Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Blaðsíða 21
ÆTTFRÆÐI 5. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR 21 Pétur J. Eiríksson STJÓRNARFORMAÐUR PORTUSAR EHF. Pétur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MH 1970, B.Sc.-prófi í hagfræði frá Uni- versity of Edinburgh 1975 og M.Sc.- prófi í alþjóðahagfræði frá Göte- borgs Universitet 1976. Pétur var blaðamaður við Morg- unblaðið 1972-77, aðstoðarfram- kvæmdastjóri hjá Frjálsu framtaki hf 1977-79, framkvæmdastjóri þar 1979-81, deildarstjóri hjá Flugleið- um hf. 1981-85, svæðisstjóri þar fyr- ir Skandinavíu /Finnland 1985-88, framkvæmdastjóri markaðssviðs Flugleiða 1988-98, framkvæmda- stjóri viðskiptaþróunarsviðs 1998- 2000 og framkvæmdastjóri Flug- leiða-fraktar ehf 2000-2008. Hann hefur frá 2009 verið starfandi stjórn- arformaður Portusar ehf., sem sér um framkvæmdir við Tónlistarhúsið og ráðstefnumiðstöðina Hörpu við Austurbakkann við Reykjavíkurhöfn, og mun í gegnum dótturfélögin Tot- us og Ago eiga og reka Hörpu. Pétur sat í stjórn Heimdallar, FUS 1967-69, í stjórn Vöku 1970- 72, var varafomaður Vöku 1971- 72, var formaður körfuknattleiks- deildar ÍR 1970-71 og 1980-81, sat í stjórn SUS 1981-83, var stjórnar- formaður Félagsstofnunar stúd- enta 1981-83, varaformaður Nord- isk ungkonservativ union 1983-84, í stjórn American Scandinavian Stu- dent Exchange 1983-85 og Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga 1984-85, í varastjórn Útflutningsráðs 1988-90, í framkvæmdastjórn Ferða- málaráðs 1988-2000, í stjórn Fransk – íslenska verslunarráðsins 1990-96, stjórnarformaður Íslensk – sænska verslunarráðsins 1997-99 og í stjórn ráðsins frá 1999, sat í stjórn Upp- lýsingamiðstöðvar ferðamála 1989- 99, í stjórn Ráðstefnuskrifstofu Ís- lands 1993-99 og formaður hennar 1994-95 og 1998-99, sat í viðskipta- nefnd, flugmálanefnd og fraktnefnd Evrópusambands flugfélaga (AEA) 1998-2008 og hefur sinnt ýmsum nefndarstörfum á vegum Verslunar- ráðs Íslands, samgöngu-, fjármála- og forsætisráðuneytis. Pétur sat í stjórn Úrvals-Útsýn- ar hf 1988-93 og Amadeus Island hf. 1989-96, í stjórn Fróða hf 1990- 93, í stjórn Bláa lónsins 1993-96, var stjórnarformaður Kynnisferða sf. 1994-2001, stjórnarformaður Is- lands Tours GmbH 1994-98, Islands- resor AB 1995-98 og Islandia A/S 1994-98, í stjórn Ferðaskrifstofunn- ar Landnámu 1996-99, stjórnarfor- maður Flugleiðahótela hf 2000-05, stjórnarformaður Loftleiða Iceland- ic ehf 2002-05, í stjórn Landsmóts ehf 2001-07, í stjórn Austurhafnar hf 2003-05, í stjórn Icelandair hf. 2004- 06, í stjórn Icelandair Cargo ehf. 2008, í stjórn Keflavíkurflugvallar ohf. 2008-09 og í stjórn Atlantic Air- ways P/F 2001-10. Pétur situr nú í stjórnum Eiðfaxa ehf., Esca ehf., Icelandair Group hf., Ago ehf. og er stjórnarformaður Sit- usar ehf. og Portusar ehf. Fjölskylda Eiginkona Péturs er Erla Sveinsdóttir, f. 19.3. 1950, flugfreyja. Hún er dóttir Sveins Sæmundssonar, f. 9.4. 1923, fyrrv. blaðafulltrúa, og fyrri konu hans Hrefnu Svövu Guðmundsdótt- ur, f. 27.5. 1925, húsmóður. Dætur Péturs eru Jóhanna Dögg, f. 31.10. 1970 og Freyja, f. 25.3. 1990. Systkini Péturs eru Sigrún Ástríð- ur, f. 18.11. 1954, lektor og þýðandi; Þórólfur, f. .11 1959, tónskáld. Foreldrar Péturs: Eiríkur Hreinn Finnbogason, f. 13.3. 1922, d. 3.5. 2006, cand.mag. og kennari, og Jó- hanna Pétursdóttir, f. 23.6. 1921, leik- skólakennari, búsett í Reykjavík. Ætt Eiríkur Hreinn var sonur Skúla Finn- boga, kennara á Kroppi, síðar versl- unarstjóri á Akureyri Bjarnasonar, b. í Þorsteinsstaðakoti í Tungusveit, bróður Guðrúnar, ömmu Brodda Jó- hannessonar rektors, föður Brodda fréttamanns og Þorbjörns prófess- ors. Bjarni var sonur Jóhannesar, b. í Árnesi Jónssonar, bróður Ívars í Skjaldarkoti, langafa Guðmundar Í. Guðmundssonar ráðherra. Móðir Bjarna var Anna, systir Sigurðar, afa Jakobs Benediktssonar orðabókar- ritstjóra. Systir Önnu var Rannveig, langamma Stefáns Íslandi óperu- söngvara. Anna var dóttir, Bjarna, skyttu á Sjávarborg Jónssonar. Móðir Eiríks Hreins var Sigrún Eiríksdóttir, b. í Sölvanesi Guð- mundssonar, hreppstjóra í Bjarna- staðahlíð Jónssonar. Móðir Eiríks var Ingiríður, systir Jóns Þorkelsson- ar, rektors Latínuskólans. Ingiríður var dóttir Þorkels, b. í Sólheimum í Sæmundarhlíð, af Skeggstaðaætt, fjölmennustu þingmannaætt lands- ins. Móðir Sigrúnar var Jórunn Guðnadóttir, b. í Villinganesi í Tungusveit Guðnasonar, og Ingiríðar Eiríksdóttur, b. á Breið í Tungusveit Þorsteinssonar. Jóhanna er dóttir Péturs, kaup- manns á Hjalteyri Jónassonar, b. á Halldórsstöðum i Reykjadal og á Þverá Jónassonar. Móðir Péturs var Þuríður Pétursdóttir, b. á Oddsstöð- um á Sléttu Jakobssonar, alþm. á Breiðumýri Péturssonar. Móðir Pét- urs á Oddsstöðum var Þuríður Jóns- dóttir, umboðsmanns á Breiðumýri Sigurðssonar. Móðir Þuríðar á Hall- dórsstöðum var Margrét, systir Þór- arins, afa Gunnars Gunnarssonar skálds. Margrét var dóttir Hálfdán- ar, b. á Oddsstöðum á Sléttu, bróð- ur Stefáns, langafa Einars Bene- diktssonar skálds. Hálfdán var sonur Einars Árnasonar, pr. á Sauðanesi, og Margrétar Lárusdóttur Scheving, systur Jórunnar, ömmu Jónasar Hall- grímssonar skálds. Móðir Jóhönnu var Valrós Bald- ursdóttir Bárðdal, kennara á Þór- isstöðum á Svalbarðsströnd, og Jóhönnu Finnbogadóttur, b. á Breiðumörk á Tjörnesi Finnboga- sonar. 30 ÁRA „„ Martynas Galdikas Fjarðarseli 27, Reykjavík „„ Jean Rémi Chareyre Suðurbraut 14, Selfossi „„ Berglind Kristjánsdóttir Hraundal 3, Reykja- nesbæ „„ Pétur Ólafsson Skólatröð 3, Kópavogi „„ Anna Þorbjörg Reynisdóttir Bólstaðarhlíð 15, Reykjavík „„ Sigrún Dögg H Kvaran Öldugranda 1, Reykjavík „„ Andrzej Piotr Ferenc Vitateigi 1, Akranesi „„ Robert Adam Wieczorek Grófarseli 30, Reykjavík „„ Karol Kowalewski Hjaltabakka 28, Reykjavík „„ Valdemaras Kuklis Frostafold 23, Reykjavík „„ Eiríkur Stefán Einarsson Nesvegi 49, Reykja- vík „„ Guðrún Arna Sigurðardóttir Meistaravöllum 11, Reykjavík „„ Stefanía Ellý Baldursdóttir Leirubakka 2, Reykjavík „„ Róbert Daði Hansson Hrauntungu 16, Hafn- arfirði „„ Daníel Sævarsson Vallarbraut 7, Hafnarfirði „„ Ísak Þór Davíðsson Boðaslóð 23, Vestmanna- eyjum „„ Monika Hjálmtýsdóttir Marteinslaug 8, Reykjavík 40 ÁRA „„ Alvaro Miguel Calvi Lozano Svöluhöfða 16, Mosfellsbæ „„ Massimo Luppi Svölutjörn 75, Reykjanesbæ „„ Hjördís Kristinsdóttir Vallarási 3, Reykja- nesbæ „„ Karl Jónsson Sómatúni 14, Akureyri „„ Þórdís Hadda Yngvadóttir Birkigrund 7, Kópavogi „„ Óskar Ragnarsson Eyjahrauni 37, Þorlákshöfn „„ Lilja Grétarsdóttir Hávarsstöðum, Akranesi „„ Hákon Magnússon Vattarási 4, Garðabæ „„ Grétar Mar Steinarsson Dalhúsum 90, Reykjavík „„ Kristján Geir Mathiesen Lindarbergi 50, Hafnarfirði „„ Birna Jenny Hreinsdóttir Garðabraut 5, Akranesi 50 ÁRA „„ Svetlana Efanova Vesturgötu 53b, Reykjavík „„ Barbara Matuszczak Skúlaskeiði 18, Hafn- arfirði „„ Hanna Kristín Guðjónsdóttir Bæjargili 120, Garðabæ „„ Tyrfingur H Tyrfingsson Boðagranda 7, Reykjavík „„ Kristján Kristjánsson Fífumóa 5a, Reykja- nesbæ „„ Jóhanna Björnsdóttir Laufásvegi 69, Reykjavík „„ Birna Barkardóttir Kvíholti 12, Hafnarfirði „„ Anna Björg Arnljótsdóttir Kleppsvegi 18, Reykjavík „„ Sigurlaug Kristín Konráðsdóttir Jöklatúni 18, Sauðárkróki „„ Hermann Árnason Hátúni 26, Reykjanesbæ „„ Einar Sveinn Þórarinsson Hlíðarendavegi 4a, Eskifirði „„ Vilhjálmur Kristinsson Bakkastíg 5, Eskifirði „„ Ingibjörg Sigrún Maríusdóttir Stóragerði 3, Reykjavík „„ Hrafnkell Viðar Gíslason Eskihvammi 4, Kópavogi „„ Sigríður Olgeirsdóttir Digranesvegi 22, Kópavogi „„ Þorvaldur Þór Árnason Höfðabrekku 2, Húsavík „„ Eydís Eyjólfsdóttir Heiðarbóli 21, Reykjanesbæ „„ Björg Gísladóttir Kópavogsbakka 1, Kópavogi „„ Bjarni Stefán Konráðsson Hallakri 3, Garðabæ „„ Alma Ernstsdóttir Baugakór 20, Kópavogi 60 ÁRA „„ Áslaug Kristjánsdóttir Urðargili 34, Akureyri „„ Pétur Guðmundarson Urriðakvísl 26, Reykjavík „„ Inga Jóna Jónsdóttir Bessahrauni 14, Vest- mannaeyjum „„ Kolbrún Kristjánsdóttir Vatnsholti 5b, Reykjanesbæ „„ Þórir Jónsson Hásteinsvegi 58, Vestmanna- eyjum „„ Guðrún Sigurðardóttir Hlaðbrekku 14, Kópavogi „„ Jón Guðmundur Ragnarsson Heiðnabergi 8, Reykjavík „„ Hannes Sigurður Kristinsson Byggðarholti 57, Mosfellsbæ „„ Þuríður Kristjánsdóttir Álfatúni 3, Kópavogi „„ Arnþór Óli Arason Ofanleiti 15, Reykjavík „„ Stefanía Guðjónsdóttir Staðarhrauni 10, Grindavík 70 ÁRA „„ Valur Sigurbergsson Sléttuvegi 23, Reykjavík „„ Jóhann Jónasson Skólavegi 11, Vestmanna- eyjum „„ Guðsteinn Guðjónsson Laugardal, Varmahlí𠄄 Svanhvít Magnúsdóttir Barðastöðum 45, Reykjavík „„ Björgvin Þór Jóhannsson Vesturvangi 40, Hafnarfirði „„ Jón Eðvald Alfreðsson Skólabraut 10, Hólmavík „„ Helga Guðmundsdóttir Reynimel 88, Reykjavík 75 ÁRA „„ Jón Þór Jónasson Borgarvík 23, Borgarnesi „„ Guðmundur Ebbi Pétursson Leirutanga 43a, Mosfellsbæ „„ Valgerður Höskuldsdóttir Eiríksgötu 8, Reykjavík „„ Nanna Jónsdóttir Sunnubraut 41, Kópavogi „„ Gyða Þorsteinsdóttir Sæviðarsundi 11, Reykjavík 80 ÁRA „„ Frantz Pétursson Dalbraut 20, Reykjavík „„ Guðný Lilla Benediktsdóttir Norðurbraut 17, Hvammstanga 60 ÁRA Á MIÐVIKUDAG 30 ÁRA „„ Pétur Ingi Sveinbjörnsson Álfkonuhvarfi 25, Kópavogi „„ Sverrir Unnsteinsson Berugötu 16, Borgarnesi „„ Valdís Helga Lárusdóttir Túngötu 13, Grinda- vík „„ Jón Birgir Magnússon Hrísateigi 21, Reykjavík „„ Jón Bjarni Magnússon Keilugranda 2, Reykjavík „„ Þuríður Sigurrós Sigurðardóttir Breiðuvík 10, Reykjavík „„ Árni Teitur Ásgeirsson Vallarási 4, Reykjavík „„ Jón Þór Jóhannsson Fífumóa 10, Selfossi „„ Víðir Örn Jónsson Mýrartúni 20, Akureyri „„ Ragnheiður Magnúsdóttir Háholti 32, Akranesi „„ Sveinbjörn Sveinbjörnsson Aðalþingi 3, Kópavogi „„ Björn Björnsson Kötlufelli 3, Reykjavík „„ Stefán Andri Gunnarsson Lyngmóum 5, Garðabæ „„ Erlendur Guðlaugur Valdimarsson Klukku- rima 73, Reykjavík „„ Björn Finnbogason Álfatúni 12, Kópavogi „„ Guðbjörg Gréta Steinsdóttir Blásölum 9, Kópavogi „„ Sigurborg Sveinsdóttir Asparfelli 10, Reykjavík „„ Kamila Elzbieta Gliwa Krummahólum 2, Reykjavík „„ Kenneth Peter B. Svenningsen Ártúni 4, Egilsstöðum „„ Jánis Leonovs Löngumýri 36, Selfossi „„ Franklín Jóhann Margrétarson Stallatúni 2, Akureyri „„ Grétar Orri Kristinsson Grettisgötu 86, Reykjavík „„ Wendy Anne Ward Túngötu 2, Reyðarfirði 40 ÁRA „„ Leonard Collaku Eggertsgötu 8, Reykjavík „„ Agnes Rubio Guðmundsson Fífumóa 1c, Reykjanesbæ „„ Jón Ágúst Hreinsson Vatnsstíg 3, Reykjavík „„ Magnús Helgi Steinarsson Ólafsgeisla 75, Reykjavík „„ Þórey Gylfadóttir Starengi 18, Reykjavík „„ Jón Helgi Kocinski Gíslason Einigrund 2, Akranesi „„ Hólmar Örn Ólafsson Hraunbæ 144, Reykjavík „„ Theodór Carl Steinþórsson Rauðavaði 9, Reykjavík „„ Bjarni Björnsson Hlaðbrekku 13, Kópavogi 50 ÁRA „„ Sigurgeir R Gissurarson Akursíðu 4, Akureyri „„ Birna Gunnlaugsdóttir Fannafold 211, Reykjavík „„ Ásdís Garðarsdóttir Kirkjugötu 19, Hofsós „„ Sædís Jónsdóttir Lóurima 16, Selfossi „„ Agnes Þórunn Guðbergsdóttir Hróarsstöð- um, Akureyri „„ Kristín R Alfreðsdóttir Austvaðsholti 2, Hellu „„ Reinhard Reynisson Baughóli 48, Húsavík „„ Matthildur Þórðardóttir Arnarhrauni 18, Hafnarfirði „„ Hulda Björk Gunnarsdóttir Baugöldu 23, Hellu „„ Halldóra S Ríkharðsdóttir Esjugrund 92, Reykjavík „„ Hlédís Hálfdanardóttir Reynihvammi 16, Kópavogi 60 ÁRA „„ Erlingur Hansson Fornhaga 26, Reykjavík „„ Björn Þórisson Langanesvegi 23, Þórshöfn „„ Björg Kjartansdóttir Sólheimum 18, Reykjavík „„ Sigríður Þórarinsdóttir Austurbrún 18, Reykjavík „„ Hannes Sigurðsson Hrauni 2, Selfossi „„ Reynir E Kjerulf Brávöllum 5, Egilsstöðum „„ Halldóra Helgadóttir Prestastíg 9, Reykjavík „„ Einar Pálmi Jóhannsson Ásbúð 47, Garðabæ „„ Jóhannes Jón Gunnarsson Sólvallagötu 49, Reykjavík 70 ÁRA „„ Helga Magnúsdóttir Baughóli 15, Húsavík „„ Tómas Hansson Hringbraut 59b, Reykjanesbæ „„ Halldóra Halldórsdóttir Marbakkabraut 34, Kópavogi 75 ÁRA „„ Klara Styrkársdóttir Miklubraut 76, Reykjavík „„ Olga Ragnarsdóttir Gullsmára 10, Kópavogi „„ Kristjana Svavarsdóttir Melateigi 27, Akureyri 80 ÁRA „„ Hallbera Karlsdóttir Kirkjubraut 36, Höfn í Hornafirði „„ Guðlaug Þorsteinsdóttir Torfnesi Hlíf 1, Ísafirði „„ Inga F Sigurðardóttir Grundargarði 3, Húsavík „„ Gunnar Lárusson Hlíðarhjalla 42, Kópavogi „„ Hannesína Tyrfingsdóttir Vallarbraut 10, Reykjanesbæ „„ Garðar Ingimarsson Hverfisgötu 84, Reykjavík „„ Þorsteinn Valtýr Kristjánsson Mýrargötu 18a, Neskaupstað 85 ÁRA „„ Benta Margrét Briem Sörlaskjóli 2, Reykjavík 90 ÁRA „„ Ólafur Bjarni Th Pálsson Grundartanga 52, Mosfellsbæ „„ Baldur Ingólfsson Snorrabraut 58, Reykjavík TIL HAMINGJU INGJU MIÐVIKUDAGINN 5. MAÍ TIL HAMINGJU FIMMTUDAGINN 6. MAÍ Bergur bifvélavirki þrítugur: Í ÖNNUM Á AFMÆLINU Bergur Guðmundsson er bifvélavirki og verkstæðisformaður á Bíla- og vélaverkstæði Suðurlands á Selfossi. Hann varð þrítugur í dag án þess að hafa svo mikið sem leitt hugann að þessu merkisafmæli. Hann vaknaði í morgun, klæddi sig og fór í vinnuna eins og þetta væri hver annar hvers- dagslegur miðvikudagur og hann virðist alveg staðráðinn í því að gera ekkert úr þessum merkisdegi. Blaða- maður DV spurði Berg hvort hann ætlaði virkilega ekkert að gera í til- efni dagsins: Ekki einu sinni láta svo lítið að kaupa sér ís í brauðformi? „Nei“ Alls ekkert? „Nei.“ Hvers vegna ekki? Það er svo mikið að gera í vinn- unni.“ Er alltaf svona mikið að gera? „Nei, þetta er bara vorvertíðin.“ Vorvertíð? - á verkstæði? á Sel- fossi? Þar er nú ekki margt sem minnir á vertíð „Það er sama.Brjálað að gera.“ En heldurðu að þú gerir þá ekki eitthvað um helgina. „Jú, jú, - maður gerir líklega eitt- hvað af sér þá.“ Eins og hvað? „Það veit ég ekki. Nú er ég orðinn svo gamall að maður má ekki vera að stressa sig yfir slíkum smámunum. Það verður bara að koma í ljós,“ sagði Bergur verkstæðisformaður og hélt áfram að vinna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.