Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Síða 46
Rainhill-moRðin Frederick Bailey Deeming var Breti sem framdi
morð sín í Ástralíu. Hann var uppi á síðari hluta nítjándu aldar. Sextán ára að aldri
strauk Frederick á sjóinn og í kjölfarið hófst langur glæpaferill. Glæpir hans ein-
kenndust fyrst og fremst af þjófnaði og svikum, en hann var einnig ábyrgur fyrir
dauða eiginkonu sinnar og fjögurra barna og hann endaði ævi sína í gáganum.
Lesið um Frederick Bailey og Rainhill-morðin í næsta helgarblaði DV.
Moorhouse-Morðin
David John Birnie og Catherine Margaret Birnie voru ástralskir raðmorðingjar og sambýlisfólk. Á níunda
áratug síðustu aldar myrtu þau fjórar konur á aldrinum fimmtán ára til þrjátíu og fimm. Öllum fórnarlömb-
unum var kynferðislega misþyrmt á heimili skötuhjúanna.
Hús númer þrjú við Moorhouse-
stræti í Willage í úthverfi Perth í
Ástralíu var ekki eftirtektarvert.
Það var ekki fallegasta húsið við
götuna, garðurinn var í órækt og
allt benti til lítillar umhirðu. En það
sem átti sér stað í húsinu árið 1986
gerði það alræmt í huga þeirra
sem bjuggu í grenndinni. Húsið
var heimili Davids og Catherine
Birnie, pars sem nauðgaði, pyntaði
og myrti ungar konur sér til ánægju
og kynferðislegrar fullnægju.
David fæddist árið 1951og var
elstur sex systkina. Foreldrarnir
voru áfengissjúklingar og áttu erfitt
með að sjá fjölskyldunni farborða
sökum lítilla tekna og þegar þeir
skildu vildu hvorki móðirin né fað-
irinn nokkuð með David að hafa og
var hann settur á sveitina.
Catherine fæddist 1951 og
missti móður sína við tíu mánaða
aldur. Hún var þá send til föður
síns sem þá bjó í Suður-Afríku, en
hann sendi Catherine aftur til Ástr-
alíu tveimur árum síðar. Catherine
var dapurt barn og átti enga vini
en þráði svo mjög að finna til ást-
ar. Hún og David kynntust sem ung
börn, en síðan skildi leiðir.
Þjófnaðir, innbrot
og fangelsisvist
Kynni Davids og Catherine komust
í samband á ný seint á unglingsár-
unum og næstu ár einkenndust af
innbrotum og þjófnuðum og árið
1969 var David dæmdur til níu
mánaða fangelsisvistar en Cather-
ine slapp með skilorð því hún var
með barni.
Skömmu síðar bættust þrjú ár
við fangelsisvist Davids og Cather-
ine fékk fjögurra ára skilorð ofan á
fyrri dóm.
Árið 1970 strauk David úr fang-
elsi og skötuhjúin sameinuðust
á ný. Þess var skammt að bíða að
þau kæmust í kast við lögin og um
mitt ár 1970 var David dæmdur til
tveggja og hálfs árs fangelsisvistar
og Catherine fékk hálfs árs dóm.
Barn Catherine var sett í umsjá vel-
ferðarkerfisins.
Skömmu eftir að Catherine var
sleppt úr fangelsi kynntist hún
ungum manni, Donald McLaug-
hlan, og giftist honum. Skömmu
síðar eignuðust þau barn, en það
lést sjö mánuðum síðar af slysför-
um. Árin liðu og hjónin eignuðust
fimm börn en brestir voru komnir
í hjónabandið. Catherine var farin
að sakna Davids.
Deildu kynferðisórum
Catherine yfirgaf eiginmann sinn
og börn og flutti inn til Davids og
þrátt fyrir að þau væru ekki gift
tók Catherine upp eftirnafn Dav-
ids. David hafði óseðjandi kynlífs-
löngun og þau íhuguðu að ræna
og nauðga ungum stúlkum. Þau
komust að því að kynlífsórar þeirra
voru af sama toga og í október 1986
hófust drápin.
Fyrsta fórnarlamb Davids og
Catherine var 22 ára sálfræðinemi,
Mary Nelson. 6. október 1986 kom
Mary á dekkjaverkstæði þar sem
David starfaði og vildi kaupa dekk.
David stakk upp á því að þau hitt-
ust heima hjá honum þar sem þau
gætu samið um verð. Þangað kom-
in var Mary ógnað með hnífi og
hún bundin, kefluð og hlekkjuð við
rúm Davids og Catherine.
David nauðgaði Mary ótal sinn-
um á meðan Catherine horfði á.
Síðan fóru þau með Mary til Glen-
eagles-þjóðgarðsins þar sem henni
var nauðgað einu sinni enn. Síðan
kyrkti David Mary og stakk hana
með eggvopni áður en hún var
grafin. Bifreið Mary fannst yfirgef-
in sex dögum síðar.
Fimmtán ára puttalingur
Annað fórnarlambið var fimmtán
ára puttalingur, Susannah Candy,
sem varð á vegi Davids og Cath-
erine á Sterling-þjóðveginum 20.
október. Susannah var tekin nauð-
ug viljug á heimili morðparsins
við Moorhousestræti og fékk þar
sömu útreið og Mary. En þegar
David hugðist kyrkja Susönnuh
gekk það brösulega því hún var
svo móðursjúk. Því brá hann á það
ráð að neyða ofan í hana handfylli
af svefntöflum og þegar hún var
orðin meðfærilegri vildi hann að
Catherine sannaði ást sína til hans
með því að myrða Susönnuh.
Catherine brást vel við beiðni
Davids og kyrkti stúlkuna og var
hún grafin í skóglendi ekki langt
frá hinsta hvílustað Mary.
Flugfreyjan Noelene Patterson
var þriðja konan sem flæktist í vef
skötuhjúanna. Noelene var sjarm-
erandi og fögur kona og uppskar
strax mikið hatur af hálfu Cather-
ine því Noelene var allt sem Cath-
erine var ekki. Noelene hafði lent í
vandræðum með bíl sinn á Cann-
ing-þjóðveginum þegar David og
Catherine urðu á vegi hennar.
David varð svo hrifinn af Noel-
ene að hann hélt henni á lífi á þrjá
daga. Þá var Catherine nóg boð-
ið og krafðist þess að David myrti
Noelene, sem hann og gerði við
mikla ánægju sambýliskonu sinn-
ar. Gröf Noelene var skammt frá
gröfum hinna stúlknanna.
Öxi í höfuðið
Hin morðóðu skötuhjú fundu
fjórða, og síðasta, fórnarlamb
sitt 5. nóvember þegar þau buðu
hinni 21 árs Denise Brown far
þar sem hún beið eftir strætis-
vagni. Líkt og hinar konurnar var
hún tekin á heimili parsins þar
sem hún var hlekkjuð við rúmið
og henni nauðgað.
Síðan var farið með Denise á
plantekru í Wanneroo þar sem
henni var nauðgað í bílnum og
á meðan David nauðgaði henni
stakk hann hana í hálsinn. Síð-
an hófust David og Catherine
handa við að taka henni gröf.
Mikil var undrun þeirra þeg-
ar Denise settist upp og öskraði
af lífs og sálarkröftum, en David
greip þá öxi og klauf höfuð henn-
ar í tvennt. Árásin var svo hroða-
leg að jafnvel Catherine fannst
nóg um.
Síðar kom í ljós að litlu mátti
muna að önnur stúlka félli í
hendur Davids og Catherine
þennan sama dag. Nítján ára
stúlka mundi, eftir að hafa séð
mynd af skötuhjúunum í dag-
blaði, að hún hafði hitt þau dag-
inn sem Denise hvarf. Þau höfðu
boðið henni far, en stúlkan hafði
afþakkað því konan hafði lykt-
að af áfengi auk þess sem þriðja
manneskjan í bílnum lá í ólögu-
legri hrúgu í aftursætinu.
Fórnarlambið sem
slapp með skrekkinn
Lögreglan var nú sannfærð um
að raðmorðingi væri á ferli enda
höfðu fjórar ungar konur horfið af
yfirborði jarðar á aðeins 27 dögum.
Fimm dögum eftir hvarf Denise
hljóp á snærið hjá lögreglunni þeg-
ar sautján ára stúlka kom hlaup-
andi, hálfnakin og móðursjúk, inn
í stórmarkað og sagði að sér hefði
verið nauðgað.
Hún var færð á lögreglustöð-
ina og sagði sögu sína; henni hafði
verið rænt og hún færð í hús þar
sem hún var afklædd og hlekkjuð
við rúm. Henni hafði síðan verið
nauðgað á meðan kona ein fylgdist
áhugasöm með. Næsta morgun var
hún ein í húsinu ásamt konunni og
grátbað um að vera leyst úr hlekkj-
unum. Stúlkunni til mikillar undr-
unar varð konan við beiðninni og
skipaði henni síðan að hafa sam-
band við fjölskyldu sína og segja
þeim að hún væri í heimsókn hjá
vinum. Þegar konan þurfti síðar að
fara til dyra tókst stúlkunni að flýja
út um svefnherbergisgluggann.
UmSjón: koLBeinn þoRSteinSSon, kolbeinn@dv.is
46 föstudaguR 28. maí 2010 sakamál
Mikil var undr-un þeirra þegar
Denise settist upp og
öskraði af lífs og sál-
arkröftum, en David
greip þá öxi og klauf
höfuð hennar í tvennt.
Catherine Birnie Horfði með ánægju á þegar sambýlismaður hennar nauðgaði fórnarlömbunum.