Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Blaðsíða 25
Hnefaleikaaðdáendum var kippt
snögglega aftur niður á jörðina á
mánudaginn þegar Manny Pacqui-
ao neitaði því að hafa gengið að
kröfum Floyds Mayweather Jr. Haft
var eftir Pacquiao í blaði einu að
hann hefði fallist á það að ganga
undir ólympískt lyfjapróf að beiðni
Mayweathers en Filippseyingur-
inn sagði það af og frá á heimasíðu
sinni. Talsmaður Pacquiao, Mi-
chael Konz, sagði við Boxing Scene:
„Pacquiao talaði aldrei við þennan
blaðamann, hann hefur ekki einu
sinni heyrt minnst á hann.“
Vegna fréttarinnar héldu margir
að draumabardaginn milli Pacquia-
os og Mayweathers Jr. yrði að veru-
leika en svo virðist ekki vera. May-
weather lúbarði Shane Mosley í Las
Vegas um helgina og sagði í við-
tali eftir bardagann að eina leiðin
fyrir fólkið að sjá hann berjast við
Pacquiao væri ef hann myndi gang-
ast undir lyfjapróf en Mayweather
hefur miklar áhyggjur af steranotk-
un hnefaleikakappa.
„Ég vil bara keppa á sama leik-
velli og aðrir. Shane Mosley átti við
sín vandamál að stríða í fortíðinni
en hann er hættur þessu og var til-
búinn að fara í prófið. Ég mun ekki
berjast gegn Pacquiao nema hann
taki prófið líka,“ sagði Mayweather.
Pacquiao er lítið að hugsa um
hnefaleika þessa dagana en hann er í
framboði í heimalandinu. Talsmað-
ur hans segir að ekki komi til greina
að ganga að kröfum Mayweathers.
„Við munum berjast við Mayweath-
er eða hvern sem er hvenær sem
er. Þegar við berjumst förum við að
öllum reglum þess hnefaleikasam-
bands sem heldur bardagann, ekki
reglum Mayweathers.“
tomas@dv.is
Ólíklegt að draumabardaginn verði að veruleika:
Pacquiao samþykkti aldrei lyfjaprófið
RIGNING Í BARCELONA Formúla 1 færist loks-
ins til Evrópu um helgina þegar ökuþórarnir þeysast um hina
fornfrægu Barcelona-braut. Hingað til hafa mótin verið á allt
annað en kristilegum tíma fyrir íslenska áhorfendur en tímabilið
hefst á keppnum í Barein, Ástralíu, Malasíu og Kína. Veðurspá-
in er samt ekki góð. Spáð er úrhellis rigningu um helgina sem
hefur reyndar oft sett skemmtilegan svip á keppnina í Barce-
lona. Hingað til hafa keppendur ekki þurft að viðra regndekkin
þannig að eitthvað mjög áhugavert gæti gerst um helgina.
VILL HALDA WILSHERE Owen Coyle, knattspyrnustjóri
Bolton, vill ólmur halda Jack Wilshere, hinum unga leikmanni Arsen-
al sem kom til liðsins á láni í janúar. Wilshere sló algjörlega í gegn hjá
Bolton og ætlar Coyle að gera hvað hann getur til þess að fá hann aftur
næsta tímabil. Það gæti þó reynst þrautin þyngri. „Jack vill ólmur spila
með Arsenal. Það skil ég vel og þess vegna elska ég hann. Hann vill
verða nægilega góður til þess að spila með bestu liðunum. Ef það tekst
ekki held ég samt að það væri best fyrir mig, hann og Arsenal að ég fái í
það minnsta aðra sex mánuði með honum næsta vetur,“ segir Coyle.
SPORT 5. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR 25
MOLAR
ATLI HÆTTUR
MEÐ STJÖRNUNA
n Atli Hilmarsson er hættur að
þjálfa kvennalið Stjörnunnar í
Garðabæ en hann hefur stýrt því
síðan í október
2008. Hann tók
þá við starfinu
þegar Aðal-
steinn Eyj-
ólfsson yfirgaf
Garðabæinn fyr-
ir þjálfarastarf
í Þýskalandi.
Undir stjórn Atla
varð Stjarnan Íslands- og bikar-
meistari í fyrra en á þessu tíma-
bili var liðið einu skrefi á eftir Val
og Fram sem skiptu titlum ársins
bróðurlega með sér. Vísir.is greindi
frá því að Stjarnan hefði áhuga á
Ragnari Hermannssyni sem eftir-
manni Atla.
ALFREÐ OG FÉLAGAR
MÆTA CIUDAD REAL
n Kiel, lið Alfreðs Gíslasonar, mæt-
ir spænska stórveldinu Ciudad Real
í undanúrslitum Meistaradeildar-
innar í hand-
bolta en dregið
var í vikunni.
Þessi lið hafa
mæst í úrslitum
síðustu tvö tíma-
bilin og hafði þá
Ólafur Stefáns-
son og félagar í
Ciudad betur í
bæði skiptin. Hinn undanúrslita-
leikurinn verður á milli rússneska
liðsins Medvedi og Barcelona.
Leikið er eftir „Final Four“-fyrir-
komu lagi í ár, það er að undanúr-
slitaleikirnir fara fram í Köln 29.
maí og úrslitaleikurinn á sama stað
daginn eftir.
ARON MISSIR
ÞJÁLFARANN
n Chris Coleman, knattspyrnu-
stjóra Coventry, hefur verið vikið úr
starfi fyrir slakt gengi á tímabilinu.
Liðið var lengi
vel í baráttunni
um umspilssæti
en á endasprett-
inum hrundi allt
og endaði liðið
nálægt fallsvæð-
inu. Skömmin
var svo algjör
þegar Coventry
tapaði lokaleik ársins á heimavelli
gegn Watford, 4-0. Með Covent-
ry leikur Aron Einar Gunnarsson
landsliðsmaður en hann mun nú
fá nýjan þjálfara. Það var Colem-
an sem keypti Aron til Coventry en
hann hefur ætíð haft mikla trú á
honum.
VAR MEÐ SAMNING
VIÐ MEISTARANA
n Guðmundur Steinarsson, fram-
herji Keflavíkur, segir í viðtali við
Fótbolta.net að honum hafi boðist
samningur hjá bandarísku meist-
urunum í MLS-deildinni, Real
Salt Lake, síðasta sumar. Í stað-
inn ákvað hann að koma heim
til Keflavíkur eftir sneypuförina
til Vaduz í Liechtenstein. „Ég var
með samning frá Real Salt Lake í
MLS-deildinni kláran á
borðinu sem ég ákvað
að taka ekki. Ég hefði
bara þurft að hoppa
upp í flugvél og
byrja að spila
en kýldi
ekki á það
tækifæri,“
segir Guð-
mundur
í við-
talinu.
Vill enga stera á móti sér
Floyd Mayweather Jr. berst
ekki við Manny Pacquiao nema
hann gangist undir ólympískt
lyfjaeftirlit. MYND AVP
Alls léku átta íslenskir leikmenn í Championship-
deildinni í ár, þeirri næstefstu á Englandi. Gylfi
Þór Sigurðsson var án efa allra manna bestur með
Reading. Eitt Íslendingalið féll, tvö önnur voru í
fallbaráttu og eitt enn hrundi á lokakafla mótsins.
ARON EINAR
GUNNARSSON COVENTRY
Akureyringurinn ungi sem sló í gegn á sínu fyrsta tímabili í fyrra með Coventry átti
erfitt uppdráttar til að byrja með. Hann var fúll út í liðið fyrir að bjóða honum ekki
nýjan samning og skilaði sú fýla sér inn á völlinn. Það entist þó ekki lengi og eftir stutta
viðveru á varamannabekknum var hann aftur farinn að byrja alla leiki með liðinu.
Coventry-liðið hrundi þó undir lokin í deildinni og endaði í 18. sæti. Fyrir vikið var Chris
Coleman, stjóra liðsins, vikið frá störfum og er því spurning hvað Aron gerir í sumar.
Hann á eitt ár eftir af samningi sínum.
KÁRI ÁRNASON READING
Sumarið hjá Kára Árnasyni var erfitt þar sem hann vantaði lið til að spila með eftir að
ljóst var að AGF hafði ekki lengur áhuga á honum. Eftir einn æfingaleik og stuttan
æfingatíma með Plymouth kepptist liðið við að fá Víkinginn og landaði honum á
endanum. Kári var ekki í byrjunarliðinu í fyrstu þremur leikjunum en lék alla leiki eftir
það þegar hann var heill. Hann lék alls 32 leiki fyrir liðið í nýrri stöðu sem miðvörður en
frammistaða hans borgaði sig með landsliðssæti. Plymouth féll þó á endanum og hefur
Kári því sumarið til að ráða í framtíð sína.
EMIL HALLFREÐSSON READING
Kantmaðurinn knái úr Hafnarfirði fór nokkuð óvænt á láni til Barnsley. Emil átti
við smá meiðsli að stríða á tímabilinu sem hann kláraði reyndar ekki vegna þeirra.
Hann lék 23 leiki og skoraði fjögur mörk. Emil var notaður í nýrri stöðu, inn á miðri
miðjunni, þar sem þjálfara liðsins fannst kraftar hans nýtast betur. Hingað til hefur
Emil verið hugsaður sem vængmaður. Emil lék á tímabilinu draumaleik gegn
Englandsmeisturum Manchester United í deildarbikarnum sem liðið tapaði, 3-0.
Emil fór aftur til Reggina en mun væntanlega yfirgefa liðið í sumar.
HEIÐAR HELGUSON READING
Framherjinn stóri og sterki frá Dalvík hóf tímabilið með QPR. Hann mætti í landsleik
gegn Noregi á Laugardalsvelli í lok ágúst í fyrra og sneri aldrei aftur til QPR, heldur
var hann lánaður til síns heittelskaða Watford. Hann stimplaði sig rækilega inn í
fyrsta leik og skoraði tvö mörk í 3-3 jafntefli gegn Leicester, liði sem á endanum
komst í umspil um sæti í úrvalsdeildinni. Eina markið sem hann skoraði í leikjunum
þremur fyrir QPR var sigurmark gegn Kára Árnasyni og félögum í Barnsley. Watford
var í mikilli fallhættu en með hjálp Heiðars bjargaði liðið sér á endanum. Hann lék 29
leiki fyrir Watford og skoraði ellefu mörk. Heiðar vill vera áfram í herbúðum Watford.