Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 28. maí 2010 FRÉTTIR
HANNES HÚSKARL
n Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son prófessor er þögull um ástæð-
ur þess að hann afsalaði einka-
hlutafélagi sínu,
Conference and
Ideas ehf. yfir á
félaga sinn, Frið-
björn Orra Ket-
ilsson, tengda-
son Gunnlaugs
Sævars Gunn-
laugssonar og
ritstjóra amx.
is. Hannes stofnaði umrætt félag
til að halda utan um bitlinga sína
og aukaverkefni. Árið 2008 færði
hann síðan félagið yfir á Friðbjörn
en hélt áfram að gefa út reikninga í
nafni þess. Örlög Hannesar eru nú
þau að vera einskonar húskarl hjá
Friðbirni.
AULAHÚMOR SIGMARS
n Framganga Sigmars Guðmunds-
sonar, ritstjóra Kastljóss, í lýsingum
á Evrópusöngvakeppninni er með
nokkrum endemum. Þulurinn er
óspar á niðrandi lýsingar á kepp-
endum annarra þjóða sem hann
lýsir með einkar sérstæðum hætti.
Ekki er langt í rasismann þegar um
er að ræða lýsingar á keppendum
erlendra þjóða þar sem flestum er
fundið eitthvað til foráttu nema
auðvitað Íslendingum. Umfram allt
má þó segja að aulahúmor sé gegn-
umgangandi í lýsingunni.
KVÓTADROTTNING
SJÁLFKJÖRIN
n Ekki hafa kjósendur allra sveit-
arfélaga val í kosningunum um
helgina. Þannig er það á Tálknafirði
þar sem Eyrún Magnúsdóttir, odd-
viti sveitarfélagsins, er ein í fram-
boði með lista sinn. Eyrún er hvað
þekktust fyrir að reka útgerð sem
að hluta hefur byggðarkvóta sem
framfærslu. Sá kvóti er leigður af
fyrirtækinu Þórsbergi á Tálknafirði
og oddvitinn þarf ekki að láta sækja
fisk í sjó heldur sendir út reikninga
fyrir kvótanum.
LÍFRÓÐUR ÓLAFS F.
n Borgarstjórinn fyrrverandi, Ól-
afur F. Magnússon, er nú í lífróðri
fyrir því að halda sæti sínu í borg-
arstjórn. Vekur athygli í kosninga-
baráttunni að
frambjkóðand-
inn er frekar
uppstökkur og
þá helst í garð
frambjóðenda
Frjálslynda
flokksins og
Jóns Gnarr. Eftir
því var tekið að
í spurningakeppni frambjóðenda á
Bylgjunni stökk Ólafur F. hvað eftir
annað upp á nefn sér og taldi sig
vera fórnarlamb hlutdrægni þeirra
sem stýrðu keppninni. En Ólafur
er þó væntanlega öruggur um að
verða endurkjörinn ef marka má
hann sjálfan sem segist aldrei fá
minna en 4.000 atkvæði.
SANDKORN
www.airfree.com • www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Airfree lofthreinsitækið
• Byggir á nýrri tækni sem eyðir
ryki, frjókornum og gæludýraflösu
• Eyðir ólykt, bakteríum, vírusum, myglu og öðrum örverum
• Er hljóðlaust og viðhaldsfrítt – tilvalið í svefnherbergið og á skrifstofuna
Betra
loft
betri
líðan
Rappari sakaður um að hafa skallað mann fyrir utan Sólon:
Bent ákærður fyrir árás
Rapparinn Ágúst Bent Sigurbertsson
hefur verið ákærður fyrir líkamsárás.
Bent, eins og hann er jafnan kallaður,
er einn þekktasti rappari landsins en
hann sló í gegn með hljómsveitinni
XXX Rottweiler-hundum.
Bent er gefið að sök að hafa þann
10. febrúar 2008, skallað og slegið
Karl Ólaf Pétursson í andlitið með
þeim afleiðingum að tvær tennur
losnuðu í honum. Meint atvik á að
hafa átt sér stað fyrir utan skemmti-
staðinn Sólon í Ingólfsstræti.
Fórnarlambið fer fram á tæpar
tólf hundruð þúsund krónur í skaða-
og miskabætur. Að sögn Karl Ólafs,
urðu einhver orðaskipti milli hans og
Bents fyrir utan Sólon. Karl hafi svo
haldið ferð sinni áfram en fljótlega
fundið fyrir því að Bent var að elta
hann. Hann hélt áfram að skemmta
sér en fann svo hvernig Bent nálg-
aðist hann fyrir utan skemmtistað-
inn Sólon. Hann segist þar næst hafa
snúið sér við til að tala við Bent en þá
hafi ákærði skallað hann í andlitið
með fyrrgreindum afleiðingum.
Karl Ólafur er ósáttur við hvað
málið hefur legið lengi hjá lögreglu.
Hann segir ástæðu þess vera þá að
lögregla hafi reynt að koma á sátta-
fundi milli þeirra áður en málið yrði
tekið fyrir. Það gekk ekki. Karl seg-
ir mörg vitni hafa verið að árásinni.
Málið verður tekið fyrir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í kringum miðjan
júní.
Ekki náðist í Ágúst Bent við gerð
fréttarinnar.
Sætir ákæru Ágúst Bent hefur verið
ákærður fyrir líkamsárás
Svo er að sjá sem sérfræðingar Mag-
ma Energy hafi fært niður skuld sína
við Orkuveitu Reykjavíkur úr 70 millj-
ónum dollara niður í um 50 milljónir
dollara í bókum sínum.
Þetta má ráða af árshlutaskýrslu
Magma Energy sem birt var í lok
mars síðastliðins.
Orkuveita Reykjavíkur seldi Mag-
ma Energy liðlega 32 prósenta hlut
sinn í HS Orku síðla árs í fyrra. Sam-
þykkti stjórn OR skuldabréf fyrir 70
prósentum greiðslunnar að nafn-
virði um 70 milljónir dollara eða sem
svarar 8,4 milljörðum króna. Skulda-
bréfin bera 1,5 prósenta vexti og er
kveðið á um verðbætur sem fylgja
heimsmarkaðsverði á áli. Greiðslu
skuldarinnar þarf ekki að inna af
hendi fyrr en að 7 árum liðnum frá
undirritun samningsins. Þá getur
Magma frestað vaxtagreiðslum þri-
svar á samningstímanum.
Gagnrýnt var að hluturinn í HS
Orku skyldi seldur gegn veði í hin-
um selda eignarhlut enda var sal-
an til komin vegna banns sem sam-
keppnisyfirvöld höfðu lagt við því að
OR mætti eiga svo stóran hlut í sam-
keppnisrekstri hjá öðru orkufyrir-
tæki.
Villandi upplýsingar
Margir töldu að ofangreind kjör
væru mjög hagstæð fyrir Magma og
voru ákvarðanir meirihluta Orku-
veitu Reykjavíkur ekki óumdeildar.
Af nýrri árshlutaskýrslu Magma má
ráða að sérfræðingar á vegum félags-
ins hafi nú lagt mat á það hversu hag-
stæð umrædd greiðslukjör eru í raun
og veru.
Síðastliðið haust og snemma vetr-
ar kom málið margoft fyrir stjórn
Orkuveitu Reykjavíkur, borgarráð og
borgarstjórn. Snemma í september
voru lögð fram svör við 32 spurning-
um minnihluta borgarstjórnar um
söluna. Þar var spurt meðal annars
um mögulegt gengistap og lága vexti
sem Magma höfðu verið boðnir.
Sigrún Elsa Smáradóttir, borgar-
fulltrúi Samfylkingarinnar, á sæti í
stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Hún
var meðal þeirra sem héldu því fram
frá upphafi að upplýsingar um tilboð
Magma væru villandi og því væri erf-
itt taka upplýsta ákvörðun. „Þetta er
í samræmi við það sem við höfum
haldið fram alla tíð og sýnt fram á.
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn hafa
haldið öðru fram. Í þessum reikning-
um Magma eru þeir að meta skuld-
bindingar sínar og samkvæmt al-
mennum reikningsskilavenjum ber
mönnum að vanmeta ekki skuld-
bindingar fyrirtækja eða ofmeta
væntanlegar tekjur. Það er því at-
hyglisvert að sjá í uppgjöri Mag-
ma að þeir hafi fært skuldbindingar
sínar við Orkuveitu Reykjavíkur úr
70 milljónum dollara niður í um 50
milljónir dollara. Okkar útreikningar
sýndu strax í upphafi að svona væri
þetta. Ég get ekki lesið skýrslu Mag-
ma öðruvísi en að þeir hafi núvirt
skuldina með þessum hætti,“ segir
Sigrún Elsa.
Varnir til staðar
Þegar í september á síðasta ári leitaði
minnihluti borgarstjórnar að undir-
lagi Sigrúnar Elsu til ALM-Fjármála-
ráðgjafar til þess að meta umrædd
skuldabréf sem ætlunin var að sam-
þykkja fyrir hönd Orkuveitu Reyka-
víkur. Í niðurlagi álitsgerðar ráð-
gjafarfyrirtækisins segir að hægt sé
að gefa sér efri mörk á virði bréfsins
með því að líta fram hjá möguleik-
um til uppgreiðslu og öðrum atrið-
um sem eru skuldara til hagsbóta en
styðjast þess í stað við skuldaálag og
framvirkt verð á áli á alþjóðamarkaði
sem áskilið var. „Sé þetta gert er krafa
bréfsins um 3 prósent, sem er um
það bil sama krafa og er á bandarísk-
um ríkisskuldabréfum. Núvirt virði
bréfsins að teknu tilliti til skuldaálags
væri því að hámarki tæplega 70 pró-
sent af nafnverði höfuðstóls.“
Þetta merkir 30 prósenta niður-
færslu á 8,4 milljarða króna nafn-
virði bréfsins niður í 5,9 milljarða
króna. Það er hins vegar bókfært á
um 1,2 milljörðum undir nafnverði
í bókhaldi Orkuveitu Reykjavíkur
sem stendur. Guðlaugur G. Sverr-
isson, stjórnarformaður fyrirtækis-
ins, segir að varnirnar í bréfinu virki
enn; álverð hafi hækkað og vextir séu
enn undir einu prósenti í Bandaríkj-
unum á móti 1,5 prósenta vöxtum á
skuldabréfinu. „Að óathuguðu máli
gæti Magma hafa keypt sér varnir
gegn hækkun álverðs og notið þeirra
trygginga nú,“ segir Guðlaugur.
SKULD MAGMA VIÐ
ORKUVEITUNA LÆKKAR
Magma Energy bókfærir skuld sína við Orkuveitu Reykjavíkur vegna kaupa á hlut
hennar í HS Orku 30 prósentum undir 8,4 milljarða króna nafnverði skuldabréfsins.
Sigrún Elsa Smáradóttir, Samfylkingunni, segir að borgaryfirvöld hafi haldið vill-
andi upplýsingum að almenningi. Guðlaugur Sverrisson, stjórnarformaður OR, telur
þvert á móti að verðmæti inneignarinnar hjá Magma sé að aukast.
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Ég get ekki lesið skýrslu Magma
öðruvísi en að þeir hafi
fært skuld sína niður um
30 prósent.
Hlunnfarin? Magma metur skuld sína
við Orkuveitu Reykjavíkur úr 70 niður í 50
milljónir dollara.