Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Qupperneq 9
Rannsóknarnefnd Alþingis bendir á sérstaka fyrirgreiðslu Sparisjóðabankans: Lánaði FL milljarða eftir hrun Rannsóknarnefnd Alþingis bendir á það í skýrslu sinni að af einhverj- um ástæðum hafi Sparisjóðabanki Íslands lánað eignarhaldsfélaginu Stoðum, áður FL Group, rúmlega 3 milljarða króna eftir bankahrunið í október 2008. Þegar þetta var stóð félagið illa enda var það stærsti ein- staki hluthafinn í Glitni. Sparisjóða- bankinn virðist hafa lánað millj- arðana til félags sem var tæknilega gjaldþrota Í skýrslunni segir, í 2. bindi: „Aukning fyrirgreiðslu til Stoða í Sparisjóðabankanum á sér öll stað síðast á árinu 2008 eða í byrjun árs 2009. Vekur það nokkra athygli, sér í lagi í ljósi erfiðrar stöðu félags- ins á þeim tíma en Stoðir óska eftir greiðslustöðvun í september 2008, eftir að ríkið ákvað að taka yfir stóran hluta af Glitni.“ Rannsóknarnefndin reynir ekki að svara því af hverju Sparisjóða- bankinn tók ákvörðun um að lána FL Group svona mikla peninga þrátt fyr- ir erfiða stöðu félagsins. Bent er á það í skýrslunni að lánveitingin falli ekki beinlínis undir verksvið nefndar- innar þar sem lánveitingin hafi verið veitt á mánuðunum eftir hrunið. Þar kemur hins vegar fram að veðið fyrir láni Sparisjóðabankans til FL Group hafi verið hlutabréf í fast- eignafélaginu Landic Property en FL var stærsti hluthafi þess. DV náði ekki í Agnar Hansson, fyrrverandi bankastjóra Sparisjóða- bankans, til að ræða við hann um lánið. Engar skýringar hafa því enn komið fram á lánveitingunni. Sparisjóðabankinn var tekinn yfir af Fjármálaeftirlitinu í mars í fyrra og hefur bankanum verið stýrt af skila- nefnd síðan. ingi@dv.is Fjórar tilraunir bæjarstjórnar Mosfells- bæjar til að leggja leigulóðir Kaupfélags Kjalarnesþings undir sig hafa runn- ið út í sandinn. Í síðustu viku staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms Reykja- víkur sem hafnað hafði kröfu um að kaupfélagið yrði borið út af lóðunum við Háholt 16, 18 og 22. Kaupfélag Kjalarnesþings hefur haft lóðirnar á leigu frá árinu 1998. Reyndar hafði kaupfélagið haft umræddar lóð- ir á leigu fyrir þann tíma um áratuga- skeið. Á tveimur lóðanna, við Háholt 18 og Háholt 22, eru byggingar. Haldreipi bæjarstjórnarinnar er ákvæði í leigusamningnum en þar seg- ir að hvenær sem bæjarstjórn telji þörf á að taka lóðina í sínar hendur sé leigu- taka skylt að láta leigurétt sinn og lóð- ina af hendi. Fyrir byggingar og önnur mannvirki á lóðinni skal bæjarsjóður greiða leigutaka eftir mati, nema öðru- vísi semjist. Bæjaryfirvöld höfðu boðið Kaupfé- lagi Kjalarnesþings tæpar 50 milljónir króna fyrir byggingarnar á umræddum lóðum. Stjórnarskrárbrot? Ástæða þess að Mosfellsbær vill nú fá lóðirnar til ráðstöfunar er að þær eru á miðbæjarsvæði Mosfellsbæjar. Sam- kvæmt skipulagi er gert ráð fyrir að á svæðinu rísi meðal annars menn- ingarhús og framhaldsskóli auk nýrra íbúðarhúsa og verslunar- og þjónustu- bygginga, en eldri byggingar víki. Bæj- aryfirvöld hafa gengist fyrir samkeppni um skipulag á hinu umdeilda landi og þegar greitt 8 milljónir króna fyrir verð- launatillögur. Bæjaryfirvöld hafa sakað forsvars- menn kaupfélagsins um ósveigjanleika og að kröfur þeirra séu óraunhæfar. Kaupfélagsmenn segja á móti að þeir hafi einungis krafist þess að kaupfé- lagið verði ekki svipt réttindum sínum bótalaust og krafist viðræðna um sann- gjarnt endurgjald fyrir lóðirnar í heild sinni. Því hafi bæjaryfirvöld hafnað. Í gögnum málsins er vísað til þess að kaupfélagið sé þinglýstur rétthafi að umræddum lóðum og sé réttur hans verndaður af stjórnarskrá. Þannig væri einhliða ákvörðun bæjaryfirvalda um að bera kaupfélagið út ekki aðeins brot á ákvæði stjórnarskrár um friðhelgi eignarréttar heldur einnig brot gegn ákvæðum lóðaleigusamninga, með- alhófsreglu stjórnsýslulaga og ákvæða skipulags- og byggingarlaga. Þannig geti ofangreint ákvæði í leigusamn- ingnum ekki gengið framar lögum og reglum. Ágreiningur í bæjarstjórn Ágreiningur kom upp í bæjarstjórn Mosfellsbæjar um áfrýjun málsins til Hæstaréttar í síðastliðnum mánuði. Marteinn Magnússon, Framsóknar- flokki, lagði til að áfrýjun málsins til Hæstaréttar yrði dregin til baka. Til- laga Marteins var felld. Hann lét þá færa til bókar að bæjaryfirvöld yrðu að gæta meðalhófs og jafnræðis og heppi- legra væri að leita samninga. Í bókun Marteins er einnig minnt á að lóða- leiguréttur í landi Hulduhóla hafi ver- ið seldur fyrir 148 milljónir króna. Þar sé um að ræða skyld lóðaviðskipti og það sama eigi við um kaupfélsgslóð- irnar sem bærinn hyggist nú taka með útburði. Meirihluti sjálfstæðismanna og VG gagnbókaði. Áður en til þess kom vék Haraldur Sverrisson bæjarstjóri af fundi því áðurgreind lóðasala úr Hulduhólalandi tengist fjölskyldu hans. Enginn ávinningur – ekkert tjón Þann 19. nóvember á síðasta ári bókaði bæjarráð Mosfellsbæjar um sama mál eftir opinbera umfjöllun fyrr á árinu um meint brask með Hulduhólalandið í krafti aðstöðu. Í bókuninni segir að bæjarráð hafi skoðað gögn um deiliskipulag sem náði meðal annars til Hulduhólalands- ins. „Þessi skoðun bæjarráðs hefur leitt í ljós að ekki var rétt staðið að málum við uppskiptingu lands samkvæmt deiliskipulagi á þessu svæði. Sam- kvæmt fyrirliggjandi gögnum er ekki að sjá að málsaðilar hafi haft af því ávinn- ing né Mosfellsbær orðið fyrir tjóni vegna þessa.“ Bæjarráðið taldi að ekki væri ástæða til að aðhafast frekar í málinu. Marteinn fjallaði um málið á bloggi sínu. „Það er ekki langt um liðið síðan seldur var hluti úr leigulandi bæjar- ins að Hulduhólum fyrir 148 milljónir króna og það meira að segja um það bil ári áður en bæjarstjórn hafði heimilað uppskipti landsins.“ FRÉTTIR 5. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR 9 Tilraunir bæjaryfirvalda í Mosfellsbæ til að bera út Kaupfélag Kjalarnesþings í hjarta bæjarins hafa allar farið út um þúfur. Bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins telur að menn njóti ekki jafnræðis. Á besta stað Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ vilja bera út Kaupfélag Kjalarnesþings af þremur lóðum við Háholt og greiða 50 milljónir í bætur. Staðurinn fellur nú undir miðbæinn. VILJA BERA ÚT KAUPFÉLAGIÐ Árangurslausar tilraunir Bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins telur að Haraldur Sverrisson verði að sýna jafnræði. JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Bæjaryfirvöld hafa gengist fyr- ir samkeppni um skipu- lag á hinu umdeilda landi og þegar greitt 8 milljónir króna fyrir verðlaunatillögur. Milljarðar eftir hrun Sparisjóðabankinn lánaði FL Group rúma 3 milljarða eftir hrunið um haustið 2008. Agnar Hansson var bankastjóri Sparisjóðabankans. Eiður Smári hneykslar Breska götublaðið Daily Star birti á þriðjudaginn mynd sem náðist af Eiði Smára úti á lífinu í Bretlandi um helgina. Á myndinni virðist Eiður vera að heilsa að nasistasið. Þetta er ekki talið til heilla fyrir Eið, meðal annars vegna þess að stjórnarfor- maður Tottenham, Daniel Levy, er gyðingur. Þá segir í grein Daily Star að stór hópur stuðningsmanna Tot- tenham-liðsins sé af gyðingaættum. Vinur Eiðs, sem var með honum umrætt kvöld, segir hins vegar að Eiður hafi verið að segja sóðalegan brandara um Mexíkóa sem endar á að hann þefar af puttunum á sér. Þess vegna sé af og frá að Eiður hafi verið að heilsa að nasistasið. Jón Gnarr gleyminn Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, kannast ekki við að vera stuðnings- maður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns. Þó er mynd af Jóni inni á síðu Guðlaugs þar sem hann er titlaður stuðningsmaður hans. Jón telur það þó ekkert ólíklegt að hann hafi stutt hann þó hann muni ekki eftir því. Hann segist hafa stutt einhvern úr öllum flokkum nema Framsóknarflokknum. Hann hafi oft kosið fólk sem hann þekki í greiða- skyni. Höfuðstóll lána lækki Samkvæmt frumvarpi Árna Páls Árnasonar, félags- og trygginga- málaráðherra, munu þeim sem eru með bílalán bundin í erlendu gengi, bjóðast að skilmálabreyta lánunum. Þá mun höfuðstóllinn verða reikn- aður líkt og um verðtryggt lán hefði verið að ræða. Nái frumvarpið fram að ganga má telja líklegt að höfuðstóll flestra lánanna lækki um 20 til 35 prósent. Hera Björk í neðsta sæti Samkvæmt vefsíðunni wiwibloggs. com mun Ísland lenda í neðsta sæti í Eurovison-keppninni þetta árið. Tæplega 17 þúsund manns tóku þátt í kosningunni sem vefsíðan stóð fyrir. Spánn hlaut flest atkvæði, eða um 43 prósent, en Ísland og Slóvakía fæst atkvæði, um 0,04 prósent. Undanúrslitin eru þann 25. og 27. maí næstkomandi og úrslitakeppnin fer fram 29. maí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.