Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Síða 16
Besti flokkurinn, framboð Jóns Gnarrs,
hefur fengið gríðarlegan hljómgrunn
meðal borgarbúa frá fyrstu skoðana-
könnunum á fylgi flokkanna í Reykja-
vík. Í könnun Fréttablaðsins 26. mars
mældist flokkurinn með 12,7 prósenta
fylgi og tvo fulltrúa kjörna. Mest hefur
flokkurinn mælst með 43,9 prósenta
fylgi og hreinan meirihluta, eða átta
kjörna fulltrúa, samkvæmt könnun
Fréttablaðsins 21. maí. Til samanburð-
ar fékk Sjálfstæðisflokkurinn prósenti
minna í sveitarstjórnarkosningunum
árið 2006, eða 42,9 prósenta fylgi.
Jón Gnarr kynnti hugmyndir sínar
að framboðinu í nóvember og hefur
því náð að afla framboðinu gríðarlegs
fylgis á undraverðum tíma. Ekki eru
dæmi fyrir því að nýtt framboð, hvað
þá grínframboð, hafi notið svo mikils
stuðnings. Þjóðvaki, klofningsfram-
boð Jóhönnu Sigurðardóttur núver-
andi forsætisráðherra, fékk sem dæmi
aðeins 7,2 prósenta fylgi í alþingis-
kosningunum árið 1995 og fjóra menn
kjörna. Í Gallup-könnun sem gerð var
í mars sama ár hafði flokkurinn mælst
með 11,8 prósenta fylgi. Hann fékk
því mun minna en honum hafði verið
spáð.
Ný framboð spretta upp
Ef framboðslistar fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar nú eru skoðaðir ofan í
kjölinn má sjá hvar fjöldi nýrra fram-
boða hefur litið dagsins ljós þar af
nokkur sem tengjast ekki fjórflokki
Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks
Samfylkingar og Vinstri-grænna. Að
minnsta kosti tvö önnur bjóða sig
fram undir grínmerkjum. Þar má
nefna Næstbesta flokkinn í Kópavogi
og Kammónistaflokkinn í Ísafjarðar-
bæ, sem hefur mælst með 8,1 prósents
fylgi. Á Akureyri mælist L-listi fólksins
nú með mesta fylgi fyrir sveitarstjórn-
arkosningarnar, eða 24,4 prósent, en
hann var með einn bæjarfulltrúa áður
í bæjarstjórn. Bæjarlistinn, klofn-
ingsframboð úr Sjálfstæðisflokknum,
mælist með 12,3 prósent. Samanlagt
mælast því þessi framboð með fylgi á
við Besta flokkinn á meðan framboð
sem heyra undir fjórflokkinn svokall-
aða tapa miklu fylgi.
Í Reykjavík bjóða þrír aðrir flokkar
sig fram sem ekki eru með tengsl við
fjórflokkinn. Þeir hafa, enn sem kom-
ið er, ekki fengið mikinn hljómgrunn
í skoðanakönnunum og engan mann
kjörinn. Í þingkosningunum árið 2009
fékk Borgarahreyfingin, sem þá var nýtt
framboð sprottið upp úr búsáhalda-
byltingunni, aðeins 7,2 prósenta fylgi
og fjóra menn kjörna. Þá hafði því verið
haldið fram að framboðið gæti hirt til
sín mikið óánægjufylgi í kjölfar banka-
hrunsins í lok árs 2008.
Þjóðþekktir í pólitík
Í bandarískum stjórnmálum er oft tal-
að um Reagan-áhrifin eða Schwarzen-
egger-áhrifin þegar þjóðþekktir ein-
staklingar bjóða sig fram og fá mikinn
stuðning vegna stöðu sinnar í samfé-
laginu. Hvorki Ronald Reagan, fyrrver-
andi forseti Bandaríkjanna, né Arnold
Schwarzenegger, fylkisstjóri í Kaliforn-
íu, settu hins vegar grínmerki við fram-
boð sín þótt þeir hafi nýtt sér óánægju-
fylgi margra kjósenda til að afla sér
stuðnings.
Grétar Þór Eyþórsson, stjórnmála-
fræðingur við Háskólann á Akureyri,
telur að fylgi Besta flokksins megi að
stærstum hluta rekja til tíðra meiri-
hlutaskipta á síðasta kjörtímabili í
Reykjavík. Landsmálin hafi þar einn-
ig mikil áhrif. Fólk hafi skipt um ríkis-
stjórn svo hægt væri að taka til en finn-
ist það hugsanlega ekki hafa gengið
eftir. Þá hafi skýrsla rannsóknarnefnd-
ar Alþingis frá því í apríl líklega haft
áhrif þar sem fólki finnst flokkarnir
ekki hafa tekið nægilega vel til í sínum
ranni. „Ég er hugsi yfir því hvort hinir
hefðbundnu flokkar séu að fá á bauk-
inn fyrir það sem gerst hefur í lands-
málunum en það er eitthvað sem
menn verða að kyngja. Það er partur af
lýðræðinu að fólk fái að sýna óánægju
sína með það sem hefur gerst,“ segir
Grétar.
Áhrif á landspólitíkina
Grétar segist viss um að þegar kosið
verður til Alþingis næst muni lands-
menn sjá fleiri framboð en áður hafi
þekkst og að þau muni fá meiri stuðn-
ing en nokkru sinni fyrr, ef efnt verði
til kosninga fyrir árið 2013. „Ef Besti
flokkurinn fær fimm menn eða fleiri
kjörna verður það sem raflost á flokka-
kerfið. Þeir flokkar sem tengdust hrun-
inu munu þá þurfa að fara í hraðari og
dýpri endurskoðun,“ segir Grétar.
Hann segir það eflaust hafa orðið
Besta flokknum til fylgisauka að fram-
bjóðendur þar hafi ekki bakgrunn í
pólitík og að þeir bjóði fram undir grín-
merkjum. Framboðið sé ekki sambæri-
legt því sem merkja megi Reagan- eða
Schwarzenegger-áhrifunum, vegna
þess að með þeim sé gert grín að farsa-
kenndum stjórnmálum. „Ef Jón Gnarr
hefði ætlað að kljást við hina hefð-
bundnu pólitík hefði honum kannski
ekki vegnað eins vel,“ segir Grétar.
Húmor skiptir máli
Samkvæmt rannsókn sem Gautaborg-
arháskóli gerði á stjórnmálum í Svíþjóð
töldu tveir af hverjum þremur þátttak-
endum mikilvægt að frambjóðendur
hefðu kímnigáfu. Af þeim töldu eldri
þátttakendur rannsóknarinnar húm-
or mikilvægastan. Í skoðanakönnun
Morgunblaðsins frá 26. maí mældist
fylgi Besta flokksins aftur á móti mest á
meðal fólks á aldrinum átján til tuttugu
og fjögurra ára.
16 föstudagur 28. maí 2010
42,9%
27,4%
13,5%
10,1%
6,3%
39,4%
26,3%
14,2%
5,6%
1,5%
0,5%
3,8%
1,7% 1,3%
0%
0,5%
3%
0,4 - 0,5%
2,7%
4,1%
6,3%
9,8%
11%
17%
0,6%
0%
22,8%
18%
21,1%
28,8%
16,6%
31%
30%
12,7%
23,4%
36%
43,9%
43,1%
n D: Sjálfstæðisflokkurinn
n S: Samfylkingin
n V: Vinstri-græn
n B: Framsókn
n Æ: Besti flokkurinn
n F: Frjálslyndir og óháðir
n H: Framboð um heiðarleika
og almannahagsmuni
n E: Reykjavíkurframboðið
40%
30%
20%
10%
0%
27. maí 2006 26. mars 1. maí 17. maí 21. maí 26. maí
KoSningaR FRéttablaðið FRéttablaðið
og Stöð 2
mmR FRéttablaðið moRgunblaðið
fylgi listanna í reykjavík
reagan-áhrifin
n Því er haldið fram að mistök rík-
isstjórnar Jimmys Carter í Banda-
ríkjunum hafi lagt grunninn að
árangri arftaka hans, Ronalds
Reagan. Reagan var þekktur leikari
og náði að heilla margan manninn
með persónutöfrum sínum. Í bók
Johns W. Sloan um Reagan-áhrif-
in segir að hann hafi vitað hvernig
ætti að koma skilaboðum sínum
á framfæri við almenning þannig
að þau væru honum þóknanleg.
Þar hafi „staðreyndir“ verið látnar
liggja á milli hluta.
schwarzenegger-
áhrifin
n Er notað yfir aðstæður þar sem
einhver vinnur til verðlauna eða er
valinn til áhrifa vegna orðspors en
ekki árangurs eða af verðleikum.
Hugtakið má rekja til þess þegar
Arnold Schwarzenegger hlaut í
sjötta sinn nafnbótina herra Ól-
ympía vegna orðspors hans. Árið
2003 var hann kosinn fylkisstjóri
Kaliforníu í stað Grays Davis. Árið
2006 var hann svo endurkjörinn
í embætti þegar hann hlaut fleiri
atkvæði en mótframbjóðandi hans
Phil Angelides.
Þegar Jón Gnarr kynnti framboð sitt og Besta flokkinn í nóvember hafði hann háleitar hugmyndir um að
komast inn á Alþingi. Hann sagðist vera í leit að fastri vinnu og góðum launum. Hann væri þreyttur á því
harki sem fylgdi því að vera án vinnu. Nú þegar Besti flokkurinn hefur kynnt framboð sitt í borgarstjórnar-
kosningunum á morgun stefnir í að hann verði stærsta stjórnmálaafl Reykjavíkur. DV fékk stjórnmálafræð-
ing til að spá í fylgi Besta flokksins.
Jón gnarr heggur
í fJórflokkinn Ef Besti flokkur- inn fær fimm menn eða fleiri kjörna verður það sem raflost á flokkakerfið.
RóBERt HlyNuR BalDuRSSoN
blaðamaður skrifar: rhb@dv.is
Maður óánægðra Fylgi besta flokksins
endurspeglar mikla óánægju kjósenda
í Reykjavík með störf hefðbundinna
stjórnmálaflokka.
KOSNINGAR2010