Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Blaðsíða 8
RÁÐIST Á STEFÁN LÖGREGLUSTJÓRA 8 MIÐVIKUDAGUR 5. maí 2010 FRÉTTIR Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, slapp með mar og skrámur þegar hann lenti í áflogum síðastliðinn föstudag en hann var fyrir tilviljun staddur nærri útkallsstað í Þingholtunum. Samkvæmt lýsingu sjónar- votta voru átökin nokkuð har- kaleg þar sem Stefán var í fyrstu tekinn kverkataki en náði síðan að hafa mótherja sinn undir. Í til- raun til þess að koma viðkomandi út úr húsinu þar sem áflogin hóf- ust ultu þeir niður stiga af annarri hæð og niður á jarðhæðina. Lokst tókst Stefáni að koma manninum út úr húsinu og þegar út var komið komu fangaverðir frá Hegningar- húsinu við Skólavörðustíg honum til aðstoðar við handtökuna. Nokkuð alvarlegt Í gegnum talstöð lögreglu heyrði Stefán útkall á Skólavörðustíg en sjálfur var hann þá staddur í Þing- holtunum á lögreglubifreið sinni og brunaði þegar á vettvang. Þang- að kom hann fyrstur og þurfti í fyrstu að glíma einn síns liðs við þann sem hringt var í lögreglu út af. Það var ekki fyrr en Stefán hafði komið manninum út úr húsinu sem aðstoð barst. „Það var tilvilj- un háð að ég var fyrstur á vettvang þegar lögregla var kölluð til út af manni sem lét ófriðlega. Þegar ég kom á staðinn kom í ljós að útkall- ið var nokkru alvarlegra en í fyrstu var talið og ég þurfti að takast á við manninn sem var í ójafnvægi,“ seg- ir Stefán. „Til að byrja með var ég einn míns liðs en síðar fékk ég aðstoð frá fangavörðum Hegningarhússins og svo lögreglumönnum sem komu á vettvang. Ég varð fyrir minni hátt- ar meiðslum en ég hef orðið fyrir meiri meiðslum í fótbolta.“ Mar og skrámur Aðspurður segist Stefán ekki hafa velt því fyrir sér að hætta væri á ferðum. Hann telur atburðinn hafa verið góða reynslu fyrir sig. „Ég tel það hollt og gott fyrir alla stjórnendur að kynnast öllum hliðum starfsins á viðkomandi stofnun og þar af leið- andi verkefnum á borð við þetta. Ég get ekki sagt að þetta hafi verið auð- velt en þetta fylgir bara þessu starfi. Undir þetta þurfa lögreglumenn að vera búnir og stjórnendur lög- reglunnar eru líka undir það búnir með þjálfun og æfingu. Þannig eig- um við allir að vera undir það búnir að takast á við óvænt og flókin verk- efni,“ segir Stefán. „Ég hugsaði ekkert út í það að mér væri hætta búin og dvel ekki við það eftir á. Þetta var verkefni sem ég þurfti að takast á við og ég hugsaði um að leysa það eins vel og önnur verkefni. Lögreglumenn standa almennt þétt saman og þarna naut ég stuðnings innan liðsins þar sem fleiri lög- reglumenn leystu verk- efni sín mjög vel í þessu tilviki.“ TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Ég hugsaði ekkert út í það að mér væri hætta búin og dvel ekki við það eftir á. Stefán Eiríksson lögreglustjóri lenti í áflogum við handtöku á föstudaginn er hann var fyrir tilviljun staddur nærri útkallsstað í miðbænum. Stefán slapp með mar og skrámur en gerir lítið úr meiðslum sínum: „Ég hef slasað mig meira í fótbolta,“ segir lögreglustjórinn lítilláti. Lenti í slag Fyrir helgi lenti Stefán lögreglustjóri í áflogum við handtöku. Öskusala á fullu Netverslunin nammi.is hefur selt ösku úr Eyjafjallajökli um allan heim. Sófus Gústavsson, framkvæmdastjóri nammi.is, sagði í samtali við Pressuna að uppsett verð fyrir 160 grömm væri um 3.900 krónur. Framtakið er ekki tilkomið af einskærri gróðafíkn held- ur rennur allur ágóði öskusölunnar til Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Pöntun hefur borist alla leið frá Hong Kong. „Þeir vilja fá ösku sem tekin er með kílómetra millibili á svona 20 kílómetra löngu svæði og eru tilbúnir að borga vel fyrir það. Þannig að ef einhver á svæðinu vill tína þetta til, þá erum við með seljanda.“ Magnað ferðamannaland „Ferðamannaland, sem býður upp á eitthvað magnað, sem ekkert annað land býður upp á og hefur þar að auki fengið meiri kynningu fyrir undur sín en nokkurt annað á ekki að þurfa að kvíða framtíðinni,“ skrifar Ómar Ragnarsson í bloggfærslu á Eyjunni. Hann segir að hinn mikli fjöldi er- lendra fréttamanna sem komið hafi hingað vegna eldgossins muni bera hróður landsins víða. „Þeir munu fjalla um gosið frá nýjum sjónarhorn- um, rólegri og yfirvegaðri en þeir sem komu hingað meðan lætin voru sem mest.“ Ómar hefur farið í fjölmargar ferðir með erlenda fréttamenn, með- al annars frá Al Jazeera. Misstum bandamann Óvíst er um lyktir Icesave-deil- unnar þar sem þingkosning- ar eru á næstunni í Bretlandi og Hollandi. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að Íslend- ingar hafi misst bandamann þeg- ar Wouter Bos fjármálaráðherra gekk úr ríkisstjórn Hollands. „Við vitum að það eru sjónarmið í hol- lenskum stjórnmálaflokkum okk- ur ákaflega mótdræg. Og miklu harðari en þau, satt best að segja, en við vorum þó að eiga við í frá- farandi ríkisstjórn. Við misstum þar út í raun þann bandamann sem var kannski einna velviljað- astur okkur þrátt fyrir allt, og lagði mikið á sig til að reyna að leysa málið þar sem var Wouter Bos og flokkur hans,“ sagði Steingrímur í viðtali við mbl.is. Varaformaður í heil- brigðisráðuneytið Elva Björk Sverrisdóttir, fyrrverandi varaformaður Blaðamannafélags Íslands, hefur verið ráðin upplýs- ingafulltrúi heilbrigðisráðuneytis- ins, í afleysing- um. Fyrrverandi blaðamaður- inn Andrés Ingi Jónsson gegndi starfinu áður og leysti þar áður af sem upplýsinga- fulltrúi umhverf- isráðuneytisins. Hann hefur nú verið ráðinn aðstoð- armaður heilbrigðisráðherra. Hvor- ugt var ráðið í nýja starfið með aug- lýsingu. Elva Björk mun gegna stöðu sinni tímabundið og því þarf ekki að auglýsa starfið. Þá er ekki krafist auglýsingar vegna aðstoðarmanna ráðherra. Tveir tvítugir karlmenn voru hand- teknir á mánudagskvöld fyrir árás á hjón á sjötugsaldri í Reykjanesbæ og dóttur þeirra sem er á fertugsaldri. Árásin átti sér stað við heimili hjón- anna. Þeir köstuðu manninum í göt- una og spörkuðu í kvið hans. Maður- inn nefbrotnaði, handleggsbrotnaði og hlaut áverka í andliti. Hann var undir eftirliti á Landspítalanum í gær. Dóm- ari ákveður í dag hvort mennirnir verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Tilkynnt var um árásina klukkan 22 á mánudagskvöldið og voru tveir menn á tvítugsaldri handteknir hálf- um öðrum tíma seinna grunaðir um árásina. Þeir hafa margsinnis komist í kast við lögin áður þrátt fyrir ungan aldur að sögn lögreglunnar á Suður- nesjum. Þeir voru í annarlegu ástandi þegar þeir voru handteknir og var ekki hægt að yfirheyra þá fyrr en í gær. Sam- kvæmt heimildum DV tengist árásin barnabarni gömlu hjónanna. Það er maður um tvítugt sem býr hjá afa sín- um og ömmu en var ekki heima þegar árásin átti sér stað. Talið er að árásar- mennirnir hafi ætlað að rukka barna- barnið um 30 þúsund krónur sem það skuldaði stúlku sem er vinkona árásar- mannanna. Ekki mun vera um fíkni- efnaskuld að ræða. Samkvæmt heim- ildum DV hefur barnabarn hjónanna ekki verið í óreglu eða komist í kast við lögin. as@dv.is Tveir tvítugir karlmenn réðust á hjón á sjötugsaldri í Reykjanesbæ: Hrottaleg árás á eldri hjón Þekktir ofbeldismenn Mennirnir tveir sem grunaðir eru um árásina hafa margsinnis komist í kast við lögin þrátt fyrir ungan aldur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.