Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Side 20
39 ÞREP Í ÓPERUNNI Gamanleikurinn 39 þrep
sem sýndur hefur verið hjá Leikfélagi Akureyrar í vetur verður
sýndur í Íslensku óperunni föstudag, laugardag og sunnudag.
Verkið er eftir Patrick Barlow og er byggt á hinni þekktu
kvikmynd Alfreds Hitchcock eftir samnefndri skáldsögu Johns
Buchan. Einungis fjórir leikarar leika hlutverkin 139, þau Atli
Þór Albertsson, Björn Ingi Hilmarsson, Jóhann G. Jóhannsson
og Þrúður Vilhjálmsdóttir. Leikstjóri er María Sigurðardóttir.
Á MI ÐVIKUDEGI
20 MIÐVIKUDAGUR 5. maí 2010 FÓKUS
GRANÍT SPILAR
Á FLATEYRI
Kristinn J. Níelsson og hljómsveitin
Granít frá Vík í Mýrdal bjóða til tón-
leika á Flateyri á sunnudag, nánar
tiltekið á Sólbakka 6. Hljómsveitin
og Kristinn, sem er skólastjóri Tón-
listarskólans í Vík, fóru vestur í viku-
byrjun til að taka upp efni í hljóðver-
inu Tankinum á Sólbakka. Þeir verða
við upptökur í tvær vikur og ætla að
nýta tækifærið til að halda tónleika
á hinu svokallaða „Æfingar-sviði“ í
garðinum að Sólbakka 6 á sunnu-
daginn klukkan 16. Allir velkomnir.
ROKK ÁHUGA-
LEIKSÝNING
ÁRSINS
Þjóðleikhúsið hefur valið sýn-
inguna Rokk sem er eftir félaga
í leikfélaginu Hugleiki athygl-
isverðustu áhugaleiksýningu
leikársins. Þetta er í sautjánda
sinn sem leikhúsið stendur fyrir
þessu vali. Eins og hefð er orðin
fyrir verður útnefnd sýning sýnd
í Þjóðleikhúsinu um miðjan
júní. Leikstjóri Rokks er Þorgeir
Tryggvason og höfundar þau
Ásta Gísladóttir, Júlía Hannam,
Sigurður H. Pálsson og Þórarinn
Stefánsson. Níu leikfélög sóttu
um með átta sýningar og var
fjöldi þeirra leikfélaga sem tóku
þátt nokkuð undir meðallagi.
TÓNVERK MEÐ
TEXTA HEIMS-
LJÓSS
Fimmtíu ára afmælistónleikar
Söngsveitarinnar Fílharmóníu fara
fram næsta sunnudag og þriðjudag
þar sem flutt verður nýtt og spenn-
andi verk eftir Tryggva M. Baldvins-
son, samið við texta úr Heimsljósi
Halldórs Laxness. Verkið er í sex
köflum, samið fyrir kór, hljómsveit
og tvo einsöngvara. Á tónleikun-
um verða einnig fluttir valdir kaflar
úr nokkrum þeim stóru verkum
sem Söngsveitin Fílharmónía hefur
flutt á ferli sínum, meðal annars úr
Carmina Burana og Þýsku sálu-
messu Brahms. Einsöngvarar eru
Ingibjörg Guðjónsdóttir og Snorri
Wium. Sif Tulinius er konsertmeist-
ari þrjátíu manna hljómsveitar og
Magnús Ragnarsson stjórnar tón-
leikunum. Miðar fást í versluninni
12 tónum, hjá kórfélögum og við
innganginn.
Iron Man eða Járnkarlinn er mættur
aftur til leiks og sem fyrr er það Rob-
ert Downey Jr. sem fer með hlutverk
hins hrokafulla milljarðamærings
Tonys Stark. Saga myndarinnar held-
ur áfram hálfu ári á eftir þeirri fyrstu.
Síðan að Tony tilkynnti heiminum að
hann væri hinn eini sanni Iron Man
hefur honum tekist að halda uppi
röð og reglu. Honum hefur tekist að
einkavæða heimsfrið eins og hann
orðar það sjálfur.
Á sama tíma gera yfirvöld hvað
þau geta til að komast yfir þessa nýju
tækni snillingsins en Tony er nú al-
farið á móti vopnaframleiðslu og
treystir því ekki að stjórnvöld muni
nota tæknina skynsamlega. Hann
fullvissar heiminn um að enginn sé
nálægt því að fullkomna tækni hans
og því muni hann geyma leyndar-
málið um ókomna tíð. Annað kem-
ur svo á daginn þegar rússneska
illmennið Ivan Vanko skýtur upp
kollinum en hann er leikinn af hin-
um grjótharða Mickey Rourke.
Það er skemmst frá því að segja að
Iron Man 2 kemst aldrei með tærnar
þar sem fyrri myndin hafði hælana.
Ástæðan liggur einfaldlega í handrit-
inu. Það er ekki næstum því jafngott
og í fyrri myndinni. Öfgakenndur
hasar, sprengingar og fleiri vélmenni
verða útgangspunkturinn í staðinn
fyrir þétta fléttu og persónudýpt líkt
og í fyrri myndinni.
Það sem Iron Man hafði var
raunveruleg spenna, fjölbreytt
flétta og frábært illmenni sem Jeff
Bridges skilaði listilega vel. Rour-
ke og Sam Rockwell, sem leikur
Justin Hammer helsta keppinaut
Tonys, eru báðir frábærir leikarar
en þeir ná ekki sömu hæðum og
Bridges gerði. Vegna þess að Rour-
ke er bara of lítið í myndinni miðað
við að skarta einni mest spennandi
persónunni og Rockwell er meira
hugsaður fyrir húmorinn. Þar sem
hann stendur sig frábærlega eins
og alltaf. Frammistaða leikaranna
er annars heilt yfir góð. Enda stór-
stjörnur og fagfólk í öllum hlut-
verkum.
Saga myndarinnar er mikið á
reiki og of miklum tíma er eytt í
þann hluta sögunnar þar sem Tony
er „týndur“. Þegar hann loksins finn-
ur sig og gerir enn eina snilldar upp-
götvunina er það engan veginn út-
skýrt nægilega vel.
Útlit myndarinnar er, líkt og í
þeirri fyrri, alveg frábært. Enda er
útlit stórmynda í dag bara orðið að
lágmarkskröfu. Flottar tæknibrellur
og sjónræn tilþrif eru daglegt brauð
í Hollywood nútímans og það eitt og
sér heldur ekki uppi mynd nema að
hluta til.
En það er ekki öll nótt úti fyrir
Járnkarlinn. Þriðja myndin mun án
efa líta dagsins ljós og það er óskandi
að aðstandendur hennar gefi sér
nægan tíma til að vinna að handrit-
inu en hugsi ekki bara um að hamra
járnið á meðan það er heitt til að
græða sem mestan pening.
Ásgeir Jónsson
Iron Man 2 Vonandi verður þriðja
myndin meira í líkingu við þá fyrstu.
IRON MAN 2
Leikstjóri: Jon Favreau
Aðalhlutverk: Robert Downey Jr.,
Gwyneth Paltrow, Don Cheadle, Jon
Favreau,Mickey Rourke, Sam
Rockwell, Samuel L. Jackson, Scarlett
Johansson
KVIKMYNDIR
JÁRNKARLINN
FJARRI SÍNU BESTA
Tímamót hjá Kvennakór Reykjavíkur:
Sjö tungumál og nýr kórstjóri
Tónar frá öllum heimshornum
hljóma á vortónleikum Kvenna-
kórs Reykjavíkur sem haldnir verða í
Lindakirkju í Kópavogi á sunnudag-
inn. Sungið verður á sjö tungumál-
um: ensku, frönsku, ítölsku, þýsku,
rússnesku, ungversku og íslensku.
Tímamót eru nú hjá kórnum þar
sem nýr stjórnandi, Ágota Joó, hef-
ur tekið við stjórn kórsins. Þetta eru
fyrstu tónleikar hennar með kórn-
um og er efnisskráin að vanda fjöl-
breytt; hátíðlegt fyrir hlé og síð-
an slegið á léttari strengi eftir hlé.
Eitt af verkunum sem flutt verða
er Éjszaka, kórverk eftir ungverska
tónskáldið József Karai. Kórinn mun
ennfremur syngja hugljúf verk eft-
ir eldri meistara, svo sem Rossini
og Schumann, seiðandi tangó eft-
ir Piazzolla og sveiflutónlist sem
er nýrri af nálinni eftir Luis Prima,
Aron Copland og John Davenport,
svo nokkuð sé nefnt. Píanóleikari á
tónleikunum verður Vignir Þór Stef-
ánsson og einnig leikur með kórn-
um tríó Vadim Fjodorov.
Ágota Joó er fædd í Ungverja-
landi. Hún útskrifaðist frá Franz
Liszt-tónlistarháskólanum í Szeged
sem píanókennari, tónfræðikennari
og kórstjóri. Til Íslands flutti Ágota
árið 1988, kenndi fyrst við Tónlistar-
skóla Ísafjarðar og seinna við Tón-
listarskóla Njarðvíkur. Hún var kór-
stjóri Kvennakórs Suðurnesja og
undirleikari Karlakórs Keflavíkur
um nokkurra ára skeið. Ágota tók
við stjórn Kvennakórs Reykjavíkur í
ársbyrjun 2010.
Tónleikarnir hefjast klukkan 17.
Miðaverð í forsölu er 2.200 krónur,
pantanir sendist á kvkor@mmedia.is
eða í síma 896 6468 eftir klukkan 16.
Ágota Joó Er
nýr kórstjóri
Kvennakórs
Reykjavíkur.