Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Síða 27
...bókinni Missi
eftir Guðberg
Bergsson
Sönn, sorgleg og
fyndin lýsing á elli og
áhrifum hennar.
...leik-
ritinu
Ódauð-
legu verki um stríð og
frið
Vitsmunalegt og einlægt,
látlaust og fallegt.
...myndinni
Food Inc.
Feikilega góð
heimildamynd.
Ekki lengur í bíó,
en Erna Kettler,
kauptu hana!
...mynd-
inni Cop
Out
Vonandi
vinna Tracy
Morgan og Bruce Willis
ekki oftar saman.
28. maí 2010 FÖSTUDAGUR 27
Í Íslensku óperunni í kvöld verða framkallaðir færeyskir og dularfullir tónar:
Eivör með útgáfutónleika
FÖSTUDAGUR
n Próflok í Sjallanum
Á föstudaginn verður ekkert smá próf-
lokapartí í Sjallanum á Akureyri. Það er
sjálfur DJ Óli geir og vitleysingarnir í N3
sem sjá um að halda stuðinu gangandi.
Partí fyrir 14-16 ára verður á milli 21.00
og 23.30 en eftir það verður partí fyrir 16
ára og eldri. Miðinn kostar 1.500 krónur
og má kaupa einn slíkan í Imperial á
Glerártorgi.
n Frítt inn á Players
Það verður frítt inn á skemmtistaðinn
Players í Kópavogi á föstudagskvöld.
Spiluð verður 80´s tónlist langt fram
á kvöld og því verður mikið dansað.
Níundi áratugurinn var áratugur hressrar
tónlistar og skapandi klæðaburðar
þannig það er um að gera klæða sig fyrir
80´s partí og dansa fram á nótt.
n Þungarokk á Sódómu
Hin goðsagnakennda þungarokkshljóm-
sveit Pestilence frá Hollandi verður með
tónleika á Sódómu á föstudagskvöldið.
Það kostar aðeins 2.000 krónur inn en
upphitun er í höndum Wistaria, In Mem-
oriam, Atrum og Gruesome Glory. Húsið
opnað klukkan 22.00 en tónleikarnir
hefjast klukkutíma síðar. Forsala miða á
miði.is.
n Aukatónleikar Eivarar
Eins og vanalega er uppselt á útgáfutón-
leika hjá Eivarar Pálsdóttur sem fram fara
í íslensku óperunni á föstudagskvöldið.
Til allrar hamingju hefur nú verið bætt
við aukatónleikum klukkan 19.00 sama
kvöld en miðinn kostar 3.900 krónur.
Hægt er að nálgast miða á miði.is.
n Dikta í Ólafsvík
Vinsælasta hljómsveit landsins, Dikta,
verður með tónleika í Félagsheimilinu
Klif í Ólafsvík á föstudagskvöldið.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00 en
aðeins kostar 2.000 krónur inn.
LAUGARDAGUR
n Eurovision-partí Palla á NASA
Páll Óskar Hjáltýsson heldur sitt
árlega Eurovision-samkvæmi á NASA á
laugardag. Húsið opnað á miðnætti og
Páll Óskar spilar allan tímann, pásulaust
til klukkan 05.30. Forsala aðgöngumiða á
NASA föstudaginn 23. maí milli klukkan
13 og 17. Einnig koma fram Sigga
Beinteins, Jógvan, Jóhanna Guðrún
og fleiri. Þetta er alltaf eitt af partíum
ársins og má enginn missa af þegar Palli
grípur í míkrófóninn og tekur nokkra
Eurovision-slagara.
n Stjórnin á Players
Stjórnin bregður undir sig betri fætinum
í tilefni Eurovision og verður með
tónleika á Players á laugardagskvöldið
þegar keppninni er lokið. Því verður
hægt að sleppa því að horfa á kosninga-
sjónvarpið og skella sér á alvöru ball
með einni bestu hljómsveit Íslands.
n Kristján á ferð og flugi
Kristján Jóhannsson og Söngvinir halda
nú í ferðalag með stórtónleika sína og
ferðast um allt landið. Þeir verða í Húsa-
víkurkirkju á laugardaginn klukkan 16.00
en miðinn kostar 4.300 krónur. Miða og
frekari upplýsingar um viðkomustaði má
nálgast á midi.is.
Hvað er að
GERAST?
Leikritið Klæði eftir Berg Ebba Benediktsson frumsýnt:
UNGIR LISTAMENN SAMEINAST
Útgáfutónleikar Eivarar Páls-
dóttur fara fram í Íslensku óp-
erunni í kvöld, föstudag. Eru
þeir haldnir í tilefni af útkomu
plötunnar Larva og með Eivöru
í för er bandið sem vann með
henni plötuna. Fríður hópur
listamanna bættist við á enda-
sprettinum. Ákveðið var nefni-
lega nýverið að með Eivöru og
hljómsveit kæmi fram kvenna-
kórinn Graduale Nobili, karla-
raddir úr kór Langholtskirkju og
fjórir meðlimir úr Caput-hópn-
um. Á plötunni spila með henni
færeyski kórinn Mpiri og barna-
kór frá Gøta, heimabæ Eivarar,
auk Caput.
Larva er sjöunda hljóðver-
splatan sem Eivør sendir frá sér.
Spekúlantar segja hana sýna hér
á sér nýjar hliðar með því að fjar-
lægjast þjóðlagastíl síðustu ára
og hella sér í tilraunakenndara
og hrárra sánd. Afraksturinn sé
mögnuð plata sem nær ómögu-
legt er að skilgreina því áhrifin
komi svo víða að. Má þar nefna
indítónlist, popp, trip-hop, amb-
ient, rokk, teknó, acid djass og
klassíska tónlist.
Eivør vann plötuna með sveit-
inni sem kemur fram á tónleik-
unum og upptökustjóranum Jens
L. Thomsen, allt saman gamlir
vinir og nánir samstarfsmenn í
gegnum árin.
Svo til uppselt var í gær á tón-
leikana klukkan 22 og aðeins ör-
fáir miðar eftir á aukatónleikana
klukkan 19. Miðasala fer sem
áður fram á midi.is og öllum
sölustöðum vefsíðunnar. Miða-
verð er 3.900 krónur.
... leikritinu 39 þrepum
Skemmti-
leg glæpa-
eða
njósna-
sagnapar-
ódía.
...mynd-
inni Prince
of Persia:
The Sands
of Time
Hálfgerður Pappírs-
Persi.
Eivör Pálsdóttir
Á fáa sína líka.
ÆTLUM EKKI Á KENNITÖLUFLAKK
Spurður hversu marga tónlist-
armenn og hljómsveitir Geim-
steinn hafi á sínum snærum seg-
ir Júlíus að lenskan hjá útgáfunni
hafi verið að gefa bara út einn disk
í einu í stað þess að gera einhvern
langtímasamning. „Pabbi var ekki
mikið fyrir það að
gera samninga sem
bundu tónlistar-
mennina á nokkurn
hátt. Það var bara
gerð plata og ef fólk
vildi fara eftir það
þá bara fór það. Og
við ætlum ekkert
að fara að kollvarpa
þeirri hugmynda-
fræði.“
Pabbi spilaði
upp í tapið
Hún er óneitanlega
fjölbreytt tónlist-
in sem Geimsteinn
gefur út. Hvað er
það sem ræður því
að hljómsveit eða
sólótónlistarmað-
ur fær útgáfusamn-
ing hjá fyrirtækinu?
„Jaaa, við þurfum
allavega að hafa að-
eins leiðarljósi að
tapa ekki mikið á út-
gáfunni,“ segir Júlí-
us. „Pabbi tapaði á
bróðurpartinum af
þeim plötum sem
hann gaf út með nýj-
um listamönnum,
en hann gat alltaf
spilað upp í tapið.
Við erum hins vegar
ekki mikið í því. En
það sem við horfum
til er að tónlistin sé
áheyrileg og að það
sé ekki mikill kostn-
aður fólginn í útgáf-
unni. Og að okkur
finnist þetta eiga er-
indi á markaðinn. Hvort platan
seljist vel er ekki stóra málið. Þetta
er ekki fyrirtæki sem við erum að
reka til þess að það skili arði, að-
alatriðið er bara að það fari ekki á
hausinn. Það hefur verið á sömu
kennitölu allt frá stofnun og við
ætlum ekkert að fara að breyta
því.“
Varðandi verkefnaskiptingu í
rekstri Geimsteins segir Júlíus að
hann, bróðir hans og bróðursonur
vinni þetta allt í sameiningu. „Það
ganga allir í flestallt. En þetta er
ekki okkar daglega vinna þannig
að við hjálpumst að við að reka
þetta með öðrum verkefnum. Svo
kemur mamma af og til inn í þetta.
Hún er náttúrlega eigandinn,“ seg-
ir Júlíus og hlær.
Múnaði bandaríska
tónleikagesti
Blaðamaður spyr Júlíus að lokum
aftur út í Deep Jimi and the Zep
Creams, hvort tónleikahald sé á
döfinni í tengslum við útkomu
nýju plötunnar. Júlíus segir út-
gáfutónleika fara fram í Keflavík
næsta fimmtudag, en því miður
verði það eina gigg piltanna í um
það bil tvo mánuði þar sem nokkr-
ir hljómsveitarmeðlima verði er-
lendis. „Við skulum bara segja að
þeir séu að leita
samninga fyrir
Deep Jimi,“ seg-
ir Júlíus og glott-
ir svo heyrist í
gegnum símtólið.
Eða svona næst-
um því.
Þess má geta
að bandið, sem
er tuttugu ára
gamalt, fór í eft-
irminnilega ferð
til Bandaríkjanna
snemma á ní-
unda áratugnum.
Markmiðið var að
reyna að koma sér
á framfæri þar en
lesa má þá stór-
skemmtilegu frá-
sögn á vefsíðu
hljómsveitarinn-
ar, deepjimi.com.
„Meikið“ leit vel út
til að byrja með,
Deep Jimi fékk út-
gáfusamning upp
á átta plötur við
plötufyrirtæki sem
kallast Atco-East/
West. Málin þróðust
hins vegar þannig
að öllum kontakt-
aðilum hljómsveit-
arinnar innan fyr-
irtækisins var sagt
upp.
„Í framhald-
inu var ákveðið
að kaupa okkur út
þannig að við gerð-
um bara eina plötu
hjá fyrirtækinu.
Við fórum þá aft-
ur út, skemmtum okkur en náð-
um ekki áframhaldandi samningi
neins staðar annars staðar.“
Í frásögninni af Bandaríkjaferð-
inni kemur meðal annars fram að
á einu giggi sem Deep Jimi hélt, og
fór ekki alveg eins vel og óskandi
hefði verið, hefði Júlíus múnað
áhorfendur og hljómsveitarmeð-
limir svo hótað að lemja hljóð-
manninn. Er þetta allt satt og rétt?
„Eee, já, örugglega,“ segir Júlí-
us, eilítið vandræðalegur. „Það
gerðist allavega voða mikið þarna
úti. Menn voru ungir og í fíling.“
kristjanh@dv.is
Bjartmar og Rúnar Ein þeirra platna sem væntanlegar eru frá
Geimsteini í sumar er plata með Bjartmari Guðlaugssyni og hljómsveit-
inni Bergrisunum. Hér er Bjartmar í góðum gír með Rúnari heitnum
Júlíussyni, stofnanda Geimsteins og föður Júlíusar.
Hjálmar Reggíhljómsveitin vinsæla náði eyrum almennings með aðstoð Geimsteins á meðan aðrir plötuútgefendur höfðu litla trú á íslensku reggíi.