Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 5. maí 2010 ÚTTEKT Megrunarlausi dagurinn er á morgun en dagurinn er alþjóðlegur baráttudagur gegn megrun, átröskunum og fordómum vegna holdafars. Lilja Hrönn Helgadóttir barðist við átröskun í sex ár en tókst með hjálp að jafna sig á veikindunum. Lilja Hrönn vil sjá meira gert fyrir áströskunarsjúklinga og segist sjálf ekki hafa þurft að verða jafn veik ef hún bara hefði fengið fyrr hjálp. „Ég hef það fínt í dag og er, eins og maður myndi kalla það, batnað. Ég finn allavega lítið fyrir þessum hugs- unum þótt einhverjar poppi upp af og til,“ segir Lilja Hrönn Helgadóttir sem barðist við alvarlega átröskun í sex ár. Lilja Hrönn var langt leidd af sjúkdómnum og var lögð inn á geð- deild sumarið 2006. „Þar byrjaði minn bati,“ segir hún en bætir við að fyrsta skrefið að bata sé að viður- kenna vandamálið og vilja hjálp. „Ég hafði samband við samtökin Forma og komst þar í samband við stelpur sem höfðu unnið í sínum málum og fannst gott að tala við einhvern sem vissi um hvað ég væri að tala. Með- ferðaraðilann fékk ég svo á geðdeild- inni.“ 170 sentímetrar 40 kíló Lilja Hrönn segir að það hafi verið mjög erfitt að jafna sig á átröskun- inni. „Samfélagið snýst mikið um megrun. Það er matur allt í kring- um okkur en samt eru allir í megrun hvert sem þú lítur, hvort sem er í fjöl- miðla, á kornflexpakka, á vinnustaði, í vinahópa og í skólum. Áherslurnar eru orðnar svo vitlausar í sambandi við megrun og heilbrigðan lífsstíl,“ segir hún og bætir við að með hjálp hafi henni tekist að breyta um hug- arfar. „Mér fannst ég alltaf þurfa að grennast til að þóknast einhverjum og ábyggilega mest sjálfri mér. Ég er 170 sentímetrar á hæð en þeg- ar ég var grennst var ég komin und- ir 40 kíló. Í dag borða ég til að njóta og leyfi mér allt svo lengi sem það er ekki í óhófi.“ Meiri hjálp nauðsynleg Lilja Hrönn segist ekki hafa fundið fyrir fordómum í garð sjúkdómsins. „Ég fékk skilning alstaðar í kringum mig. Á þessum tíma var ég í fram- haldsskóla og bæði foreldrar mínir og skólinn studdu við mig. Hins veg- ar þurfti ég að fara ansi langt niður til að fá hjálp. Ég var alltaf í viðtalsmeð- ferðum og var ekki lögð inn fyrr en ég var komin langt niður, í andlegum skilningi og í þyngd. Ég vildi sjá meiri hjálp til staðar fyrir einstaklinga sem sækjast eftir henni og hjálpin þarf líka að vera aðgengilegri. Það er erf- itt að þurfa að fara í gegnum mörg viðtöl og ræða við marga einstakl- inga áður en þér er fundinn staður á geðdeildinni. Skiljanlega eru veik- ustu einstaklingarnir teknir fram fyr- ir en ég held að ég hefði ekki þurft að verða svona veik ef ég hefði fengið hjálp fyrr.“ Væri kannski ekki á lífi Alvarlegri átröskun geta fylgt alvar- legir fylgikvillar. Lilja Hrönn seg- ist heppin að því leytinu að hún hafi ekki skaðað líkama sinn meira. „Mest af þeim skaða hefur gengið til baka og fyrir það er ég þakklát. Svona líferni getur farið virkilega illa með líkamann og skemmt til dæmis frjósemi og aukið beinþynn- ingu,“ segir hún en bætir aðspurð við að hún viti ekki hvar hún væri stödd í dag hefði hún ekki fengið hjálp. „Það er stóra spurningin. Ég var orðin mjög líkamlega veik, lík- lega væri ég enn á þeim stað en svo getur líka verið að ég væri hreinlega ekki á lífi,“ segir hún og bætir við að um geðsjúkdóm eins og hvern annan sé að ræða. „Hjá mér byrjaði þetta ekki sem megrun heldur sem einhvers konar þráhyggja, ég vildi hafa stjórn á matnum. Átröskun getur tekið á sig margar myndir og við þurfum meiri fræðslu. Reynsl- an sýnir okkur að krakkar niður í tíu ára aldur eru í megrun og þess vegna þurfum við forvarnarfræðslu alla leið niður í grunnskólana.“ indiana@dv.is Megrunarlausi dagurinn: n er alþjóðlegur baráttudagur gegn megrun, átröskunum og fordómum vegna holdafars. n var stofnaður árið 1992 af fyrrum átröskunarsjúklingi, Mary Evans Young, til þess að vekja athygli á skaðlegum áhrifum útlitsdýrkunar og mismununar í garð þeirra sem falla utan hins viðurkennda ramma um æskilegan líkamsvöxt. n er haldinn hátíðlegur víða um heiminn árlega þann 6. maí til þess að vekja athygli á þjáningum sem hljótast af þráhyggju um grannan vöxt og almennri andúð á fitu. n í ár verður gestum og gangandi verslunarmiðstöðva, miðbæjar Reykjavíkur og fleiri fjölmennum stöðum boðið að stíga á Vei! vigtina til þess að minna á baráttuna.  Með megrunarlausa- deginum viljum við: n fagna margbreytilegum líkamsvexti af öllum stærðum og gerðum. n minna á rétt ALLRA til heilbrigðis, hamingju og velferðar óháð líkamsvexti. n lýsa yfir opinberum frídegi frá hugsunum um mat, megrun og líkamsvöxt. n vekja athygli á lítt þekktum staðreyndum um megrun, heilsu og holdafar. n minna á hvernig megrun og stöðug krafa um grannan vöxt er samfélagsleg atlaga gegn konum. n minnast fórnarlamba átraskana og hættulegra megrunaraðferða. n berjast gegn andúð á líkamsfitu og fordómum vegna vaxtarlags. Heilsa óháð holdafari: n Að bæta heilsu – áhersla á tilfinningalega, líkamlega og andlega velferð án áherslu á þyngdartap eða „kjörþyngd“. n Að bæta sjálfs- og líkamsmynd – að bera virðingu fyrir dásamlegum fjölbreytileika líkamsvaxtar í stað þess að keppa að hinni „réttu“ þyngd eða líkamslögun. n Að njóta þess að borða – að borða samkvæmt innri merkjum hungurs og saðningar, matarlystar og næringarþarfar hvers og eins í stað þess að fylgja utanaðkomandi matarplönum, reglum, boðum og bönnum. n Að njóta þess að hreyfa líkamann – að stunda reglulega og ánægjulega hreyfingu sem eykur lífsþrótt, hreysti og vellíðan í stað þess að hreyfa sig fyrst og fremst í þeim tilgangi að grennast. n Að sporna gegn fitufordómum – að gera sér grein fyrir því að líkamsstærð og þyngd segja ekki til um matarvenjur, hreyfingu, persónuleika eða mannkosti. Fegurð og manngildi koma fyrir í öllum stærðum og gerðum.  Heimild:www.likamsvirding.is ALLIR ERU Í MEGRUN Lilja Hrönn Helgadóttir Lilja Hrönn er 170 cm á hæð en var komin niður fyrir 40 kíló þegar hún var sem veikust. MYND RÓBERT REYNISSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.