Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Blaðsíða 30
Handknattleiksmaðurinn og silfurdrengurinn Logi Geirsson ætlar að láta gamlan draum ræt- ast um miðjan maímánuð og sjá Formúlu 1-keppni á frægustu braut heims, Mónakóbrautinni. Á hverju ári flykkjast stjörnurnar í maí til Mónakó til að sýna sig og sjá aðra, liggja í sólbaði á snekkj- um og hitta Formúlukappana. Mónakó er þó ekki staður fyrir fátæka menn eins og Logi komst að þegar hann fór að skoða verð á hótelum þessa helgina. „ Annað herbergið á 2.300 evrur nóttin og hitt 4.400 evrur nóttin? Hef ég verið að missa af einhverju?“ spurði Logi á Facebook-síðu sinni en hann ætti að eiga fyrir þessu, vel launaður handknattleiksmað- ur og eigandi snyrtivörulínu. „Hann kom í heiminn á nákvæm- lega sama augnabliki og ég kom í hús og það þótti því tilhlýðilegt að hann yrði skírður Siggi stormur,“ segir veðurfræðingurinn Sigurður Þ. Ragnarsson betur þekktur sem Siggi stormur en hann eignaðist alnafna um helgina þegar hann heimsótti Ólafsfjörð. „Þetta var nú þannig að ég var fyrir norðan í gráslepputúr og var nýkominn úr honum.“ Siggi var svo beðinn um að vera leynigest- ur í stórafmæli af vini sínum sem vildi koma afmælisbarninu á óvart. „Þegar ég mætti svo á svæðið var sauðburður í fullum gangi og þrjár ær að bera.“ Þegar myndin er tek- in af Sigga og nafna hans var hann því nýkominn í hús og yngri Storm- urinn aðeins nokkurra sekúndna gamall. „Hann var varla búinn að átta sig þegar ég fékk hann í fangið,“ segir Siggi meira en lítið stoltur af nafna sínum. Gráslepputúr Sigga var hans fyrsti um ævina og skemmti hann sér konunglega við veiðarnar. „Sæv- ar Jóhannesson, vinur minn, bauð mér að koma á grásleppu og ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um. Þetta var því alveg frábær helgi. Það er ekki á hverjum degi sem mað- ur fer á grásleppu, verður vitni að fæðingu og eignast alnafna. Ég er öllu fólkinu fyrir norðan gríðarlega þakklátur fyrir frábærar móttökur.“ asgeir@dv.is LAMBIÐ SIGGI STORMUR LÆTUR DRAUMINN RÆTAST SIGGI STORMUR EIGNAÐIST ALNAFNA Á ÓLAFSFIRÐI: BIGGI Í MAUS OG PÁLL ÓSKAR: 30 MIÐVIKUDAGUR 5. maí 2010 FÓLKIÐ Siggi Stormur Með alnafna sínum á Ólafsfirði. Uppistandshópurinn Mið-Ísland verður með gamanmál á frek- ar óvenjulegum stað um næstu helgi. Á safninu Gljúfrasteini sem áður var heimili nóbelskáldsins Halldórs Laxness. Fram koma þeir Jóhann Alfreð, Ari Eldjárn, Bergur Ebbi og Dóri DNA en sá síðast- nefndi er barnabarn skáldsins eins og frægt er. Í tilkynningu frá hópn- um segir meðal annars. „Það var oft hlegið á Gljúfrasteini í gamla daga: frægt er t.d. þegar Ragnar í Smára var með svarta ólífu fasta í hálsinum og þurfti að dansa kjúkl- ingadans til að hósta henni upp.“ Uppistandið hefst klukkan 16.00 og er takmarkaður sætafjöldi. HLÁTUR Á GLJÚFRA- STEINI Samkvæmt sömu heimild hafa þeir eytt drjúgum tíma í vinnuna síðustu mánuði. Ætla má að Páll Óskar hafi frá miklu að segja í bókinni enda ekki þekktur fyrir að vefjast tunga um tönn. Og popparinn hefur upplifað ýmislegt þrátt fyrir að vera rétt orðinn fertugur. Páll var til að mynda hársbreidd frá gjaldþroti fyrir rúmum áratug eftir að platan Deep Inside Paul Oscar floppaði í sölu, hann þurfti að takast á við þann mótvind sem því fylgir að koma út úr skápnum auk þess sem kappinn var um tíma háður hommaklámi, eins og Páll sagði frá í viðtali við Morg- unblaðið fyrr á árinu. Páll er ekki beint háaldraður fyrir mann sem ákveðið hefur að ráðast í gerð ævisögu sinnar. Hann er þó sex árum eldri en Bubbi Morthens var þegar ævi- saga hans, skrifuð af Silju Aðalsteinsdóttur, kom út fyrir nákvæmlega tuttugu árum. Ævisögur tónlistarmanna hafa annars verið áberandi í íslenskri bókaútgáfu síðustu misseri. Síðasta haust komu til dæmis út ævisögur Magnúsar Eiríkssonar, Gylfa Ægissonar og Vilhjálms Vilhjálmssonar og haustið 2008 sögðu Hörður Torfason og Gunnar Þórðarson upp og ofan af æviskeiði sínu. Sumar ævisögur líða fyrir það að sá sem ákveður að deila frásögnum af lífi sínu með lesendum heldur of mikið aftur af sér og fer með hálfkveðnar vísur. Þá er yfirleitt betur heima setið en af stað farið. Fastlega má búast við að ævisaga Páls Óskars verði ekki undir þessa sök seld. Eftir því sem DV kemst næst hefur útgáfudagur bókarinnar ekki verið ákveðinn. En hvort sem hún kemur út á þessu ári eða síðar er ljóst að hún verður í toppbaráttunni á metsölu- listum bókaverslana þar sem Páll Óskar er einn allra vinsæl- asti tónlistarmaður íslenskrar tónlistarsögu. kristjanh@dv.is SKRIFA ÆVISÖGU PALLA Poppstjarna Íslands, Páll Óskar Hjálmtýsson, og tónlist- armaðurinn Birgir Örn Stein- arsson, kenndur við hljómsveit- ina Maus, sameina nú krafta sína við skrif ævisögu þess fyrrnefnda samkvæmt öruggum heimildum DV. Ekki hefur náðst í Pál Óskar vegna þessa og Birgir Örn vildi ekki tjá sig um málið þeg- ar blaðamaður náði tali af honum. Birgir Örn Steinarsson Skrifar ævisögu popp- stjörnu Íslands. Birgir hefur sjálfur getið sér gott orð á tónlistarsviðinu sem söngv- ari hljómsveitarinnar Maus. MYND SIGURÐUR GUNNARSSON Páll Óskar Hefur vafalaust frá mörgu að segja í ævisögu sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.