Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 28. maí 2010 FRÉTTIR
SAKAR FLOKKSBRÆÐUR
SÍNA UM AÐSTÖÐUBRASK
Sverrir Örn Olsen í Reykjanesbæ sakar flokksbræður sína í bæjarstjórn Reykjanesbæjar um klíkuskap og
misbeitingu valds í þágu Hringbrautar ehf. sem að hluta er í eigu Steinþórs Jónssonar fráfarandi bæjar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Hringbraut hefur komið sér fyrir í húsnæði á Keflavíkurflugvelli sem Sverrir
telur að Steinþór og félagar hafi keypt fyrir smánarlega lága upphæð af Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar.
Sverrir Örn Olsen, athafnamaður í
Reykjanesbæ, sakar bæjaryfirvöld
um misbeitingu valds í þágu fyrirtæk-
is sem að hluta til er í eigu Steinþórs
Jónssonar bæjarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins. Sverrir hefur borið upp
skriflega kvörtun við umhverfisráð-
herra vegna málsins, en það snertir
leyfi og rekstur fyrirtækis sem endur-
nýtir varahluti í bifreiðar.
Steinþór á hlut í Hringbraut ehf.,
sem sérhæfir sig í endurnýtingu vara-
hluta í bíla. Fyrirtækið hefur leigt um
3000 fermetra iðnaðarhúsnæði við
Bogatröð á Keflavíkurflugvelli undir
starfsemi sína. Leigusamningar eru í
tvennu lagi; helming hússins leigir fé-
lagið frá 1. febrúar á þessu ári fyrir 450
þúsund krónur á mánuði en hinn hlut-
ann frá 1. júní næstkomandi á 250 þús-
und krónur á mánuði.
Leigusali er fyrirtækið Base ehf.,
en Steinþór er einnig hluthafi í því fé-
lagi í gegnum Hótel Keflavík. Base
hafði keypt umrætt atvinnuhúsnæði
af Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar,
en það annaðist sölu á fasteignum á
Keflavíkurflugvelli sem féllu þjóðinni í
skaut þegar Bandaríkjaher yfirgaf her-
stöðina á Miðnesheiði árið 2006. Hús-
ið er veðsett fyrir 26,2 milljónir króna
samkvæmt þinglýsingarvottorði og
tók Base ehf. þá upphæð að láni með
tryggingarbréfi í Sparisjóði Keflavíkur
í janúar árið 2009. Í stjórn sjóðsins sat
þá Þorsteinn Erlingsson bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
Kannast ekki við vandann
Sverrir Örn Olsen, sem rekur Verk-
takasambandið ehf. í Reykjanesbæ,
fullyrðir að Hringbraut njóti vildar-
kjara enda séu eigur sem áður voru
varnarliðsins komnar í hendur klíku-
bræðra innan bæjarfélagsins á afar
lágu verði. „Kaupverð húsnæðisins
dugar varla fyrir malbiki í kringum
það,“ segir Sverrir.
Steinþór Jónsson kveðst í samtali
við DV ekki kannast við vanda Sverris
Arnar. Hann segist ekki heldur þekkja
viðskipti hans við heilbrigðisyfirvöld
á svæðinu og efast um að hagsmunir
Verktakasambandsins og Hringbraut-
ar rekist á.
Sölumeðferð ríkisins á fasteignum
bandaríska varnarliðsins vakti tor-
tryggni frá upphafi. Stofnað var Þróun-
arfélag Keflavíkurflugvallar og skipaði
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks stjórn félagsins til þess að
annast söluna. Upphaflegir stjórnar-
menn voru þrír, Magnús Gunnarsson
stjórnarformaður og Árni Sigfússon
bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Þeir voru
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins. Stefán
Þórarinsson, fyrrverandi stjórnarfor-
maður Nýsis, tók sæti fyrir hönd Fram-
sóknarflokksins.
Hreinsaðir
Svo langt gengu ásakanir um klíkuskap
og óeðlilega sölumeðferð að ríkisend-
urskoðandi ákvað í desember 2007 að
taka út starfsemi Þróunarfélags Kefla-
víkurflugvallar. Þann 8. maí það sama
ár hafði Árni M. Mathiesen, þáverandi
fjármálaráðherra, afsalað sér rétti til
afskipta af gerð kaupsamninga á veg-
um Þróunarfélagsins. Á þeim tíma var
ljóst að Þorgils Óttar Mathiesen, bróð-
ir ráðherrans, var þá í hópi kaupsýslu-
manna sem stóðu að kaupum fast-
eigna á Keflavíkurflugvelli.
Í stuttu máli taldi Sigurður Þórðar-
son ríkisendurskoðandi að flest væri
með felldu hjá Þróunarfélagi Kefla-
víkurflugvallar og hagsmunum ríkis-
ins við söluna væri vel borgið. Hann
brýndi þó fyrir Árna Sigfússyni og öðr-
um sem véluðu um sölu almennings-
eigna á Keflavíkurflugvelli að gæta vel
að hæfisskilyrðum. Sú brýning kom þó
ekki fyrir sjónir manna fyrr en með út-
komu skýrslu Ríkisendurskoðunar um
málið í mars 2008, löngu efir að bróð-
urpartur eignanna hafði verið seldur.
Sumir jafnari en aðrir
Steinþór Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjanesbæ, hef-
ur verið stjórnarformaður og fram-
kvæmdastjóri Base ehf. Steinþór er þar
af leiðandi flokksbróðir og samverka-
maður Árna Sigfússonar sem enn situr
í stjórn Þróunarfélags Keflavíkurflug-
vallar sem gekk frá sölu eigna til Base
ehf. fyrir alls 715 milljónir króna á sín-
um tíma. Steinþór situr í stjórn Hring-
brautar fyrir félag í hans eigu sem ber
nafnið South Properties ehf.
Sverrir Örn Olsen hefur um árabil
rekið partasölu fyrir vélar og bifreið-
ar og fer fyrir Verktakasambandinu
ehf. eins og áður segir. Hann fullyrð-
ir að heilbrigðisnefnd Reykjanesbæj-
ar sé nú kerfisbundið beitt gegn sér
í þágu Hringbrautar ehf. og þar með
Steinþórs. „Þetta félag virðist fá íviln-
un til starfsemi fyrir tilverknað einka-
hlutafélags ríkisins, Þróunarfélags
Keflavíkurflugvallar. Kröfur á Verk-
takasambandið, að steypa plan á lóð
Verktakasambandsins, eru kröfur upp
á u.þ.b. 35 milljónir króna, án tækni-
legrar ástæðu,“ segir í bréfi Sverris Arn-
ar sem hann sendi umhverfisráðherra.
Í bréfinu bendir hann á að starfsemin
sé utan vatnsverndarsvæðis. „Bæjar-
stjóra hefði verið í lófa lagið að bjóða
Verktakasambandinu aðstöðu á Kefla-
víkurflugvelli í stórum skemmum eins
og Base ehf. og á sama fermetraverði
og Base ehf. fékk,“ bætir Sverrir við í
bréfinu.
Aðstöðubrask?
Eins og áður segir er Steinþór, flokks-
bróðir bæjarstjórans, einn helsti for-
svarsmaður og eigandi Base ehf.
Base ehf. leigir nú fyrirtæki í hans
eigu, Hringbraut ehf., atvinnuhús-
næði undir rekstur. Starfsemi Hring-
brautar og Verktakasambandsins á
sviði endurnýtingar varahluta skar-
ast og gætu fyrirtækin hæglega ver-
ið keppinautar á markaði. Þetta tel-
ur Sverrir Örn að sé undirrót þess
að hart sé gengið fram gegn fyrir-
tæki hans af hálfu bæjaryfirvalda
og heilbrigðisnefndar. Í raun sakar
því Sverrir Örn þá Steinþór og Árna
bæjarstjóra um aðstöðubrask og sér-
hagsmunagæslu í áðurgreindu bréfi
til umhverfisráðherra.
Athyglisvert er einnig að Sig-
mundur Eyþórsson, framkvæmda-
stjóri Hringbrautar, svaraði á sínum
tíma erindum Sverris Arnar vegna
ágreiningsmálanna við Heilbrigðis-
eftirlit Suðurnesja um Verktakasam-
bandið ehf. Sigmundur starfaði þá
tímabundið í þágu bæjaryfirvalda í
Reykjanesbæ.
Í nýlegu viðtali við Sigmund í bæk-
lingi á vegum Þróunarfélags Keflavík-
urflugvallar kemur fram að Hringbraut
ehf. hafi gert samning við tryggingafé-
lagið Sjóvá um kaup á tilteknum teg-
undum bíla sem afskráðir hafa verið
vegna tjóns. Hringbraut hlutar bílana
í sundur, endurnýtir varahlutina og
gerir úr þeim verðmæti. Félagið er í
70 prósenta eign Sverris Gunnarsson-
ar og 30 prósenta eign Steinþórs Jóns-
sonar og tengdra aðila.
DV hefur traustar heimildir fyrir
því að upphaflega hafi til staðið að Þór
Sigfússon, bróðir Árna bæjarstjóra,
yrði framkvæmdastjóri Hringbrautar
ehf. eftir að hann var settur af sem for-
stjóri Sjóvár. Nýir forráðamenn Sjóvár
hafi hins vegar ekki tekið það í mál, en
tryggingafélagið er í samningsbundn-
um viðskiptum við Hringrás.
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Flokksbróður fórnað Sverrir Örn Olsen er
ekki í vafa um að bæjaryfirvöld undir forystu
Árna Sigfússonar misbeiti valdi gegn sér.
MYND RÓBERT REYNISSON
Góð aðstaða Hringbraut ehf hefur komið
sér fyrir í rúmgóðu 3000 fermetra húsnæði í
eigu Base ehf. á Keflavíkurflugvelli.
Lykilmaðurinn Ákvarðanataka og
þræðir viðskipta fara í gegnum Árna
Sigfússon bæjarstjóra. Hann er nú
sakaður af flokksbróður um misbeitingu
valds og klíkuskap.
Athafnamaðurinn Steinþór Jónsson
hættir nú í bæjarstjórn Reykjanesbæjar.
Hann á hlut í Hringbraut, en keppinautur
fyrirtækisins telur að það njóti sérrétt-
inda innvígðra.
Ítök í bankanum Þorsteinn Erlingsson
var einn af ráðamönnum Sparisjóðs
Keflavíkur og samþykkti væntanlega lán
fyrir Steinþór til kaupa á eignum sem
Árni Sigfússon hafði forræði yfir.
Ríkisendurskoðun um
Þróunarfélag Keflavíkur-
flugvallar – mars 2008
n „Ríkisendurskoðun brýnir fyrir stjórnendum
félagsins að gæta vel að hæfisskilyrðum við
meðferð mála, þar á meðal við undirbúning
þeirra. Þannig er það mat Ríkisendurskoðunar
að samhliða seta Árna Sigfússonar í stjórn
Þróunarfélagsins og Keilis ehf. og jafnframt
seta Kjartans Þórs Eiríkssonar framkvæmda-
stjóra Þróunarfélagsins í stjórn Keilis ehf. séu
óheppilegar. Það fyrirkomulag getur alið á
tortryggni og dregið úr trúverðugleika og
réttaröryggi.“