétt fyrir DV þegar mótmælt var fyr- ir utan hjá Þorgerði Katrínu Gunnars- dóttur í aðdraganda afsagnar hennar. Fyrir misskilning sendi hann skrifaða frétt á fréttastofu Ríkisútvarpsins. Storminn rak í rogastans þegar hann heyrði í fréttatíma RÚV að samkvæmt fréttatilkynningu frá Veðri ehf. hefðu átt sér stað mótmæli hjá Þorgerði. Stormurinn varð kjafstopp. HETJA OG HANDBENDI n Naprir vindar blása nú um ritstjórn Morgunblaðsins eftir að kvöldfrétta- stjórinn Gunnhildur Arna Gunnars- dóttir gerði uppreisn vegna frétta- mats Davíðs Oddssonar rit- stjóra sem vildi að Mogginn legði áherslu á sök bankanna í hrun- inu. Gunnhildur hefur uppskor- ið mikla aðdáun víða vegna að- gerða sinna gegn ritskoðun á blaðins. Hún hefur af sumum verið kölluð hetja. Innan Moggans er nokkur fjöldi starfsmanna sem er sama sinnis en þorir þó ekki að aðhafast. Í uppgjöri Gunnhildar vekur hvað mesta athygli að aðstoðarritstjórinn Karl Blöndal virðist vera einkar handgenginn for- ingja sínum Davíð. KLUKKA DAVÍÐS TIFAR n Fjölmiðlaspekingar velta nú fyrir sér hve lengi Davíð Oddsson, sem úrskurðaður hefur verið vanrækslu- maður, geti setið á ritstjórastóli Moggans. Hvert hneykslið af öðru lítur dagsins ljós innan ritstjórnar og eigendur glíma við stórtap. Í eigenda- hópnum er aðallega einn sem hefur verið ósáttur vegna veru Davíðs. Sá er Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrrver- andi stjórnarformaður Glitnis, sem Davíð hefur sakað um blekkingar til að ná út stórum hluta gjaldeyrisvara- sjóðs Íslendinga til að bjarga Glitni. Ótrúlegt þykir að Þorsteinn muni leggja Árvakri til meiri peninga en orðið er. VILDU HENDA AGNESI ÚT n Mikið fjör var á aðalfundi Blaða- mannafélags Íslands þar sem átök stóðu á milli fylkinga Hjálmars Jóns- sonar, nýkjörins formanns, og Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur, fráfarandi formanns. Mikillar móðursýki gætti í báðum hópum og dróst fundur- inn mjög á langinn. Meðal þeirra sem hafði sig sem mest í frammi var Agnes Bragadóttir, pistlahöfundur á Mogganum, sem var mjög vanstillt. Hún kallaði ítrekað fram í, hvellri röddu og uppnefndi Þóru Kristínu. Einhverjir vildu fleygja Agnesi út en fundarstjóri féllst ekki á það. Svarthöfði hefur einskæran áhuga á mannlegu eðli. Síð-ustu daga hefur hann orðið þess áskynja að skítabomb- urnar eru byrjaðar að fljúga manna á milli í samfélaginu í auknum mæli. Svarthöfði veit ekki nákvæmlega hvaða ástæða liggur þar að baki. Hann heldur þó að ástæð-una sé að finna í því að í kjölfar skýrslu rannsókn-arnefndar Alþingis séu margir helstu leikarar hennar komnir upp við vegg og geri nú hvað sem er til að kasta rýrð á fjandmenn sína. Bar- átta hrunverja í dag snýst um að ná almenningsálitinu sér í hag. Hér kem- ur skilningur Svarthöfða á mannlegu eðli að góðum notum því hann veit að oft þegar menn eru að falli komnir reyna þeir að draga aðra í dauðann með sér. Breyskleiki mannsins lætur hann hugsa: Ef ég dey þá sé ég til þess að aðrir deyi með mér. Svo er höggvið. Skýrasta dæmið um þetta birt-ist í óræðri og persónulegri grein sem Jón Ásgeir Jóhann-esson birti á Pressunni fyrir helgi. Þar hendir Jón Ásgeir mörgum skítabombum í allar áttir. Tilgang- ur greinar Jóns var að svara skrifum Agnesar Bragadóttur - sem líklega er mesti mykjudreifarinn á Íslandi - um Jón Ásgeir og Baug í Morgunblaðinu. Jón Ásgeir lætur Agnesi heyra það enda er samband þeirra eitt hið flóknasta í íslenskum samtíma. Agnes hefur í gegnum tíðina sleikt sig upp við Jón, þegið far í einka- þotu auðmannsins og verið gestur í veislum hans. En svo gerðist eitthvað: Allt í einu byrjaði Agnes að úthúða þessum sykurpabba sínum. Og eng- inn veit af hverju. En Jón Ásgeir lætur ekki þar við sitja heldur skýtur á vinnuveitendur Agnesar, Guðbjörgu Matthíasdóttur og Óskar Magnússon. Hann lætur í það skína að Guðbjörg hafi búið yfir innherjaupplýsingum frá syni sínum sem starfaði í Glitni þegar hún seldi hlutabréf sín í bankanum skömmu fyrir hrun. Um Óskar upplýsir Jón Ás- geir að útgefandinn hnýsni hafi feng- ið 40 prósent afslátt í verslunum Haga í fimm ár eftir að hann hætti sem forstjóri Hagkaupa. Af nægu er því að taka í þessu skítamixi Jóns Ásgeirs. Áðurnefnd Agnes lét heldur ekki sitt eftir liggja í saur-skotunum því hún sendi breiðsíðu á Guðlaug Þór Þórðarson og nánasta bandamann hans Svein Andra Sveinsson, sem sjálfur upplýsti fyrstur um einkaþotu- flug Agnesar, í pistli sínum í Morgun- blaðinu á sunnudag. Sveinn Andri svaraði henni svo álíka skítlega í bloggpistli. Svarthöfða finnst ekkert leiðin-legt að upplifa dálitla dramat-ík í annars dimmri og tilfinn-ingasnauðri tilveru sinni og finnst dálítið fyndið að fylgjast með þessum þjóðþekktu einstaklingum ata hver annan auri trekk í trekk. En á sama tíma finnst honum dálítið skrítið á hversu lágt plan þetta fólk er reiðubúið að fara til að koma höggi á náungann. Fólk í góðum stöðum í samfélaginu hegðar sér eins og það sé í leikskóla, uppnefnir hvert annað og híaar á hvert annað á næsta kloflæg- an hátt eins og það sé enn á þermi- stiginu með Freud og litlu börnunum. Svarthöfði spyr sig að því hvort það sé ráðlegt að skoðana-skipti kúkadreifarans á Morg-unblaðinu séu tekin upp af öðrum alveg gagnrýnislaust. Af tvennu illu er nefnilega betra fyrir þá sem verða fyrir kökum hennar að þegja af sér flauminn ógeðfellda. Í atganginum í kringum skýrslu rann- sóknarnefndarinnar er gott að hafa þetta í huga þegar skítabomburnar byrja að fljúga aftur. Enginn getur unnið neitt ef umræðan fer niður á Agnesarstigið, nema auðvitað Agnes sjálf sem þá getur gefið í og látið fleiri bombur fljúga. SKÍTABOMBURNAR FLJÚGA „Já. En ég veit að ég get alltaf hitt hana í detox,“ segir Einar Skúlason, oddviti Framsóknar- flokksins í borgarstjórnar- kosningunum í Reykjavík. Jónína Benediktsdóttir átti sæti á lista Framsóknar en sagði sig úr flokknum í gær eftir að Guðrún Valdimarsdóttir vék af listanum. MUNTU SAKNA JÓNÍNU? „Ég skil réttláta reiði almenn- ings.“ n Björgólfur Thor um reiði almennings gagnvart þeim sem voru þátttakendur í þeirri atburðarás sem leiddi til hrunsins. - Fréttablaðið „Mér var hótað nauðgun“ n Sóley Tómasdóttir um að henni hafi verið hótað nauðgun vegna feminískra skoðana sinna. Hún varð óörugg og gekk ekki ein um bæinn. - DV „...það er sárast að hann geti ekki svarað sjálfur fyrir þetta.“ n Guðný Anna Tórshamar í Vestmannaeyjum um eiginmann sinn Jóhannes Esra Ingólfsson sem lést skyndilega í júlí 2009. Hún berst nú til að fá líftryggingu hans greidda. - DV „Ég hef verið að leita að gítar- leikara sem heit- ir Jónas Geir.“ n Beggi Dan, söngvari kántrísveitarinnar Baugs, sem heldur úti síðunni baugur.is. Jónas Geir yrði þá með póstfangið jonasgeir@baugur. is. - DV „Við Steinn erum ekki í neinni pissu- keppni.“ n Davíð Þór Jónsson um sig og Stein Ármann en þeir fara hvor með sinn kaflann í frægu uppistandi Ricky Gervais; Villidýr og Pólitík. - DV Til hamingju, Davíð! Davíð Oddsson hefur unnið stórsigur sem ritstjóri Morgunblaðsins. Könn-un MMR á trausti þjóðarinnar á fjölmiðlum sýnir að 46 prósent þjóðarinnar treysta blaðinu undir hans ritstjórn. Aðeins 25 prósent þjóðarinnar vantreysta blaðinu sem ritstýrt er af formanni Sjálf- stæðisflokksins til 14 ára og pólitískt skipuð- um seðlabankastjóra bankahrunsins. Davíð er sérstaklega þekktur fyrir áróð- ursaðferðir sínar, svokallaðar smjörklípur, sem eiga ekkert sameiginlegt með heil- brigðri blaðamennsku. Í rannsóknarskýrslu Alþingis var einnig greint frá því hvernig hann, sem seðlabankastjóri, vildi íhlutast um stjórn ríkisins. Þar sagði núverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá því hvernig Davíð hafi hótað honum að honum yrði „ólíft á Íslandi það sem eftir er“, ef hann samþykkti ekki það sem hann segði. Það er ótrúlegur árangur hjá slíkum manni að fá helming þjóðarinnar til að treysta fjölmiðli sem hann stýrir. Ísland takmarkar starfsmöguleika margra, en í tilfelli Davíðs stóraukast þeir. Davíð er lánsamur að búa á Íslandi, því í þró- uðum lýðræðisríkjum þætti bæði ómögulegt að hann væri nógu hlutlaus til að gegna stöðu seðlabankastjóra og hvað þá stýra dagblaði. Og eigendur blaðsins myndu vita að það þýddi ekki að halda honum sem ritstjóra, því hann myndi eyðileggja traustið á blaðinu. Traustið á Morgunblaðinu hefur hins vegar bara minnkað um 11 prósentustig og van- traustið aðeins aukist um 12 prósentustig. Fólk treystir blaðinu sem birti nýlega fréttaskýringu Agnesar Bragadóttur um að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, væri „mjög afgerandi, sterkur og heill“ og „langsterkasti stjórnmálaforingi Sjálfstæðisflokksins“ og að „enginn [kæmi] til greina sem formaður annar en [hann]“. Í sömu grein var Kristján Þór Júlíusson, mögulegur mótframbjóðandi Bjarna, af- greiddur á einfaldan hátt með tilvitnun í nafnlausan sjálfstæðismann: „Hann er bara tækifærissinni, svo einfalt er það.“ Þjóðin treystir blaðinu sem setti á forsíðu að efnahagshrunið væri „ábyrgð bank- anna“, þótt niðurstaðan væri sú að ábyrgðin dreifðist víðar, ekki síst til ritstjóra blaðsins. Forsvarsmönnum Morgunblaðsins virðist finnast óþarft að fela misnotkunina. Þótt einn fréttastjóri segi upp störfum vegna af- bökunar á hrunskýrslunni gerir það ekkert til. Á sama tíma getur blaðið auglýst að eng- um prent- eða vefmiðli á landinu sé treyst meira en fjölmiðli Davíðs. Þetta eru góðar fréttir fyrir Davíð og hans líka, en um leið sýnir þetta að það verður erfitt að byggja upp heilbrigt samfélag á Íslandi. JÓN TRAUSTI REYNISSON RITSTJÓRI SKRIFAR. Það verður erfitt að byggja upp heilbrigt samfélag á Íslandi. 18 MÁNUDAGUR 3. maí 2010 UMRÆÐA SANDKORN LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK ÚTGÁFUFÉLAG: DV ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Lilja Skaftadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Bogi Örn Emilsson RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is DV Á NETINU: DV.IS AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050. SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. LEIÐARI SPURNINGIN SVARTHÖFÐI BÓKSTAFLEGA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.