Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Side 12
12 föstudagur 28. maí 2010 fréttir Sveinn Andri Sveinsson segir lokuð réttarhöld yfir vændiskaupendum vera rökrétt: „Mussukerlingarnar“ vilja bæta heiminn Sveinn Andri Sveinsson, hæsta- réttarlögmaður og verjandi eins af ellefu vændiskaupendunum sem ákærðir hafa verið, er ánægður með lokað þinghald gegn sakborn- ingunum og segir málið sjálft alveg snargalið. „Þessi ákvörðun dómar- ans er alveg eðlileg og í samræmi við þennan brotaflokk, kynferð- isbrotamál. Þarna er væntanlega verið að hlífa meintum brotaþol- um kynferðisofbeldis, sem í þessu tilviki eru seljendur kynlífsþjón- ustunnar, og því rökrétt að hafa lokað þinghald,“ segir Sveinn Andri. Arngrímur Ísberg, dómari í Héraðsdómi Reykjavíkur, hefur ákveðið að vernda ellefu vænd- iskaupendur, sem er gefið að sök að hafa átt viðskipti við Catalinu Ncogo, með því að hafa réttarhöld yfir þeim lokuð. Það gerir hann af tveimur ástæðum, annars vegar til að vernda þá sjálfa og aðstandend- ur þeirra og hins vegar af velsæm- isástæðum. Málið verður þingfest 2. júní næstkomandi og er Sveinn Andri ánægður með lokað þinghald í málinu. Hann telur að málarekst- urinn sé alls ekki rétta leiðin í bar- áttunni við vændi. „Löggjöfin er kengvitlaus. Hún er dæmi um að mussukerlingar á þingi vilja bæta heiminn en hugsa ekkert um af- leiðingarnar. Þetta bitnar bara á þeim stúlkum sem hafa leiðst út í vændi og hrekur þær dýpra ofan í þær glæpaklíkur sem hafa pening af þessu. Ég hef trú á því að þetta færi meira undir yfirborðið og færi í þetta meiri hörku. Betra væri að hjálpa vændiskonum og hórkörl- um með því að veita þeim félags- lega aðstoð sem vilja hætta og þeim sem vilja vera áfram í þessu. Það er barnalegt að halda að vændið hverfi með þessum hætti og þetta mál er snargalið,“ segir Sveinn Andri. Við vinnslu fréttarinnar var leit- að viðbragða hjá Arngrími héraðs- dómara en án árangurs. trausti@dv.is Rökrétt ákvörðun Sveinn Andri telur ákvörðun dómara alveg eðlilega þar sem litið er á vændiskonurnar sem brotaþola kynferðisofbeldis. Hefðbundið myntkörfulán lækkar um 28 prósent en verður þó enn helmingi hærra en það var í upphafi, fari viðskiptavinir SP-Fjármögnunar þá leið fyrirtækisins að breyta lánum í íslensk. Marinó G. Njálsson hjá Hagsmunasamtökum heimilanna segir ósvífni að kalla úrræði fyrirtækisins réttarbót fyrir neytendur. Innan við vika er í að Hæstiréttur úrskurði um lögmæti gengistryggingar. Lánið enn heLmingi hærra en í upphafi „Að mönnum skuli detta í hug að koma með svona tillögur og kalla það réttarbót fyrir neytendur er hrein ósvífni,“ segir Marinó G. Njáls- son, stjórnarmaður í Hagsmunasam- tökum heimilanna, á bloggsíðu sinni um það útspil SP-Fjármögnunar að bjóða viðskiptavinum sínum lækk- un á höfuðstóli lána um að jafnaði 28 prósent. Marinó, sem hefur gagnrýnt að- gerðarleysi fjármögnunarfyrirtækja og stjórnvalda gagnvart skuldavanda heimilanna, hefur miklar efasemd- ir um útspil SP en fyrirtækið kynnti í gær leiðir til lækkunar höfuðstóls gengistryggðra bílalána. 100 prósent hækkun Gengistryggð bílalán hafa hækkað gríðarlega frá því gengi krónunnar tók að veikjast vorið 2008. Algengt er að höfuðstóll lána hafi tvöfaldast eða jafnvel meira. Evra hefur til að mynda hækkað gagnvart krónunni um rúm 60 prósent frá því í mars 2008, svissneskur franki um 85 pró- sent en jen um 130 prósent. Algengt var að myntkörfur væru samsettar úr frönkum og jenum (til helminga) en það þýðir að höfuðstóll 2 milljón króna láns stendur nú í um 4,1 millj- ón króna. Hækkunin í því tilviki 106 prósent. Í fréttatilkynningu SP segir að 80 prósent lána til einstaklinga lækki um 20 til 40 prósent en meðaltals- lækkunin sé 28 af hundraði. Dómur á döfinni Ef mið er tekið af meðaltalslækkun SP-Fjármögnunar, 28 prósent býðst fyrirtækið nú til að lækka höfuðstól lánsins niður í 3 milljónir króna. Lánið er með öðrum orðum enn hemingi hærra en þegar það var tek- ið. Þess má getað að einungis eru fá- einir dagar þar til Hæstiréttur tekur fyrir mál vegna lögmæti gengistrygg- arinnar. Málið er á dagskrá réttarins í næstu viku, 2. júní en óvíst er hvað gerist ef niðurstaðan verður á þann veg að gengistryggingin er ólögmæt. Lánin lækka með lögum Útspil SP kemur í kjölfar þeirra fregna af væntanlegu lagafrumvarpi félags- málaráðherra en hann hefur boð- að að lög verði sett sem geri það að verkum að lánin lækki. Verði frum- varpið samþykkt má gera ráð fyrir því að hagur þeirra 40 þúsund einstakl- inga sem eiga gengistryggð bílalán vænkist umtalsvert. Algengt verður að höfuðstóll lánanna lækki um 20 til 35 prósent, að sögn ráðherra. „Með þessari lækkun tekur SP-Fjármögnun einhliða upp það ákvæði í frumvarpi félagsmálaráðherra, sem liggur fyrir á Alþingi og lítur að höfuðstólslækk- un erlendra lána. Þessum aðgerðum er einnig ætlað að stuðla að aukinni hreyfingu á bílamarkaðnum sem einkennst hefur af kyrrstöðu undan- farna mánuði,“ segir í tilkynningu frá SP vegna málsins en þeir sem ákveða að breyta lánum geta valið um 2,6 prósent óverðtryggða vexti eða 7,95 prósent verðtryggða vexti. Fyrirtækið gerir með öðrum orðum ráð fyrir 4,7 prósent verðbólgu en verðbólga nú er um 8 prósent. Seðlabankinn spáir því að verðbólga verði komin niður í 3,4 prósent á næsta ári og 2,4 prósent árið 2012. SP stendur því frammi fyrir því að ráðherra hyggst leiða lækkunina í lög auk þess sem Hæstiréttur mun dæma í málinu eftir örfáa daga. Hvers vegna núna? Marinó bendir á að auk þess að til viðbótar við hærri vexti (hefðbundn- ir vextir af myntkörfulánum eru 4 til 5 prósent) sé SP að hirða þá gengis- styrkingu sem kann að verða. Styrk- ist krónan komi það lántakendunum ekki til góða. „Bæði „tilboð“ SP-Fjár- mögnunar og frumvarp félagsmála- ráðherra (miðað við það sem ráð- herra hefur sjálfur sagt um það) eru ámátlegar tilraunir til að festa eigna- upptökuna og forsendubrestinn,“ skrifar Marinó. Hann segir margt óljóst í útspili SP: „Hvers vegna kemur SP-Fjár- mögnun með þetta tilboð núna, þeg- ar liggur fyrir að Hæstiréttur mun taka fyrir mál vegna lögmæti geng- istryggingarinnar 2. júní næst kom- andi og félagsmálaráðherra er til- búinn með frumvarp sama efnis? Hverjar eru viðmiðunardagsetning- arnar sem notaðar eru til að finna út hve mikil lækkun höfuðstóls hvers láns fyrir sig er?“ spyr hann og vill einnig vita hvort þeir sem þegar hafa misst bíla sína vegna vörslusviptinga njóti lækkunarinnar afturvirkt. „Ég hefði viljað sjá í yfirlýsingu fyrirtæk- isins, að það bætti öllum viðskipta- vinum sínum sem gengið hefur ver- ið að og verið sviptir bílum sínum, þann skaða sem það hefur valdið þeim,“ segir Marinó. bALDuR GuðMuNDSSoN blaðamaður skrifar: baldur@dv.is SvoNA býðuR SP-fjáRMöGNuN - 2 milljón króna lán í frönkum og jenum tekið í mars 2008. upphaflegt lán 2.000.000 áætluð staða 4.100.000 Staða eftir breytingu* 3.000.000 *Miðað við 28% meðalafskrift. Upphæðirnar eru námundaðar. Lækka lánin SP býður lækkun höfuðstóls myntkörfulána þó lagasetning ráðherra og dómur Hæstaréttar um lögmæti gengis- tryggingar sé yfirvofandi. Ósáttur Marinó hjá Hagsmunasamtök- um heimilanna gefur lítið fyrir úrræði SP-Fjármögnunar. Hvers vegna kemur SP-fjár- mögnun með þetta til- boð núna?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.