Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 5. maí 2010 FRÉTTIR Bresku félagi í meirihlutaeigu Hann- esar Smárasonar, Novel Olive Limi- ted, var slitið eftir gjaldþrotameðferð í lok febrúar síðastliðins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bresku hlutafé- lagaskránni, Companies House. Félagið var matvælafyrirtæki sem einkahlutafélag Hannesar, Hörgá, keypti árið 2006. Fjárfestingabank- inn Straumur-Burðarás lánaði til kaupanna og tók veð í félaginu. Straumur skipaði umsjónarmann með nauðasamningum félagsins í apríl í fyrra og lauk gjaldþrotameð- ferðinni með því að félagið var leyst upp nú í lok febrúar. Annað félag í eigu Hörgár, Novel Cheese Limited, var sett í greiðslustöðvun af Straumi um sama leyti. Stjórnarformaður Hörgár er skráður Smári Sigurðsson, faðir Hannesar. Kröfur Straums á hendur félögun- um tveimur námu meira en 6 millj- örðum króna þegar félögin voru sett í gjaldþrotameðferð í fyrra, sam- kvæmt heimildum DV. Samkvæmt heimildum DV þyk- ir afar sérstakt að félög í matvæla- rekstri hafi verið svo skuldsett en þegar litið er á ársreikning Hörgár frá árinu 2007 sést að félögin tvö eru metin á tæplega 700 milljónir króna samkvæmt bókfærðu verði. Tapið af rekstrinum það árið var um 90 millj- ónir króna. Leystu félagið til sín Þremur vikum áður en Straumur lét skipa skiptastjóra yfir Novel Ol- ive Limi ted í apríl í fyrra var Hann- es Smárason skipaður framkvæmda- stjóri yfir félaginu, samkvæmt annarri tilkynningu frá bresku hlutafélaga- skránni. Ekki liggur ljóst fyrir af hverju þetta var gert en líklega var þetta ein- hvers konar millileikur áður en gengið var að félaginu og því komið í hendur nýrra eigenda. Straumur tók Novel Olive yfir um svipað leyti og félagið fór í greiðslu- stöðvun og seldi eignir félagsins til að fá upp í kröfur sínar á hendur því. „Þegar þetta fór til fjandans leysti Straumur þetta til sín og seldi stjórn félagsins hluta af eignum þess. Þá var fullreynt að bankinn gæti fengið greitt upp í kröfur sín- ar. Þetta var það sem kallast skilgreint veð og þetta var bara tek- ið af Hann- esi. Straumur bara tók þetta af eig- endunum og veðjaði á að stjórnend- ur félagsins gætu rekið þetta áfram,“ segir heimildarmaður DV en félag Hannesar var eitt af þeim fyrirtækj- um sem Straumur tók yfir á Bretlandi eftir bankahrunið, annað er til dæmis knattspyrnufélagið West Ham. Stjórn- endur Novel fengu lánsfjármögnun frá Straumi til að kaupa hluta af eignum þess samkvæmt heimildarmanni DV. Strangt til tekið er því um að ræða félag sem var formlega í eigu Straums sem gengið hef- ur verið frá í Bretlandi en ástæðan fyrir því að félagið hefur ver- ið rekið í þrot eru skuldir sem Hannes stofnaði til. Miklar afskriftir af kröfunum Heimildarmaður DV segir að um- talsverðar afskriftir hafi verið af kröfum Straums vegna fjárfestinga Hann- esar. „Ég man ekki hvað kom upp í kröfurnar en það voru umtalsverðar afskriftir af þessum lánum. Það kom eitthvað upp í kröfurnar en það var ekki mjög mikið,“ segir hann. Félagið sem slitið hefur verið er því það sem Hannes Smárason setti í þrot þegar hann átti Novel Olive Limited. Eignir félagsins eru nú komnar yfir á aðra kennitölu. Banki á Íslandi, Straumur, ber því á endan- um meirihlutann af kostnaðinum af þessari fjárfestingu Hannesar. Öll í erfiðleikum Hannes Smárason býr sem kunnugt er í London um þessar mundir. Hús- ið við Talbot-götu í Notting Hill sem hann býr í er í eigu félags á Guernsey sem heitir Codrington Limited. Fé- lagið fékk lánaða 3,1 milljón punda, um 600 milljónir króna á núvirði, frá Kaupþingi Singer og Friedlander til að kaupa húsið, samkvæmt gögnum sem DV hefur undir höndum. Ekki FJÖGUR FÉLÖG HANNESAR Í ÞROT Kröfur Straums-Burðaráss á hendur tveimur breskum matvælafyrirtækjum Hannesar Smárasonar námu meira en 6 milljörðum króna. Öðru félaginu var slitið eftir gjald- þrotameðferð í lok febrúar. Stór hluti krafna Straums vegna fjárfestinga Hannesar í breskum matvælafyrir- tækjum var afskrifaður. INGI F. VILHJÁLMSSON fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is Þegar þetta fór til fjandans leysti Straumur þetta til sín og seldi stjórn félagsins hluta af þessu. Öll í erfiðleikum Þau fjögur félög sem Ha nnes stýrði í fyrra hafa öll verið tekin til gjaldþrotaskipta eða eru í greið slustöðvun. Félögin eru nú skráð hjá skiptastjóra í Leeds. Skjalið sýnir þau fyr irtæki sem Hannes Smárason stýrði í fyrra og sem skráð voru til heimilis hjá h onum í Notting Hill. Félagi Hannesar slitið Félagi Hannesar Smárasonar, Novel Olive Limited, var slitið eftir gjaldþrotameðferð í lok febrúar. Skuldir félagsins, og eins annars í eigu Hannesar, námu meira en 6 milljörðum króna og þurfti Straumur að afskrifa stóran hluta af kröfum sínum. n Á nokkrum stöðum í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er rætt um Hannes Smárason. Í 2. bindi skýrslunnar er fjallað um eignarhaldsfélagið Elliðatinda sem var í eigu Gunnars Sturlusonar, lögmanns hjá Logos og vinar Hannesar. Vakin er athygli á því í skýrslunni að þrátt fyrir að Hannes hafi ekki tengst félaginu lögformlega hafi fjárfestingafélag hans Primus verið í ábyrgð hjá Kaupþingi vegna skulda Elliðatinda. Í skýrslunni er rakið hvernig Hannes átti í viðræðum við Kaupþing um uppgjör vegna skulda Elliðatinda. Skuldir félagsins námu þá meira en 1.500 milljónum króna. Elliða- tindar skulduðu einnig meira en 200 milljónir króna í Landsbankanum. Á endanum fór skuldauppgjör félagsins fram að Primus tók lán til að standa í skilum fyrir Gunnar Sturluson og Elliðatinda. Það er þessi aðkoma Hannesar að skuldamálum Gunnars Sturlusonar sem nefndinni þykir sérstök. Hannes í skýrslunni:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.