Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Side 36
36 föstudagur 28. maí 2010
21. Biðst þú afsökunar á mistökum þínum?
Ef já, hvernig? Já, ég geri það yfirleitt. Þá segi ég
frá því að mér þyki það leitt.
22. Hvað er það fyndnasta sem þú hefur séð
eða heyrt? Klovn-þættirnir dönsku eru ótrúlega
fyndnir.
23. Hvað er það síðasta sem þú gerir á kvöld-
in áður en þú ferð að sofa? Kyssi góða nótt eða
les í bók.
24. Hvernig heilsar þú fjölskyldunni þegar
þið vaknið á morgnana? Góðan daginn, hvern-
ig svafst þú? Dreymdi þig eitthvað?
25. Hvað yrði þitt fyrsta verk í hlutverki hins
kynsins ef það myndi breytast? Krefjast hærri
launa.
26. Hversu mörg kosningaloforð telur þú
að þú getir staðið við? Eins mörg og ég lofa, svo
framarlega sem ástandið í efnahagsmálum ver-
sni ekki.
27. Hvað er það versta sem þér hefur tek-
ist að fyrirgefa? Man það ekki. Ætli það sé ekki
hluti af fyrirgefningunni að dvelja ekki við það í
langan tíma.
28. Hvert er eftirminnilegasta ferðalagið
sem þú hefur farið í? Allar þær mörgu og löngu
tjaldútilegur sem ég hef farið í með sonum mín-
um eru mjög eftirminnilegar. Sérstaklega þegar
þeir voru mjög litlir og þurfti að hafa meira fyrir
þeim. Ég varð svo þreyttur á kvöldin að ég sofn-
aði alltaf á sama andartaki og þeir.
29. Hver er stærsta stundin í lífi þínu?
Stærstu stundirnar hafa flestar tengst sonum
mínum þremur. Áföngum í þeirra lífi sem við
deilum saman. Svo eru það auðvitað stundir
sem tengjast öðrum ástvinum.
30. Hver er þinn æðsti draumur? Að fá tæki-
færi til að auka heildarhamingjuna í samfélag-
inu, þó ekki væri nema örlítið og hugsa vel um
alla þá sem eru mér tengdir. Svo myndi ég vilja
verða forseti Sameinuðu þjóðanna.
Ég er lítið fyrir
óbyggðir
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri
og oddviti Sjálfstæðisflokksins
1. Hvað gerðir þú síðasta laugardagskvöld?
Við fjölskyldan horfðum á fjölskyldumynd í Rík-
issjónvarpinu. Mjög notalegt.
2. Hver var þín fyrsta hugsun í morgun? Er
klukkan virkilega orðin sjö?
3. Hvað lýsir þér best? Ætli þeir sem næst mér
standa myndu ekki segja stjórnsemi, en ég kalla
það gott skipulag.
4. Hver er fyrsta minning þín úr æsku? Ég sit
á gólfinu í kjallaraíbúðinni okkar og pabbi er að
þykjast töfra fram sælgæti.
5. Hvar, hvenær og hvernig var fyrsti koss-
inn? Hann var á unglingsárunum, en ég ætla nú
að halda smáatriðunum fyrir mig.
6. Hefur þú einhvern tímann fengið sælu-
hroll? Ef já, hvenær og af hverju? Já, þegar ég
hafði komið dætrum mínum í heiminn og fékk
þær í fangið.
7. Hvað er það villtasta sem þú hefur gert?
Tekið þátt í stjórnmálum.
8. Hefur þú verið nakin í óbyggðum? Ég er lít-
ið gefin fyrir óbyggðir.
9. Hefur þú prófað fíkniefni önnur en áfengi?
Reykt hass? Nei.
10. Hefur þú lent í klóm ræningja? Nei.
11. Hefur þú verið tekin af lögreglunni? Nei.
12. Ef þú ættir heima í öðrum heimi, hvar
væri það? Ég er verulega sátt við að vera í þess-
um heimi, en það væri gaman að prófa eitt-
hvað allt annað. Ítalskur smábær á 19. öld væri
áhugaverður.
13. Hvað er það sem þú myndir helst vilja
prófa? Sjá? Gera? Mig langar mest að sjá miklu
meira af heiminum.
14. Hver er besta stundin sem þú hefur upp-
lifað? Þegar ég gifti mig.
15. Hvenær og hvern kysstir þú síðast?
Manninn minn áður en ég fór í vinnuna í morg-
un.
16. Hefur þú gleymt afmælisdegi einhvers
sem skiptir þig máli? Já, en mér finnst það
hrikalega leiðinlegt, og kýs að gleyma slíkri
gleymsku sem fyrst.
17. Hvenær gleymdir þú barninu þínu síð-
ast? Það hefur sem betur fer ekki gerst.
18. Hver er einmanalegasta stundin sem þú
hefur upplifað? Ég er sjaldan einmana.
19. Hver er albesta máltíð sem þú hefur
fengið? Steiktur fiskur með sinnepssósu í eld-
húsinu hjá mömmu og pabba.
20. Hefur þú svikið einhvern? Ég verð að
viðurkenna að það gerist stundum að ég þarf að
breyta plönum og áformum með fjölskyldunni
vegna vinnunnar.
21. Biðst þú afsökunar á mistökum þínum?
Ef já, hvernig? Já, ég er alveg tilbúin að viður-
kenna mistök.
22. Hvað er það fyndnasta sem þú hefur
séð eða heyrt? Það er ekkert eitt en ég hlæ alltaf
mikið yfir Woody Allen-myndum.
23. Hvað er það síðasta sem þú gerir á
kvöldin áður en þú ferð að sofa? Þakka í hug-
anum fyrir daginn og hvað ég er lánsöm að eiga
góðan mann og yndisleg börn.
24. Hvernig heilsar þú fjölskyldunni þegar
þið vaknið á morgnana? Með því að bjóða góð-
an daginn.
25. Hvað yrði þitt fyrsta verk í hlutverki hins
kynsins ef það myndi breytast? Það veit ég ekki!
Raka mig?
26. Hversu mörg kosningaloforð telur þú
að þú getir staðið við? Ég hef staðið við þau lof-
orð sem ég hef gefið hingað til og mun reyna að
halda því áfram.
27. Hvað er það versta sem þér hefur tekist
að fyrirgefa? Ég á almennt mjög auðvelt með að
fyrirgefa.
28. Hvert er eftirminnilegasta ferðalagið
sem þú hefur farið í? Ætli það sé ekki námsferð
til Moskvu árið 1989.
29. Hver er stærsta stundin í lífi þínu? Þegar
ég eignaðist dætur mínar.
30. Hver er þinn æðsti draumur? Að dætur
mínar verði heilbrigðar og hamingjusamar.
Kveikti bál á
Skólavörðuholtinu
Helga Þórðardóttir, oddviti
Frjálslynda flokksins
1. Hvað gerðir þú síðasta laugardagskvöld?
Ég flaug yfir Grænlandsjökul, á flótta undan ösk-
unni úr Eyjafjallajökli.
2. Hver var þín fyrsta hugsun í morgun? Að
svara símanum sem hringdi.
3. Hvað lýsir þér best? Ég fer þangað sem ég
ætla mér.
4. Hver er fyrsta minning þín úr æsku?
Mamma að bera á mig krem.
5. Hvar, hvenær og hvernig var fyrsti koss-
inn? Eiríksgötu, 1977, eftirminnilegur, hinir eru
gleymdir.
6. Hefur þú einhvern tímann fengið sælu-
hroll? Oft, þegar ég upplifi vináttu barnanna
minna til hvers annars.
7. Hvað er það villtasta sem þú hefur gert?
Þegar við unglingarnir kveiktum í rusli á Skóla-
vörðuholtinu á bak við gaggó Aust. Allt slökkvi-
lið borgarinnar mætti á staðinn því logarnir sáust
í gegnum gluggana og talið var að um stórbruna
væri að ræða.
8. Hefur þú verið nakin í óbyggðum? Nei.
9. Hefur þú prófað fíkniefni önnur en áfengi?
Reykt hass? Nei.
10. Hefur þú lent í klóm ræningja? Bara
þeirra sem sérstakur saksóknari er að fást við
þessa dagana.
11. Hefur þú verið tekin af lögreglunni?
Nei.
12. Ef þú ættir heima í öðrum heimi, hvar
væri það? Skuldlausum heimi.
13. Hvað er það sem þú myndir helst vilja
prófa? Sjá? Gera? Fara til S-Ameríku og dansa
tangó.
14. Hvað er besta stundin sem þú hef-
ur upplifað? Þær eru fjórar og heita Magnús,
Þórður, Kristbjörg og Guðlaug.
15. Hvenær og hvern kysstir þú síðast?
Áðan, manninn minn.
16. Hefur þú gleymt afmælisdegi einhvers
sem skiptir þig máli? Örugglega, en ég man
ekki hvenær.
17. Hvenær gleymdir þú barninu þínu síð-
ast? Aldrei nokkurn tímann.
18. Hver er einmanalegasta stundin sem þú
hefur upplifað? Ég hef aldrei verið einmanna,
alltaf verið umvafin vinum og fjölskyldu.
19. Hver er albesta máltíð sem þú hefur
fengið? Selveislurnar hans pabba.
20. Hefur þú svikið einhvern? Kannski, en
þá óviljandi.
21. Biðst þú afsökunar á mistökum þínum?
Ef já, hvernig? Já, með orðum og í verki.
22. Hvað er það fyndnasta sem þú hefur séð
eða heyrt? Jón Gnarr ... Djók!
23. Hvað er það síðasta sem þú gerir á
kvöldin áður en þú ferð að sofa? Lesa.
24. Hvernig heilsar þú fjölskyldunni þegar
þið vaknið á morgnana? Býð góðan daginn.
25. Hvað yrði þitt fyrsta verk í hlutverki hins
kynsins ef það myndi breytast? Pissa stand-
andi.
26. Hversu mörg kosningaloforð telur þú
að þú getir staðið við? Öll.
27. Hvað er það versta sem þér hefur tekist
að fyrirgefa? Ég hef ekki upplifað slíkt.
28. Hvert er eftirminnilegasta ferðalagið
sem þú hefur farið í? Brúðkaupsferðin mín fyrir
30 árum.
29. Hver er stærsta stundin í þínu lífi?
Stundirnar þegar börnin mín fæddust.
30. Hver er þinn æðsti draumur? Góð heilsa
og hamingjuríkt líf í faðmi fjölskyldunnar.
Amen.
Fær raðsæluhroll
Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins
1. Hvað gerðir þú síðasta laugardags-
kvöld? Hugsa um Besta flokkinn og hvað væri
gaman að vera í honum.
2. Hver var þín fyrsta hugsun í morgun?
Hvað allir væru að tala vel um Besta flokkinn.
3. Hvað lýsir þér best? Besti flokkurinn.
4. Hver er fyrsta minning þín úr æsku? Af
mömmu og vinkonum hennar að laga á sér
hárið og reykja.
5. Hvar, hvenær og hvernig var fyrsti koss-
inn? Núpur í Dýrafirði 1981. Hann var fínn.
6. Hefur þú einhvern tímann fengið sælu-
hroll? Ef já, hvenær og af hverju? Sæluhrollur
er hluti af lífi mínu. Ég fæ raðsæluhroll þessa
dagana.
7. Hvað er það villtasta sem þú hefur gert?
Þegar ég fór í svett.
8. Hefur þú verið nakinn í óbyggðum? Nei.
9. Hefur þú prófað fíkniefni önnur en
Þegar við ungling-arnir kveiktum í rusli
á Skólavörðuholtinu á bak
við gaggó Aust. Allt slökkvi-
lið borgarinnar mætti á
staðinn.
KOSNINGAR2010