Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 5. maí 2010 FRÉTTIR
Betra loft
betri líðan
Airfree lofthreinsitækið
• Eyðir frjókornum og svifryki
• Vinnur gegn myglusveppi og ólykt
• Eyðir bakteríum og gæludýraflösu
• Er hljóðlaust og sjálfhreinsandi
Hæð aðeins 27 cm
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is
„Mér finnst svakalega leitt að hafa lent
í þessu en aðstæður voru þannig að
ég taldi mig ekki geta neitt annað. Það
er búið að dæma mig réttilega fyrir að
framvísa röngum pappírum og ég tek
út mína refsingu fyrir það,“ segir Krist-
inn Pétur Benediktsson skurðlæknir
sem var ákærður af ríkissaksóknara
fyrir að hafa reynt að koma ungum
filipps eyskum dreng til Íslands á föls-
uðum pappírum. Málinu lauk nýverið
með dómsátt þar sem Kristinn Pétur
játaði brot sín greiðlega fyrir dómi og
gekkst við sekt.
Kristinn Pétur var dæmdur fyr-
ir svokallað sifskaparbrot, að kenna
barnið við ranga foreldra, fölsun
skjala og brot gegn útlendingalög-
um. Pappírunum framvísaði hann
hjá Þjóðskrá í þeirri von að hann og
kona hans yrðu skráð sem foreldrar
drengsins og fyrir vikið fengist vega-
bréfsáritun í kjölfarið. Grunsemd-
ir vöknuðu um að ekki væri allt með
felldu, málið var tilkynnt til lögreglu
og síðan endaði það á borði ríkissak-
sóknara sem gaf út ákæru.
Auglýst í útvarpi
Kristinn Pétur á filippseyska eiginkonu
og drenginn unga fengu þau í hend-
urnar eftir útvarpsauglýsingu á Fil-
ippseyjum. Hann segir allt þetta hafa
verið gert í góðri trú með hag barnsins
að leiðarljósi en engu að síður finnst
honum leiðinlegt að hafa endað fyr-
ir dómstólum. „Við vorum í ættleið-
ingarhugleiðingum þegar drengurinn
beinlínis barst upp í hendurnar á okk-
ur. Það var fyrir einskæra tilviljun að
konan mín heyrði auglýst í útvarpinu
að drengurinn fengist gefins ella yrði
hann borinn út þar sem móðirin gat
ekki séð honum farborða. Til að koma
í veg fyrir það gaf hún sig fram og stóð
allt í einu með 5 daga gamlan dreng í
fanginu,“ segir Kristinn Pétur.
„Þá sagði móðirin að annaðhvort
tækjum við hann á staðnum eða
drengurinn yrði skilinn eftir einhvers
staðar. Við urðum að ákveða okkur á
stundinni og vorum allt í einu með
barn í höndunum. Það er víðtekin
venja í svona málum á Filippseyjum
að þá erum við bara skráð sem for-
eldrar barnsins þó svo það sé ekki
samkvæmt lögum.“
Björguðu barninu
Aðspurður segir Kristinn Pétur strák-
inn nú orðinn tveggja ára og þau
hjónin í ættleiðingarferli sem vonast
er til að ljúki í sumar. Hann bendir á
að þótt pappírarnir hafi verið ólög-
legir á Filippseyjum líti yfirvöld þar
þannig á að barni hafi verið bjargað.
„Okkur fór strax að þykja vænt um
barnið og vildum fá fyrir drenginn
vegabréfsáritun þannig að við gætum
farið með hann heim. Við fundum
hvergi móðurina og þetta voru einu
pappírarnir sem við höfðum, því lét-
um við á þetta reyna. Okkur var síð-
an ráðlagt að sækja um í Þjóðskrá og
gerðum við það,“ segir Kristinn Pétur.
„Ég gerði náttúrlega rangt en gat
ekkert annað. Það vill svo skemmti-
lega til að við höfum fundið móður-
ina og því erum við komin í löglegt
ættleiðingarferli. Það tekur sinn tíma
og allan tímann, hátt í tvö ár, höfum
við verið aðskilin og það er erfitt. Það
hefur verið erfiður tími en við von-
umst til að þessu lykti farsællega og
hann verði orðinn löglega ættleiddur
í sumar. Það er góð tilhugsun.“
Eftir að hafa heyrt auglýsingu í útvarpinu stóð Kristinn Pétur Benediktsson skurð-
læknir skyndilega með 5 daga gamalt filippseyskt barn í höndunum. Móðirin hugðist
annars bera barnið út og sá hann lítið annað í stöðunni en að taka barnið að sér og skrá
sig sem foreldri. Með þá pappíra var hann stöðvaður hjá Þjóðskrá og sóttur til saka.
LÆKNIR FALSAÐI
FAÐERNI BARNS
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Það var fyrir ein- skæra tilviljun að
konan mín heyrði aug-
lýst í útvarpinu að dreng-
urinn fengist gefins ella
yrði hann borinn út.
Bíða eftir að geta ættleitt
Kristinn og kona hans fengu
skyndilega ungbarn í fangið og
höfðu aðeins falsaða pappíra í
höndunum.
Tveggja ára Drengurinn er nú orðinn
tveggja ára og vonast hjónin til að
ættleiðingin gangi í gegn í sumar.
Kjartan Broddi Bragason, eigandi
eignarhaldsfélagsins Consensus,
hefur ekki látið ná í sig síðustu daga
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaða-
manns DV til að ná af honum tali.
Consensus fjárfesti í framvirkum
skuldabréfum FL Group í gegnum
Glitni fyrir 8 milljarða króna á ár-
inu 2008, samkvæmt skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis, og hefur
nefndin bent ríkissaksóknara á að
fjárfestingin geti flokkast sem refsi-
verð háttsemi. Ríkissaksóknari mun
skoða Consensus-málið. FL Group
var, sem kunnugt er, stærsti hluthaf-
inn í Glitni árið 2008.
Kjartan Broddi hefur ekki tjáð
sig um fjárfestingu Consensus í
skuldabréfunum og því liggur ekki
ljóst fyrir af hverju félagið fjárfesti
í bréfunum. Rannsóknarnefnd Al-
þingis lætur í það skína að Cons-
ensus hafi fjárfest í skuldabréfun-
um svo Glitnir gæti lánað FL Group
meiri peninga. Í skýrslunni segir:
„Með því að fá viðskiptavini sína til
þess að gera framvirka kaupsamn-
inga um skuldabréf Glitnis var hægt
að lána FL Group þessa 12 millj-
arða þar sem áhættan var formlega
á félögunum sem gerðu framvirku
samningana við bankann.“
Mágur Kjartans, Knútur G.
Hauksson sem var varamað-
ur í stjórn Consensus, sagði í DV
á föstudaginn að hann vissi ekki
af hverju félagið hefði fjárfest í
skuldabréfunum. Hann sagði að
Kjartan yrði að svara því. Fyrrver-
andi kona Kjartans, Aðalheiður
Björt Guðmundsdóttir sem jafn-
framt átti félagið með honum þar
til 2007, gat heldur ekki svarað fyrir
fjárfestinguna. Hún sagðist ekkert
vita um hana. Spjótin beinast því
að Kjartani.
ingi@dv.is
Eigandi Consensus, Kjartan Broddi Bragason, lætur ekki ná í sig:
Huldumaður FL í felum
Lætur ekki ná í sig Kjartan Broddi
Bragason hefur ekki látið ná í sig þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir blaðamanns DV til
að ná í hann. Jón Ásgeir Jóhannesson og
Jón Sigurðsson stýrðu FL Group.
Ekki í eigu FL Group
Morgunblaðið greindi frá því á
þriðjudag að allt benti til að reikn-
ingurinn hjá Kaupþingi í Lúxem-
borg, sem 3 milljarðar fóru inn á af
reikningi FL Group árið 2005, hefði
ekki verið í eigu FL Group. Ragnhild-
ur Geirsdóttir hætti sem forstjóri FL
Group árið 2005 því að hún fékk ekki
upplýsingar um millifærsluna.
Í frétt Morgunblaðsins er bent á
að reglur um bankaleynd séu svipað-
ar í Lúxemborg og hér á landi. Ragn-
hildur hefði því átt að geta fengið
allar upplýsingar sem hún vildi um
reikninga í eigu FL Group.
Ragnhildur hefur sagt að hún
telji að milljarðarnir hafi farið inn á
reikning Fons og telur Morgunblaðið
að frétt sín styrki mögulega þá túlkun.
Krónan og
Hagkaup sektuð
Neytendastofa hefur sektað mat-
vöruverslanirnar Hagkaup og Krón-
una fyrir að fara ekki að tilmælum
um að bæta verðmerkingar í versl-
unum sínum.
Starfsmenn Neytendastofu
könnuðu hvernig verðmerkingum
væri háttað í matvöruverslunum á
höfuðborgarsvæðinu.
Gerðar voru athugasemdir við
verðmerkingar í tveimur verslunum
Hagkaupa og í einni verslun Krón-
unnar. Neytendastofa beindi þeim
tilmælum til verslananna að þær
bættu úr þessu en það var ekki gert.
Sekt Kaupáss hljóðar upp á 350
þúsund krónur og sekt Hagkaupa
upp á 700 þúsund.
Borgarsjóðurinn
rekinn með hagnaði
Borgarsjóður var rekinn með 3,2
milljarða króna hagnaði á síðasta
ári. Hins vegar nam tap samstæðu-
reiknings Reykjavíkurborgar 1.650
þúsundum króna. Þetta kemur fram
í ársreikningi Reykjavíkurborgar
fyrir árið 2009 sem lagður var fram á
borgarstjórnarfundi á þriðjudag.
Af þessu tilefni sagði Hanna
Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri í
tilkynningu sem send var á fjöl-
miðla. „Þetta eru mikil og góð tíð-
indi fyrir Reykvíkinga.“