Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Page 54
54 föstudagur 28. maí 2010 helgarblað
Grínframboð eru ekki ný af nálinni. Hvorki hér á landi né erlendis. En það er hins vegar afar sjaldgæft
að grínframboð mælist með jafnógnarsterkt fylgi og Besti flokkurinn gerir fyrir sveitarstjórnakosning-
arnar. Flokkurinn gæti ekki bara verið að skrá sig á spjöld sögunnar hér heima ef kannanir ganga eftir
heldur um heim allan. DV tók saman nokkur þekkt grínframboð víða um heim.
Grínframboð
víðsvegar um heiminn
OfurbOrgarinn í
latexbúningnum
n Antanas Mockus, fyrrverandi borgarstjóri Bogatá í Kolumbíu, er
kannski ekki ósvipaður Jóni Gnarr. Reyndar er hann prófessor en
ekki grínisti en Mockus gerði mikið út á húmorinn. Hann klæddist
reglulega latexbúningi og skykkju. Hann gekk svo um götur borg-
arinnar sem „Ofurborgarinn“. Hann lét einnig látbragðsleikara stýra
umferðinni þar sem hún gat ekki versnað þegar hann tók við. Mockus
sat tvö kjörtímabil.
nashyrninga-
flOkkurinn í kanada
n Það hefur ekki vantað neitt upp á grínframboðin í Kanada en það
frægasta er líklega Nashyrningaflokkurinn sem var stofnaður árið 1963.
Í yfir 30 ár voru þeir á forsíðum blaðanna með skringileg uppátæki sín
og kosningaloforð á borð við að þeir myndu ekki standa við neitt af
sínum loforðum. Einnig ætluðu þeir að afnema lögin í þyngdarlögmálinu
og geyma allan eiturefnaúrgang landsins á gólfinu í þingsalnum. Þeir
sögðu að þar væri hvort eð er geymt allt pólitískt rusl síðustu ára.
Nashyrningaflokkurinn gerði ávallt ágætlega í kosningum en flokkurinn
endaði eitt sinn í öðru sæti í bæjarstjórakosningum þar sem þeir tilnefndu
atvinnutrúð sem bæjarstjóra. Einnig stálu þeir hundruðum atkvæða í
næstu þingkosningum þar sem sami trúður leiddi flokkinn.
byssu- Og dópflOkkur-
inn í bandaríkjunum
n Það er ekki lengra síðan en 2003 að rithöfundurinn Robert Anton
Wilson stofnaði Byssu- og dópflokkinn í Bandaríkjunum. Hann fór
upp á móti Arnold Schwarzenegger og hans flokki í baráttunni um
fylkisstjórastöðuna í Kaliforníu en fyrrverandi hasarmyndahetjan
vann þær kosningar eins og allir vita. Byssu- og dópflokkurinn stóð
fyrir þeirri hugmynd að ef hægri sinnaðir byssuelskendur og vinstri
sinnaðir dópistar myndu standa saman yrði til úr því einn óstöðvandi
meirihluti fólks. Slagorð flokksins var því: „Ég skal þola þín áhugamál
ef þú þolir mín.“ Til þess að bæta aðeins við grínið lofaði flokkurinn líka
að skipta út þriðjungi alþingismanna fyrir strúta og hvatti flokkurinn
fólk einnig tiil þess að setja sín eigin nöfn á kjörseðilinn þegar kosið
var um forseta Bandaríkjanna árið 2005.
kanadíski fjölbragða-
glímuflOkkurinn
n Árið 1999 stofnuðu nokkrir fjölbragðaglímukappar flokk á
Nýfundnalandi en það er undir kanadískri lögsögu. Flokkurinn
varð strax frægur fyrir það að velja oddvita sinn með ellefu manna
glímubardaga þar sem sá síðasti sem eftir stóð vann og leiddi
flokkinn. Þrátt fyrir þessa sérstöku aðferð til að velja oddvita var
flokkurinn nokkuð alvarlegur í málefnum sínum. Vildu þeir að
meira yrði gert í umhverfis- og fjármálum ásamt því að þeir beittu
sér mikið í umsókn Kanada til Nato. Árið 2000 sóttist einn meðlimur
flokksins, WWF-stjarnan Sailor King Moondog White, eftir sæti á
þingi en endaði í síðasta sæti af þeim fimm sem kosið var um.
ungfrú bretland-
flOkkurinn
n Oft er grínast með það að kosningabarátta sé eins og fegurðar-
samkeppni en það á svo sannarlega við um meðlimi flokksins Ungfrú
Bretland sem stofnaður var árið 2008. Meðlimir í honum eru nær allir
fyrrverandi þátttakendur í keppninni um ungfrú Bretland en formaður
keppninnar stofnaði flokkinn undir slagorðinu: „Gerum Alþingi sexí,
ekki sóðalegt.“ Flokkurinn hefur tekið þátt í nokkrum kosingum á
síðustu tveimur árum en ekki fengið miklar undirtektir. Málefni flokks-
ins eru bæði grín og af alvarlegum toga. Hann vill laga skattkerfið á
Bretlandi, jöfn laun beggja kynja en einnig að einu sinni á ári taki fólk
sér frídag til þess að líta frábærlega út.
alvarlegi mcgilli-
cuddy-flOkkurinn
á nýja-sjálandi
n Þessi flokkur starfaði í Nýja-Sjálandi í mörg ár á níunda og tíunda
áratugnum. Slagorð hans var: „Ef þú vilt eyða atkvæði þínu í ekkert,
kjóstu okkur.“ Flokkurinn var þekktur fyrir sínar einkennilegu
leiðir að velja fólk á listana sína. Notast var við berhent slagsmál,
bardaga með sverðum gerðum úr dagblöðum, vatnsblöðruslag og
risastóran stólaleik. Stefnumál flokksins voru enn skrítnari. Nokkur
þeirra voru að aðeins þeir sem væru undir átján ára mættu kjósa,
samkynhneigð væri skylda fyrir þriðjung landsins og auðvitað var
aðalatriðið að þeir ætluðu ekki að standa við nein loforð.
flOkkurinn fyrir
þá sem hræddir eru
við að vinna
n Ólíkt mörgum grínframboðum tókst þessum flokk að vinna einar
kosningar. Hann var stofnaður í Danmörku af grínistanum Jacob
Haugaard sem notaði flokkinn til þess að vinna sér inn sæti á danska
þinginu. Þrátt fyrir fáránleg kosningaloforð á borð við betra veður,
betri jólagjafir og réttinn til getuleysis fékk flokkurinn 20.000 at-
kvæði í þingkosingunum árið 1994 og komst Jacob því á þing. Hann
sat eitt fjögurra ára kjörtímabil áður en hann hætti í pólitík. Honum
tókst þó að uppfylla nokkur af kosningaloforðum sínum eins og það
að endurnar í görðum Kaupmannahafnar fengju meira brauð.
algjörlega geggjaði
flOkkurinn í bretlandi
n Algjörlega geggjaði flokkurinn er einn sá best þekkti og farsælasti af
öllum þeim sem hafa stofnað til grínframboða. Hann var stofnaður af
tónlistarmanninum David Sutch í byrjun níunda áratugarins. OMRLP,
eins og hann er skammstafaður, var alltaf uppfullur af fáránlegum
loforðum. Til dæmis vildu þeir setja Loch Ness-skrímslið á lista yfir dýr
í útrýmingarhættu, banna Ástrík og tryggja það að Ozzy Osbourne
yrði aðlaður af drottningunni. Þrátt fyrir þetta grín var flokkurinn með
nokkur alvarlegri stefnumál og hafa nokkur þeirra orðið að lögum á
seinni árum, til dæmis að lækka kosningaaldurinn niður í átján ár. Í
gegnum árin hefur flokkurinn gert vel í ýmsum kosningum, mest þó
minni sveitarstjórna- og bæjarstjórakosningum. Þeim hefur þó lítið
orðið ágengt síðustu ár.
hin litríka tirana
n Það er spurning hvort Edi Rama teljist til grínframboðs en hann
er í það minnsta mjög óhefðbundinn pólitíkus. Rama var listmálari
áður en hann bauð sig fram til borgarstjóra Tirana sem er höfuð-
borg Albaníu. Hann hefur látið hafa eftir sér að borgarstjórastaðan
sé list í sinni tærustu mynd en Rama er virtur um allan heim. Hann
var til dæmis valinn af Time Magazine sem einn af 37 einstakling-
um í Evrópu sem hafa breytt heiminum til hins betra. Rama er ekki
síst frægur fyrir að skaffa íbúum borgarinnar ógrynni af málningu
til að gera borgina fallega og litríka. Honum fannst hún eitthvað
hálfgrá og slepjuleg þegar hann tók við árið 2000