Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Síða 24
24 föstudagur 28. maí 2010 Jón Gnarr er bara alveg eins og Jesús Kristur. Þar hafiði það. En áður en menn byrja að brigsla mér um guðlast, eða ímynda sér að ég sé kominn með gnarrisma á alveg sérlega sjúklegu stigi, þá er best að ég útskýri. Mergurinn málsins er sá að mér finnst Jesús Kristur ekkert óskaplega merkilegur maður. Ekki hann sjálfur að minnsta kosti, maðurinn Jeshúa frá Nasaret. Og allra síst er ég á því að það hafi verið eitthvað guðlegt við hann. Það er þess vegna engin goðgá í mínum huga þó einhverjum sé líkt við Jesús. Hann var einhvers konar farand- prédikari í Palestínu á sínum tíma. Boðskapur hans var í stórum dráttum sá að öll dýrin í skóginum ættu að vera vinir. Öllu frumlegri var nú boðskap- ur Jesúsar ekki. Svo vel hefur áróðurs- maskína kristninnar mallað undan- farin 2.000 ár að meira að segja þeir sem trúa ekki endilega á Jesús sem guð, þeir halda samt að það hafi ver- ið eitthvað nýstárlegt og jafnvel bylt- ingarkennt við kærleiksboðskap hans. En því fer fjarri. Jesús bar á borð ýms- ar gamalkunnar kærleikslummur sem hljómað hafa mjög kunnuglega í eyr- um þeirra sem á hann hlýddu. Marg- ir aðrir höfðu svipaðan boðskap fram að færa í Palestínu um þær mundir, og sami boðskapur hafði heyrst öld- um saman í Mesópótamíu, Kína, á Indlandi, hvarvetna þar sem menn komu saman. Hin gullna regla var ekki fundin upp af Jesúsi, hvað þá kær- leikurinn sjálfur. Hann hefur haft til að bera nokkurn sannfæringarkraft og verið lipur að raða saman orðum, en hugsun hans var ekki frumleg. Og hún hefur greinilega ekki verið mjög skýr heldur, því skýringin á vinsældum hans (fyrst og fremst eftir dauðann) er ekki síst sú að nánast hver maður hef- ur getað togað og túlkað orð hans eftir eigin höfði. Eða öllu heldur, það sem hann er talinn hafa sagt, því næsta víst er að hann sagði í rauninni harla fátt af því sem guðspjöllin hafa eftir honum. TÓMT ANDLIT JESÚSAR Jesús varð með tímanum eins kon- ar gína sem allir gátu hengt á fötin sín, hvurnig sem þau voru sniðin, eða tómt andlit þar sem hver maður gat málað þann svip sem honum hent- aði. Þannig urðu til fjölmargir Jesúsar – einn þeirra var hógvært lamb sem ævinlega talaði lágum mildum rómi um að við skyldum öll vera svo góð, annar var pólitískur uppreisnarsegg- ur gegn kúgunarvaldi heimsveldis, sá þriðji var eldslunginn kommúnisti, sá fjórði miskunnarlaus herforingi í himneskum herskörum, sá fimmti þjáningarsjúkur sjálfspíslari, sá sjötti strangur siðapostuli sem slær menn leiftur snöggt í hausinn ef þeir dirfast að vera með múður um einhvern titt- lingaskít, sá sjöundi hatast við hina andstyggilegu kynvillinga, meðan sá áttundi er alveg flaming hommi … Og svo framvegis. Hver hann var hinn upprunalegi Jeshúa farandprédikari frá Nasar- et, það skiptir orðið engu máli. Hann er bara spegill sem hver sem er getur speglað sig í og séð sjálfan sig – eða það sem hver vill sjá. Og sú eru nú að verða örlög Jóns Gnarrs frambjóðanda. Fylgið sópast til hans en á afar ólíkum forsendum sýnist mér – svo ólíkum að ég veit ekki hvort þær eiga í öllum tilfellum nokk- uð skylt við frambjóðandann sjálfan. „ÞEGAR JÓN GNARR VARÐ TRÚAÐUR“ Undanfarna daga hefur mjög verið rökrætt hvort framboð Besta flokks- ins með Jón Gnarr í broddi fylkingar sé grín, eða djúp alvara. Alveg hreint hyyyyyldjúp alvara. Ég held að það geti varla farið á milli mála að í upphafi var framboðið tómt grín. Eiginlega bara prívatbrandari Jóns Gnarrs, eða ein þeirra eins manns leiksýninga sem hann hefur áður haldið úti. Þekktust þeirra er vitaskuld leikritið „Þegar Jón Gnarr varð trúaður“ en það gekk heil- lengi í ýmsum fjölmiðlum og var um tíma leikið af heilmiklum sannfæring- arkrafti af höfundinum og eina leikar- anum. Honum tókst þá að útvega sér aukaleikara sem óafvitandi tóku þátt í gríninu með því að fjalla af mikilli al- vöru um hina nýfundnu trú hans og merkingu hennar. Þetta leikrit hafði hins vegar þann galla – að minnsta kosti fyrir aðra en Jón Gnarr sjálfan - að það vantaði eiginlega pönsið, það fjaraði bara hægt og rólega út án þess að áhorfendur fengju mikið fyrir snúð sinn. Fyrir þetta nýja leikrit var Jón hins vegar búinn að tryggja sér pönsið fyr- irfram – það er að segja kosningarnar. Þær yrðu sjálfkrafa hápunktur leikrits- ins „Jón Gnarr fer í framboð“. Leikrit- ið, sem mér skilst að hafi verið kvik- myndað alveg frá upphafi, átti líklega að verða einskonar skemmtimynd um einfeldninginn sem dettur óvænt inn í pólitík – eins konar íslensk út- gáfa af Mr. Smith Goes to Washington. Nema hvað einfeldningur Jóns Gnarrs átti ekki að vera vammlaus og prúður skátaforingi og bláeygur baráttumað- ur gegn spillingu og hræsni, heldur þvert á móti óður og uppvægur að taka sjálfur þátt í spillingunni – bláeygur bitlingagosi ef þannig má að orði kom- ast. Þetta var frábær hugmynd og hefði getað orðið – og getur auðvitað enn orðið – stórkostleg ádeila á samfélag okkar og stjórnmál, þar sem siðbót eft- ir spillingartímann er til dæmis fólgin í því að Sjálfstæðisflokkurinn þykist hafa gert upp við Hrunið með því að kjósa sér formann sem var á kafi í alls- konar Vafningum með þeim sem nú lítur út fyrir að hafi verið óforskömm- uðustu þrjótar útrásarinnar. GINNTUR TIL AÐ VERÐA BORG- ARSTJÓRI Í ÞYKJUSTUNNI Þar sem sá sami flokkur, sem ginnti veikan mann til að verða í þykjustunni borgarstjóri í nokkra mánuði og rak hann svo rýtingi í bakið, til að komast sjálfur til fullra valda, sá flokkur þykist nú hafa yfirbragð trausts og stöðug- leika. Og svo framvegis. Það var vissulega ekki vanþörf á að halda spéspegli upp að því samfé- lagi þar sem þetta er allt látið líðast, og bara sá spéspegill er nokkuð grodda- legur. En eftir því sem brandarinn sló betur og betur í gegn, þá virðast hafa runnið tvær eða jafnvel fleiri grím- ur á Besta flokkinn og stuðnings- menn hans. Nú heitir það allt í einu að þetta hafi aldrei verið grín. Í viðtalinu í Grapevine sagði Jón Gnarr sjálfur að Besti flokkurinn væri anarkó-súr- realískt listaverk, en það var tekið fyr- ir tveim þrem vikum – núna er Besti flokkurinn hvorki grín né listaverk af neinu tagi. Nei, nú heitir það að Besti flokkur- inn hafi alveg frá byrjun verið úthugs- uð og herská yfirlýsing um nýja hugs- un, nýjan heiðarleika, nýja nálgun, ný vinnubrögð, nýtt samfélag, nýja pólit- ík, allt nýtt. VOPN LÖGÐ Í HENDUR BESTA FLOKKSINS Vissulega lögðu flokkar hins hefð- bundna stjórnmálakerfis vopnin í hendurnar á Besta flokknum; já, ráku beinlínis framan í þá vendina til að hýða sig með. Ekki var nóg með að styrkjakóngarnir og -drottningarnar létu sér varla til hugar koma að hverfa hljóðlega á braut undan hneykslun og reiði almennings – fyrr en þá nú að Steinunn Valdís stígur fram, kort- éri fyrir kosningar; það þurfti þá ekki nema einn málsmetandi samfylking- armann til að hvetja hana til að segja af sér. Ég hlýt reyndar að hrósa Stein- unni Valdísi fyrir ákveðið hugrekki – ekki með afsögninni sjálfri, sem kem- ur klárlega of seint og er of þvinguð - heldur með því að þora þrátt fyrir allt að viðurkenna í afsagnarbréfinu að „persónulegt stolt“ hafi ráðið því að hún var ekki fyrir löngu búin að segja af sér. Ég man ekki til að íslensk- ur stjórnmálamaður hafi nokkru sinni játað að hafa látið stjórnast af per- sónulegu stolti – Steinunn Valdís fær prik fyrir það, hvað sem öðru líður. En fleiri vopn fékk Besti flokkurinn gefins upp í hendurnar. Ríkisstjórn- in hefur nú með réttu eða röngu á sér yfirbragð dugleysis, framtaksleys- is og umfram allt áhugaleysis um líð- an fólksins í landinu – forystumenn hennar virðast einkennilega frábitn- ir því að spila með fólkinu í landinu. Flokkarnir flestir eða allir brugðust seint og illa við Rannsóknarskýrslu Al- þingis; það var eins og þeir gætu ekki troðið því inn í sinn þykka koll að fólk- ið í þessu landi leit á Skýrsluna sem upphaf – ekki endapunkt. Þeir yrðu að endurmeta sjálfa sig, nánast endur- skapa sig. Það hafa þeir ekki gert, en er hin klæðlausa gína Besta flokksins leið okkar til að verða hólpin? „GÓNT Á RAUNVERULEIKA- ÞÆTTI Í KAPALSJÓNVARPI …“ Svo telja margir. Bara í gær las ég á net- inu tvo pistla eftir mjög greinargóða menn þar sem framboð Jóns Gnarr er talið boða gríðarleg tíðindi. Annar segir: „Það verður þjóðin öll – og fyrst og fremst Reykvíkingar fyrir hennar hönd – sem fá eftirminnilega lexíu í því hvert það leiðir að hafa van- rækt sögu sína, tungu og menningu, tekið upp neyslukapphlaup í stað gild- ismats og gónt á raunveruleikaþætti í kapalsjónvarpi í stað þess að hugsa um ábyrgð sína sem maður, ábyrgð gagnvart sjálfum sér, fjölskyldunni, samborgurunum.“ Er sem sagt Besta flokknum stefnt gegn sjónvarpsglápi? Gegn þeim sem hafa vanrækt tunguna? Nú mundi ég segja, ef það væri ekki enskusletta: „Djók!“ Annar lítur bersýnilega svo á að Besti flokkurinn sé markviss tilraun til grundvallarbyltingar á stjórnmálakerfi okkar sem „... muni [aftur á móti] verj- ast öllum tilraunum til breytinga með kjafti og klóm, það muni spyrna við þeim fótum, gera þær hlægilegar, bola þeim burt, eyða þeim úr umræðunni.“ Þarna er svo undarlega komið að milli línanna liggur að ánskotans kerf- ið sé svo óforskammað að það sé að reyna að gera Besta flokkinn hlægi- legan! Ja, skammastín bara, ljóta fúla kerfi! Að reyna að slá Besta flokknum upp í grín, ekki nema það þó! Og auðvitað væri argasti dóna- skapur að spyrja við þessar aðstæður um stefnu Besta flokksins í málefnum Orkuveitu Reykjavíkur, eða hvað flokk- urinn ætlar að gera – í alvöru! – í at- vinnumálum borgarbúa, nei, hva, það kemur bara í ljós, því Jón Gnarr ræður örugglega fram úr því seinna … FJÖGURRA ÁRA LANGUR BRANDARI Þannig virðist upphaflegur brandari Jóns Gnarrs óðum vera að verða eitt- hvað allt annað en í byrjun – rétt eins og flakk Jeshúa frá Nasaret um sveit- ir Galíleu og rabb hans við fylgis- menn sína varð að hátimbruðum trú- arbrögðum, og hann sjálfur að guði – sem hann hefði alveg áreiðanlega sjálfur talið argasta guðlast. Tiltölulega beinskeytt grín um spillingu og hall- ærislega orðræðu stjórnmálamanna er orðið að ansi þokukenndum hug- myndum um nýtt líf, nýja tíma og minna sjónvarpsgláp. Og pönsið, sem kosningarnar á morgun áttu að verða, virðast nú bara vera lok á fyrsta þætti – leikurinn stefn- ir í að verða að minnsta kosti fjögurra ára langur. Kannski verður þetta sam- felld gleði, og kannski það glæsta upp- haf á splunkunýjum degi sem margir virðast vonast eftir. Já, það gæti farið svo, auðvitað vona ég það, en ég verð að viðurkenna að ég er ekki viss. Altént er athyglisvert að enginn hefur talið L-listann á Akureyri til marks um stuðning við sögu, tungu og menningu, né vitnað í þýska rit- höfunda til að skýra framgang hans – en listinn nýtur í skoðanakönnunum svipaðs fylgis og Besti flokkurinn gerir í Reykjavík – vitaskuld fyrst og fremst út af þreytu kjósenda með hina hefð- bundnu flokka. Má ég svo ítreka enn einu sinni í lokin að það er engin guðfræðileg merking fólgin í því hjá mér að líkja Jóni Gnarr við Jesús Krist eða rétt- ara sagt Jeshúa frá Nasaret. Því ég tek Jeshúa ekki hótinu hátíðlegar en hvern annan mann, þar á meðal Jón Gnarr. Því Jeshúa var þrátt fyrir allt bara ósköp hversdagslegur maður sem lenti í því að fylgismenn hans gerðu úr honum eitthvað allt annað en það sem hann raunverulega var. Og hver um sig sér enn í Jeshúa það sem honum eða henni þóknast. Alveg eins og í Jóni Gnarr nú, þótt hann stjórni reyndar sínum eigin leik miklu markvissar en aumingja Jeshúa gerði. En ég hefði svo sem getað tekið aðra líkingu, og kannski nærtækari í þessu sambandi þegar öllu er á botninn hvolft. Var ekki Chauncey Gardiner, söguhetja Being There, annálaður spekingur svo jafnvel hinir vitrustu menn göptu yfir snilldinni? Var ekki einmitt unnið að því að fá hann í framboð? trésmiðja illuga Núna er Besti flokkurinn hvorki grín né listaverk af neinu tagi. Illugi Jökulsson telur að hver maður sjái nú í Jóni Gnarr það sem honum eða henni þóknast: BARA ALVEG EINS OG JESÚS! KOsNiNgar2010

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.