Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Side 20
Björgvin
BlóraBöggull
n Árni Johnsen var ómyrkur í máli
í Morgunblaðsgrein þar sem hann
tók upp hanskann fyrir Björgvin G.
Sigurðsson, fyrr-
verandi banka-
málaráðherra.
Telur Árni að
Samfylking hafi
gert Björgvin að
blóraböggli og
komið ómann-
eskjulega fram
við hann. En Árni
getur væntanlega haldið ró sinni því
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra og félagar hennar hafa gefið
ádrátt um að Björgvin fái launað starf.
Aðeins þarf að láta sveitarstjórnakosn-
ingarnar ganga yfir áður en því verður
úthlutað.
Hugsjónakona
í Eyjum
n Mikið hefur verið lagt undir hjá
útgerðarmönnum til að sannfæra
almenning um
að þeir einir séu
til þess bærir að
eiga fiskistofna
á Íslandsmið-
um. Áköfust í
baráttunni fyrir
eignarhaldinu á
auðlindinni er at-
hafnakonan Guð-
björg Matthíasdóttir í Vestmannaeyj-
um sem opnað hefur fjárhirslur sínar
upp á gátt til að halda úti Morgunblað-
inu og jafnvel vefsíður í því skyni að
sannfæra sauðsvartan almúgann um
ágæti lénsfyrirkomulagsins. Hugsjóna-
konan slapp út úr Glitni með offjár rétt
fyrir fall bankans en hefur síðan ausið
peningum í fjölmiðlareksturinn.
óvinur nr. 1
n Það sem fer mest fyrir brjóst útgerð-
armanna er hugmyndin um fyrning-
arleiðina sem Ólína Þorvarðardóttir
hefur talað fyrir. Fræðingar hafa verið
keyptir til að skrifa skýrslur um þá
vá sem þjóðin standi frammi fyrir ef
veiðiheimildir útgerðarinnar rýrni.
Nú hefur hinn virti hagfræðingur
Jón Steinsson lýst því yfir að þetta sé
hræðsluáróður. Vandinn liggi í himin-
háum skuldum útgerðarinnar. „Efna-
hagsreikningar margra útgerðarfyrir-
tækja eru því ljót sjón í dag. Af þessum
sökum munu mörg útgerðarfyrirtæki
þurfa á fjárhagslegri endurskipulagn-
ingu að halda hvort sem til fyrningar
kemur eða ei,“ segir hann í Pressu-
pistli. Jón er þar með væntanlega orð-
inn óvinur útgerðarinnar númer 1.
Bílakóngur í al-
mEnningsflugi
n Bílakóngurinn fyrrverandi Magnús
Kristinsson, útgerðarmaður í Vest-
mannaeyjum, gengur um dimma dali
skortsins þessa
dagana. Hann
þurfti að selja lúx-
usþyrlu sína sem
hann hafði notað
til að skjótast milli
lands og Eyja.
þetta mun vera
gert til að grynna
á skuldum. Þetta
fellir mjög lífsgæði Magnúsar sem þarf
að sæta þeim kjörum að fljúga með
almenningsflugfélögum í öllum þeim
þrengslum sem farþegar búa við. Það
er huggun harmi gegn að hann getur
líka tekið Herjólf.
Hannes Hólmsteinn Giss-urarson prófessor er einn af Íslands bestu sonum. Hann hefur verið óþreyt-
andi að boða frelsi í viðskiptum.
Frægt er slagorð hans, Grætt á daginn
og grillað á kvöldin. Hannes er eins
konar almenningseign. Hann er á
launum hjá fólkinu í landinu og allir
eiga þar með sinn hlut í honum. Hann
er þjónn fólksins, maðurinn sem
grillar frelsið ofan í pöpulinn.
Og það er með Hannes eins og ýmsa heimspekinga sögunnar. Hann veit að eignir hefta hinn frjálsa
huga. Þess vegna deildi hann eigum
sín út á meðal vinanna. Öðlingurinn
Kjartan Gunnarsson sem er eins kon-
ar brú á milli stjórnmála og viðskipta
fékk hús Hannesar. Annar góðvinur
prófessorsins, Friðbjörn Ketilsson,
fékk svo eigur hans í Brasilíu. Með
þessum ráðstöfunum varð Hannes
frjáls eins og munkur. Hann vantar
aðeins kuflinn, sandalana og göngu-
stafinn. Hann gengur um á meðal
fólksins í jakkafötum og 500 dollara
skóm og predikar um frelsi til athafna
og svo auðvitað um sakleysi Davíðs
Oddssonar sem einn manna varaði
Hannes við hruninu.
Hannes Hólmsteinn er ekki höfuðból. Hann er hjáleiga. Og þannig líður honum best. Rétt eins og
hann sjálfur er almenningseign lít-
ur hann svo á málin að allt sé í eigu
allra. Hann hafnar eignarréttinum,
nema auðvitað á fiskinum í sjónum
sem nauðsynlegt er að sé í eigu ein-
hverra sem láta sér annt um hann.
Og af því Hannes trúir á frelsi til
athafna og að allt, nema fiskurinn,
sé í sameign sætir hann ofsóknum.
Hann tók texta Nóbelskáldsins og
gerði að sínum. Þetta varð til þess
að illskeytt fjölskylda skáldsins fór
í mál við hann og vann. Þarna var
um að ræða gallaða löggjöf sem
beitt var gegn hugsjónamanni.
En Hannes er öreigi og það skiptir
því engu máli hve oft hann verður
dæmdur. Það er ekkert að sækja
til hans nema djúpa visku. Að lög-
sækja hann er eins og að stefna
munki. Það tekur enginn fjárnám
í frelsinu.
Hannes er Hjáleiga „Mér þykir alltaf vænt um
Sævar Þór Gíslason.“
n Bjarni Þórður Halldórsson, markvörður
Stjörnunnar, segist ekki hafa snert Sævar Þór en
hefur fyrirgefið honum fiskið. - Vísir
„Við höfum
fengið alveg
ótrúlegar
viðtökur og
finnum fyrir alveg
svakalegum meðbyr.“
n Örlygur Smári, annar höfundur
Eurovision-lags Íslendinga, er bjartsýnn fyrir
lokakvöldið. -DV
„Ég varð að gera allt sem
þær báðu mig um og söng
því fyrir fólkið á Kaffi
París og þar á meðal
stjórnmálamanninn Dag
B. Eggertsson.“
n Rebekka Kolbeinsdóttir, fyrrverandi
söngkona Merzedes Club, var steggjuð með
látum um síðastliðna helgi. - DV
„...ég held að Hera fari
jafnlangt og hún
í keppninni.“
n Þegar Páll Óskar segir
hún meinar hann
Jóhanna Guðrún. Hann
er einnig gífurlega
spenntur fyrir Íslands
hönd. - DV
Íslendingar missa tökin
Ein af fréttum vikunnar var að SP-Fjár-mögnun ákvað að bílalán viðskipta-vina fyrirtækisins skyldu aðeins hafa hækkað um helming frá því lánið var
tekið.
Önnur fréttin var að tveir af stóru bönk-
unum þremur hefðu grætt töluvert á verð-
bólgunni, þar sem verðtryggðar eignir þeirra
væru hærri en skuldirnar. Íslandsbanki hagn-
aðist í heildina um 24 milljarða króna. Samt
er Ísland á botni kreppunnar. Þetta eru góðar
fréttir fyrir erlenda eigendur bankans.
Þriðja fréttin var að verðbólgan væri 7,5
prósent. Það þýðir að öruggu, íslensku lán-
in okkar hækka um 7,5 prósent á ári, eftir allt
sem á undan er gengið. 20 milljóna króna lán
hækkar um eina og hálfa milljón þetta árið.
Fasteignaverðið fellur ennþá. Og ríkisstjórnin
kæfir ennþá frumvarp Lilju Mósesdóttur um
að fólk fái frelsi til að skila eignunum í bank-
ann, þegar lánið hefur verið hækkað umfram
verðmæti eignarinnar.
Sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar hafa
verið seldar. Kaupverðið var fengið að láni.
Fiskurinn syndir veðsettur í sjónum og hver
hagsmunaaðilinn á fætur öðrum varar við
hörmungum ef veðsetningunni verður af-
létt með fyrningarleiðinni. Hver Grímseying-
ur skuldar jafnvirði 18 milljóna króna fyrir
kvóta. Íbúar á Flateyri mega ekki stunda þá
atvinnu sem var forsenda fyrir tilurð þorps-
ins, nema gegn óhóflegu gjaldi. Því þegar
frelsið hámarkaði arðsemina í sjávarútvegin-
um var rétturinn til atvinnu seldur frá þorp-
inu. Kaupverðið var fengið að láni.
Nú á að selja orkuveitu á Suðurnesjum
til erlendra aðila, kaupverðið fengið að láni.
Frjálshyggjumenn segja að auðlindirnar séu
ekki seldar, heldur sé einungis nýtingarrétt-
urinn á þeim framseldur. Kenning þeirra er
að þetta sé eins konar rekstrarleiga auðlind-
anna. Bankarnir voru líka teknir á rekstrar-
leigu, eins og bílar, áður en þeir voru keyrðir
út af á 180 kílómetra hraða.
Álfyrirtækin eru og voru í erlendu eignar-
haldi. Bankarnir eru að stórum hluta komn-
ir í erlenda eigu. Sjávarútvegsfyrirtækin eru
mörg hver tæknilega gjaldþrota vegna skulda
hjá bönkunum og falla því undir sama eign-
arhald í raun. Fólkið í landinu er að stórum
hluta yfirveðsett bönkum í erlendu eignar-
haldi. Fyrsta skrefið í að færa orkuauðlindirn-
ar í eign útlendinga hefur verið stigið. Meira
að segja frægasti ferðamannastaður Íslands,
Bláa lónið, er að hluta komið í eigu erlendra
aðila.
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra skrif-
aði greinina Endurreisn í Morgunblaðið fyrir
rúmu ári. Þar sagði hann að eftir bankahrun-
ið stæðu raunverulegar eignir þjóðarinnar
eftir. „Mannauður landsmanna, mannvirki,
náttúruauðlindir og allt annað sem þarf til að
framleiða vörur og þjónustu, verður ekki fyrir
beinu tjóni,“ skrifaði Gylfi.
Eftir stendur að þrátt fyrir að raunverulegu
verðmætin séu ennþá til staðar fara raunveru-
legu tekjurnar af stórum hluta þeirra beint
eða óbeint til útlendinga. Afleiðingin ætti að
vera breytt afstaða íslensku þjóðarinnar. Hún
hefur minni hagsmuni en áður af því að ívilna
orkufyrirtækjum, viðhalda kvótakerfinu og
hygla bönkunum á kostnað almennings.
jón TrausTi reynisson riTsTjóri skrifar. Meira að segja frægasti ferðamannastaður Íslands, Bláa lónið, er að hluta komið í eigu erlendra aðila.
20 föstudagur 28. maí 2010 umræða
sandkorn
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja skaftadóttir
framkvæmdaStjóri:
Bogi Örn emilsson
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
dv á netinu: Dv.Is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
leiðari
svarthöfði
bókstaflega
Besta borgarstjórnin
Margur spyr stórra spurninga
þessa dagana. Menn velta því fyr-
ir sér hvort það fólk sem er á lista
með Jóni Gnarr geti talist hæft til
að sinna verkefnum borgarfull-
trúa. Og svo finnast auðvitað blá-
bjánar sem leyfa sér að efast um
ágæti Jóns Gnarr. En ég ætla að
kjósa þennan öðling, jafnvel þótt
heilu fylkingarnar reyni að segja
mér að gera það ekki. Ég er sann-
færður. Jón Gnarr er heiðarleg-
asti stjórnmálamaður samtímans.
Hann er sá eini sem segir sannleik-
ann og hann er sá eini sem kemst
upp með að segja sannleikann all-
an. Þetta getur hann vegna þess að
hann hefur takmarkalaust skotleyfi
á þau himpigimpi sem hingað til
hafa viljað láta kalla sig þjóna fólks-
ins. Jón Gnarr veit að samtrygging-
aröflin hafa farið hér með öll völd
allan lýðveldistímann. Hann veit
að núna þarf að breyta. Hann veit
að allt hefur gengið út á það, hjá ís-
lenskum stjórnmálamönnum, að
maka krókinn, lofa og svíkja. Menn
vilja setjast að kjötkötlum svo þeim
megi auðnast að dreifa bitlingum
til vina og vandamanna. Stjórn-
málamenn hafa yfirleitt klúðrað
öllu sem þeir hafa tekið sér fyrir
hendur.
Jón Gnarr hefur sannað ágæti
sitt. Hann er fyndinn, hann er
skemmtilegur og hann er snillingur.
Fyndna byltingin er hafin og við
getum glaðst, hlegið og skemmt
okkur. Nú gefst okkur kostur á að
reisa lýðveldi gleðinnar á rústum
leiðinlegra nöldurseggja, grenjandi
þurrkuntna, bölsýnna svikara og
gráðugra þrjóta.
Ef fólk fer að mínu fordæmi
verður Jón Gnarr næsti borgarstjóri
okkar Reykvíkinga. Hann mun þá
feta í fótspor fólks einsog Davíðs
Oddssonar, Steinunnar Valdísar og
Ólafs F. Magnússonar. Og það besta
við þetta allt er, að við erum að tala
um fólk sem mun að eilífu þræta
fyrir öll sín mistök – fólk sem aldrei
mun játa á sig heimsku, vanrækslu
eða annan aumingjaleik.
Þeir eru til hér á landi stjórn-
málamennirnir sem enn njóta lýð-
hylli, þrátt fyrir að þeim hafi tekist
að setja heilu byggðirnar á hausinn.
Reykjavík hefur, núna síðasta
kjörtímabilið, verið stjórnað af fólki
sem hefur haft það eitt að markmiði
að koma sér og sínum að gjöfulum
spena.
Hinn grátlegi gamanleikur lyga,
svika og græsku er á enda. Núna
fáum við að upplifa nýja tíma hlát-
urs, gleði og dásamlegrar gaman-
semi.
Af slæmum verkum meta má
margan drullusokkinn
en kímnir menn og kátir fá
að kjósa Besta flokkinn.
KriStJÁn hreinSSon
skáld skrifar
„Hann er fyndinn,
hann er skemmti-
legur og hann er
snillingur.“
skáldið skrifar