Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 5. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR 17 Erfitt verkefni Demókratinn Mitch Landrieu hefur tekið við sem borgarstjóri New Or- leans. Óhætt er að segja að nýi borg- arstjórinn komi inn á erfiðum tíma, því íbúar New Orleans leggja nú allt kapp á að vernda lífríkið við strend- ur Mexíkóflóa fyrir hinum risastóra olíuleka sem valdið hefur miklu um- hverfistjóni síðustu daga. Fiskveiðar á svæðinu hafa þegar verið bannað- ar með öllu næstu 10 daga á meðan reynt er að ná tökum á olíulekanum. Myrti 73 ára nunnu Brasilískur bóndi hefur verið dæmd- ur fyrir morð á bandarískri nunnu árið 2005. Regivaldu Galvao fékk 30 ára fangelsisdóm fyrir að myrða nunnuna Dorothy Stang, en hún hafði barist ötullega fyrir því að vernda lífríkið í Amazon-regnskóg- inum. Sjálfur vildi morðinginn hins vegar stunda þar skógarhögg. Hann réð því leigumorðingja og borgaði honum á fimmtu millljón króna til þess að myrða hina 73 ára gömlu nunnu. Morð við barnaskóla Þrír létust í skotbardaga fyrir utan barnaskóla í borginni Ciudad Juárez í Mexíkó í síðustu viku. Börn voru að leik fyrir utan skólann þegar byssu- menn sem komu akandi á bíl hófu skothríð á annan bíl. Tveir karlar og ein kona voru í bílnum og létust þau öll. Gríðarleg ofbeldisalda hefur riðið yfir Mexíkó síðustu ár. Fyrr um daginn höfðu byssumenn ráðist inn á bar og dregið átta menn út á bíla- plan þar sem þeir voru teknir af lífi. Vill sanngirni Kvikmyndaleikstjórinn Roman Pol- anski hefur rofið þögnina varðandi kröfu um að hann verði framseldur frá Sviss til Bandaríkjanna fyrir 33 ára gamalt kynferðisbrot gegn 13 ára unglingsstúlku. Óskarsverðlauna- hafinn sagði málsaðila vilja fá hann til baka svo hægt væri að fórna hon- um „á sviði fjölmiðlanna“. Polanski, sem er í stofufangelsi í Sviss, talaði um málið á vefriti stuðningsmanns, heimspekingsins Bernard-Henri- Levi. „Ég bið einungis um að komið sé fram við mig af sanngirni,“ sagði þessi 76 ára leikstjóri, sem yfirgaf Bandaríkinn 1978, áður en hann hlaut dóm. Younus Abdullah Muhammed segist ekki tengjast sprengjutilræðinu í New York: South Park-skelfir lýsir sakleysi Hópur íslamskra öfgamanna sem hótuðu höfundum South Park-þátt- anna, eftir að þeir birtu mynd af Múhammeð spámanni í bangsa- búningi á dögunum, neita allri aðild að sprengjutilræðinu á Times Squ- are í New York um helgina. Engu munaði að Nissan Pathfinder-jeppi spryngi í loft upp á laugardagskvöld, þegar götusölumaður kom auga á að reyk lagði frá bílnum. Við nánari eftirgrennslan lögreglu, kom í ljós að bílnum hafði verið breytt í öfluga bílsprengju sem hefði getað valdið miklu tjóni. Younus Abdullah Muhammed, maðurinn á bak við vefsíðuna revolu- tionmuslim.com, þar sem hótanirn- ar í garð South Park-manna birtust, sagði við bandaríska fjölmiðla að það væri fráleitt að tengja hann við at- hæfið. Fyrir nokkrum vikum birti vef- síðan yfirlýsingu um að það væri ekki ólíklegt að það myndi fara eins fyrir þeim Trey Park er og Matt Stone, eins og fór fyrir hollenska kvikmynda- gerðarmanninum Theo Van Gough, sem var myrtur árið 2004 fyrir um- fjöllun sína um múslíma. Múhamm- eð segist þó hvergi hafa komið ná- lægt málum. „Heldur þú að ég myndi skipa einhverjum að sprengja upp byggingu á miðju Times Square?“ sagði maðurinn. „Þetta hafði ekki neitt að gera með deiluna í kringum South Park.“ Athygli vakti að maðurinn sást í nágrenni við staðinn þar sem bíllinn fannst, hvar hann hélt á gjallarhorni og lýsti því yfir að Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, væri fasisti. Hann hafi þó haft fullt leyfi frá lög- reglunni til að standa fyrir mótmæl- um. Umdeildir Grínistarnir Trey Parker og Matt Stone gefa ekki mikið fyrir pólitíska rétthugsun og hafa oft valdið hneykslun. „GUÐ MINN GÓÐUR“ þjóðarbússins vegna Icesave-samn- inganna við Breta og Hollendinga um það bil 160 prósentum af þjóðar- framleiðslu næsta árs. Í samanburði við efnahagsvanda Grikkja þá nema skuldir þeirra 115 prósentum af þjóð- arframleiðslu Grikklands á síðasta ári. Mótmæli og verkföll í Aþenu Mörg hundruð mótmælend- ur sýndu óánægju sína í Aþenu á þriðjudag, þar sem þeir meðal ann- ars hengdu upp stóra borða við fornminjarnar á Akrapolishæð með áletrunininni: „Íbúar Evrópu, rís- ið á fætur!“ Mótmælendurnir eru ósáttir við þann mikla niðurskurð sem blasir við í landinu til þess að bjarga efnahag landsins. Aðgerðir grískra yfirvalda hafa í för með sér að laun í opinbera geiranum munu ekki hækka á næstunni. Þá verð- ur lífeyrir skorinn niður auk þess sem skattar verða hækkaðir. Op- inberir starfsmenn voru áberandi í mótmælunum í Aþenu á þriðju- dag. Þeirra á meðal voru kennarar og heilbrigðisstarfsfólk. Búist er við verkföllum um allt landið á mið- vikudag og næstu daga í mótmæla- skyni. Ósáttir Mótmælendur hrópuðu slagorð í mót- mælaskyni fyrir utan þinghúsið í Aþenu á þriðju- dag. Mótmælendur eru brjálaðir yfir fyrirhuguðum niðurskurði í Grikklandi, til þess að geta staðið straum af láni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. MYND AFP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.