Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Side 24
24 MÁNUDAGUR 3. maí 2010
TOTTENHAM HÉLT FORYSTUNNI Baráttan um síðasta Meistaradeildarsæt-
ið er í algleymingi en bæði Manchester City og Tottenham unnu sína leiki um helgina. Nú er
það ljóst að bara þau eiga möguleika á fjórða sætinu og leika þau allt að því hreinan úrslita-
leik um fjórða sætið á miðvikudaginn. Tottenham hefur eins stigs forystu á City þannig að
vinni það innbyrðisleik liðanna á miðvikudagskvöldið er Tottenham komið í Meistara-
deildina en vinni City dugar því svo sigur í lokaumferðinni til þess að komast í deild þeirra
bestu. City vann Aston Villa um helgina, 3-1, eftir að lenda 1-0 undir en á sama tíma vann
Tottenham baráttuglatt lið Bolton með einu marki gegn engu þar sem Tom Huddlestone
skoraði glæsilegt mark.
UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON, tomas@dv.is
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
BIRMINGHAM - BURNLEY 2-1
1-0 Brian Jensen (29. sm), 2-0 Christian Benítez (42.), 2-1 Steven
Thompson (87.).
MAN. CITY - ASTON VILLA 3-1
0-1 John Carew (16.)m 1-1 Carlos Tevez (41. víti), 2-1 Emmanuel
Adebayor (43.), 3-1 Craig Bellamy (90.).
PORTSMOUTH - WOLVES 3-1
1-0 Arouna Dindane (20.), 1-1 Kevin Doyle (35.), 2-1 John Utaka
(39.), 3-1 Michael Brown (67.).
STOKE - EVERTON 0-0
TOTTENHAM - BOLTON 1-0
1-0 Tom Huddlestone (38.).
LIVERPOOL - CHELSEA 0-2
0-1 Didier Drogba (33.), 0-2 Frank Lampard (54.).
FULHAM - WEST HAM 3-2
1-0 Clint Dempsey (45.), 2-0 Carlton Cole (58. sm), 2-1 Carlton
Cole (61.), 3-1 Stefano Okaka (79.), 3-2 Guillermo Franco (90.).
SUNDERLAND - MAN. UNITED 0-1
0-1 Nani (28.).
STAÐAN
Lið L U J T M St
1. Chelsea 37 26 5 6 95:32 83
2. Man. Utd 37 26 4 7 82:28 82
3. Arsenal 36 22 6 8 78:39 72
4. Tottenham 36 20 7 9 64:37 67
5. Man. City 36 18 12 6 72:43 66
6. Aston Villa 37 17 13 7 52:38 64
7. Liverpool 37 18 8 11 61:35 62
8. Everton 37 15 13 9 59:49 58
9. Birmingham 37 13 11 13 37:45 50
10. Fulham 36 12 10 14 39:41 46
11. Sunderland 37 11 11 15 47:54 44
12. Stoke City 36 10 14 12 33:44 44
13. Blackburn 36 11 11 14 38:54 44
14. Bolton 37 9 9 19 40:66 36
15. Wolves 37 8 11 18 30:55 35
16. Wigan 36 9 8 19 35:69 35
17. West Ham 37 8 10 19 46:65 34
18. Hull 36 6 10 20 32:73 28
19. Burnley 37 7 6 24 38:80 27
20. Portsmouth 37 7 7 23 34:65 19
CHAMPIONSHIP
BLACKPOOL - BRISTOL C. 1-1
COVENTRY - WATFORD 0-4
Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Coventry og lék allan
leikinn. Heiðar Helguson var ekki í leikmannahópi Watford.
DERBY - CARDIFF 2-0
IPSWICH - SHEFF. UTD. 0-3
LEICESTER - M. BORO 2-0
PLYMOUTH - PETERBOROUGH 1-2
Kári Árnason var í byrjunarliði Plymouth og lék allan leikinn.
QPR - NEWCASTLE 0-1
READING - PRESTON 4-1
Gylfi Sigurðsson var í byrjunarliði Reading og skoraði þriðja
mark liðsins, hans 16. í deildinni. Brynjar Björn Gunnarsson
kom inn á sem varamaður á 68. mínútu.
SCUNTHORPE - NOTT. FOREST 2-2
SHEFF. WED - C. PALACE 2-2
SWANSEA - DONCASTER 0-0
WBA - BARNSLEY 1-1
STAÐAN
Lið L U J T M St
1. Newcastle 46 30 12 4 90:35 102
2. WBA 46 26 13 7 89:48 91
3. Nott. Forest 46 22 13 11 65:40 79
4. Cardiff 46 22 10 14 73:54 76
5. Leicester 46 21 13 12 61:45 76
6. Blackpool 46 19 13 14 74:58 70
7. Swansea 46 17 18 11 40:37 69
8. Sheff. Utd 46 17 14 15 62:54 65
9. Reading 46 17 12 17 68:63 63
10. Bristol City 46 15 18 13 56:65 63
11. Middlesbro 46 16 14 16 58:50 62
12. Doncaster 46 15 15 16 59:58 60
13. QPR 46 14 15 17 58:65 57
14. Derby 46 15 11 20 53:63 56
15. Ipswich 46 12 20 14 50:61 56
16. Watford 46 14 12 20 61:68 54
17. Preston 46 13 15 18 58:73 54
18. Barnsley 46 14 12 20 53:69 54
19. Coventry 46 13 15 18 47:64 54
20. Scunthorpe 46 14 10 22 62:84 52
21. C. Palace 46 14 17 15 50:53 49
22. Sheff. Wed. 46 11 14 21 49:69 47
23. Plymouth 46 11 8 27 42:68 41
24. Peterb. 46 8 10 28 46:80 34
TITILBARÁTTAN
ENSKI BOLTINN
Chelsea yfirsteig síðustu alvöru
hindrunina að Englandsmeistaratitl-
inum þegar liðið lagði Liverpool, 2-0,
á Anfield á sunnudaginn. Manchest-
er United hafði vonast eftir hjálp frá
erkifjendunum í Liverpool en þeir
voru aldrei nálægt því að gera Chel-
sea skráveifu í leiknum. Steven Gerr-
ard hjálpaði meira að segja til við að
koma Englandsmeistaratitilinu til
Lundúna með fínni stoðsendingu
á Didier Drogba sem skoraði fyrra
mark Chelsea. Manchester United
kláraði sitt verkefni með 1-0 sigri á
Sunderland á útivelli. Nani skoraði
þar eina mark leiksins í fyrri hálfleik.
United þarf að vinna Stoke í síðasta
leik sínum í deildinni á heimavelli
um næstu helgi og vonast til þess
að Wigan hirði í það minnsta stig af
Chelsea, nokkuð sem virðist gjör-
samlega ómögulegt miðað við stuðið
á þeim bláklæddu.
Mikil mistök Gerrards
Chelsea var mun betra en vængbrot-
ið lið Liverpool á Anfield en Chelsea
var ekki búið að fá almennilegt færi
þegar Didier Drogba komst inn í öm-
urlega og áhugalausa sendingu Gerr-
ards til baka á markvörðinn, Pepe
Reina. Drogba fór auðveldlega fram-
hjá Reina og kom Chelsea yfir. „Þetta
voru mikil mistök hjá honum,“ sagði
Drogba við Sky eftir leikinn. „Ég var
heppinn að vera á réttum stað og ná
að skora. Það var mjög mikilvægt því
markið gaf okkur auka kraft og við lék-
um betur eftir það.“
Í seinni hálfleik var ekki spurn-
ing um hvort heldur hvenær Chelsea
myndi skora aftur. Það var svo miðju-
maðurinn Frank Lampard sem skor-
aði annað markið sem tryggði sigur-
inn. „Þetta var risaleikur fyrir okkur. Ef
við hefðum tapað stigum hefði Man.
United komist í bílstjórasætið um tit-
ilinn. Þetta var samt ekki auðveldur
leikur. Þessi vika hefur verið erfið fyr-
ir Liverpool, þeir voru slegnir úr Evr-
ópudeildinni og gáfu allt sitt í þennan
leik,“ sagði Lampard.
Stjóri Chelsea, Carlo Ancelotti, er
kominn með aðra hönd á sinn fyrsta
Englandsmeistaratitil á sínu fyrsta ári
hjá Chelsea. Hann ætlar þó ekki að
fagna of snemma. „Þetta var mikil-
vægt skref á leiðinni að titlinum. Við
spiluðum mjög vel og áttum sigurinn
skilið. Núna er málið að halda fókus
og einbeita okkur að síðasta leikn-
um. Ég hef sagt frá upphafi að úrslit-
in muni ráðast í lokaumferðinni og
þannig verður þetta,“ sagði Ancelotti
sem hafði trú á að United myndi klára
Sunderland.
Gjöf frá Gerrard
„Liverpool átti erfiðan leik í vikunni
gegn Atletico Madrid. Liverpool hef-
ur náttúrlega tapað nítján leikjum á
tímabilinu þannig að kannski var til
of mikils ætlast að biðja það um að
vinna Chelsea,“ sagði sir Alex Fergu-
son, stjóri Manchester United, eft-
ir sigur sinna manna á Sunderland á
sunnudaginn. Með sigrinum heldur
liðið pressunni á Chelsea í baráttunni
um Englandsmeistaratitilinn.
„Við gerðum það sem við þurftum
að gera í dag og það er það sem skipt-
ir máli. Við klúðruðum of miklu af
færum í dag, Berbatov hefði til dæm-
is getað skorað fjögur mörk. En við
spiluðum á köflum mjög vel og sköp-
uðum okkur mikið af færum,“ sagði
Skotinn.
Um sendingu Gerrards sem gaf
fyrsta markið í leik Liverpool og Chel-
sea sagði Ferguson: „Ég sá þetta bara
eftir leikinn. Þetta var algjör gjöf hjá
honum. við getum samt ekkert ver-
ið að spá í það. Við þurfum bara að
vinna okkar leik um næstu helgi og
hver veit hvað gerist. Fótbolti er skrýt-
in íþrótt. Við vorum betra liðið í dag
þannig að við klárum bara okkar leik
eftir viku og sjáum svo hvað það dug-
ar okkur,“ sagði sir Alex Ferguson.
BLÁ HÖND
Á BIKARINN
Chelsea er komið með aðra höndina á Englandsmeistaratitilinn eftir sigur á Liver-
pool, 2-0, í næstsíðustu umferð ensku úrvalsdeildinnar. Manchester United gerði það
sem það þurfti og lagði Sunderland, 1-0, en þarf nú hjálp frá Wigan til þess að verða
meistari fjórða árið í röð.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Liverpool hefur náttúrlega tapað
nítján leikjum á tímabilinu
þannig að kannski var til of
mikils ætlast að biðja það
um að vinna Chelsea.
GEFST EKKI UPP Nani skoraði sigurmark Man. United gegn Sunderland og hélt
titilvonunum á lífi. MYND AFP
EINN LEIKUR ENN
Vinni Chelsea Wigan
í lokaumferðinni
verður Chelsea
meistari. MYND AFP