Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Side 50

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Side 50
Börn valda þunglyndi Samkvæmt nýlegri rann- sókn hefur foreldrahlutverkið afdrifaríkar afleiðingar fyrir geð- heilsu okkar. Barnafólk er líklegra en barnlaust fólk til að þjást af þunglyndi og vandamálin virðast versna þegar börnin flytja að heiman. „Foreldrar hafa meiri áhyggjur en aðrir,“ segir Robin Simon prófessor í Flórida State-háskólanum sem segir foreldra eldri barna áhyggjufyllri en foreldrar yngri barna. „Lít- il börn, lítil vandamál. Stór börn, stór vandamál.“ Samkvæmt nýrri rannsókn er hjónaband mikilvægara fyrir karl- menn en konur – allavega þá sem vilja lifa lengi. Fyrri rannsóknir hafa gefið til kynna að menn sem eiga yngri konur lifi lengur. Flestir töldu að hið sama ætti við um kon- ur sem ættu yngri menn. Ný rann- sókn, frá Sven Drefahl frá Max Planck Institute for Demographic Research, sýnir hið gagnstæða. Eftir því sem meiri aldursmunur er á milli konu og eiginmanns, því styttri eru lífslíkur hennar, sama hvort makinn sé yngri eða eldri en hún. Eiginmaður sem er sjö til níu árum eldri en eiginkonan er 11% ólíklegri til að deyja ungur en karl- maður giftur konu á sama aldri. Á hinn bóginn, virðast karlmenn sem eru giftir eldri konum deyja fyrr. Um árabil hafa vísindamenn talið að það sama gilti um konur og töldu að um ákveðið „heilsuval“ væri að ræða; þeir sem völdu sér yngri maka gætu það vegna góðr- ar heilsu og væru því þegar með lengri lífslíkur og einnig að ungur maki hefði jákvæð áhrif á lífstílinn og reyndist betri umönnunaraðili í ellinni sem svo olli því að lífslíkur lengdust. Drefahl studdist við gögn tveggja milljóna Dana og komst að því að bestu líkur kvenna, til að lifa sem lengst, er að giftast manni á sama aldri. Eldri eiginmaður stytti lífslíkur hennar talsvert og yngri eiginmaður enn meira. Lífslíkur karla sem eiga ungar konur eru betri en þeirra sem eiga eldri konur. yngri eiginkonur lengja lífið UmSjón: indíana áSa hReinSdóttiR, indiana@dv.is 7 merki um að þú sért ástfangin/n Hjónabandsráðgjafarnir dr. Charles og Elizabeth Schmitz hafa rannsakað ástfangið fólk og hvað einkennir það. 1 Líkamlegt ástand: Ástfangnir fá gæsahúð, hraðan hjartslátt, sveitta lófa og kitlandi tilfinn- ingu um allan líkama. 2 Tilfinningalegt ástand: Þegar ástfangnir sjá elskuna sína geta þeir ekki annað en brosað og þeir sakna hennar um leið og hún yfirgefur herbergið. Ást- fangið fólk upplifir tilfinningar gagnvart elskunni sinni sem það finnur ekki fyrir gagnvart öðrum. 3 Jákvæðar áhyggjur: Dr. Charles og Elizabeth Schmitz segja ástfangið fólk þjást af áhyggjum af elskunni sinni. Það hugsi stöðugt um að hringja og athuga hvort allt sé í lagi. 4 „Get ekki hugsað mér lífið án hennar/hans“: Þegar þú kemst að þetta skeið ertu farin að huga að framtíðinni. Þegar þú getur ekki ímyndað þér lífið án elskunnar þinnar ertu ást- fangin/n! 5 Sameining: Þú hættir að hugsa lífið og tilveruna út frá „mér“ og ferð að hugsa alla hluti út frá „okkur“. 6 Upptekin ást: Þú hugsar um ástina þína í tíma og ótíma og getur einfaldlega ekki náð henni úr huga þér. 7 Auðveld tjáning ástarinnar: Þú hefur loksins hugrekki til að segja manneskjunni sem þú ert að deita að þú elskir hana. Helst vildirðu hrópa : ÉG ELSKA ÞIG! ÉG ELSKA ÞIG! Hugsa betur um falleg börn Samkvæmt kanadískri rannsókn hugsa foreldrar betur um fallegri börn sín en þau ómyndarlegri. Vísindamenn í háskólanum í Alberta skoðuðu hvernig for- eldrar komu fram við börn sín í stórmarkaði og komust að því að útlit barnanna skiptir verulegu máli. Fallegri börnin voru líklegri til að vera fest niður í innkaupa- kerru, fá meiri athygli í búðar- ferðinni og vera síður leyft að standa upp í kerrunni og stofna sér þannig í hættu. Í rannsókn- inni kom í ljós að feður láta útlit- ið hafa enn meiri áhrif á umönn- un en mæðurnar. Ef þú hefur haldið fram- hjá elskunni þinni en gerir þér grein fyrir hve hrikaleg mistök það voru er mögu- leiki á að bjarga sambandinu. Það er aldrei auðvelt að viðurkenna framhjáhald og þú veist aldrei hvaða afleiðing- ar hreinskilnin mun hafa. Hér eru nokkur ráð til að koma þér af stað. 50 föstudagur 28. maí 2010 lífsstíll Ung eiginkona Samkvæmt rann- sóknum lifa karlmenn sem eiga ungar eiginkonur lengur. mynd Photos.com Vertu viss um að vilja segja frá: Að segja henni frá framhjáhaldi gæti þýtt lok sambands ykkar. Ef þú veist að þú gerðir mistök og ert viss um að þú munir aldrei gera þetta aftur ættirðu kannski að halda leyndar- málinu fyrir þig. Það fer allt eftir því hversu vel þér tekst að lifa með sam- visku þinni. Ef þú telur þig ekki getað lifað með þetta leyndarmál án þess að springa á endanum er best að leysa af skjóðunni sem fyrst. Segðu henni strax eða ekki. Af hverju viltu segja frá: Ef þú ert að koma hreint fram af því að „hjákonan“ er að hóta þér er það ekki besta ástæða í heiminum en samt skiljanleg. Þú vilt vera sá sem segir frá brotinu. Ef makinn fær frétt- irnar annars staðar frá eru líkurnar á að sambandið lifi af mun minni. Ef þú vilt segja frá framhjáhaldinu í von um að særa hana þarftu að leita þér andlegrar aðstoðar. Ef þú vonast til að framhjáhaldið endi samband- ið þarftu að manna þig upp og slíta sambandinu sjálfur. Ekki líta á fram- hjáhald sem auðvelda leið út, slíkt er aðferð aumingja. tímasetning skiptir öllu: Því lengri tími sem líður frá brotinu því verra. Hún mun eiga erfitt með að trúa að þú sjáir virkilega eftir þessu ef þú ert að koma hreint fram mörgum mánuðum seinna. Reyndu að búa til sem bestar aðstæður áður en þú opnar þig. Ekki segja frá í fjöl- menni eða þegar hún er undir álagi í vinnu eða hefur rifist við bestu vinkonuna. Það að bjóða henni út á glæsilegt stefnumót, nudda hana og láta renna í heitt froðubað til að reyna að mýkja hana fyrir fréttirnar virkar ekki vel. Notaðu slíkt eftir á, það er ef hún gefur þér tækifæri til þess. Undirbúðu þig fyrir það versta: Þar sem þú ert líklega sú mann- eskja sem þekkir hana best ættirðu að hafa einhverja hugmynd um það hvernig hún mun bregðast við frétt- unum. Ímyndaðu þér verstu mögu- legu aðstæðurnar: Mun hún brjál- ast og henda öllu draslinu þínu út á stétt? Mun hún brotna niður og gráta í marga daga? Mun hún ráðast á þig með steikarpönnu að vopni? Veltu möguleikunum fyrir þér og undir- búðu þig. Segðu vini að þú þurfir mögulega að fá að gista nokkrar næt- ur, undirbúðu þig fyrir að þurfa að sitja yfir henni næstu nætur eða fjar- lægðu öll möguleg vopn. Að segja frá: Byrjaðu að segja henni að þú elsk- ir hana. Segðu svo að þú hafir gert mistök sem þú lofir að þú mun- ir aldrei gera aftur. Hún þarf ekki á öllum hrikalegu smáatriðunum að halda. Mundu að ítreka að það hafi ekki verið tilfinningar í spil- inu. Það getur varla verið fyrst þú ert að reyna bjarga sambandinu við hana, konuna sem þú virkilega elskar. Settu karlmennskuna til hliðar og sýndu þínar viðkvæmustu hlið- ar (ef þú hefur ekki viðkvæma hlið værirðu varla að segja frá). Gerðu þér grein fyrir skaðanum sem þú hefur valdið sambandinu og segðu henni að þú sjáir virki- lega eftir þessu. Það skemmir ekki að missa nokkur tár. Ekki þrýsta á að hún taki ákvörðun um fram- haldið á staðnum. Gefðu henni tíma til að vega og meta það sem hún hefur fengið að heyra. Hvernig segirðu frá framHjáHaldinu?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.