Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Blaðsíða 18
BRÆÐURNIR ASH OG CASH n Þeir bræður Magnús Tumi Guðmundsson jarðfræðingur og Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri eru báðir þjóðþekktir. Magnús Tumi er sérfræðing- ur í f lestu sem snýr að eldgos- um og öskufalli en Már býr yfir hvað mestri þekkingu á efnahagsmálum og öllu sem snýr að peningum. Þótt það sé ekki á allra vitorði að þarna séu bræður á ferð eru þó margir sem þekkja til þeirra. Húmoristar í þeim hópi hafa nú gefið bræðrunum uppnefni sem vísar til peninga og ösku. Þeir kallast nú „Ash“ og „Cash“. GUÐLAUGUR UTANGARÐS n Drottningarviðtal Fréttablaðsins við Guðlaug Þór Þórðarson alþingis- mann á mánudag vakti talsverða at- hygli og sumpart ógleði. Blaða- maðurinn spurði þeirra spurn- inga sem skiptu máli en svörin voru út og suður án þess að reynt væri að krefja þingmanninn um skýr svör. Guðlaugur fjallar talsvert um að hann sé utangarðs- maður í Sjálfstæðisflokknum, eins konar alþýðuhetja. Svo virðist sem hann sé að sækjast eftir samúð vegna umræðunnar um himinháa styrki sem nú sliga flokk hans. Búast má við leiðara frá vini Guðlaugs, Ólafi Þ. Stephensen ritstjóra, í kjölfarið. SAMMÁLA UM KRISTJÁN n Einn harðasti andstæðingur Guð- laugs Þórs Þórðarsonar er Davíð Oddsson, ritstjóri og vanrækslumað- ur. Óljóst er af hverju Davíð hefur ímugust á þing- manninum en þeir eru ósam- mála um flest. Þó er eitt sem sameinar þessa miklu fjendur. Báðir eru þeir harðir andstæð- ingar Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálf- stæðisflokksins. Þetta braust fram af fullum þunga þegar umbótasinninn Kristján Þór Júlíusson alþingismaður bauð sig fram til formennsku í flokkn- um. Flokksbrot Davíðs og Guðlaugs studdu Kristján. LEYNISAMNINGUR n Frétt DV um að Jón Ásgeir Jóhann- esson hefði boðið Þórhalli Gunnars- syni, þáverandi dagskrárstjóra Ríkis- útvarpsins, 200 milljónir króna fyrir að færa sig til Stöðvar 2 vakti mikla at- hygli. Þórhallur var aftur á móti fastur fyrir og sagði nei. Ósögð er sú saga þegar Jón Ásgeir samdi á leynifundi við Sigurjón Magnús Egilsson um að yfirgefa Blaðið og koma til starfa á DV sem ritstjóri. Þá var gerður feitur samningur þótt hann væri ekki af þeirri stærðargráðu sem Þórhalli var boðin. Í fjölmiðlum verður reglulega sá atburður að gúrkutíð gengur í garð og hinar minnstu fréttir verða skyndilega stórar í slíkum aðstæðum. Nú þegar farið er að slá í efnahagshrunið, rannsóknarskýrsl- una og eldgosið á sér stað hin óum- flýjanlega niðurkoðnun fjölmiðlanna og þeir fara að flytja gervifréttir. Þetta gerðist þó mun fyrr en búist var við. Frétt vikunnar var að Már Guðmundsson ætti að fá 400 þúsund króna launahækkun. Næsta frétt var að þingmað- ur Samfylkingar- innar vildi ekki að hann fengi hana. Því næst vildi Jó- hanna Sigurðar- dóttir það ekki og ekki heldur Stein- grímur J. Sigfús- son. Svo kom á daginn að Már Guðmundsson sjálfur vildi alls ekki launahækk- unina og að hún stóð aldrei til. Allar fréttirnar snerust um eitt- hvað sem aldrei varð og aldrei átti að verða. Í þar-síðustu viku var stærsta málið í fjölmiðlunum að Ólafur Ragnar Grímsson forseti sagði að Kötlugos væri yfirvofandi á Íslandi á þessari öld, og að það yrði að líkindum stærra en gosið í Eyjafjallajökli. Þetta er eldgömul frétt og hún segir sig sjálf, en engu að síður varð gríðarleg frétta- syrpa um að forsetinn hefði sagt frá þessari staðreynd, hvar hann sagði frá henni og hvernig. Atburðurinn var enginn, heldur voru aðeins fréttir af því að einhver sagði eitthvað. Eins og í gamla góða góðærinu þeg- ar fjölmiðlar nenntu ekki að fjalla um atburði, heldur bara orð. Nú í vikunni kom svo enn ein fréttin sem var stormur í vatns-glasi, þar sem mý- fluga breyttist í úlfalda og þar sem fjallið tók jóðsótt og það fæddist mýsla. Þetta var fréttin um nasistakveðju Eiðs Smára Guðjohnsen. Allir helstu fjöl- miðlar landsins sögðu frá því að sagt hefði verið frá því að Eiður hefði heilsað að nasista- sið, með fingur við efri vör til að tákna framlag Adolfs Hitler til mottumars árin 1930 til 1945. Svo kom í ljós að Eiður var ekki með nasistakveðju, heldur var hann bara að hæðast að Mex- íkóum. Þótt það megi ekki gera grín að nasistum er full-komlega í lagi að gera lítið úr Mexíkóum, þannig að Eiður var hafð- ur fyrir rangri sök. Mexíkó- ar eru litlir og skrýtnir. Þeir eru jafnan með yfirvarar- skegg og svokall- aða Mexíkóa-hatta. Þeir drekka tequila og borða búr- rító. Svínaflensan varð til í Mex- íkóa sem átti of náið samneyti við gelti, gyltur og grísi. Sumum hlutum verður hins vegar að sýna virðingu og nasisminn virðist vera einn af þeim. Það var til dæmis mjög ósmekklegt af Charlie Chaplin að gera grín að Hitler í myndinni The Great Dictator árið 1940. Eiður Smári ætti að vera beð-inn afsökunar vegna þess að hann var vændur um að hæð-ast að nasistum, þegar hann í reynd var að gera lítið úr þjóðerni fólks. Arriba, arriba! Adios amigos! HA, HA, MEXÍKÓI! „Já, meira en við ráðum við. Við þurfum að fara að kalla út fólk til að safna ösku,“ segir Sófus Gústavs- son, eigandi nammi.is. Vefverslunin býður 160 grömm af ösku til sölu á 30 dollara eða 3.900 krónur. Ágóðinn af sölunni rennur óskiptur til Landsbjargar. FÁIÐ ÞIÐ MARGAR PANTANIR? „Hefur undirritaður aldrei svitnað eins mikið við störf sín sem blaða- maður.“ n Elvar Geir Magnússon, blaðamaður Fréttablaðsins, í umfjöllun sinni um leik Aftureldingar og Gróttu í umspili um sæti í N1 deild karla. Stemningin í Mosfellsbæ var hreint út sagt ótrúleg og hitinn í húsinu eftir því. - Fréttablaðið „Ég vil hvorki staðfesta þetta né tjá mig um þetta.“ n Þórhallur Gunnarsson, fyrrverandi dagskrárstjóri á RÚV og ritstjóri Kastljóss, um það hvort Jón Ásgeir Jóhannesson hafi boðið honum 200 milljónir fyrir að koma aftur yfir á Stöð 2. - DV „Hendið frá ykkur kústin- um, tuskunni og börnunum.“ n Ásdís Rán er með skialboð til allra kvenna á landinu með nýja laginu sínu. Hún vill allar konur út á dansgólfið til að finna „Ránina“ í sér. - pressan.is „Ég held ég hafi stutt allt nema Framsóknar- flokkinn.“ n Jón Gnarr, oddviti besta flokksins, um að það hafi verið prinsipp hjá honum að styðja ekki Framsókn í gegnum tíðina. Alla aðra flokka hafi hann stutt með einum eða öðrum hætti. - DV.is „Ég sé ekkert fyndið við Þýskaland nasismans.“ n Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Tottenham og íslenska landsliðsins, í yfirlýsingu vegna fréttar Daily Star um að hann hafi heilsað að nasistasið á skemmtistað. - DV.is Taktu leigubíl, Hanna Sú niðurstaða í skoðanakönnunum að Besti flokkurinn sé með um fjórð-ungsfylgi kjósenda í Reykjavík stað-festir álit almennings á gamla fjór- flokknum. Gömlu flokkarnir eru gegnsýrðir af spillingu. Fjöldi frambjóðenda hefur þegið háa styrki og stjórnast af siðleysi. Ekki hefur þótt tiltökumál að þiggja boðsferðir til fjar- lægra landa. Þá hefur þótt sjálfsagt að fara í veiðiferðir í boði banka, fyrirtækja eða ein- staklinga. Sjálftaka á launum hefur ekki þótt vera neitt tiltökumál. Algengt er að borgar- fulltrúar hafi að samanlögðu laun sem telja langt á aðra milljón króna á mánuði. Grunn- laun þeirra eru minnsti hlutinn. Þeir hafa launavætt í sína þágu hinar ýmsu stofnanir og fyrirtæki í eigu borgarinnar. Þannig hafa orðið til ótal spillingarholur í borgarkerf- inu. Sjálftakan hefur þótt sjálfsögð. Meira að segja varaborgarfulltrúar án vinnuframlags hafa haft rífleg mánaðarlaun verkamanns. Í þessari smáborg á heimsvísu, Reykja- vík, er hver silkihúfan upp af annarri sem hafa komið upp ótal undirtyllum. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri er, eins og forverar hennar, með aðstoðarmann og einkabílstjóra. Forseti borgarstjórnar hefur einnig aðgang að einkabílstjóra. Stórbokka- hátturinn í smáborginni er yfirþyrmandi. Og það hefur ekki hvarflað að nokkrum í borgarpóli tíkinni að benda á að þetta lið get- ur einfaldlega tekið leigubíl ef það treystir sér ekki til að aka sjálft. Allt gengur út á að viðhalda veldinu og hlaða sem mest undir einstök embætti. Almenningur á að borga fyrir óhófið með hærra útsvari. Kerfið er fyr- ir löngu orðið að óseðjandi og illdrepandi ófreskju sem hefur þann tilgang einan að viðhalda sjálfu sér og stækka. Augu Reykvíkinga hafa verið lokuð fyrir þeirri svívirðu sem á sér stað í Reykjavík og víðar í sveitarfélögum þar sem kjörnir full- trúar og flokkshestar hafa verið sem blóð- sugur á samfélögum sínum. Með framboði grínistans Jóns Gnarrs undir fána Besta flokksins er sem augu manna opnist skyndi- lega. Kjósendur sem lifað hafa í blekkingu átta sig á því að þeir sem kosnir voru til að starfa að heill samfélagsins voru þar fyrst og fremst að hugsa um eigin hag og að eng- in von er um bata á meðan sömu einstak- lingarnir fá endurnýjað umboð. Sama sið- leysið mun ráða för. Sama óhófið og sama spillingin mun umlykja borgarstjórn. Það er þess vegna sem kjósendur fylkja liði með Jóni Gnarr. Þær tugþúsundir sem tilbúnar eru að kjósa grínistana eru að gefa fjórflokkn- um fingurinn. Eitt risastórt fokkmerki er það eina sem er ósagt við spillingarkólfana sem sitja sem fastast. Taktu leigubíl, Hanna Birna, aðra leið. REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR. Eitt risastórt fokkmerki er það eina sem er ósagt. 18 MIÐVIKUDAGUR 5. maí 2010 UMRÆÐA SANDKORN LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK ÚTGÁFUFÉLAG: DV ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Lilja Skaftadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Bogi Örn Emilsson RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is DV Á NETINU: DV.IS AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050. SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. LEIÐARI SPURNINGIN SVARTHÖFÐI BÓKSTAFLEGA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.