Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Síða 14
„Veirusmituð tölva þefar uppi hvort notandinn sé innskráður á Facebook eða ekki. Á meðan hann er innskráð- ur nýtir veiran sér aðganginn hjá þeim sem er skráður inn og send- ir einkaskilaboð á alla vini þess sem er innskráður, oft með tengil á ein- hverjar vafasamar síður,“ segir Finn- ÓDÝRAR GOLF- KÚLUR Netverslunin Golfkúlur.is tók nýlega í notkun nýja vefsíðu þar sem hægt er að kaupa golfkúl- ur frá öllum helstu framleið- endum heims á frábæru verði, að því er segir í tilkynningu. Golfarar skríða nú úr fylgsnum sínum og taka settin úr geymsl- unni. Þeir sem þurfa að bæta á boltabirgðirnar geta keypt 12 Top Flite kúlur á 1.490 krónur, svo dæmi sé tekið. Boltarnir eru endurnýjaðir [e. refinished] og eru því sem nýir. „Endurnýjað- ar golfkúlur eru fyrsta flokks vatnaboltar sem búið er að setja í gegnum háþróað ferli þar sem kúlurnar eru hreinsaðar og síð- an eru upprunalegar merking- ar prentaðar á þær aftur,“ segir enn fremur í tilkynningunni. n Lastið fær Latabæjar- fyrirtækið fyrir að selja ódýrar vörur, merktar Latabæ, rándýrt. Óánægður kaupandi hafði keypt tennisspaða frá fyrirtækinu í sumargjöf handa barni sínu. Þegar dýr pakkinn var opnaður kom í ljós að þetta var ódýr fjöldaframleidd vara sem nærri gaf sig í fyrstu tilraun. n Lofið fá stjórnendur Bónusverslan- anna fyrir að gefa starfsfólki sínu frí á alþjóðlegum degi verkalýðsins, 1. maí síðastliðinn. Allar verslanir fyrirtækisins, um allt land, voru lokaðar þann daginn og gátu starfsmenn þannig sótt kröfugöngu verkalýðsfélaga og barist fyrir bættum kjörum. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS DÍSILOLÍA Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 209,8 kr. VERÐ Á LÍTRA 207,5 kr. Skeifunni VERÐ Á LÍTRA 210,5 kr. VERÐ Á LÍTRA 208,2 kr. Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 212,8 kr. VERÐ Á LÍTRA 222,9 kr. BENSÍN Dalvegi VERÐ Á LÍTRA 210,4 kr. VERÐ Á LÍTRA 208,1 kr. Fjarðarkaupum VERÐ Á LÍTRA 210,5 kr. VERÐ Á LÍTRA 208,2 kr. Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 212,8 kr. VERÐ Á LÍTRA 210,5 kr. UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON, baldur@dv.is / ney tendur@dv.is el d sn ey ti BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is 14 MIÐVIKUDAGUR 5. maí 2010 NEYTENDUR FAGNA UM- BOÐSMANNI „Neytendasamtökin fagna því að umboðsmanni skuldara sé ætlað að taka við erind- um og ábendingum skuldara um ágalla á lánastarfsemi og að gæta hagsmuna skuldara og bregðast við þegar brotið er á þeim,“ segir á heimasíðu samtakanna um þá ákvörðun félagsmálaráðherra að setja á laggirnar embætti umboðs- manns skuldara. Hins vegar telja samtökin að ekki komi nægilega vel fram hvernig um- boðsmanni sé ætlað að sinna þessum verkefnum. HÆTTURNAR Á FACEBOOK Tölvuþrjótar nota Facebook til að dreifa vírusum og ná yfirráðum yfir tölvum. Fölsk skilaboð frá vinum og vafasamir tenglar eru á meðal aðferða sem eru notaðar. Upp- lýsingarnar selja þeir fyrirtækjum sem nota þær. Finnbogi Ásgeir Finnbogason hjá Friðriki Skúlasyni ehf. nefnir hér helstu hætturnar sem þarf að varast á Facebook. bogi Ásgeir Finnbogason, þjónustu- stjóri hjá Friðriki Skúlasyni ehf. sem frá árinu 1993 hefur sérhæft sig víru- svarnarforritum. Blekkingarleikir Finnbogi segir að Facebook sé mik- ið notað af óprúttnum aðilum sem dreifikerfi forrita sem safna upplýs- ingum um það sem fólk gerir á net- inu. „Stundum eru þetta tenglar á falskar youtube-síður sem þykjast þurfa „flash update“ til að spila eitt- hvað myndband. Þá kemur á skjá- inn niðurhal á setup-skrá sem fólk hleður inn. Þannig er fólk blekkt til að smita eigin tölvur,“ segir Finnbogi. Hann segir að vírusar finnist sjaldn- ast á sjálfu Facebook heldur noti þeir samskiptavefinn til að dreifa sér og stundi blekkingarleiki til að plata notandann í að smita sig sjálfan. Fölsk skilaboð Aðspurður segir Finnbogi að þessi aðferð sé ekki ósvipuð þeirri sem not- endur spjallforritsins MSN þekkja, þar sem skilaboð, oftast á ensku, spretti upp eins og um skilaboð frá vinum sé að ræða. Spurður hvernig hægt sé að þekkja þessi fölsku skila- boð segir Finnbogi að fyrsta ein- kennið sé að skilaboðin eru á ensku og innihaldi oftar en ekki orð eins og „cool“ eða „lol“ og annað enskt net- mál. Oft fylgi tengill sem leiði fólk út af Facebook-síðunni eða MSN-spjall- forritinu. „Ef tengillinn virðist vera eitthvað bull er það góð vísbending um eitthvað misjafnt. Það er alltaf góð regla að spyrja þann sem sendi hvort þetta sé eitthvað sniðugt. Ef viðkomandi kannast ekki við að hafa sent skilaboðin er líklega um smit að ræða,“ segir Finnbogi og heldur áfram: „Þá er um að gera að tilkynna tengilinn á Facebook og láta vita af því að hann sé varasamur. Facebook er með leiðir til að taka við svoleið- is tilkynningum og merkja þær sem varasamar þannig að fólk fái viðvör- un um að einhverjum Facebook-not- endum þyki tengillinn hættulegur,“ útskýrir Finnbogi. Hann segir að- spurður að það geti verið auðvelt að falla fyrir svona skilaboðum, sér- staklega þar sem þau komi frá fólki sem maður treystir. „Þetta er að plata reyndustu menn í tölvum. Ég veit um mjög marga tölvuvísa menn sem láta gabbast af svona skilaboðum,“ segir hann. Hvaða tölva sem er Finnbogi bendir á að auðvelt sé að smitast af vírusum þegar fólk skrá- ir sig inn á Facebook í vélum sem margir nota; eins og til dæmis í há- skólum og á kaffihúsum. „Ef þú sest við háskólatölvu þar sem tölvan er smituð og skráir þig inn á Facebook ert þú sjálfur farinn að senda skila- boð með vírusum á aðra, án þess að vita af því,“ segir Finnbogi. Á Facebook er hægt að hlaða nið- ur alls kyns viðbótum eða „applicat- ions“. Það geta verið leikir eða annað slíkt. Spurður hvort þar sé maðkur í mysunni segist Finnbogi ekki hafa rekist á það sjálfur. Hann segir þó að lítið mál sé að búa til viðbætur með falskan tilgang eða dreifi vírusum. Hann segir þó að Facebook fylgist vel með sínum vef og þeir væru fljótir að loka á slíkar viðbætur. Önnur leið sem óprúttnir aðilar fara til að afla sér seljanlegra upplýs- inga um fólk á Facebook sé að búa til falskan notanda þar sem mynd- ir af aðlaðandi einstaklingum eru notaðar til að fólk samþykki frek- ar vinabeiðnir. Með því að gerast n Gættu þess að smella ekki á óvanalega langa tengla með óþekktum vefsíðum. n Ekki setja á vegginn þinn viðvaranir um vírusa eða leiðbeiningar um hvernig eyða skuli vírusi úr tölvunni. n Varastu að nota Facebook í tölvum sem hver sem er getur notað. n Tortryggðu vídeó sem krefjast uppfærslu á flashplayer eða einhverjum forritum til að spila. n Gerðu ráð fyrir því að allir geti séð það sem þú setur á Facebook. Varaðu þig á þessu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.