Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Page 44
Hálfsjötugur fyrrverandi forseti stendur með byssu í hendi á miðj- um fótboltavelli fyrir framan þús- undir manna. Hann hleypir af byss- unni og skýtur ungan blaðamann í brjóstið og drepur hann. Þetta gerð- ist fyrir 90 árum í Montevídeó, höf- uðborg Úrú gvæ, á sama fótbolta- velli og leikið var á opnunarleik fyrsta heimsmeistaramóts sögunn- ar. Hvernig gerðist það? Einn sá áhrifamesti Á fyrstu áratugum nýliðinnar ald- ar gekk suður-ameríska ríkið Úrú- gvæ í gegnum miklar breytingar. Um aldamótin blasti þjóðargjaldþrot við landinu þegar borga þurfti af gríðar- lega hárri erlendri skuld. Árið 1903 var ritstjórinn, José Batlle y Ordo- ñez, kjörinn forseti og náði hann að greiða úr mörgum vandamálum landsins. Í bók Sigurðar Hjartarsonar, Þætt- ir úr sögu Rómönsku Ameríku, seg- ir: „Batlle y Ordoñez hefur haft meiri áhrif á hugsanagang og pólítíska stefnumótun þjóðar sinnar en nokk- ur annar maður.“ Hann var forseti á árunum 1903-1907 og 1911-1915 og nútímavæddi land sitt. Batlle y Or- doñez, sem var sjálfur forsetasonur og af frægri ætt stjórnmálamanna, var meðlimur í Rauðaflokknum en hann var mjög valdamikill alla tut- tugustu öldina og barðist við hina valdablokk landsins, Hvítaflokkinn. Elskaði fótbolta José Batlle y Ordoñez var gífurlega valdamikill maður í úrúgvæsku samfélagi árin eftir valdatíð sína sem forseti og hélt áfram að skrifa um þjóðfélagsmál í dagblað sitt, El Día. Hann var orðhvass maður en lipur penni og hafði skoðun á öll- um hliðum samfélagsins. Batlle y Ordoñez heillaðist af knattspyrnu- íþróttinni en á þessum árum bjó Úr- úgvæ yfir einu sterkasta fótboltaliði heims. Eitt sinn leiddist honum þó á leiðinlegum leik á vellinum í Mont- evídeó og sagði: „Væri ekki undur- samlegt ef áhorfendurnir væru 22 og leikmennirnir 10.000?“ Skoraði ungan mann á hólm Árið 1920 skrifaði Washington Belt- rán Barbat, 35 ára gamall blaðamað- ur og þingmaður Hvítaflokksins, harðorða grein í dagblaðið El País um arfleifð forsetans fyrrverandi. José Batlle y Ordoñez, sem var orð- inn 64 ára og nokkuð uppstökkur, jafnvel farinn að kalka, brást ókvæða við og sakaði unga manninn um meiðyrði og skoraði hann á hólm! Einvígi voru algeng á átjándu og nítjándu öld í Suður-Ameríku, líkt og víðast hvar í heiminum. En þau þekktust varla á þeirri tuttugustu og voru bönnuð í mörgum löndum. En af einhverjum sökum voru einvígi enn leyfileg í Úrúgvæ árið 1920 og í raun ekkert sem gat komið í veg fyrir að þau færu fram þótt margir fylltust líklega óhug. 20.000 áhorfendur á einvígi Washington Beltrán Barbat virt- ist hvergi banginn og samþykkti að mæta José Batlle y Ordoñez, fyrr- verandi forseta lýðveldisins, í byssu- einvígi fyrir framan áhorfendaskara daginn eftir. Ákveðið var að einvígið færi fram á stærsta knattspyrnuvelli Úrúgvæ, Estadio Gran Parque Cent- ral, en á þeim velli var spilaður fyrsti leikurinn í fyrstu heimsmeistara- keppni sögunnar í fótbolta, tíu árum síðar, árið 1930. Rétt fyrir hádegi daginn eft- ir, föstudaginn langa 1920, mættu Washington Beltrán Barbat og José Batlle y Ordoñez til leiks, hvor um- kringdur sínum bandamönnum og aðdáendum. Áhorfendur voru lík- lega um 20.000 talsins. Hvítaflokks- menn og rauðaflokksmenn sátu í sitthvorri stúkunni og biðu einvígis- ins í ofvæni. Fögnuður og sorg Það rigndi eins og hellt væri úr fötu á föstudaginn langa 1920 og voru hólmgöngumennirnir hold- votir þegar þeir stóðu andspænis hvor öðrum. Læknar stóðu á hlið- arlínunni. Einvígið hófst og skutu báðir fram hjá í fyrstu umferð og hlóðu byssurnar að nýju. Í það skiptið skaut Batlle y Ordoñez í brjóstið á Washington Beltrán sem hrópaði: „Ég er særður!“ og lést ör- skömmu síðar. Bandamenn fyrr- verandi forsetans gamla ærðust af fögnuði og hrópuðu hvatningar- orð til hans á meðan flokksbræð- ur, vinir og vandamenn hins látna báru hann á líkbörum út af leik- vanginum. Víst þótti að hinn 35 ára gamli Washington Beltrán Barbat væri ein helsta vonarstjarna úrúg- væskra stjórnmála og þótti missir- inn mikill. Barnabörnin hittust Árið 2008, á níitíu ára afmæli El País, dagblaðs Washingtons Beltrán, skrifaði Antonio Mercader grein um einvígið fræga en hann er fyrrver- andi menntamálaráðherra í Úrúg- væ. Þar ritar hann um persónulega minningu sem tengist einvíginu. José Batlle Cherviere, barnabarn José Batlle y Ordoñez, bauð Merca- der í veislu á sveitabýli fyrir um fjörtíu árum. Veislugestir voru ýms- ir ungir menn sem þá fetuðu fyrstu skrefin í valdastiga úrúgvæskra stjórnmála og voru pólítískir and- stæðingar þar á meðal. Og svo ótrú- lega vildi til að einn veislugesta var enginn annar en Washington Belt- rán Storace, blaðamaður og barna- barn Washingtons Beltrán! Þegar leið á kvöldið og gestirnir voru orðn- ir örlítið hífaðir stóðst José Batl- le Cherviere ekki lengur mátið og spurði Washington Beltrán Storace: „Viltu sjá byssuna sem afi minn drap afa þinn með?“ helgihrafn@dv.is 44 föstudagur 28. maí 2010 xxxxxxxxxx „Viltu sjá byssuna sem afi minn drap afa þinn með?“ Áhrifamesti stjórnmálamaður Úrúgvæ drap ungan stjórnmálaandstæðing sinn á fótboltavelli á föstudaginn langa árið 1920. Einvígi þekktust varla á þessum tíma, en engin lög bönnuðu þau. Tvær stjórnmálafylkingar hafa barist um völdin í Úrúgvæ lengur en elstu menn muna. Hinn ungi Washington Beltrán þótti afar efnilegur. Hinn gamli José Batlle y Ordoñez var stór og stæðilegur maður. Jarðarförin Þúsundir manna fylgdu Washington Beltrán til grafar. Byssan Skammbyssan, sem Batlle y Ordoñez drap Beltrán með, var af Galand-gerð sem hér sést. Byssan komst síðar í hendur barna-barns hins fyrrnefnda sem sýndi barnabarni Beltráns hana. Hitti barnabörnin Antonio Mercader, fyrrverandi menntamálaráðherra Úrúgvæ, hitti barnabörn Beltráns og Batlle y Ordoñez í veislu árið 1968.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.