Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 3. maí 2010 FRÉTTIR
KÆRÐIR ÚT AF
LEGSTEINUM
Rekstraraðilar Granítsmiðjunnar hafa verið kærðir til lögreglu vegna grunsemda um
að eignum hafi verið komið undan þrotabúi fyrirtækisins. Skiptastjóri búsins, Lúðvík
Örn Steinarsson, segir muna talsverðum fjármunum sem gefnir voru upp við gjald-
þrotið og því sem nú er að finna í höfuðstöðvum fyrirtækisins.
Rekstraraðilar Granítsmiðjunnar
eru grunaðir um að hafa komið tals-
verðum verðmætum undan þrotabúi
fyrirtækisins og hefja nýjan rekstur
sem byggður er á þeim verðmætum.
Skiptastjóri þrotabúsins, Lúðvík Örn
Steinarsson hæstaréttarlögmaður,
hefur kært þá til lögreglu út af þessu
og krafist formlegrar rannsóknar.
Þegar þrotabú Granítsmiðjunnar
var innsiglað um síðustu áramót, eft-
ir að fyrirtækið hafði sjálft óskað eftir
gjaldþrotaskiptum, lagði það inn yf-
irlit um lagerstöðu og verðmæti sem
lágu í búinu. Kæra skiptastjórans snýr
að því að þau verðmæti sem nú sé að
finna í höfuðstöðvum fyrirtækisins
samræmist ekki því sem áður hafði
verið gefið upp til dómstóla.
Eftir því sem DV kemst næst gæti
mismunurinn legið í milljónum, ef
ekki tugum milljóna, en það kemur
til kasta lögreglu að rannsaka hvort
slíkum verðmætum hafi verið skotið
undan búinu.
Ber mikið á milli
Nýverið fór Lúðvík Örn með áhuga-
sömum kaupendum í höfuðstöðvar
fyrirtækisins og viðurkennir að þar
hafi blasað við nokkur rýrnun á þeim
lager sem átti að vera til staðar. Að-
spurður svarar hann því játandi að
kæra til lögreglu gefi vísbendingu um
rökstuddan grun um lögbrot. „Það
var ansi mikil rýrnun þarna, fyrst og
fremst á efni, og það er bara þannig
að áhugasamir kaupendur sáu þar
inni minna en við töldum okkur vera
að selja. Það munar geysilega miklu á
þeim upplýsingum sem félagið lagði
sjálft fram til dómstóla og þeirra verð-
mæta sem nú blasa við okkur. Þannig
átti lagerstaðan að vera upp á tugi
milljóna sem er ekki í dag en það er
klárt að því miður ber þarna verulega
mikið á milli,“ segir Lúðvík Örn.
„Um slík verðmæti er að ræða að
ég var ekki í nokkurri annarri stöðu
en að kæra þetta. Það er mitt hlutverk
að gæta hagsmuna búsins og þarna
er grunur um að það hafi orðið fyrir
verðmætamissi. Það vil ég að verði
skoðað hvort þarna séu til staðar
undanskot eigna og því var þetta kært
til lögreglu.“
Horfnir legsteinar
Einn viðmælenda DV, sem vildi ekki
koma fram undir nafni, bendir á að
rekstraraðilar hafi hafið nýjan rekstur
Granítsmiðjunnar og hefur áhyggjur
af því að þar sé stuðst við verðmæti úr
þrotabúinu. „Við sem höfðum áhuga
komum einfaldlega að tómum kof-
unum og ég skynjaði að búið hafði
verið að strípa út. Það var ekki neitt
neitt þarna að sjá og til að mynda
flestir legsteinarnir ekki til staðar. “
Lúðvík Örn leggur áherslu á að
þó kæra hafi verið lögð fram sé hann
ekki að bera mönnum neitt á brýn
heldur sé aðeins nauðsynlegt að
skera úr um hvort eitthvað óeðlilegt
hafi farið fram. „Ég er búinn að biðja
lögreglu um að fram fari rannsókn á
því hvort verðmætum hafi verið kom-
ið undan. Sú lagerstaða sem þrotabú-
ið fékk uppgefið stemmir ekki við þá
stöðu sem við eigum að sýna núna.
Grunurinn er það rökstuddur að við
töldum okkur ekki eiga annarra kosta
völ en að velta þessum steini við en
svo getur verið að þessi rýrnun sé á
rökum reist,“ segir Lúðvík Örn.
Þjófnaður annarra
Magnús H. Magnússon, fyrrverandi
eigandi Granítsmiðjunnar, viður-
kennir að öll tæki fyrirtækisins hafi
hann tekið til sín og bendir á að hann
beri ekki ábyrgð á því að lagerstaða
þrotabúsins hafi rýrnað. Aðspurður
viðurkennir hann einnig að talsvert
af efni sé að finna í nýjum höfuð-
stöðvum en hann segist geyma það
fyrir vin sinn. „Það er eðlileg skýring
á þessu öllu saman. Eftir gjaldþrotið
ber ég enga ábyrgð á búinu en það
er skrítið að það hafi ekki verið inn-
siglað því ég hef verið með lykla all-
an tímann. Ég viðurkenni að ég fór
strangt til tekið inn í leyfisleysi og
sótti tækjakostinn því tækin voru á
annarri kennitölu. Það gerði ég til að
verja mitt því bankinn er búinn að
taka nóg,“ segir Magnús.
„Það hefur átt sér stað þjófnað-
ur en ekki af minni hálfu. Sjálfur hef
ég tvívegis þurft að hringja á lögreglu
að kvöldlagi vegna vörubíla fyrir utan
sem hafa verið að taka efni og annað
úr þrotabúinu. Ég hef ekki gert neitt
annað en að vera liðlegur. Varðandi
legsteinana þá fóru þeir í hendur að-
ila sem lánaði fé til bjargar rekstrin-
um og ég geymi þá fyrir hann og kem
líklega til að kaupa þá af honum. Ég
hef ekkert að óttast gagnvart kærunni
eða því sem lögreglan skoðar hjá
mér.“
Við sem höfðum áhuga komum
einfaldlega að tómum
kofanum og ég skynjaði
að búið hafði verið að
strípa út.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Ráðgert er að Jón Ásgeir Jóhannes-
son og kona hans, Ingibjörg Pálma-
dóttir, aðaleigandi 365, fari á vegum
fjölmiðlafyrirtækisins til Los Angeles
til að velja sjónvarpsefni ofan í áskrif-
endur Stöðvar 2 á uppákomunni LA
Screenings. Þau hjónin munu ætla að
fara með Ara Edwald, forstjóra 365,
og sjónvarpsstjóranum, Pálma Guð-
mundssyni.
Samkvæmt heimildum DV er þetta
þvert gegn starfsreglum 365 sem settar
voru síðasta haust en í þeim kom fram
að í mesta lagi tveir á vegum stöðvar-
innar ættu að fara í slíkar ferðir. Þess-
ar starfsreglur voru settar innan fyr-
irtækisins sem liður í aðhaldinu sem
einkennt hefur ýmsa þætti í rekstri fé-
lagsins frá bankahruninu. Annar þátt-
ur í þessu aðhaldi er að starfsmönn-
um hefur verið sagt upp, starfshlutfall
starfsmanna hefur verið skert og laun
þeirra með.
Þetta ferðabann var ákveðið í stjórn
365 og var vísað til þessa banns þeg-
ar starfsmenn félagsins voru látnir
vita að þeir gætu ekki farið í tilteknar
ferðir út af aðhaldi í rekstrinum. Ferð
fjórmenningana til Los Angeles virðist
hins vegar benda til að ekki sé lengur
stuðst við þessar reglur.
Á síðustu árum hafa gestir 365 á
LA Screenings gist á hótelinu Sunset
Marquis Hotels and Villas í Vestur-
Hollywood. Þar kostar nóttin á bilinu
300 til 1100 dollara, eftir því hversu fín-
um herbergjum gist er í. Ekki er hins
vegar vitað á hvaða hóteli Jón Ásgeir,
Ingibjörg, Ari og Pálmi ætla sér að gista
í ár.
Ari Edwald neitaði því ekki fyrir
helgi að Jón Ásgeir og Ingibjörg færu
með til Los Angeles í ár og sagði að
Jón Ásgeir færi þá með sem maki Ingi-
bjargar, sem er stjórnarformaður fé-
lagsins og aðaleigandi. Hann sagði
jafnframt að 365 myndi greiða kostn-
aðinn af ferðinni fyrir sitt fólk. ingi@dv.is
Gist hefur verið á dýru lúxushóteli í Vestur-Hollywood í LA síðustu árin:
Jón Ásgeir með til LA þrátt fyrir bann
Bann en þau fara samt
Sett var bann við því að fleiri
en tveir færu til útlanda á
vegum 365 í einu. Jón Ásgeir
og Ingibjörg ætla samt að fara
með til Los Angeles.
Ponzi-svindl
William K. Black, lögfræðingur og
fjármálaeftirlitsmaður í Bandaríkj-
unum, sagði skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis vera skólabókar-
dæmi um svokalla Ponzi-svindl.
Black var gestur Egils Helgason-
ar í Silfri Egils í Ríkssjónvarpinu á
sunnudag.
Hann sagði skýrsluna taka vel
á aðdraganda bankahrunsins árið
2008 en einn galli sé á henni. Gall-
inn er sá að mati Blacks að í skýrsl-
unni sé ekki bent á fjársvik þótt þau
séu hrópandi augljós í henni. Hann
sagði að það fé sem hefði horfið úr
bankakerfinu yrði eflaust aldrei end-
urheimt nema að litlu leyti frá þeim
sem voru hvað atkvæðamestir í fjár-
glæfrastarfsemi.
Reykskynjari
bjargaði
Talið er að kviknað hafi í út frá hellu-
borði þegar eldur kom upp í húsi á
Hellissandi aðfaranótt sunnudags.
Þrjú systkini voru heima við þegar
eldurinn kom upp. Þau vöknuðu
við reykskynjarann og komust heil
á húfi út úr húsinu og hringdu á
slökkviliðið, sem kom skömmu síð-
ar. Greiðlega gekk að ná tökum á
eldinum, en húsið mun vera mikið
skemmt og hluti þess ónýtur.
Enn gýs í
Eyjafjallajökli
Virkni eldgossins í Eyjafjallajökli er
svipuð og síðustu átta daga. Hraun
heldur áfram að skríða til norðurs og
gígur hleðst upp í nyrsta ískatlinum.
Í tilkynningu frá Veðurstofu er árétt-
að að þrátt fyrir gjóskufall í nærsveit-
um er kraftur gossins og gjósku-
framleiðsla aðeins brot af því sem
átti sér stað fyrstu daga gossins. Ekk-
ert bendir til gosloka. Upphleðsla
klepragígs heldur áfram og virðist
ekkert draga úr krafti gossins miðað
við síðustu daga.
Fyrsta skrefið
Þorvaldur Gylfason, prófessor í
hagfræði, segir skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis aðeins vera fyrsta
skrefið á langri leið að uppgjöri
vegna bankahrunsins. Hann segir
enn mörgu ósvarað um bankahrun-
ið og aðdraganda þess, sem nefndin
fór ekki yfir.
Þorvaldur var gestur í Silfri Egils
á sunnudag, þar sem hann fór yfir
þessi mál. Enginn vafi er að mati
hans að lögbrot hafi verið framin
og tilefni séu til að dómsmál verði
höfðuð.
Mikið ber á milli Rekstraraðilar
Granítsmiðjunnar eru grunaðir
um að hafa komið verðmætum
undan þrotabúinu.