Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Side 15
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
HAGBLIKK ehf.
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4
28. maí 2010 föstudagur 15
Slitastjórn Glitnis höfðaði málið gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og viðskiptafélögum hans fyrir dómstóli í
New York svo auðveldara væri að sækja fé og eignir til útlanda. Pálmi Haraldsson, einn af fyrrverandi við-
skiptafélögum Jóns, segist ekki eiga neina falda sjóði eða eignir neins staðar. Formaður slitastjórnarinnar
vildi ekki svara spurningu um skattaskjól á nýlegum blaðamannafundi.
Pálmi Haraldsson, fjárfestir og fyrr-
verandi eigandi Fons, segist ekki
eiga neina falda sjóði á aflandseyj-
um. Viðskiptablaðið greindi frá því
á fimmtudaginn að ástæðan fyrir
því af hverju slitastjórn Glitnis ákvað
að stefna Jóni Ásgeiri Jóhannessyni
og nokkrum viðskiptafélögum hans
fyrir dómstóli í New York væri sú
að auðveldara væri að sækja falið fé
þeirra og eignir í útlöndum ef málið
væri höfðað þar í landi.
Margir hafa velt því fyrir sér frá
því stefna Glitnis var gerð opinber
fyrir skömmu af hverju slitastjórn-
in ákvað að höfða málið í New York
en ekki á Íslandi. Ástæðurnar fyrir
því af hverju slitastjórnin ákvað að
höfða málið í New York hafa ekki
legið fyrir til hlítar. Rökstuðningur-
inn fyrir þessari ákvörðun sem fram
kemur í stefnunni er ekki mjög trú-
verðugur og var þetta atriði eitt hið
helsta sem menn veltu fyrir sér eftir
að stefnan var gerð opinber. Nú hef-
ur líkast til fengist botn í þetta atriði.
Miklu auðveldara mun vera að elta
falið fé í skattaskjólum og á aflands-
eyjum ef málaferli eru höfðuð gegn
mönnum í Bandaríkjunum en hér á
Íslandi.
Svaraði ekki um skattaskjólin
Þegar stefnan gegn Jóni Ásgeiri og
viðskiptafélögum hans var kynnt á
blaðamannafundi sem slitastjórn
hélt fyrr í mánuðinum svaraði Stein-
unn Guðbjartsdóttir, formaður slita-
stjórnarinnar, ekki þeirri spurningu
hvort hún teldi að þeir stefndu ættu
peninga í skattaskjólum. Steinunn
var spurð að þessu á fundinum en
taldi sig ekki geta svarað spurning-
unni. Af svari hennar að dæma mátti
álykta sem svo að málið væri við-
kvæmt.
„Ég á enga falda peninga hvorki
hér né annars staðar,“ segir Pálmi í
samtali við DV þegar hann er spurð-
ur að því hvort það eigi við um hann
að hann eigi falið fé erlendis. Rök
slitastjórnarinnar fyrir málaferlun-
um í New York eiga því ekki við um
Pálma, samkvæmt þessu.
Jón Ásgeir hefur sömuleiðis lát-
ið sams konar ummæli út úr sér og
Pálmi: Hann segist ekki eiga neina
fjármuni í skattaskjólum og aflands-
eyjum.
Umræðan ekki svaraverð, segir
Pálmi
Pálmi segist aðspurður vera orðinn
þreyttur á þessari umræðu í tengsl-
um við stefnu Glitnis. „Þessi umræða
er ekki svaraverð og lífið verður bara
að halda áfram,“ segir Pálmi. „Það er
allt gert til að reyna að skaða okkur,“
segir Pálmi. „Ég ætla bara að halda
áfram með mitt líf og að reka mín
fyrirtæki,“ segir Pálmi en sótt er að
honum úr nokkrum áttum um þess-
ar mundir. Skilanefnd Glitnis, slita-
stjórn bankans og þrotabú Fons hafa
öll stefnt Pálma.
Ekki liggur ljóst fyrir hvort aðrir
sem stefnt var í málinu, meðal ann-
ars Lárus Welding, Hannes Smára-
son og Jón Sigurðsson, eigi fjármuni
á aflandseyjum eða í skattaskjól-
um. Málaferlin í New York munu þó
væntanlega leiða sannleikann um
hið meinta falda fé auðmannanna í
ljós.
ingi f. vilHJÁlmSSon
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Ég á enga falda peninga hvorki
hér né annars staðar.
SEGIST
EKKI EIGA
FALIÐ FÉ
Stefnt í new York út af földu fé
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og viðskiptafélögum
hans var stefnt í New York til að auðvelda leit
að földu fé sem þeir eru taldir eiga úti í heimi.
Pálmi Haraldsson, fyrrverandi viðskiptafélagi
Jóns, segist ekkert falið fé eiga.
fréttir