Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Side 33
28. maí 2010 föstudagur 33 X-F Frjálslyndi flokkurinn X-H Framboð um heiðarleika og almannahagsmuni X-S Samfylkingin X-V Vinstri - græn X-Æ Besti flokkurinn Kosningaloforð floKKanna Ferðaþjónusta og nýsköpunarverkefni verði stórefld. Menningar- og náttúru- verðmæti borgarbúa verði nýtt með sjálfbærum og gjaldeyrisskapandi hætti. Þróunar- og nýsköpunarfélag laði fjárfesta að. Fjölga viðburðum utan háannatíma. Kynna borgina sem ráðstefnuborg. Efla alþjóðlega kvikmyndahátíð. Lóð fyrir kvikmyndaver. Þekkingar- og heilbrigðistengd fyrirtæki í Vatnsmýri. Nýsköpunarsetur, sprotahótel og listasmiðjur. Nýta auð og óseld hús. Einfalda leyfisveitingar fyrir þá sem vilja stofna rekstur.. Styrkja samkeppnishæf fyrirtæki í alþjóðlegri samkeppni. Taka lán til framkvæmda í byggingariðnaði. Tvöfalda viðhald á fasteignum. Auka fjármagn til hreinsunar, stígagerðar og uppbyggingar grænna svæða. Fullar atvinnuleysisbætur í allt að eitt ár þegar ráðist er í nýsköpun eða markaðssetningu. Bregðast við atvinnuleysi með skapandi störfum, menntun, forvörnum og velferð. Skapa ný störf. Skapa aðstæður svo fólk geti skapað sér störf. Nýta húsnæði borgarinnar í þágu þess. Efla umhverfi fyrir þekkingar- og nýsköpunarfyrirtæki. Viðhaldsátak á opinberum byggingum. Koma á landvörslu í miðborginni og á útivistarsvæðum til að auka ferðamannastraum. Fjölga viðburðum á vegum borgarinnar yfir allt árið, gera sögu og menningu borgarinnar sýnilegri. Fjölga sumarstörfum á vegum borgarinnar. Stöðva pólitískar ráðningar. Auðvelda atvinnulausum aðgang að menntunartækifærum og bjóða þeim að taka þátt í uppbyggingarstarfi . Tryggja námsfólki sumarvinnu og starfsþjálfun. Styðja og ala upp listamenn sem bera hróður Íslands um allan heim. Hugmyndabanki sé vettvangur fólks til kynninga hugmynda til framtíðar. Gera Reykjavík spennandi fyrir ferðamenn, sem heimsborg með skapandi hugsun og merkilega sérstöðu og sögu. Markaðssetja sundlaugar sem „Outdoor Natural Spa“ í miðri borg. Nota Arnarholt á Kjalarnesi undir alþjóðlegt „hvítflibbafangelsi“ og vista þar gegn gjaldi sakamenn frá Evrópu. Taka á íbúðarmálum borgarbúa, meðal annars með fjölgun leiguhúsnæðis. Stofna heimili fyrir utangarðsfólk. Húsnæðissamvinnu- félög, leigu- og búsetusamtök í almannaþágu. Íbúar í húsnæði á vegum borgarinnar geti eignast búseturétt. Fleiri geti fengið sérstakar húsaleigubætur. Tryggja útigangsfólki úrræði, fæði og aðrar nauðþurftir. Koma á öruggum leigu- og kaupleigumarkaði. Endur- skoða rekstrarform Félagsbústaða. Finna úrræði fyrir útigangsfólk. Út- vega húsnæði, aðstöðu og fjármagn til þessara mála. Sameining sveitarfélaga á höfuðborg- arsvæðinu. Forgangsröðun en ekki skattahækkanir, nema á auðmenn og erlend málmbræðslufyrirtæki. Tryggja öllum framfærslu. Hækka lágmarksbætur þannig að þær verði aldrei lægri en 160.800 kr. samtals. Þeir sem hafi verið á framfærslu í þrjá mánuði fái ráðgjöf eða fari á námskeið. Ná 5% hagvexti í Reykjavík 2014. Gera fimm ára áætlun um efnahag- og fjármálastjórn, setja fjármála- reglur og styrkja eftirlit með borgarsjóð og fyrirtækjum borgarinnar. Tryggja að lægstu bætur dugi fyrir framfærslu. Að allir hafi aðgang að góðri menntun, heilbrigðis- og félagsþjónustu. Hjálpa heimilunum í landinu. Mæta þörfum og kröfum heimilanna. Fella niður allar skuldir. Bæta kjör þeirra sem minna mega sín. Spara í stjórnsýslunni. Sýna ábyrgð og ráðdeild í fjármálastjórn- un. Beita ömmuhagfræði. Opið markaðskerfi og frelsi í viðskiptum án afskipta hins opinbera. Lækkun fasteignagjalda fyrir aldraða og öryrkja svo að þeir geti búið sem lengst á sínum heimilum. Efling heimahjúkrunar og heimaþjónustu. Rjúfa félagslega einangrun. Aldraðir og öryrkjar hafi sjálfir eitthvað að segja um félagsstarf og þjónustu við þá. Styrkja þjónustumiðstöðvar í hverfunum. Félagsmiðstöðvar þeirra verði einnig nýttar fyrir aðra til að brúa kynslóðabilið. Veita fólki aðstoð til að búa heima. Heimaþjónusta verði samþætt heimahjúkrun og hverfisbundin. Allir sem búa á hjúkrunarheimilum eða sameiginlegum heimilum eigi rétt á einkarými og haldi fjárhagslegu sjálfstæði sínu. Tryggja fötluðum aðgengi að opinberum byggingum og almannasvæðum borgarinnar. Laga aðgengi fyrir aldraða. Tryggja persónulega grunnþjónustu og fyrirbyggja einangrun. Virkja menntun og starfsreynslu, til dæmis með íslenskukennslu fyrir innflytjendur. Koma á samstarfi milli leik- og grunnskóla við elliheimili og þjónustumiðstöðvar aldraðra. Halda ömmu- og afadaginn hátíðlegan. Óvissuferðir fyrir gamalmenni. Breyta nafninu á Miklatúni aftur í Klambratún. Setja upp leikvelli fyrir gamalt fólk, vettvang samskipta og hreyfingar. Kanna árlega þróun kynbundins launamunar og útrýma honum að fullu. Jafnréttisfræðsla. Skólar mæti þörfum beggja kynja. Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum, félaga- samtökum og stjórnsýslu. Útrýma kynbundnum launamun. Endurskoða yfirvinnu og aksturs- greiðslur með tilliti til kynferðis. Sömu laun fyrir sambærilega vinnu. Algjört jafnrétti kynja. Kvennastofa þar sem konur geta fengið allskonar kaffi með bragðefnum eins og vanillu og kanil. Og mega tala eins og þær vilja og það verður allt tekið upp og geymt. Konukvöld, til dæmis á konu- og mæðradaginn. Þá væru karlmenn beðnir um að halda sig heima. Lögregluvaktin yrði einungis skipuð konum. Þjónustumiðstöðvar sinni ráðgjöf við innflytjendur í hverju hverfi. Auka þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í frístundastarfi. Efla móðurmálskennslu í samstarfi við grasrótarsamtök. Nýta fjármagn til íslensku- kennslu sem best og í þágu þeirra barna sem mest þurfa á henni að halda. Tryggja nægilegt fjármagn til íslensku- kennslu. Styðja við félög og hagsmunasamtök útlendinga. Útvega túlka svo foreldrar grunnskólabarna af erlendum uppruna geti tekið þátt í foreldrasamstarfi við skóla. Efla íslensku-, móðurmáls, samfélagsmáls- og fordóma- fræðslu í leik- og grunnskólum. Tryggja innflytjendum þátttöku í tómstunda- og æskulýðsstarfi. Koma á jöfnuði. Allir eiga það besta skilið sama hverjir þeir eru og hvaðan þeir koma. Lækkun eða niðurfelling gjaldskrár fyrir börn, unglinga, aldraða og öryrkja. Tekjutengd frístundarkort. Foreldraráðgjöf og foreldranámskeið til að efla for- eldrafærni. Þjónustumiðstöðvar sinni almennu barna- verndarstarfi. Sýnileg löggæsla vinni með barnavernd og þjónustumiðstöðvum. Móta aðgerðaráætlun gegn ofbeldi. Tryggja markviss viðbrögð vegna gruns um ofbeldi. Efla foreldrarölt og nágrannavörslu. Öll börn fái morgunverð og hollan hádegisverð á viðráðanlegu verði í grunn- og leikskólum. Semja við íþróttafélög, listaskóla og æskulýðsfélög um ódýrari frístundir. Opna frístundakort svo hægt verði að bæta við upphæðina. Allir sem vilja geti stundað íþróttir. Styðja við afreksíþróttir. Mæta þörfum 16-24 ára ungmenna. Samþætta skóla- og frístundastarf með skólahljómsveitum, tónlistarskólum, íþróttafélögum, félagsmiðstöðvum og frístundaheimilum. Færa frídaga í miðjum vikum að helgum. Halda þakkar- gjörðarhátíðina hátíðlega. Ókeypis tannlæknaþjónusta fyrir börn og aumingja. Ókeypis í sund og frí handklæði. Girða útivistarsvæði með fallegum járngirðingum. Nýta tún undir leikvelli; hoppukastalar og leiktæki úr náttúrulegu byggingarefni. Girt svæði fyrir hundaeigendur þar sem fólk getur sleppt hundum sínum og jafnvel sest á bekk. Markaðssetja Húsdýragarðinn sem „Arctic Zoo.“ Setja upp opið svæði fyrir ísbirni og lundaklett. Flytja inn sauðnaut frá Grænlandi. Hafa dýrin á stórum útisvæðum en ekki búrum. Gera Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn töfrandi. Tengja hann betur skólakerfinu. Reisa þar jafnvel skóla. 30 km. hámarkshraði í öllum hverfum borgarinnar. Stórefldar almenningssamgöngur. Frítt í strætó fyrir börn, unglinga, aldraða og öryrkja. Endurhugsa gatnakerfi. Breyta völdum stofnbrautum í breiðgötur með hægari umferð. Endurskoða reglur um fjölda bílastæða við íbúðarhús og fyrirtæki. Hanna og leggja göngustíga, gangstéttir og hjólabrautir af sama metnaði og vegir eru lagðir fyrir bíla. Fótgangandi vegfarendur hafi forgang í umferðinni í miðbænum. Frístundastrætó í hverju hverfi. Fjölga strætóferðum, þétta leiðarkerfið og fjölga forgangs- akgreinum. Gera strætó að skjótum, öruggum og ódýrum valkosti. Fjölga hjólreiðastígum og tengja stofnstíga helstu þjónustukjörnum í hverfum. Strætisvagnakerfi sem virkar. Gjaldfrjálst í strætó fyrir börn, námsmenn, fatlaða og eldri borgara til að byrja með en stefna að algjörlega gjaldfrjálsu kerfi. Rafvæða almenningssamgöngur. Rafbílavæða Reykjavík. Minnka bílaumferð. Auðvelda aðgengi barna og fatlaðra yfir umferðargötur með stokkum, t.d. við Háskóla Íslands og á gatnamótum Hofsvallagötu og Hringbrautar og undir Bústaðaveg. Hjólreiðastígar sem virka. Vernda ströndina. Vernda og nýta grænu svæðin. Græn svæði í hverju skólahverfi. Útikennsla og náttúruskóli fyrir börn. Aðgengilegri útvistarsvæði. Fjölga strætóferðum á álagstímum og bæta leiðarkerfið. Draga úr umferðarhættu, svifryks- og hávaðamengun í borginni. Samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda. Fjölbreytni í orkusölu. Innan ára- tugar verði annað hvert ökutæki í borginni knúið visthæfum innlendum orkugjöfum. Auðvelda íbúum að flokka sorp. Umhverfisfræðsla í leik- og grunnskólum, félagasamtökum og stjórnsýslu. Vernda náttúruperlur og vatnsból. Gæta að lífríki áa og vatna í borgarlandinu. Setja jarðgerð og metangasframleiðslu í forgang. Lágmarka urðun og hámarka endurnýtingu. Auka möguleika fólks á sorpflokkun við heimilin. Endurvinna allt og nýta sjálfbæra orku, með gegnsærri nýtingu auðlinda, rafmagnsbílum og minni mengun. Vera leiðandi í umhverfis- og dýravernd í samvinnu við alþjóðleg dýraverndun- arsamtök og sjónvarpsstöðvar eins og Discovery channel og National Geographic. Flytja inn íkorna í Hljóm- skálagarðinn og froska á Tjörnina. Flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni. Endurskoðun framkvæmda á tónlistar- og ráðstefnuhúsi við höfnina. Endurnýja borgarhverfin. Efra-Breiðholt fyrst. Hverfin séu eins og þorp. Beita húseigendur dagsektum sem láta hús í grónum hverfum standa auð og grotna niður. Standsetja húsin á þeirra kostnað. Breyta fleiri götum í vistgötur. Endurnýjun úr sér genginna iðnaðar- og verslunarsvæða og þétting byggðar. Ljúka skipulagi Mýrargötusvæðis og Gömlu hafnarinnar. Hefja uppbyggingu við Hlemm og í Vatnsmýri. Hlutur leiguíbúða sé að minnsta kosti fimmtungur á nýjum byggðarsvæðum. Íbúar geti tekið opin svæði í fóstur. Efla samvinnu milli sveitarfélaga og móta sameiginlega stefnu um nýtingu lands á höfuðborgarsvæðinu. Gera skipulagsáætlanir fyrir hvert hverfi. Vernda græn svæði og tryggja útivistarsvæði fyrir alla. Bæta merkingar og setja upp upplýsingaskilti til að gera sögunni skil. Hlúa að og lyfta gömlum húsum. Vernda menningarverðmæti. Klára yfirstandandi framkvæmdir eins vel og hægt er. Klára frágang í nýjum hverfum og fullnægja lág- marksþjónustu. Flytja húsin í Árbæjarsafni í Hljómskálagarð- inn og nota þau undir íbúðir og verslanir. Loka miðbænum fyrir bílaumferð. Hlúa að miðbænum og halda gömlum húsum við. Setja glerþak yfir Ingólfstorg. Flytja glæsilegustu styttur borgarinnar í miðbæinn. Fella aspir í miðbænum og gróðursetja hlyn, birki og hegg í staðinn. Skipta um handrið á brúnni yfir Skothúsveg. Styrkir til stjórnmálasamtaka og stjórnmálamanna verði felldir niður og óheimilt verði að þiggja kosningastyrki. Íbúalýðræði verði eflt. Verkefni og fjárráð til hverfaráða. Atkvæðagreiðslur um meginmál. Opinbera dagbók borgarstjóra. Styðja hverfablöð. Fækka nefndum og einfalda pólitískt stjórnkerfi. Auglýsa öll störf. Herða reglur um útboð og innkaup. Birta eignir, skuldir og skuldbindingar kjörinna fulltrúa. Siðanefnd úrskurði í álitamálum. Sameining sveitarfélaga. Lýðræðisfræðsla í leik- og grunnskólum, félagasamtökum og stjórnsýslu. Hverfisráð þar sem íbúar hafa umboð til forgangsröðunar og ákvarðanatöku í sínu hverfi. Hefja rannsókn á stjórnsýslu borgarinnar. Upplýsa almenning um tengsl stjórnmála og atvinnulífs. Opið bókhald. Prófkjör án fjárframlaga frá fyrirtækjum og fjármagnseigendum. Virkt lýðræði. Auka gegnsæi. Stöðva spillingu. Láta þá svara til saka sem bera ábyrgð á hruninu. Standa vörð um stjórnarfarslegt, efnahagslegt og menningarlegt sjálfstæði Íslendinga, byggt á lýðræði, þingræði og réttaröryggi. Kaupa ávallt vinnu af viðurkenndum fagaðilum og girða fyrir undirboð kennitöluflakkara. Upplýsingar um borgarreksturinn verði öllum aðgengilegar. Gefa út á netinu hagtölur Reykjavíkur og helstu kennitölur. Stofna embætti umboðsmanns borgarbúa til að veita íbúum ráðgjöf um rétt sinn. Notendaráð leiðbeini stjórn Strætó Bs. Reykjavíkurráð ungmenna geti haft áhrif á leiðakerfi strætó. Halda Orkuveitunni í almannaeigu. Hún á að sjá borgarbúum fyrir vatni og rafmagni. Koma fjárhag hennar á réttan kjöl. Tryggja öllum börnum frá 18 mánaða aldri leik- skólapláss og systkinum aðgang að sama leikskóla. Yngri börn fái vistun hjá dagforeldrum á sama verði. Gera dagforeldra að hluta af leikskólasviði. Gera grunnskólum óheimilt að innheimta skólagjöld. Auka námsráðgjöf. Kenna lýðræði, trúarbrögð og tjáningu. Skylda grunnskóla til að hafa og framfylgja eineltisá- ætlun. Heildagsskóli með gjaldfrjálsum máltíðum. Stytta vinnudag barna með samþættingu frístunda- og skólastarfs. Auka samráð við börnin. Skólaráðgjöf í hverfun- um. Listnám á skólatíma og í skólahúsnæði. Allir skólar móti menningarstefnu með listafólki. Auka vægi siðfræði, heim- speki, tjáningar og samvinnu. Efla nýbreytni- og þróunarstarf, forvarnir, frístunda- og félagsstarf. Styrkja fræðsluhlutverk Húsdýragarðsins. Skólastjórar ráðnir til ákveðins tíma. Fyrstu tvö ár framhaldsskólans verði skólaskylda. Gjaldfrjálsir grunnskólar án aðgreiningar. Áhersla á list- og verknám, hreyfingu, útikennslu. Nýtt útlit og viðmót skóla. Nota timbur meira. Breyta leik- tækjum, burt með grátt, ljótt, slitsterkt og leiðinlegt. Inn með liti. Gera listir að grunnþætti í skólastarfi. Sameiginleg fræðsla og uppeldi fatlaðra og annarra. Sérskólar valkostur. Leysa húsnæðismál Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla í nýjum sameinuðum skóla. Vinna með öllum hagsmuna- aðilum. Enginn niðurskurður í listkennslu, lífsleikni eða þjónustu við börn. Tekjutengja leikskólagjöld. KOSNINGAR2010

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.