Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 5. maí 2010 FRÉTTIR „Skrokkurinn er ekki alveg tilbúinn fyrir átök. Ása þarf að jafna sig bet- ur en þetta kemur allt saman. Ég hef enga trú á öðru,“ segir Þorsteinn Ás- mundur Waltersson, faðir Ásu Sig- urjónu sem liggur í öndunarvél á Landspítalanum eftir alvarlegt um- ferðarslys á Suðurnesjum fyrir tæp- um tveimur vikum. Ásu Sigurjónu er enn haldið sofandi eftir bílslysið sem varð við Mánagranda á Suðurnesjum laugar- daginn 24. apríl síðastliðinn. Fjögur ungmenni voru í bílnum þegar hann hafnaði á ljósastaur og valt í kjölfar- ið. Tvær vinkonur létu lífið í slysinu, Unnur Lilja og Lena Margrét. Báð- ar voru þær átján ára en þeim hafði verið haldið í öndunarvél eftir slysið og létust þær daginn eftir slysið. Ása Sigurjóna liggur enn þungt haldin á Landspítalanum en ökumaðurinn slapp ómeiddur en hann var sá eini sem var í bílbelti. Vakin tvívegis Ásu Sigurjónu hefur fram til þessa verið haldið sofandi í öndunarvél en fyrsta tilraun til að vekja hana var gerð um miðja síðustu viku. Það gekk vel og vöktu viðbrögð hennar með sér von í huga foreldra henn- ar. „Hún Ása er svo yndisleg stelpa, bæði lífsglöð og skemmtileg. Ég skynja það á læknunum að það sé von og við foreldrar hennar lifum í voninni að hitta aftur frábæru stelp- una okkar,“ sagði Þorsteinn þá í samtali við DV. Á föstudag var svo gerð önnur til- raun og Ása vakin í smá tíma. Sam- kvæmt upplýsingum frá foreldrum hennar greina læknar batamerki á henni í bæði skiptin sem hún hefur verið vakin en þar sem líkami henn- ar sé laskaður eftir slysið er ekki talið ráðlegt að vekja hana til lengri tíma alveg strax. Vonin til staðar Þorsteinn segir það í senn hafa ver- ið ákaflega erfiða stund þegar lækn- arnir vöktu dóttur hans í síðustu viku, því bæði hafi það verið erfitt og á sama tíma gleðilegt að upplifa þá von sem kviknaði. Hann vonast til að hitta stelpuna sína aftur sem fyrst. „Vonin er til staðar og það er léttir fyrir okkur foreldrana. Þetta gengur hægt og sígandi. Það gekk ágætlega að vekja hana, hún hreyfði hendur, fætur og höfuð og reyndi að tjá sig. Henni er enn haldið sofandi í öndunarvél og ekki er búið að taka ákvörðun um hvenær hún verður vakin aftur,“ segir Þorsteinn. „Ég skynja það að það sé von. Þá von berum við foreldrarnir í brjósti, eftir að hafa séð hana vakna, og lif- um í voninni um að sjá stelpuna okkar aftur. Hún er sofandi ennþá, og mun sennilega verða það eitt- hvað áfram.  Allt sem við erum að sjá er af hinu góða, tíminn vinnur með henni.“ Ása Sigurjóna Þorsteinsdóttir berst áfram fyrir lífi sínu í öndunarvél eftir sviplegt um- ferðarslys á Suðurnesjum fyrir tæpum tveimur vikum. Tvær vinkonur hennar létu lífið í slysinu en foreldrar hennar eygja von á að sjá yndislega dóttur sína aftur. Ásu er enn hald- ið sofandi á Landspítalanum þar sem líkami hennar er ekki talinn reiðubúinn undir átök. „TÍMINN VINNUR MEÐ HENNI“ Ása þarf að jafna sig betur en þetta kemur allt saman. Ég hef enga trú á öðru. TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Enn haldið sofandi Læknar hafa tvívegis vakið Ásu Sigurjónu og hefur það gefið vísbendingar um að von sé til þess að hún nái sér eftir slysið. Gísli Marteinn Baldursson, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er einn þeirra stjórnmálamanna sem þáðu hvað mest í styrki frá stórfyr- irtækjunum á árunum fyrir banka- hrunið. Undanfarna daga hefur blaðamaður DV reynt að fá við- brögð frá honum við styrkjamál- unum, en hávær krafa hefur verið uppi um að stjórnmálamenn geri grein fyrir því hverjir styrktu þá í framboðsbaráttu sinni. Gísli Mart- einn hefur hins vegar hvorki svar- að símtölum né skilaboðum. Gísli Marteinn fékk um 10,5 milljónir króna í styrki árið 2006, þar af lið- lega 8 milljónir króna frá fyrirtækj- um sem ekki eru nefnd í gögnum Ríkisendurskoðunar. Mikillar óánægju hefur gætt á meðal almennings með stjórn- málamenn sem þáðu háar fjár- upphæðir frá einkafyrirtækjum árin fyrir hrunið. Undanfarnar vik- ur hefur fólk meðal annars mót- mælt fyrir utan heimili stjórnmála- manna og krafist afsagnar þeirra. Gísli Marteinn hefur verið gagn- rýndur fyrir að hafa sumarið 2007 þegið boðsferð á vegum Glitnis í Ponoi-laxveiðiána á Kólaskaga í Rússlandi. Borgarfulltrúinn var í hópi 60 til 80 góðra viðskipta- vina og starfsmanna Glitnis sem var boðið í hollum í nokkrar veiði- ferðir til Rússlands þetta sum- ar. Samkvæmt heimildum DV var Gísla Marteini boðið í ferðina vegna vinatengsla hans við fram- kvæmdastjóra fyrirtækjasviðs Glitnis, Einars Arnar Ólafssonar, sem einnig var í ferðinni meðal annarra. jonbjarki@dv.is Gísli Marteinn Baldursson lætur fjölmiðla ekki ná í sig vegna styrkjamálsins: Gísli Marteinn svarar ekki Enginn heima Gísli Marteinn lætur ekki ná í sig til þess að ræða um styrki sem hann þáði til að fjármagna framboð sitt. Safna fé Rúmlega sextíu fyrirtæki innan Sam- taka ferðaþjónustunnar hafa tek- ið höndum saman og safnað 43 milljónum króna í markaðsátaki á tveimur dögum í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli. Fram kemur í tilkynn- ingu að Icelandair hafi lagt fram 125 milljónir króna og Iceland Express 50 milljónir króna til átaksins. „Um er að ræða einstakt átak innan raða samtakanna þar sem litlir sem stórir aðilar hafa lagst á eitt um þátttöku í markaðsátakinu, enda brýnt að snúa vörn í sókn í kjölfar þess mikla tjóns sem orðið hefur.“ Umferðarbrot í Vestmannaeyjum Lögreglan í Vestmannaeyjum kærði alls sjö ökuþóra fyrir brot á umferð- arlögum í síðustu viku. Samkvæmt frétt af vef lögreglunnar í Vestmanna- eyjum er um að ræða hraðaksturs- brot, stöðubrot, vanrækslu á að nota öryggisbelti og akstur þar sem talað var í farsíma. Þá voru tvö umferðar- óhöpp tilkynnt til lögreglu í vikunni. Hvorugt var þó alvarlegt og engin slys urðu á fólki, en í öðru tilfellinu var bíllinn óökufær. Aðgerðarleysi meirihlutans Dagur B. Eggertsson, oddviti Sam- fylkingarinnar í borgarstjórn, segir að slæm staða Orkuveitunnar og aðgerðaleysi í fjármálum fyrirtækis- ins varpi skugga á viðunandi stöðu borgarsjóðs. Hann bendir á að fjár- málaskrifstofa borgarinnar birti skýrslu með þungvægum ábending- um sem hægt sé að skilja sem harða gagnrýni á afneitun og aðgerðaleysi núverandi meirihluta í málefnum Orkuveitunnar. Askan hefur áhrif á Indlandi Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur haft neikvæð áhrif á hagkerfi Indlands. Nokkrum dögum áður en Eyjafjalla- jökull tók upp á því að spúa ösku út í loftið, höfðu forsvarsmenn ind- verska flugfélagsins Air India lýst því yfir að tekist hefði að bjarga rekstri félagsins. Eldgosið hafði hins vegar í för með sér mikið tekjutap fyrir flugfélagið. Þá telja indversk yfirvöld að útflutningsiðnaðurinn í Indlandi hafi tapað um 28 milljörðum króna vegna flugbannsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.